Tíminn - 17.05.1947, Side 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARENSSON
ÚTGEFANDI:
FR AMSÓKN ARFLOKKURINN
Símar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA hi.
31. árg.
Reykjavík, laugardagiim 17. maí 1947
liITSTJÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚ3I. Llndargötu 9 A
Símar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargöw 9A
Siml 2323
89. blað
ERLENT YFIRLIT:
Stjórnarkreppan í Finnlandi
Hún hefir hlotizt af óheilindum
kommúnista
Stjórnarkreppunni í Finnlandi, sem staðið hefir á annan mánuð,
hefir nú lyktað með því, að forsetinn hefir ákveðið að efna til
þingkosninga. Munu þær sennilega fara fram í næsta mánuði og
er nú verið að gera víðtækar ráðstafanir til tryggingar því, að
þær geti farið friðsamlega fram.
DE GAULLE
De Gaulle flutti eina af ræð-
um sínum, þar sem hann ham-
aðist gegn hinni nýju stjórnar-
skrá Frakka, á sunnudaginn var.
Hann er nú búinn að halda all-
margar slíkar ræður síðan hann
hóf þessa nýju sókn sína um
páskaleytið. Hin nýju samtök
hans hafa þe!gár náð mikilli
þátttöku_og ýmsir telja ekki ó-
líklej/t, að hann hafi möguleika
til að komast til valda á ný, ef
stjórn Ramadiers misheppnast.
Aðrir óttast, að þá geti komið til
blóðugra átaka milli áhangenda
hans og kommúnista og verði
Tildrög stjórnarkreppunnar
eru vaxandi kaupkröfur af hálfu
verkamanna. Ýms félög, sem
hafa lotið yfirstjórn kommún-
ista, byrjuðu í vetur að segja
upp samningum og hótuðu með
verkföllum, ef ekki yrði fallizt
á kröfur þeirra um kauphækk-
anir. Jafnaðarmenn undu þessu
illa og tilkynntu forsætisráð-
herranum, að þeir álitu slíkt
brot á samningnum um stjórn-
arsamvýanuna. Kommúnistar
svöruðu með því, að þeir vildu
gjarnan hafa samvinnu við
jafnaðarmenn um samræmingu
kaupgjaldsins með hækkun
fyrir augum, en jafnhliða yrðu
gerðar ráðstafanir til að halda
verðlaginu niðri. Þegar hér var
komið, lýsti þriðji stjórnar-
flokkurinn, bændaflokkurinn,
yfir því, að hann teldi mál þessi
komin í það óefni, að hann áliti
sér ekki fært að taka þátt í
stjórnarsamvinnunni lengur og
drægi því ráðherra sína til baka.
Pekkala forsætisráðherra, sem
nánast tilheyrir flokki komm-
únista, þótt hann teljist ekki
formlega til hans, baðst þá
lausþar fyrir allt ráðuneyti sitt.
Gerðist það snemma í síðastl.
mánuði.
Patasikivi forseti fór þess fyrst
á leit við aðalforstjóra Finn-
landsbanka, að hann tæki að
sér stjórnarmyndun. Hann er
ungur maður, 36 ára gamall, er
tilheyrir Framsóknarflokknum
svonefnda, en það er flokkur
Ryti fyrrv. forseta. Hann til-
heyrði þeim armi flokksins, er
var andstæður styrjöldinni við
Rússa, og hefir hann því verið
vel séður af þeim. Kommúnistar
lýstu líka yfir í fyrstu, að þeir
gætu vel sætt sig við stjómar-
forustu hans, en rétt á eftir
var ráðist á hann í rússneska
blaðinu Pravda. Daginn eftir, að
erfitt að spá um úrslitin. Fram
tíð Frakklands virðist velta Srein þessi birtist í Pravda,
mjög á því, að núv. stjórnar- lýstu kommúnistar yfir því, að
samstarf miðflokkanna heppn- Þeir uiyndu ekki fara í stjórn
iSt. ,undir forustu hans. Síðan hefir
það gengið þannig, að einhver
A myndinni hér að ofan sést stóru flokkanna hefir jafnan
de Gaulle vera að flytja eina af neitað að styðja það forsætis-
ræðum sínum.
ERLENDAR FRETTIR
Öldungadeild Bandaríkja-
þings hefir samþykkt að veita
350 miljónir dollara til hjálpar-
starfsemi, þar sem hungurs-
neyðin er mest. Framlag þetta
er óháð lánveitingunum til
Grikkja og Tyrkja.
Stjórn Bandaríkjanna hefir
lofað að greiða fyrir auknum
matvælaflutningum til Þýzka-
lands.
í Palestfnu voru unnin ýms
minn/háttar skemmdarverk um
seinustu helgi. Einn óaldar-
flokkur Gyðinga hefir hótað
að hengja hvern þann brezkan
hernvmnv sam hann nær í.
Á aukaþingi sameinuðu þjóð-
anna hefir Gromiko lagt til, að
Palestína verði sjálfstætt ríki
með jöfnum rétti Araba og Gyð-
inga. Náist hins vegar ekki sam-
komulag milli þessara aðila,
verði henni skipt í tvö ríki og
ráði Arabar öðru, en Gyðingar
hinu.
ráðherraefni, sem forsetinn
hefir bent á. Niðurstaðan hefir
því orðið sú, að forsetinn hefir
talið sig nauðbeygðan að efna
til þingkosninga, þótt hann hafi
lýst því yfir, að það myndi verða
sér mjög ógeðfellt.
Það ræður tvímæíalaust mest
um þessi málalok, að samstarfs-
flokkar kommúnista í fráfar-
andi ríkisstjórn telja þá hafa
starfað af miklum óheilindum
og vilj a því helzt ekki hafa sam-
starf við þá. Það kann og aö
hafa ráðið nokkru, að kosning-
ar í verkalýðsfélögum og
kaupfélögum virðast benda til,
að fylgi kommúnista sé 1 rénun.
Vafasamt þykir þó, að komm
únistar veúSi útilokaðir frá þátt-
töku í þeirri ríkisstjórn, sem
verður mynduð eftir kosning-
arnar. Eins og fjárhagsmálum
landsins og aðstöðu þess í utan-
ríkismálum er háttað, myndu
kommúnistar geta reynzt mjög
háskalegir í stjórnarandstöðu.
Setji þeir hins vegar lítt að
gengileg skilyrði fyrir stjórnar-
þátttöku sinni, er þó talið lík
legt, að hinir flokkarnir freisti
heldur að hafa þá utanborðs.
Frá hópgöngu danskra hásmæðra
Konur í Kaupmannahöfn efndu nýlega til hópgöngu að Kristjánsliöll.
Báru þær dúka mikla með áletrunum og áskorunum til stjórnarvaldanna
um lagfæringar á ýmsu, sem miður fer þar í landi. Á fremsta dúkinn hér á
myndinni er letrað: Við höfum rúlluskauta, en engin lök. En það þykir
d önskum húsfreyjum að vonum einkennileg stjórnvizka hjá innflutnings-
yfirvöldum landsins.
Yantraustið:
Sósíalistar vildu
ekki útvarp!
Vantrauststillaga sósíalista
var til umræðu í sameinuðu
þingi í gær. Það vakti athygli,
að sósíalistar óskuðu ekki eftir
útvarpsumræðum um tillöguna,
enda munu þeir vera búnir aö
fá nóg af slíku.
Af hálfu sósíalista töluðu þeir
Einar Olgeirsson og Lúðvík Jós-
efsson og voru heldur daufir í
dálkinn. Forsætisráðherra varð
einn fyrir svörum. Kvað hann
þessa tillögu ekki koma á óvart,
því að sósialistar hefðu boðað
hana strax, þegar stjórnin var
mynduð, án þss að þeir hefðu
haft nokkuð sérstakt við stjórn-
arsáttmálann að athuga.
Einar Olgeirsson rökstuddi
vantraustið einkum með þeirri
forsendu, að stjórnin myndi ekki
verða nógu skelegg við auð-
kýfingana, en ástandið væri
slíkt í þeim málum eftir tveggja
ára stjórnarþátttöku sósíalista,
að 100 félög og einstaklingar
ættu f jórðunginn af öllum eign-
um Reykvíkinga.
Atkvæðagreiðslan um tillög-
una fór þannig, að hún var
felld með 39:10 atkvæðum. Tveir
þingmenn (Pétur Ottesen og
Skúli Guðmundsson) voru ekki
í bænum, en einn (Páll Zóphón-
íasson) greiddi ekki atkvæði.
Fimm þingmenn, sem greiddu
atkvæði gegn tillögunni (Her-
mann Jónasson, Gylfi Þ. Gísla-
son, Hannibal Valdimarsson,
Jónas Jónsson og Jón Pálma-
son), gerðu sérstaka grein fyrir
atkvæði sínu. Sósíalistar einir
voru með tillögunni.
Fjársöfnunardagur
Mæðrastyrksnefndar
er á morgun
Miiuilzt starfs inæðra-
styrksiicfitdarliinar
Á morgun er hinn árlegi
fjársöfnunarðagur mæðra-
styrksnefndar. Þann dag er
þess vænzt, að Reykvíkingar
minnist þess, sem mæðra-
styrksnefnd hefir gert fyrir
fjölmargar reykvískar mæður
á liðnum árum, og láti af
hendi rakna nokkra fémuni
við nefndina.
Mæðrastyrksnefnd skipa tutt-
ugu konur, fulltrúar allra kven-
félaganna í Reykjavík. Átti tíð-
indamaður Tímans í gær tal við
eina nefndarkonu, frú Stein-
unni Bjartmarz.
— Mæðrastyksnefnd hefir
starfað um alllangt skeið, mælti
(Framhald á 4. síðu)
Það er kominn tími til
að hefjast handa um
skógrækt á íslandi
Skógræktarfélag íslands fékk
rikisútvarpið að nokkru leyti til
sinna afnota í fyrrakvöld. Fluttu
þar ræður Bjarni Ásgeirsson
landbúnaðarráðherra, Valtýr
Stefánsson ritstjóri, Hákon.
Bjarnason skógræktarstjóri óg
Guðmundur Marteinsson verk-
fræðingur. En auk þess las
Andrés Björnsson upp úr endur-
minningum séra Ásmundar
Gíslasonar frá Hálsi. Var út-
varpsefni þetta bæði hvetjandi
og skemmtilegt.
Tilraunum okkar íslendinga
um skógrækt hefir nú þokað á
það stig, að tímabært er orðið
að hefjast handa um stórfelldar
framkvæmdir. Því verður ekki
lengur á móti mælt, að hér má
rækta skóg með góðum árangri
— ekki aðeins til mikils fegurð-
arauka, heldur einnig til nytja.
En til þess þarf fé, eindreginn
vilja og talsverða þrautseigju.
Hvar eru nú allir þeir, sem tal-
að hafa svo fagurlega um skóg-
ræktardrauma sína á undan-
förnum áratugum, ef enn á að
halda að sér höndum árum
saman? Hver er sá aðili, er
hefir úrræði og manndóm til
þess að tryggja skógræktinni
nauðsynlegt starfsfé?
Mjólkureftirlitið aukið
með nýrri reglugerð
Edvard Friðriksson mjólkurfræðingur
ráðinn eftirlitsmaður
í tilefni af þeirri fregn, aff Eysteinn Jónsson heilbrigðimálaráð-
herra hafi vikið Sigurði Péturssyni gerlafræðingi fyrirvaralaust
úr embætti, gaf ráðherrann skýrslu um þetta mál utan dagskrár
í neffri deild í gær.
Aðalatriðin í skýrslu ráðherr-
ans voru þessi:
Sigurður Pétursson er skip-
aður starfsmaður atvinnudeild-
ar Háskólans og heldur þvi starfi
áfram. Það er byggt á fullkomn-
um misskilningi, að honum hafi
verið vikið úr því. Hann mun
vinna þar framvegis sömu störf
og áður, en það mun m. a. vera
verkefni hans þar að rannsaka
þau mjólkursýnishorn, sem
þangað eru send.
| Jafnhliða aðalstarfi sínu í at-
, vinnudeildinni hefir Sigurður
I annast upptöku mjólkursýnis-
horna hér í bænum sem auka-
starf. Þegar ég tók við starfi
heilbrigðismálaráðherra, hafði
i verið gefin út ný heilbrigðis-
, reglugerð, þar sem ákveðið var,
að héraðslæknar önnuðust þetta
verkefni. Ennfremur var ákveð-
ið í reglugerðinni, að ráðherra
skipaði eftirlitsmann, er væri
heilbrigðisyfirvöldunum til að-
stoðar á þessu sviði, bæði hér í
Reykjavík og úti á landi. Mér
bárust tilmæli frá ýmsum aðil-
um, m. a. Húsmæðrafélagi
Reykjavíkur, að láta þetta ekki
verða aukastarf, þar sem hér
væri um svo mikið verkefni að
ræða, og féllst ég á þá skoðun.
í samræmi við það réði ég Þór-
hall Halldórsson mjólkurfræð-
ing til að taka þetta starf að
sér, en honum barzt tilboð um
annað starf, sem hann kaus
heldur. Réði ég þá Edvard Frið-
riksson mjólkurfræðing til að
gegna þessu starfi.
Aukastarf Sigurðar Péturs-
sonar féll raunverulega niður
með setningu nýju reglugerðar-
innar, þar sem héraðslæknum
var falin upptaka sýnishorna af
mjólk. Hins vegar mun Sigurður
halda áfram aðalstarfi sínu, sem
er m. a. efnagreining mjólkur-
sýnishornanna. Með hinni nýju
skipan er ráðgert að auka og
fullkomna mjólkureftirlitið, þar
Búnaðarsamb. Suðurlands hefir
komið á jarðræktar- og húsa-
gerðarsamþykktum
Frá aðalfundi sambandsins
Aðalfundur Búnaðarsambands Suðurlands var nýlega haldinn
að Selfossi. Á fundinum voru rædd mörg áhugamál bænda og
kom fram á fundinum mikill áhugi fyrir auknum framkvæmd-
um á sviffi landbúnaðarins á grundvelli laganna um jarðræktar-
og húsagerðarsamþykktir.
Aðalfund Búnaðarsambands
Suðurlands sátu 45 kjörnir full-
trúar, auk stjórnar, ráðunauta
og gesta.
Formaður sambandsin, Guð-
mundur Þorbjarnarson á Stóra-
Hofi, lagði fram reikninga sam-
bandsins og skýrði frá starf-
semi þess á seinasta ári, en hún
var allumfangsmikil..
Á árinu var sambandssvæðinu
skipt niður í jarðræktarsvæði og
tveim mönnum bætt í stjórn
þess, sem nú er skipuð fimm
mönnum, 2 úr Árnessýslu, 2 úr
Ranr/árvallasýslu og einum úr
Vestur-Skaftafellssýslu.
Hjalti Gestsson frá Hæli hefir
verið ráðinn búfjárrræktar-
ráðunautur sambandsins. Á
aðalfundinum voru samþykkt-
ar húsagerðarsamþykktir fyrir
búnaðarsambandið.
Niðurstöðutölur fjárhagsáætl-
unar eru 116.800 krónur. Helztu
tekjur eru 65 þús. kr. frá Bún-
aðarmálasjóði 32 þús. kr. frá
Búnaðarfélagi íslands, 15.500 kr.
frá bflnaðarfélögum sambands-
(Framhald á 4. slðu)
Edvard Friðriksson.
sem yfirumsjón samkv. hinni
nýju regliygerð er falin manni,
sem rækir það sem aðalstarf.
Skólafólk, sem á
margt ólaert
Bókabrenna í gagn-
fræðaskóla Reyk-
víkinga
Þau fáheyrðu tíðindi gerðust
á þriðj udagskvöldið var, að
nemendurnir í neðri bekkjum
gagnfræðaskóla Reykvíkinga
söfnuðust saman við skólahúsið
með námsbækur sínar í dönsku.
Kveyktu þeir bál á lóðinni bak
við skólahúsið og báru dönsku-
bækurnar á það, þegar allir voru
komnir á vettvang, er þátt tóku
í þessari_ bókabrennu.
Þetta munu spánýir siðir hér
á landi-Qg virðist vera leyfilegt
að álykta sem svo, að þessu
æskufólki veiti ekki af að nema
og mannast.
Eignakönnunar-
frumvarpið lagt
fram um helgina
Að því er Tíminn hefir frétt
mun frumvarp ríkisstjórnarinn-
ar um eignakönnun verða lagt
fram á Alþingi á morgun eða
mánudaginn kemur.
Samkvæmt frv. munu ríkis-
skuldabréf til 25 ára með 1%
vöxtum eiga að vcra til sölu í
nokkrar vikur, eftir að frum-
varpið hefir hlotið samþykki
þingsins, og er þeim, sem brot-
legir hafa gerzt við skattalögin
heimilað að kaupa þessi bréf
fyrir það fé, er þeir hafa dregið
undan skatti. Þegar þessi frest-
ur er liðinn, mun ríkisstjórnin
láta fara fram eignakönnun,
þegar henni þykir bezt henta.
/