Tíminn - 23.05.1947, Síða 4
t-RAMSÓKNARMENN!
Mlltll6 að koma í flokksskrifstofuna
REYKJAVÍK
Skrifstofa Framsóknarflokksins er í
Edduhúsinu við Lindargötu Sími 6066
23. MAi 1947
93. blað
Ný revya
í kvöld verður frumsýning á
Revsu, sem Fjalakötturinn ætl-
ar að gefa bæjarbúum kost á
að sjá. Höfundar þessa nýja
gamanleiks eju þeir Tómas
Guðmundsson skáld, Haraldur
Á. Sigurðsson leikari og Indriði
Waage leikari. Annast Indriði
jafnframt leikstjórnina.
Sýning þessi er með nokkuð
nýstárlegu sniði og vérða sýn-
ingarnar haldnar í Sjálfstæðis-
húsinu. Að sýningu lokinni
verður dansleikur, sem sýning-
argestir eiga kost á að sækja.
Leikurinn er í tveim þáttum
og gerist á tveimur stöðum. —
Fyrri þátturinn gerist á Geð-
veikrahæli, en síðari þátturinn
í sjálfu stjórnarráðinu. í leikn-
um eru sungnir milli 10 og 20
gamansöngvar, sem Tómas
Guðmundsson heíir gert sér-
staklega fyri þessa Revyu.
Frv. um f járhagsráð
(Framhald af 1. síðu)
irstjórn fjárhagsráðs og tekur
ákvarðanir um “höfuðatriði og
sker úr am ágreiningsmál, sem
einhver fjárhagsráðsmaður
skýtur til hennar.
Ríkisstjórnin setur með reglu-
gerð ákvæði um skipan, stjórn
og starfssvið hinna einstöku
deilda f járhagsráðs, að fengnum
tillögum þess.
v Úthlutun gjaldeyrisleyfa. ,
í öðrum kafla laganna, er
fjallar um innflutning og gjald-
eyrismeðferð, er ákveðið, að
fjárhagsráð starfræki sérstaka
innflutnings- og gjáldeyrisdeild,
sem einnig fer með verðlagseft-
irlit. Þessi deild gefur út inn-
flutnings- og gj aldeyrisleyfi eft-
ir nánari fyrirmælum fjárhags-
ráðs. Helzta nýmælið í þessu
sambandi er það, að „úthlutun
leyfanna sé við það miðuð, að
verzlunarkostnaður og gjald-
eyriseyðsla -verði sem minnst.
Reynt verði, eftir því sem frek-
ast er unnt, að láta þá sitja fyr-
ir innflutningsleyfum, sem bezt
og hagkvæmust innkaup gera og
sýna fram á, að þeir selji vörur
sínar ódýrast í landinu. Skal
þetta gilda jafnt um kaup-
mannaverzlanir og samvinnu-
verzlanir og miðað við það, að
neytendur geti haft vjiðskipti
sín þar, sem þeir telja sér hag-
kvæjnast að verzla.“
Þá eru í lögunum miklu
strangari refsingar fyrir brot á
innflutnings- og verðlagslög-
gjöfinni en hingað til hafa ver-
ið. Að öðru leyti eru ákvæðin
um þessi mál mjög svipuð á-
kvæðum gildandi laga.
Eigiiaköiinimarfrv.
(Framhald af 1. síðu)
í neðri deild gagnrýndu þeir
Skúli Guðmundsson og Gylfi Þ.
Gíslason ýms ákvæði frv., en í
efri deild þeir Hermann Jónas-
son og Páll Zóphóníasson. —
Jafnframt sýndu flestir þess-
ara ræðumanna fram á óheil-
indi Sósíalista, þar sem þeir
beittu sér ekki fyrir því, að frv.
yrði betur úr garði gert, en vit-
anlega væri það skylda stjórn-
arandstöðunnar, ef hún áliti
frv. varhugavert. í stað þess
höguðu þeir allir gagnrýni sinni
þannig, að reyna að koma sér í
mjúkinn hjá þeim brotlegu.
Slíkt væri í senn hámark á-
byrgðarleysis og loddaraskapar.
Ibúðarfiús brennur
(Framhald af 1. síðu)
Egilsstöðum um klukkan sex. Þá
var eldurinn orðinn svo magn-
aður að ekki reyndist unnt að
bjarga íbúðarhúsin, en skúr sem
áfastur var við það varð bjarg-
að, og einnig hlöðu.
' Húsið sem brann var tvílyft
timburhús. Engu tókst að bjarga
af því sem var á efri hæðinni,
en sængurfötym, íverufötum og
öðru smávegis tókst að mestu
að bjarga af neðri hæðinni.
Blfreiðaokrið
(Framhald af 2. síðu)
ekki að liggja með varahluti í
100 tegundir bifreiða.
Það fyrirkomulag, sem nú er
á þessum málum er gersamlega
óþpiandi og kostar þjóðina
maragar ' miljónir í erlendum
gjaldeyri árlega.
Hver og einn, sem getur krækt
sér í umboð fyrir alls konar
ökutæki getur ausið þeim inn
í landið í hundraðatali hvort
sem þau eru nothæf eða ónýt.
Nú upp á síðkastið hefir þó
keyrt um þverbak í þessum mál-
um. Fjöldi tegunda meira og
minna lélegra smábifreiða hefir
verið ausið inn í landið öllum til
tjóns nema umboðsmönnunum.
Af fenginni reynslu er ljóst,
að hvort sem sú stofnun, sem
gefur innflutningsleyfin fyrir
bifreiðunum heitir Innflutn-
ings og gjaldeyrisnefnd, Við-
skiptaráð eða eitthvað annað,
er henni ekki trúandi fyrir
þessu. Þess vegna verður að
vera til sterk bifreiðaeinkasala,
sem ákveður hve margar og
hvaða tegundir skuli innfluttar.
Af framanrituðu ættu allir
heilvita menn að sjá, að núver-
andi fyrirkomulag þessara mála
hefir kostað þjóðina miljónir í
erlendum gjaldeyri og mun
halda áfram að gera það, nema
tekið sé alvarlega í taumana.
Það er kominn tími til fyrir
valdhafa þjóðarinnar að meta
hag hennar í heild framar
gróðafikn alls konar braskara.
Þjóðin ætlast til þess, að tekið
sé á málum hennar af mann-
dómi og réttlæti þó það skerði
gróðamöguleika nokkurra okr-
ara.
Ríkisskattanefnd
(Framhald af 2. síðu)
inga. Hér ber að sama brunni
og þegar niðurjöfnunarnefndar^
maður sem Héðin Valdimarsson
kærði útsvar sitt fyrir 1920, og
þraut rök, endaði vörn sína með
orðunum: „Og svo er þetta
óvissa frá Landsverzlun."
Fyrirtæki sem ríkisskatta-
nefnd úrskurðaði eitt árið að
hefði 212 þúsund í skattskyldar
tekjur, úrskurðaði sama nefnd
að skyldi það sama skattár
greiða 258 þúsund í skatta og út-
svar og skýringin var sú, að
gleymst hefði að leggja saman,
hvað skattar og útsvör námu
samtals.
Úrræðl.
Ekki getur talist ótímabært að
setja gleggri og fyllri ákvæði um
útsvarsálögur, og í því sambandi
kemur til álita, hvort ekki sé
orðið tímabært að sameina á-
lagningu útsvara og skatta,
þannig að það valdi ekki fjár-
upptökuviðurlögum t. d. að búa
utan Reykjavíkur. Kemur þá
líka til álita, hvort ekki væri rétt
að sameina alla skattinnheimt-
una hjá einni stofnun.
Helgi Benediktsson.
Almanna-
try^ingarnar
(Framhald af 2. síðu)
ekki atvinnuleysislöggjöfin gerð
fyrir launþega? En verða þeir
látnir bera hana uppi? Það er
spurning.
Kristján Benediktsson.
Drekkið Maltko!
Höfum fyrirliggjandi og eigum von á fyrir vorið allskonar
HANDVERKFÆRUM
til garð- og jarðyrkju, svo sem:
Stunguskonum,
Malarskóflum,
Steypuskóflum,
Ballastskóflum,
Kornskóflum,
Járnkörlum,
Hökum,
Hnausakvíslum,
Stungukvíslum,
Heykvíslum,
Höggkvíslum,
Garðhrífum,
Arfasköfum.
Sendið pantanir sem fyrst.
Samband ísl. samvinnuf élaga
Tilkynning og skráning
handhafaverðbréfa
(Framhald af 1. síðu)
sýningu vegabréfs eða nafnskír-
teinis.
Tilkynningarfresturinn verður
einn mánuður.
í verðbréfatilkynningu skal
greina nafn eiganda ásamt
stöðu og heimilisfangi svo og
aðrar upplýsingar, sem fram-
talsnefnd ákveður.
Tilkynningum um verðbréf
þéirca aðila, sem heimilisfastir
eru hér á landi, skal lokið innan
mánaðar frá framtalsdegi.
Framtalsnefnd getur veitt lengri
frest, ef sérstakar ástæður eru
fyrir hendi. Hún ákveður og til-
kynningarfrest aðila, sem heim-
ilisfastir eru erlendis.
Komi tilkynningar fram, eft-
ir að frestur er liðinn, en fyrir
lok innköllunarfrests, úrskurðar
framtalsnefnd, hversu með
skuli fara. Fyrir drátt á til-
kynningu getur fjármálaráð-
Árra úrskurðar eiganda sekt,
allt að 25% af andvirði bréf-
anna.
Ekki er eiganda skylt að til-
kynna verðbréfaeign sína alla í
einu lagi.
Stimplun og skráning
bréfanna.
Þegar tilkynning er afhent
skattanefnd, skattstofu eða
framtalsnefnd, skal jafnan
leggja fram verðbréf þau, sem
þar eru greind, að undanskyld-
um verðbréfum, sem erlendis
eru. Sá aðili, sem við tilkynn-
ingu tekur, gætir þess, að bréf-
in séu þar rétt greind, og stimpl-
ar síðan hvert verðgréf mejS þar
tíl ^erðu stimpilmerki. Fram-
talsnefnd ákveður, hvernig haga
skuli stimplun eða merkingu
verðbréfa, sem út eru gefin af
erlendum aðila, og innlendra
verðbréfa, sem geymd eru er-
lendis.
Að stimplun eða merkingu
lokinni skal bréfunum skilað
aftur í hendur eiganda og vott-
orð skráð á tilkynninguna um,
að viðkomandi bréf hafi verið
stimplað eða ákvæðum um
merkingu fullnægt.
Framtalsnefnd setur reglur
um, hvernig haga skuli tilkynn-
ingu og stimplun verðbréfa, sem
eru 1 vörzlum sjóða eða stofn-
ana til geymslu,-*innheimtu eða
tryggingar, eða í vörzlum aðila,
sem falin hefir verið sala þeirra.
Þeir aðilar, sem veita verð-
bréfatilkynningum viðtöku og
annast stimplun þeirra eða
merkingu, skulu gera skrár um
öll þau verðbréf, sem þeim hafa
borizt tilkynningar um, og í því
formi, sem framtalsnefnd á-
kveður. Framtalsnefnd skal fá
skrárnar í hendur tpnan þess
tíma, sem hún tiltekur.
Framtalsnefnd lætur fara
fram rannsókn á því með að-
stoð skattyfirvalda og þeirra að-
ila, sem eru útgefendur tilkynn-
ingarskyldra verðbréfá, hvort
tilkynnt hafi verið öll þau verð-
bréf, sem í umferð eru af hverj-
um flokki og hverri tegund
verðbréfa.
Vantalin bréf verða eign
ríkissjóðs.
Eftir að tilkynningarfrestur
er liðinn, skal birta opinbera
innköllun til eigenda verðbréfa,
sem ekki hafa verið tilkynnt.
Innköllunarfrest ákveður fram-
talsnefnd. Ef eigandi bréfs
kemur ekki fram samkvæmt
innkölluninni innan loka inn-
köllunarfrests, fellur verðbréfið
ásamt vöxtum og arði, eða and-
virði þess, óskert í ríkissjóð.
Fjármálaráðherra getur þó í
samráði við framtalsnefnd veitt
undanþágu frá þessu, ef gild af-
sökun kemur fram fyrir því, að
bréfi var ekki lýst í tæka tíð.
, Hver sá aðili, sem flytur hing-
að til lands erlend verðbréf, sem
ekki bera það ótvírætt með sér,
að þau séu gefin út eða sett í
umferð eftir framtalsdag, skal
tafarlaust gefa framtaljsnefnd
skýrslu um innflutning bréfsins.
Skal þar greina nafn og heimil-
isfang eiganda og hvenær bréf-
ið hafi komið í hans eigu. Um
stimjyiun og merkingu slíkra
bréfa fer eftir venjulegum regl-
um.
Bannað er að flytja til ann-
arra landa skráningarskyld
verðbréf, sem ekki hafa verið
tilkynnt. Sama er um vaxta-
miða eða arðmiða af slíkum
bréfum.
Óheimil meðferð
tilkynningarskyldra bréfa.
Handhafabréf, sem gefin eru út
af innlendum aðilum, er óheim-
ilt að setja í umferð eftir fram-
talsdag, nema þau ótvírætt beri
með sér, að þau séu gefin út eða
sett í umferð eftir þann dag.
Óheimilt er að gefa út nýjar
arkir arðmiða eða vaxtamiða
eða skipta á nýjum örkum í stað
eldri, nema viðkomandi verð-
bréf séu jafnframt sýnd.
Eftir framtalsdag er sala, veð-
setning og aðrar ráðstafanir á
tilkynnis^arskyldum verðbréf-
um óhekpil og ógild, unz til-
kynnjingarskyldu hefir verið
fullnægt. Tekur það einnig til
gjafa, arfgreiðslu, úthlutana við
búskipti, nauðungarsölu o. s. frv.
Ef tilkynningarskylt verðbréf
ber þess ekki glögg merki með
stimplun eða viðfestu tilkynn-
ingarmerki, að tilkynningar-
skyldu hafi verið fullnægt, er
útgefanda eða hverjum öðrum
aðila óheimilt að innleysa það á
ein\ eða annan hátt, greiða arð
af því eða vexti, eða fullnægja
nokkurri þeirri greiðslu eða
kröfu, sem eigandi bréfsins eða
handhafi kynni að öðrum kosti
að eiga rétt til með afhendingu
eða framvísun bréfsins eða
vaxtamiða af því.
Refsiákvæði o. fl.
Ef nokkur sá, sem hefir verð-
bréf að handveði án þess að vita
um hinn raunverulega eiganda,
öðlast rétt til að ganga að veð-
inu áður en tilkynningarskyldu
(jatnla Bíó
Griuiaður um
njósnir
(Hotel Beserve)
Spennandi, ensk njósnamynd,
gerð eftir sögu Eric Amblers.
Aðalhlutverk:
James Mason
Lucie Mannheim
Herbert Lom
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Börn innan 12 ára fá
ekki aðgang.
Výja Bíó
(viif Skúlnuötu)
Leyndardómur
fornsölunnar
(„Biver Gang“)
Spennandi mynd og einkennileg
•
Aðalhlutverk:
Gloria Jean
John Quaien
Sýnd kl 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum yngri
en 12 ára.
Tjarnarííó
Meðal flökkufólks i
(Caravan)
Afar spennandi sjónleikur eftir
skáldsögu Lady Eleanor Smith.
Stewart Cranger,
Jean Kent,
Anne Crawford
Dennis Price
Bobert Helpman.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð innan 14 ára.
ÞAKKARÁVARP
\
Börnum mínum, tengdabörnum og öðrum vinum mínum,
sem heiðruðu mig með gjöfum, heillaóskum og heimsókn-
um á sjötugsafmæli mínu, 28. apr. s.l. og að öllu leyti gerðu
mér daginn ógleymanlegan, Votta ég hjartanlegt þakklæti
mitt.
Hátúni, Neskaupstað 17. maí 1947.
VILHJÁLMUR STEFÁNSSON.
Skógræktarmót
Verður haldið í skógræktarstöðinni við Rauðavatn á annan
í hvítasunnu, og hefst það kl. 2 síðd. Trjáplöntur verða
gróðursettar í stöðina. Á eftir verður stuttur fundur ef
veður leyfir. Félagsmenn og aðrir velkomnir. Lækjarbotna-
vagn fer frá Lækjartorgi kl. 1.15 síðd. (farið úr við Baldurs-
haga). Ef um aðrar ferðir en strætisvagnaferðir verður
að ræða, verður það auglýst síðar.
Stjórn Skógræktarfélags
Rey k j avíkur.
Til nemenda Eskelands
í Voss
Nokkrir nemendur Lars Eskelands í Voss hafa hafizt
handa um fjársöfnun meðal íslenzkra nemenda hans, og
er ætlunin að keypt verði íslenzkt málverk og það afhent
skólanum áletrað til minningar um hinn látna æskulýðs-
leiðtoga. Við höfum treyst því, að allir íslendingar, sem
notið hafa leiðsagnar hans og vinsemdar, leggi nokkurt
fé fram í þessu skyni og má senda það Jóni Þorsteinssyni
íþróttakennara í Rvík eða Snorra Sigfússyni skólastjóra
á Akureyri, og mjög æskilegt að það yrði gert sem allra
fyrst.
hefir verið fullnægt, getur hann
fengið leyfi framtalsnefndar til
þess að láta fara fram sölu á
bréfunum hjá opinberum upp-
boðshaldara til fullnægingar
kröfunni. Nemi söluandvirði
meiru en kröfu veðhafa, ásamt
áföllnum kostnaði, skal það,
sem umfram er, lagt í sérstakan
reikning í banka eða sparisjóði.
Þeirri innstæðu er óheimilt að
ráðstafa nema að fengnu leyfi
framtalsnefndar. Hafi eigandi
ekki komið fram innan eins árs
frá söludegi og sannað eignar-
rét'f sinn, fellur innstæðan til
ríkissjóðs.
Öllum opinberum stofnunum
og embaáttismönnum, sem fá í
hendur tilkynningarskyld verð-
bréf, er skylt að ganga úr skugga
um, að þau hafi verið tilkynnt
og stimplun eða áfestingu til-
kynninggjmerkja fullnægt. Sé
einhver misbrestur á þessu,
skulu nefndir aðilar þegar gera
framtalsnefnd eða ríkisskatta-
nefnd aðvart.
Hver sá, sem af ásetningi eða
stórfelldu gáleysi gefur rangar
eða villandi tilkynningar um til-
kynningarskyld verðbréf eða
brýtur gegn ákvæðum 41. eða 42.
gr„ skal sæta sektum, allt að
200000 krónum. Hlutdeild i broti
er refsiverð á sama hátt.
/