Tíminn - 29.04.1947, Blaðsíða 3
79. blað
TÍMIIVN, þrigjMdagmm 29. apríl 1947
bankanna verSur að vera í sam-
ræmi við stefnu þings og stjórn-
ar í atvinnu- og fjárhagsmál-
um — það er hægt að tryggja í
framkvæmdimii, þar sem allir
bankarnir eru ríkiseign. Þótt
bankarnir geri sitt, þá verður
lánsfjáröflun mikið vandamál
á næstunni. Eins og ég sagði
áðan, er eignakönnun þar
fyrsta skrefið.
Dýrtföarvandamálið.
Stöðvun er aðeins
fyrsta skrefið.
Þá vil ég víkja að dýrtíðar-
málinu.
* Það er stefna ríkisstjórnar-
innar að vinna að því af alefli
að stöðva hækkun dýrtíðarinnar
og framleiðslukostnaðarins og
vinna að lækkun hans. í því
skyni verður leitað til samtaka
launastéttanna og samtaka
framleiðenda til sjávar og
sveita, til að gera ráðstafanir
gegn frekari vexti dýrtíðarinn-
ar og um leiðir til lækkunar.
• Það er samkomulag milli stjórn-
málaflokkanna að greiða nið-
ur fyrst um sinn vöruverð af
ríkisfé svo mikið, að vísitalan
hækki ekki frá því sem nú er.
Höfuðáherslan er lögð á að
stöðva fyrst hækkun dýrtíðar-
innar og vinna síðan að lækkun
hennar. Sú leið, að greiða nið-
ur aukningu dýrtíðarinnar, sem
stafar af verðhækkun erlendra
vara, er aðeins bráðabirgðaleið
á ineðan reynt er að skapa sam-
tök um frekari ráðstafanir, sem
flestir viðurkenna nú orðið að
verður að gera svo framarlega,
sem forða á frá algeru hruni,
stöðvun framkvæmda og at-
vinnuleysi.
Framsóknarflokknum er það
vel ljóst, að þær ráðstafanir,
sem gerðar hafa verið til bráða-
birgða í þessum efnum, eru ekki
fullnægjandi frambúðarráðstaf-
anir. En í þessu sambandi þyk-
ir rétt að undirstrika sérstak-
ieg'a,_ að Framsóknarflokkur-
inn vild’i samt sem áður vera
með í því að mynda samtökin
um þessa ríkisstjórn og þá fyrst
og fremst vegna þess, að honum
er ljóst, að fyrsta skrefið varð
að vera í því fólgið að stöðva
sig á barmi gljúfursins og aS
slík stöðvun var undirstaða þess
að hægt væri að rétta við. Aug-
ljóst var og, að fengjust engin
samtök gegn verðbólgunni nú,
þá hlaut hún að vaxa risa-
skrefum frá mánuði til mán-
aðar, og ástandið verða því ó-
viðráðanlegra sem lengra liði.
Fyrstu ráðstafanirnar gegn
verðbólgunni eiga að verða
stjórnin á fjárfestingunni,
framkvæmd verzlunarstefn-
unnar, sem ákveðin er í stjórn-
arsáttmálanum, eignakönnunin,
stöðvun i vísitölunnar með
bráðabirgðaúrræðum fyrst í stað
og almennt viðnám gegn öllum
ráðstöfunum, sem aukið geta
verðbólguna. Bráðl?.ga verða.
frekari ráðstafanir að koma til,
og kem ég að því síðar. En ég
vil leggja áherslu á, að hefðu
ekki náðst samtök nú i vetur um
fyrstu sporin, þá hefðu menn
nú þegar verið búnir að missa
öll tök £ þessum hiálum.
Það má vera, að þjóðin beri
ekki gæfu til að þola þær ráð-
stafanir, sem óhjákvæmilegt er
að gera áður en langt um líður,
ef koma á í veg fyrir algert öng-
þveiti. Færi svo, mundi kann-
ske margur segja, að þessi sam-
tök, 'sem nú hafa, verið gerð
um byrjunarspor, hefðu orðið
að litlu gagni. Ekki mundi ég
telja það réttmætt. Ég mundi
benda á það, að þessi samtök
hefðu þó gefið þjóðinni tæki
færi til þess að hugsa sig um
á síðustu stundu, örlagastundu,
(Framhald á 4. slðu)
Minningarathöfn
I tilefni af litför Kristjáus konuugs tí-
unda fer fram á vegum ríkisstjjórnar-
innar miðvikudaginn 30. apríl.
Atböfnin hefst í dómkirkjunni kl. 1,30
eflir bádegi.
Ríkisstjórn íslands
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför
Stefáns S. Rafnar,
skrifstofustjóra.
Sérstaklega viljum við þakka Sambandi íslenzkra sam-
vinnufélaga veitta aðstoð við útförina og virðingarmerki
við hinn látna.
VANDAMENN.
KRISTINN MAGNUSSON, Blönduósi.
Kaupfélög!
FJÖLYRKJÁR
Planet Junior nr. 11
Samband ísl. samvinnufélaga
Einar Kristjánsson
óperusöngvari
Ljóöa- og aríukvöld
í TRÍPÓLÍ í kvöld, 29. apríl, kl. 9.
Við hljóðfærið: Dr. V. Urbantschitsch.
Aðgöngumiðar í Ritfangaverzlun ísafoldar, Banka-
stræti, sími 3048 og Bókaverzlun ísafoldar, Austurstræti,
sími 4527.
iSifreiðastjjórafélagið Hreyfill.
Tilkynning
Allir sem hafa óselda happdrættismiða frá félaginu,
eru góðfúslega beðnir að gera skil fyrir mánaðamótin, í
síðasta lagi miðvikudaginn 30. apríl. Skrifstofa félagsins
er á Hverfisgötu 21, kjallaranum, opið kl. iy2 til 7 e. h.
daglega.
Munið að gera skil nógu snerxjma.
STJÓRAIN.
Halló! Halló!
Nú er hver síðæstur að grípa tækifærið til að styrkja gott
málefni og ef til vill eignast nýjan bíl um leið.
Kaupið happdrættismiða Hreyfils strax í dag, á morg-
un er það ef til vill of seint.
Dregið verður á fimmtudaginn.
HJARTANS ÞAKKIR til allra, sem heiðruðu mig og
glöddu á fimmtugsafmæli mínu með heimsóknum, heilla-
skeytum og höfðinglegum gjöfum.
Orðsending
til bifreiðaeigenda
Vegna margítrekaðra fyrirspurna um það, hvort félög vor muni taka upp sama fyrir-
komulag á bifreiðatryggingum eins og Samvinnutryggingar, viljum vér hér með tilkynna,
að vér munum ekki að svo stöddu gera það, meðal annars sökum þess, að vér álítum það
vafasaman hagnað fyrir viðskiptavini vora, að gefa þeim von um endurgreiðslu, ef engin
tjón verða, þar sem því hlyti að fylgja kvöð um greiðslu á aukaiðgjaldi, ef halli verður á
j tryggingum, eins og Samvinnutryggingar hafa áskilið sér skv. auglýsingu í Lögbirtinga-
i
!
I
í
blaðinu, þann 26. sept. 1946, þar sem stendur:
„Verði um aff ræffa meiri halla á rekstrinum en svo, aff hann
verffi bættur úr varasjóffum, skal ieggja aukaiffgjald á trygging-
artaka stofnunarinnar, þó eigi hærri en svo, aff nemi árlega
helmingi hins árlega iffgjalds, sem tiltekiff er í vátryggingarskír-
teinunum.“
Eins og mönnum er kunnugt hafa félög vor ekki innheimt slík aukaiðgjöld, enda þótt
halli hafi verið á tryggingunum.
Þess skal ennfremur getið, að Samvinnutryggingar eru aðilar að iðgjaldahækkun þeirri,
sem ákveðin var frá og með 14. april 1947.
Sjóvátryggingarfélag íslands h.f.
Almennar tryggingar h.f.
Samkvæmt ákvörðun
aðalfundar KRON
veröa verzlanir, verksmiðjur og skrifstofa félagsins
LOKAÐAR ALLM DAGIXK 1. MAf. '
Aiðskiptainenn vorir eru jiví vinsamlega lieftnir að haga inii-
kaupum síiium samkvæmt |iví.
KRON
M.s. Dronnini
Alexandrine
fer héðan um 7. maí. Þeir, sem
fengið nafa loforð fyrir fari,
sæki farseðla föstudaginn 25.
apríl fyrir kþ 5 e. h., annars
seldir öðrum.
íslenzkir ríkisborgarar sýni
vegabréf frá lögreglustjóranum.
Erlendir ríkisborgarar sýni
skírteini frá borgarstjóraskrif-
stofunni.
SKIPAAFGREIÐSLA
JES ZIMSEN.
(Erlendur Pétursson).
--------------f----------
Vínnið ötullega fyrir
Tímann.
AÐALFUNDUR
Flugfélags Islands h.f.
verður haldinn í Oddfellowhúsinu (uppi) í Reykjavík
föstudaginn 30. maí 1947, kl. 2 e. h.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
Afhending aðgöngumiða og atkvæðamiða fer fram í
skrifstofu félagsins í Lækjargötu 4, Reykjavík, dagana
28. og 29. maí.
STJÓIHVIA.
Góðar kýr til sölu
í vor verða til sölu, ef umsemst, nokkrar góðar mjólkur-
kýr á Páfastöðum í Skagafirði.
Albert Kristjánsson.
*