Tíminn - 11.06.1947, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARIN SSON
ÚTGEFANDI:
FR AMSÓKN ARFLOKKURINN
Simar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA hl.
r.ITST JÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Lindargötu 9 A
Simar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargöta 9A
Simi 2323
31. árg.
Reykjavík, miðvikudagim 11. júní 1947
105. blað
ERLENT YFIRLIT:
Er verðlækkun í vændum?
Verð ýiuissa hráefna og iðnaðarvara
hefir farið lækkandi
Seinustu mánuðina hefir mjög verið um það rætt, hvort verðlag
muni almennt fara lækkandi í heiminum innan tíðar. Ýmsir
hagfróðir menn hafa þótzt sjá glögg merki þess, að verðlækkun
sé í nánd. Þessir spádómar hafa m. a. haft þau áhrif, að ýms
verzlunarfyrirtæki utan Bandaríkjanna hafa hætt við vörukaup,
sem þau voru búin að semja um þar. Hafa þau talið hyggilegra
að fresta innkaupum vegna þess, að verðlagið færi lækkandi.
Iljá ýmsum iðngreinum Bandaríkjanna eru byrjaðar að safnast
fyrir birgðir, en það mátti heita óþekkt fyrirbrigði frá því styrj-
öldinni lauk og þar til fyrir fáum mánuðum.
í blaðinu Financial Times eru
þessi mál gerð að umtalsefni
rétt fyrir seinustu mánaðamót.
Niðurstaða blaðsins er sú, að
*
Framlög Islendinga til
nauðstaddra þjóða
nema um 24 milj. kr.
Framlög íslendinga til
nauðstaddra erlendis ' frá
byrjun heimsstyrjaldarinnar
og fram í aprílmánuð s.l.
munu nema samtals hátt á
24 milj. kr.
Ef upphæðinni er jafnað nið-
ur á hvert mannsbarn í landinu,
miðað við íbúatölu landsins á
miðju ári 1945, koma 183 krónur
niður á hvern íslending.
Framlög þessi skiptast sem sér
segir:
I. Finnlands-söfnunin ca.
170.000 kr. Síðari safnanir til
Finnlands ca. 50.000 kr. Noregs-
söfnunin ca. 1.740.000. Rúss-
landssöfnunin ca. 80.000. Frakk-
landssöfnunin ca. 300.000.
Barnasöfnunin (’44) 450'000.
Danmerkursöfnunin (til flótta-
fólks) 650.000. Landssöfnunin
1945 4.500.000 . Mið-Evrópusöfn-
un R. K. í. 1946 ca. 1.200.000.
Þýzkalandssöfnunin ca. 1.250.000
Evrópusöfnunin 1946—47 ca.
500.000. Ungverjalandssöfnunin
1946—47 ca. 15.000.
Ýmsar aðrar safnanir (pen-
ingar, matvæli, hjúkrunargögn
og fatnaður) sent fyrir milli-
göngu einstakra manna, nefnda
og félaga (m. a. R. K. í.) 1.000.
000. Gjafabögglar, aðallega frá
einstaklingum, a. m. k. 2.500.
000. Alls 14.405.000.
II. Framlag íslendinga til
UNNRA 9.198.000. — Framlög
íslendinga alls 23.603.000 krón-
ur.
ERLENDAR FRÉTTIR
í Frakklandi magnast verk-
föllin enn. Verkfall járnbraut-
armanna heldur áfram og virð-
ist enginn bilbugur á verkfalls-
mönnunum. Þá hafa starfsmenn
rafveitna og gasstöðva víða lagt
niður vinnu, m. a. í annarri
stærstu borg Frakklands, Mar-
seille.
Jinnah hefir fengið fullt um-
boð frá bandalagi Múhameðs-
trúarmanna til að semja við
kongressflokkinn um fyrirhug-
að þjóðaratkvæði og skiptingu
Indlands.
Nýja stjórnin í Ungverjalandi
hefir lýst yfir því, að hún ætli
að setja kosningalög, er sviptir
alla þá menn kosningarétti, sem
hafa barizt gegn „lýðræðisflokk-
unum,“ þ. e. þeim flokkum, sem
nú fara með stjórn landsins.
Kona Perons Argentínuforseta
þar mjög virðulegar móttökur.
dvelur nú á Spáni og hefir hlotið
enn sé of snemmt að fullyrða,
hvort verðlagið muni heldur
hneigjast í áttina til lækkunar
eða hækkunar í náinni framtíð.
Öllu meiri líkur virðast þó fyrir
því, að það fari lækkandi.
Vörur, sem hafa farið lækk-
andi- í verði á heimsmarkaðin-
um seinustu vikurnar, eru m. a.
kaffi, gúmmí, baðmull og kakao.
Verð á zinki og kopar hefir ver-
ið óstöðugra en áður. Verð á tei
hefir heldur farið lækkandi.
Kornverð lækkaði mikið í apríl-
mánuði, en hefir hækkað aftur,
bæði vegna óvissu um uppsker-
una og aukinna kornkaupa
Bandaríkjastjórnar vegna að-
stoðarinnar við Þjóðverja. Ullar-
verðið hefir haldizt nokkurn
veginn óbreytt.
Heildarmyndin af verðlaginu
á heimsmarkaðinum er þannig
nokkuð óljós og ruglingsleg, svo
að erfitt er að spá *um næstu
framtíð. En slík hafa oft verið
einkenni þess, segir blaðið, þeg-
ar sveiflur og óvissa leysa örugg-
ann markað af hólmi.
í Bandaríkjunum eru verð-
lagsmálin komin á nýtt stig, seg-
ir blaðið ennfremur. Kaupend-
urnir eru byrjaðir að vera hlé-
drægir, og afturkallanir á pönt-
unum gerast mjög tíðar vegna
þess, að menn búast við verð-
lækkun. Að vísu hafa orðið
nokkrar verðhækkanir seinustu
vikurnar, en það heyrir til und-
antekninga, því að verðlækkan-
ir hafa verið miklu fleiri. And-
staða gegn verðhækkunum er
mjög sterk og Truman og fleiri
stjóramálaleiðtogar hafa mjög
eindregið hvatt til verðlækkun-
ar. Táknrænt er það, að fyrir-
tæki, sem hafa hækkað kaup
hjá starfsfólki sínu, hafa ekki
treyst sér til að hækka vöru-
verðið að sama skapi. Verð land-
(Framhald á 4. síðu)
Óhagstæðar aflasölur
í Bretlandi
Frá þv£ um mánaðamót
hafa átta íslenzk fiskiskip
selt afla sinn í Englandi. Söl-
urnar hafa verið mjög slæm-
ar og stafar það af því, að
miklir hitar eru nú í Eng-
landi, svo og vegna þess, að
mikið berzt af fiski til lands-
ins.
Togarinn Gyllir fór með 3868
vættir fiskjar til Englands og
seldust aðeins 544 vættir af því
fyrir 685 sterlingspund, en það
eru 17.960.70 kr. islenzkar. —
Nauðsynlegt reyndist að henda
hvorki meira né minna en 3324
vættum fiskjar. Sala hinna
skipanna varð sem hér segir:
Sindri seldi 716 kit. af 1846 kit
fyrir 1285 stpd; Forseti seldi
3008 kit fyrir 4636 stpd;
Óli Garða 2640 kot fyrir 1259
stpd; Skallagrímur 812 kit af
3337 fyrir 1262 stpd; Snæfell
1834 kit fyrir 2932 stpd; Hauka-
nes 2800 kit fyrir 3060 stpd og
Baldur seldi 2805 kit fyrir 4794.
Stærsta skip, sem hefir
----------------------------:---0
Stærsta skip, scm tslendingar hafa sihíðað
veriö smíöaö á íslandi
hleypur af stokkunum
Þetta er mynd af stærsta skipi, se m smíðaff hefir veriff í ísl. skipasmíða-
stöff. Þaff er smíðað í Vestmannaeyj um á vegum Helga Benediktssonar út-
gerffarmanns. Nánar er sagt frá ski pi þessu og smíði þess í blaðinu í dag.
— Myndin er tekin nokkru áffur e n skipinu var hieypt af stokkunum.
Aðvaranir frá aðalfundi litvegsmanna:
Útvegurinn getur ekki lengur
risið undir dýrtíðinni
Afurðasölumál útvegsins þarfnast meiri
ræktarsemi og fyrirhyggju
Aðalfundur Landssambands íslenzkra útvegsmanna hófst hér
í bænum 8. þ. m. og stendur enn yfir. Fundurinn hefir þegar gert
ymsar merkar samþykktir um afkomu útvAgsins. M. a. hefir
fundurinn lýst yfir því, að útvegsmenn geti ekki risið undir nú-
verandi dýrtíð í landinu og sé stefnt í yfirvofandi háska, ef ekki
sé þegar tekið rösklega í taumana. Þá hefir fundurinn gert at-
hyglisverða ályktun um viðskiptasamninga við önnur lönd.
Það er smíðað í Vestmannaeyjum
á vegum Helga Benediktssonar
Síðastl. laugardag var hleypt af stokkunum í skipasmíðastöð
Helga Benediktssonar í Vestmannaeyjum stærsta skipi, sem smíð-
að hefir verið hérlendis. Er það eign Helga Benediktssonar og er
það í annað sinn, sem hann hleypir af stokkunum í skipasmíða-
stöð sinni stærsta skipi, sem smíðað hefir verið hér á landi. Vél
bátur hans, „Helgi,“ var einnig
smíðað hafði verið hérlendis.
Hinu nýja og veglega skipi,
sem hleypt var á flot í Vest-
mannaeyjum síðastl. laugardag,
hefir ekki ennþá verið gefið
nafn, og er ennþá eftir að vinna
allmikið við það áður en það
verður fullbúið til veiða. Skipið
mun þó verða tilbúið fyrir
þessa síldarvertíð og verður
það gert út á síldveiðar fyrir
Norðurlandi í sumar.
Þetta nýja skip, sem er eitt
glæsilegasta skip íslenzka flot-
ans, er um 300 burðar smálestir
að stærð og er útbúið með 500
hestafla June-Munktell vél. Er
það fyrsta vélin, sem hinar
þekktu June-Munktell verk-
smiðjur í Svíþjóð senda frá sér,
sem útbúin er með fimm „cyl-
indrum,“ og jafnframt stærsta
June-Munktell vélin í íslenzk-
um bát.
Vélin er að öllu leyti „Hyd-
roulisk.“ Hægt er að ráða öllum
gangi hennar úr stýrishúsinu og
skipta þaðan með skrúfuskipt-
ingu afturábak og áfram. Úr
stýrishúsi er því hægt að hafa
á valdi sínu allan gang vélar-
(Framhald á 4. síöu)
á sínum tíma stærsta skip, sem
Jarðarfarir þeirra,
sem fórust í flug-
slysinu
í gær fóru fram jarðarfarir
fjögurra þeirra, sem fórust í
flugslysinu mikla í Héðinsfirði.
Útför Garðars Þorsteinsson-
ar alþm. fór fram frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík kl. 1. í kirkju
báru þingforsetar og formenn
þingflokkanna, en úr kirkju
báru Oddfellowar og stóðu þeir
einnig heiðursvörð við kistuna í
kirkjunni. í kirkjugarði báru
þingmenn Sjá|lfstæðisflokksins,
málaflutningsmenn og skóla-
bræður hins látna seinasta spöl-
inn. Útfararræðuna flutti séra
Bjarni Jónsson.
Útför Þorgerðar Þorvarðs-
dóttur fór fram frá Fríkirkjunni
í Reykjavík kl. 2.30 I gær. í
kirkju báru kistuna konur úr
íþróttafélagi kvenna og úr
(Framhald á 4. síðu)
Lausn dýrtíðarmálsins
þolir enga bið.
Samþykkt aðalfundarins um
dýrtíðarmálið hljóðar á þessa
leið:
„Aðalfundur L.Í.Ú. 1947 telur,
að framleiðsla landsmanna geti
á engan hátt risið undir núver-
andi dýrtíð í landinu, og vill því
í því sambandi benda á þá stað-
reynd, að hækkað fiskverð um
s.l. áramót hafi svo að segja
horfið og að engu orðið, vegna
hækkaðrar vísitölu. Enda var
því slegið föstu á s.l. hausti, og
ekki véfengt, að ákveðið hlutfall
yrði að vera fast á milli lág-
marksverðs á fiski innanlands
og dýrtíðarvísitölunnar, eða
þannig, að 65 aura lágmarks-
verðið miðaðist við 300 vísitölu-
stig. Útvegsmenn álíta þvl með
öllu tilgangslaust, og ekki í
samræmi við óskir þeirra, að
ríkið ábyrgist lágmarksverð á
fiski, án þess að framanritað
sjónarmið sé lagt til grundvall-
ar.
Telur aðalfundurinn því mjög
illa farið, að Alþingi skyldi láta
undir höfuð leggjast, að skipuð
yrði nefnd sú, sem lögin um
ábyrgð ríkisins vegna vélbáta-
flotans mæla fyrir um, að skipuð
yrði og skila átti áliti fyrir 1.
febr. s.l. um stöðvun og niður-
færslu dýrtíðarinnar i landinu.
Af þessu má fullyrða, að Is-
lenzk framleiðsla er ekki sam-
keppnisfær á heimsmarkaðinum
og afurðasölumál okkar í fram-
tíðinni í yfirvofandi háska, ef
hér verður ekki tekið fast og
ákveðið í taumana.
Með tilvísun til framanritaðs
skorar því fundurinn á þæst-
virta ríkisstjórn, að skipa nú
þegar fimm manna nefnd til að
gera endanlega tillögur um
lausn dýrtíðarmálsins, með sam-
(Framhald á 4. síöu)
Neita þátttöku í
samúðarverkfalli
Verkalýðs- og Sjómannafélag
Fáskrúðsfjarðar feldi á fundi
sínum fyrir helgina tilmæli frá
Alþýðusambandi íslands, að
segja upp samningum með 48
atkvæðum gegn 3. Ennfremur
voru felld tilmæli Alþýðusam-
bandsins um, að félagið lýsti
yfir afgreiðslubanni vegná verk-
falls Dagsbrúnar i Reykj avik.
Verkamannafélagið Fram á
Seyðisfirði hefir einnig fellt að
lýsa yfir afgreiðslubanni vegna
Dagsbrúnarverkfallsins með yf-
irgnæfandi atkvæðamun.
Þá hefir trúnaðarmannaráð
(Framhald á 4. síðu)
Flugferðir Frakka
um ísland
Fulltrúi franska flugfélags-
ins Air France, boðaði blaða-
menn á sinn fund í bústað
franska sendiherrans í
Reykjavík í gær og skýrði frá
fyrirætlunum félagsins varð-
andi flug um ísland.
Flugfélagið hefir haft við-
komu hér á Reykjavikurflugvfelli
að undanförnu með hinar stóru
fárþegaflugvéfar jsínar á UV’ð
þeirra vestur um haf.
Um miðjan mánuðinn munu
vélarnar hætta að koma við á
Reykjavíkurflugvelli en lenda
þess í stað á Keflavíkurflugvelli.
Hefir verið skipt um lendingar-
stað af öryggisástæðum, þar
(Framhald á 4. síðu)
Framboö Framsóknarflokksins
í V.-Skaftafellssýslu ákveðið
Jóit Gíslason bóndi í Norðurhiáleigu verður
..
franibjóðandi flokksins
Stjórn Framsóknarfélags Vestur-Skaftafellssýslu, ásamt full-
trúum úr öllum hreppum sýslunnar, ákvað einróma á fundi
sínum 31. maí síðastliðinn að skora á Jón Gíslason bónda £
Norðurhjáleigu i Álftaveri að taka að sér framboð fyrir Fram-
sóknarflokkinn við væntanlegar aukakosningar í Vestur-Skafta-
fellssýlu. Hann hefir nú orðið við þessum eindregnu tilmælum
og verður því frambjóðandi flokksins við kosningu, sem hefir
verið ákveðin 13. júli næstkomandi.
Jón Gíslason er í röð merk-
ustu og vinsælustu bænda og
mun því áreiðanlega fagnað
meðal Vestur-Skaftfellinga, að
hann skuli hafa gefið kost á sér
til þingmennsku. Hann hefir
gegnt fjölmörgum trúnaðar-
störfum fyrir sveit sína og sýslu,
m. a. verið lengi hreppsnefndar-
oddviti og sýslunefndarmaður,
endurskoðandi Kaupfélags Vest-
ur-Skaftfellinga og deildarstjóri
hjá því. Öll störf sín hefir hann
rækt þannig, að þau hafa unnið
honum álit og traust.
Jón er nýlega orðinn fimm-
tugur, fæddur 9. jan. 1896 að
Norðurhjáleigu, sonur Gísla
Magnússonar hreppstjóra og
Þóru Brynjólfsdóttur frá
Þykkvabæjarklaustri. Hann tók
við búi í Norðurhjáleigu eftir
föður sinn. Hefir hann búið þar
góðu búi, þrátt fyrir mikil störf
utan heimilisins.
Með framboði Jóns Gíslasonar
gefst bændum og samvinnu-
mönnum í Vestur-SJcaftafells-
sýslu tækífæri til að sameinast
um öruggan málsvara stéttar
sinnar og myndarlegan þingfull-
trúa, enda hefir ákvörðuninni
um framboð hans verið tekið
með ágætum í Vestur-Skafta-
fellssýlu.
Jón Gíslason.