Tíminn - 13.05.1947, Page 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARIN SfSON
ÚTGEPANDI:
FRAMSÓKN ARFLOKKHRINN
Simar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA hJ.
ITTSTJÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Lindargötu 9 A
Simar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötii 9A
Siml 2323
31. árg.
Reykjavik, þriðjudagiim 13. mai 1947
86. Eilað
Skáldskapur Jónasar Jónssonar
um flutning Samvinnunnar
IJtgáfa seinustu hefta fyrra árgangs hefir
eingöngu tafizt vegna wdugnaðar J. J. sjálfs
í -seinasta hefti Ófeigs reynir Jónas Jónsson að afsaka það
sleifarlag, sem orðið hefir á útgáfu Samvinnunnar á seinasta ári.
Aðalafsökun hans er söguburður þess efnis, að þún hafi ekki
fengist prentuð í Edduprentsmiðjunni, vegna Tímans, og því
hafi hún verið flutt til Akureyrar. Söguburður þessi er algerlega
tilhæfulaus, eins og flest af því, er í Ófeigi stendur.
Samvinnan átti að koma út
tíu sinnum á síðastl. ári, eða
eitt hefti mánaðarlega fyrstu
sex mánuði ársins og síðustu
fjóra mánuði ársins. Fyrstu sex
heftin komu út nokkurn veginn
reglulega, enda var Jón Eyþórs-
son þá meðritstjóri Samvinn-
unnar, en hann lét af því starfi
á miðju ári. J. J. varð þá einn
ritstjóri Samvinnunnar. Þegar
heftin, sem áttu að koma út í
september og október, voru ekki
komin út í nóvember mun
stjórn •&. í. S. hafa farið að
grennslast eftir því hjá ritstjór-
anum, hverju þetta gegndi.
Hann Jcenndi prentsmiðjunni
um. í tilefni af því skrifaði
Edduprentsmiðja S. í. S. svo-
hljóðandi bréf, dagsett 12.
nóvember síðastl.:
„Vér erum mjög undrandi yfir
því, að ritstjóri Samvinnunnar
skuli hafa snúið sér til Sís út af
prentun Samvinnunnar svo sem
greinir í bréfi yðar dags. í gær.
Um miðjan október kom
fyrsta handrit í haust frá J. J.,
11—12 blöð. Enda þótt það
handrit, eins og önnur frá J. J.
væri ólæsilegt, nema einum
manni í prentsmiðjunni, var það
sett þá strax og próförk send.
Kom hún nokkrum dögum síð-
ar og þá með henni eitt hand-
ritsblað skrifað og var það sett
þá strax. — Annað efni í ritið
hefir ekki frá J. J. komið og
fyllir þetta framantalda 7y2 síðu.
Til viðbótar hafa komið, all-
löngu síðar en að framan grein-
ir, handrit aðsend, sem fylla ca.
61/2 síðu og eru þau öll sett. Hafa
þá alls komið í ritið í haust
handrit á ca. 14 síður auk
ERLENDAR FRÉTTIR
Fulltrúadeild Bandaríkjanna
hefir samþykkt frv. um lánveit-
ingu til Grikkja og Tyrkja með
287:107 atkv. Öldungad. hefir1
samþykkt frv. áður. Búist er við,
að forsetinn staðfesti lögin nú í
vikunni og jafnskjótt verði haf-
izt handa um framkvæmd lag-
anna.
Störfum aukaþings samein-
uðu þjóðanna miðar hægt
áfram. Seinustu dag;ana hefir
verið deilt um skipun og verk-
svið nefndar þeirrar, sem á að
skila áliti um Palestínumálin
fyrir reglulegt þing sameinuðu
þjóðanna I haust.
Alþjóðleg bændaráffstefna
hófst í Póllandi í gærdag.
Alþjóðabankinn hefir veitt
, fyrsta lán sitt, sem var 250 milj.
dollara lán til Frakka. Láns-
beiðnir þær, sem bankanum
hafa borizt, nema 2554 milj. kr.
Uj;anríkisnefnd öldungadeild-
arinnar í Bandaríkjunum hefir
mælt samhljóða með því, að
deildin staðfesti friðarsamn-
ingana, sem gerðir hafa verið
við bandamenn Þjóðverja í
stríðinu. Óttast var, að deildin
fengist ekki til að staðfesta
samninginn við Ítalíu.
Pravda hefir skýrt frá því, að
í styrjöldinni hafi manntjón
Rússa numið 7 milj., en eigna-
tjónið sé metið 679 miljarðar
rubla.
mynda og fyrirsagna, en eitt
hefti af Samvinnunni er 32
síður. Allar myndir eru ókomn-
ar. Ritstjórinn hefir aldrei talað
við verkstjóra vorn um ritið á
þessu hausti.
Það hefir ekkert á prentsmiðj-
unni staðið, og hún hefði getað
prentað ritið reglulega í haust,
ef efni hefði komið í tæka tíð.
í fyrravetur var gert sam-
komulag um, að handrit í hvert
hefti kæmi sem mest í einu lagi
fyrstu viku hvers mánaðar svo
að hægt væri að vinna ritið í
einu lagi greiðlega. í haust hef-
ir ekki á neinn hátt verið um
þetta hugsað af ritstjóra, eins
og aö framan greinir.
Vér munum ætið gera það, sem
vér getum fyrir Samvinnuna og
látum hana hafa forgöngu fyrir
öðru. Hitt er svo annað mál, að
ókleift er að ljúka 4 heftum á
iy2 mánuði i jólaösinni, en búið
er að láta líða ónotaðan þann
tíma, sem Jjoma átti út 2—3
heftum.
Vér munum gera allt, sem vér
getum, til þess að afgreiða sem
mest af Samvinnunni fyrir ára-
mót, enda verði handritum skil-
að inn reglulega í hvert hefti,
prófarkir lesnar og sagt fyrir
um umbrot þannig, að allt geti
gengið sem greiðlegast. Það ætti
aftur á móti að vera augljóst, að
með þeim vinnubrögðum af
hendi ritstjórans, sem verið
hafa í haust, verður ekkert
komist áleiðis með ritið í prent-
smiðjunni.“
Eins og þessi skýrsla prent-
smiðjunnar sýnir, stafaði drátt-
urinn á útkomu Samvinnunnar
eingöngu af ódugnaði ritstjór-
ans, þar sem 12 nóvember var
ekki kominn í prentsmiðjuna
nema tæpur helmingur efnis-
ins, sem átti að vera í septem-
berheftinu, ekkert efni var
komið í októberheftið og þá vit-
anlega enn síður í nóvember-
heftið, sem átti að setjast í
byrjun mánaðarins.
Þetta er þó ekki öll sagan.
Þann 19. nóvember er ekki kom-
ið meira efni í septemberheftið
en sem svarar 24 síðum, en það
átti að vera 32 síður alls. Síðan
smátíndust handrit frá J. J.,
unz komið var nóg efni á 40
síður. Ákvað þá J. J., að sept-
ember- og októberheftin skyldu
koma út í einu lagi og ekki verða
stærri en þetta eða 24 síðum
minni en ætlazt var til upphaf-
lega. Setningu var yfirleitt lokið
jafnóðum og handritin bárust.
Til viðbótar stóð á próförkum
frá J. J. og kom fyrst 31. des frá
honum próförk af einni grein
inni, er var búin að liggja hjá
honum í næstum tvo mánuði
Það var loks um 7. janúar, er
þetta hefti Samvinnunnar var
tilbúið til prentunar frá J. J.
Enn er þessari sögu þó ekki
lokið, því að J. J. átti nú eftir að
koma út, nóvember- og des-
emberheftunum, er hann ákvað
að hafa í einu lagi. Fyrstu hand-
ritin komu frá honum í byrjun
janúar, en síðan var hlé í næst
um tvo mánuði. Síðan hefir
hann smámilgrað úr sér hand-
ritum, sem prentsmiöjan hefir
sett næstum jafnóðum og síðan
rekið eftir nýjum handritum.
Seinasta handritið frá J. J., sem
(Framhald á 4. síðu)
Samband íslenzkra samvinnufélaga
byrjar myndarlega bókaútgáfu
Á sumardaginn fyrsta
Merkilegt spor í sögu íslenzku
samvinnuhreyfingarinnar
Samband íslenzkra samvinnufélaga er um þessar mundir aff
hefja myndarlega bókaútgáfu. Festi það í vetur kaup á bóka-
útgáfunni Norffra, og eru fyrstu bækurnar eftir eigendaskiptin
í þann veginn að koma fyrir almennings sjónir. íslenzkir sam-
vinnumenn munu einhuga fagna þessu merkilega spori í sögu
samvinunnuhreyfingarinnar hér á landi, er nú hefir veriff stigiff.
Samvinnuhreyfingin er alhliða þjófffélagshreyfing, sem byggir á
fræðilegum og menningarlegum grunni, og þróttmikil bókaútgáfa
getur orðiff ein af styrkustu stoðum hennar, þegar fram líffa
stundir.
Þessar myndir, er Tíminn birtir í dag, voru teknar á ísafirði á sumardag-
inn fyrsta. Þær lýsa betur en orð þeim snjóþyngslum, er þar hafa verið í :
vetur. Svipaðar myndir hefði sjálfsagt verið hægt að fá víða að af land- |
inu. Enn er víða mikill snjór, ekki sízt norðan lands og austan. Það er til
dæmis, að menn er áttu leið yfir Vaðlaheiði fyrir skömmu, gátu klofað |
yfir símalínurnar.
Avar p
Nefndir þær, sem ríkisstjórnin hefir skipaff til affstoffar
búendum á öskufallssvæffinu, betina þeirri áskorun til
almennings, a.ff leggja fram sjálfboffavinnu til hreinsunar
vikurs og ösku af túnum og í kring urn bæi.
Um fyrri helgi gekkst Litla-Ferðafélagið fyrir slíkri
sjálfboffavinnu laugardag og sunnudag og sýndi sú tilraun,
að sjálfboffavinna getur verið mikilsverð hjálp til að bjarga
nytjagróðri á véltækum túnum frá eyffileggingu, og til lag-
færingar umhverfis bæi og önnur hús, þar sem vikurinn
hefir safnazt saman og veldur því margs konar óþægindum
fyrir heimilin.
Æskilegt væri að fólk, er þátt vill taka í þessu viffreisnar-
starfi, sameini sig í 20—40 manna flokka og léti nefndun-
um í té vitneskju, meff nokkrum fyrirvara, hvenær þeir
gætu unniff.
Brýnust þörf er aff vinna þessi yrði framkvæmd í þessum
mánuffi, en þó gæti slík vinna komið' aff liði í byrjun júní-
mánaffar.
Forgöngumenn slíkrar sjálfboffavinnu geta fengið allar
nánari upplýsingar hjá Búnaffarfélagi íslands og sýslu-
skrifstofunni í Rangárvallasýslu.
Steingrímur Steinþórsson
Geir G. Zoega
Pálmi Einarsson
Björn Björnsson
Sveinbjörn Högnason
Guffmundur Erlendsson.
Svíar heiðra Einar Frarasóknarvist
Jónsson
Svíakonungur sæmdi hinn 22.
apríl s.l. Einar Jónsson mynd-
höggvara heiðurspeningi Eugens
prins fyrir framúrskarandi
listastörf.
Sendiherra íslands í Stokk-
hólmi veitti heiðurspeningnum
móttöku fyrir hönd myndhöggv-
arans í miðdegisveizlu hjá
Eugen prins.
á föstudaginn
Vegna fjölda áskorana hafa
Framsóknarfélögin í Reykjavík
ákveðið að efna enn á ný til
Framsóknarvistar í samkomu-
sal Mjólkurstöðvarinnar föstu-
daginn 16. maí n. k. kl. 8,30
stundvíslega. Verða auk vistar-
innar skemmtiatriði og verða
þau auglýst síðar.
Óskað er eftir, að þeir, sem
ætla að sækja þessa samkomu,
Samband islenzkra samvinnu-
félaga hefir um langt skeiff unn-
ið ómetanlegt starf á verzlunar-
sviðinu, landi og lýð til heilla.
Þaff hefir flutt inn góffar og
ódýrar vörur, er komiff hefir
verið í hendur neytenda meff
stórum hagkvæmari hætti en
önnur viðskiptafyrirtæki gera.
Þaff hefir haft forgöngu um
vinslu og sölu margvíslegra af-
urffa, er því hefir auffnazt aff
gera verffmætari og auðseljan-
legri en áður. En maffurinn lifir
ekki af brauðinu einu saman, og
meff það í huga hafa forráða-
menn S. í. S. ákveðvð aff hefja
bókaútgáfu. Það er markmið
þeirra að sjá landsmönnum fyrir
góffum, ódýrum og nytsömum
bókum á hliffstæffan hátt og S. í.
S. hefir aflaff neytendum góðra
og ódýrra vara undanfarna ára-
tugi. íslenzk alþýða þarf góffar
bækur aff lesa, eins og hún þarf
mjöl í brauff.
Þegar farið var að athuga
möguleika á bókaútgáfu af
hálfu S. í. S., kom fljótt í ljós,
að hentara myndi að kaupa
bókaútgáfu en stofna nýja.
Komu þar fyrst og fremst til
greina erfiðleikar þeir, sem nú
eru á þvi að fá bækur prentaðar,
auk þess sem það hlýtur að taka
langan tima að koma myndar-
legri bókaútgáfu á laggirnar, ef
byggja á allt frá grunni. Varð
þess vegna að ráði, að S. í. S.
keypti bókaútgáfuna Norðra, er
hefir fasta samninga um prent-
un við hið myndarlega prent-
verk Odds Björnssonar á Akur-
eyri. Verður Norðri framvegis
rekinn sem sjálfstæð deild inn-
an S. í, S., og hefir ungur bók-
menntafræðingur, Kristján
Karlsson frá Húsavík, verið ráð-
inn bókmenntalegur ráðunautur
fyrirtækisins, en framkvæmda-
stjórn verður í höndum Alberts
Finnbogasonar, eins og "verið
hefir.
Það er óhætt að segja, að
Norðri hafí haft nokkra sér-
stöðu meðal íslenzkra bókaút-
gáfufyrirtækja, hvað val bóka
snerti. Bókaútgáfan Norðri lagði
alltaf áherzlu á að gefa út bæk-
ur, sem brýndu kjark og þor og
stuðluðu að aukinni sjálfsvitund
og auknu sjálfstrausti þeirra, er
þær lásu — ekki sízt bænda-
stéttarinnar. Alþýðu manna
hefir fallið þetta sjónarmið vel
í geð, því að fullyrða má, að
Norðri hafi náð meiri vinsæld-
um en flestar aðrar bókaútgáf-
ur hér á landi. Mun þetta sjón-
ai’mið verða ráðandi í framtíð-
inni, þótt nú séu orðin eigenda-
skipti.
Tíðindamaður Tímans hitti
panti aðgöngumiða fyrir
fimmtudag í síma 2323, og sæki
pantaða miða fyrir kl. 6 e. h. á
föstudag. Verður þessi samkoma
hin síðasta, sem Framsóknar-
félögin efna til á þessu starfs-
ári.
þá Albert og Kristján á dögun-
um, er Kristján var nýkominn
hingað til Reykjavíkur til þess
að taka við hinu nýja starfi
sínu.
— Norðri er gamalt og gróið
fyrirtæki, sagði Albert. Það eru
rúm tuttugu ár síðan fyrsta
Norðrabókin kom út. Það var
skáldsagan Stórviði eftir norska
rithöfundinn Sven Moren,
þýdd af Helga Valtýssyni. Meðal
annars,, sem kom út á þessum
fyrstu árum, get ég nefnt fyrstu
bókina eftir A. J. Cronin, er út
kom á íslenzku, Hér skeður
aldrei neitt. Norðri færðist ekki
verulega í aukana fyrr en eftir
1940. Árið '1942 komu Söguþættir
landpóstanna út, og síðan hver
stórbókin af annarri.
— Hvaða bækur og bókaflokka
hefir verið ákveðið að gefa út
næstu misseri?
— Það má segja, að tilgangur-
inn með þessari bókaútgáfu S. í.
S. sé tvíþættur, svaraði Kristján.
í fyrstá lagi mun hún gefa út
góðar og eftirsóknarverðar bæk-
ur almenns efnis, eins og Albert
hefir vikið að, jafnt innlendar
sem erlendar, og mun verða
reynt að stilla verðinu í hóf eftir
megni. En jafnframt á hún að
bæta úr tilfinnanlegum skorti á
íslenzkum bókum um störf og
stefnumál samvinnumanna hér-
lendis 05: e^endis. Að vísu hefir
S. í. S. gefið út allmikið af bók-
um og bæklingum um slík mál,
en þessi starfsemi hefir ekki
verið svo samfelld og skipuleg
sem .skyldi. Meðal bóka af þessu
tagi, er koma út, áður en langt
um líður, get ég nefnt ritið
Samvinnan í Bretlandi eftir
sænska rithöfundinn Thoi'sten
(Framhald á 4. síðu)
Forseti íslands undir
læknishendi
Samkvæmt símskeyti sem ut-
ani'íkisráðuneytinu hefir borizt
frá Jóhanni Sæmundssyni yfir-
lækni og Vilhjálmi Finsen
sendihgrra framkvæmdi próf-
essor John Hellström á Karol-
inska sjúkrahúsinu í Stokk-
hólmi þ. 9. þ. m. minniháttar
aðgerð á forseta íslands vegna
lasleika, sem gerði vart við sig
í desember s.l. Tókst aðgerðin
vel og er forseti hress og hita-
laus og líðan hans óaðfinnanleg.
Ráðgert er, að forseti verði
enn nokkra daga á sjúkrahúsi,
en dvelji þvínæst eitthvað sér
til hressingar í Svíþjóð.
Tíminn
kom ekki út síffustu þrjá daga
liðinnar viku sökum breytinga,
er var veriff að gera í prent-
smiffjunni.