Tíminn - 17.06.1947, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI: S
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEFANDI: <
FRAMSÓKNARFLOKKURINN |
Simar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA hJ. \
. ITST JÓR ASKRIFSTOFUR:
EDDUHtJSI. Llndargötu 9 A
Öímar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargöw 9A
Simi 2323
31. árg,
Reykjavik, þrlðjudaginn 17. júní 1947
109. blað
fslendingar eignast fyrstu flug-
vélina til millilandaferöa
Skymaster-vél Loftlciða kom á suniiudaginn
var.
Merkur atburður gerðist í samgöngumálum íslendinga síðast-
liðinn Iaugardag, þegar skymaster-flugvél Loftleiða settist á
Reykjavíkurflugvöllinn í fyrsta sinn. Hún er fyrsta flugvélin,
sem íslendingar eignast til millilandaflugs, en það hlýtur að
\era þjóðinni bæði metnaðarmál og sjálfstæðismál að annast
sjálf þá flutninga sem mest.
Koma flugvélarinnar.
Þess hafði verið vænzt, að
flugvélin settist á völlinn kl.
2i/2 e. h. og byrjaði fólk strax að
streyma þangað um tvöleytið.
Var komið mikið margmenni að
flugturninum, þegar flugvélin
settist þar rétt fyrir kl. 3, eftir
að hafa flogið nokkra hringi yf-
ir bæinn.
Þegar farþegarnir höfðu stigið
út úr flugvélinni, flutti formað-
ur Loftleiða h. f., Kristján Jó-
hann Kristjánsson, ræðu. Rakti
hann aðdraganda þess, að Loft-
leiðir hefðu ráðizt í þessi flug-
vélakaup og þakkaði þeim, sem
hefðu veitt félaginu stuðning
sinn. Að ræðu hans lokinni
mælti Emil Jónsson samgöngu-
málaráðherra nokkur orð. Þegar
tollskoðuninni var lokið, gafst
mönnum tækifæri til að skoða
vélina.
Flugvélin lagði af stað frá
New York með nokkra farþega
á fimmtudaginn og fór þá til
Winnipeg. Taldi stjórn Loftleiða
rétt, að vélin heimsækti aðal-
borg Vestur-íslendinga í þessari
fyrstu ferð sinni og gæfi nokkr-
um þeirra kost á að komast
hingað heim með henni. Á föstu-
daginn var flogið til Gonder á
Nýfundnalandi. Ferðin þaðan til
Reykjavikur tók um 10 klíít.
Ferðin gekk öll að óskum og láta
farþegarnir hið bezta af vél-
inni.
Tildrög flugvélakaupanna.
Forgöngumönnum Loftleiða
hefir frá.öndverðu verið ljós
nauðsyn þess, að íslendingar
eignuðust sjálfir fullkomnar
flug'gélar til að halda uppi milli-
landaflugi. Var ákveðið, að fé-
lagið reyndi að eignast Sky-
master flugvél, en með þeirri
ráðstöfun taldi félagið, að það
myndi verða fyllilega sam-
keppnisfært við erlend flugfé-
lög, enda metnaðarmál íslend-
inga, að fyrsta íslenzka farþega-
vélin, sem eingöngu er ætluð til
millilandaflugs, sé af hinni full-
komnustu gerð slíkral* farar-
tækja.
Kaupin ákveðin. n
í fyrravor festi télagið kaup á
Skymaster flugvél í Bandaríkj-
unum, en á þeim tíma voru
miklir erfiðleikar á slíkum kaup-
um vegna þess hve vélar þessar
eru eftirsóttar. Flugvél þessi
hafði áður verið lítið eitt notuð
til flutninga á hermönnum og
þurftj. því að innrétta hana að
nýju til farþegaflugs, og gera á
henni nokkrar breytingar til
samræmis við ströngustu kröfur
flugvélaeftirlits Bandaríkjanna.
Upphaflega var svo ráð fyrir
gert, að vélin yrði fullbúin á
s. 1. sumri, en af óviðráðanlegum
ástæðum gat það ekki orðið fyr
en nú. Töf þessi orsakaðist að-
allega af örðugleikum á að út-
vega ýms nýtízku tæki, sem nú
er krafizt í Bandaríkjunum.
Stærð vélarinnar og áhöfn.
Skymaster flugvélin er með 4
1350 hestafla Pratt & Wit-
ney hreyflum. Vængjahaf henn-
ar er 118 fet, lengd 94 fet. Mesti
þungi flugvélarinnar fullhlað-
innar, má vera 33 smálestir.
Meðalhraði vélarinnar eru 200
mílur á klukkustund. Sæti eru í
vélinni fyrir 46 farþega, auk
geymslu fyrir póst og farangur.
Áhöfn vélarinnar eru 2 flug-
menn, vélamaður, siglingafræð-
ingur, loftskeytamaður og tvær
flugþernur. Félaginu er það
metnaðarmál, að áhöfn flugvél-
arinnar verði alislenzk svo fljótt.
sem tiltækilegt er. Félagið mun
þó fyrst og fremst kappkosta,
að þeir einir stjórni vélinni, sem
örugt má telja að hafi til þess
fullkomna kunnáttu og reynslu.
Áhöfn vélarinnar verður nú
bandarísk, að undanteknum
öðrum flugmanni, en það verða
til skiptis elztu og reyndustu
flugmenn félagsins, þeir Krist-
inn Ólsen, Sigurður Ólafsson og
Alfred ?Jíasson. Tvær íslenzkar
flugþernur verða í vélinni. Flug-
kapteinn verður Byron More.
Hann varð ungur flugmaður
1923 og hefir stundað þá atvinnu
síðan. Hann er þrautreyndur á
(Framhald á 4. síöu)
KvenncLskótinn
að Varmalandi
Skóliim var vígður sl. laugardag að viðstöddu
fjölmenni — 30 námsmeyjar útskrifuðust
Hinn nýi og glæsilegi húsmæðraskóli Borgfirffinga aff Varma-
landi í Borgarfirði, sem tók til starfa á síffastl. hausti, var vígður
síffastl. laugardag. Fór sú athöfn vel og virffulega fram og kom
fjöldi fólks víffs vegar aff úr héraffinu til aff skoða hin glæsilegu
húsakynni þessa veglega menntaseturs, og vera viffstatt vígsluna.
Áður en vígsluathöfnin hófst
var gestum boðið til miðdegis-
verðar, þar sem framreiddir
voru hinir prýðilegustu réttir af
mikilli rausn og myndarskap.
sem bar greinilega vott um
kunnáttu og hæfni skólastýr-
unnar, Vigdísar Jónsdóttuv og
nemenda hennar.
Saga skólamálsins.
Undir borðum voru haldnar
nokkrar ræður. Fyrst tók til
máls frú Geirlaug Jónsdóttir,
sem er *formaður skólanefndar.
Bauð hún gesti velkomna og
rakti í stuttu máli sögu skóla-
byggingarinnar.
Það voru ungmennafélagr í
héraðinu, sem fyrst vöktu máls
á því að húsmæðraskóli þyrfti
að rísa í héraðinu, en síðar tók
Samband borgfirskra kvenna
málið i sínar hendur og fleytti
því áfram. Er það forgöngu þess
(Framhald á 3. slöu)
Eftir tvö hallærissumur hjá útvegsmönnum og
sjómönnum, ætla kommúnistar aö stöðva
síldveiðarnar .
HÚSMÆÐRASKÓLINN A VAR>IALA]\DI
Þetta er mynd af hinum glæsilega húsmæðraskóla Borgfirðinga að Varma-
Iandi. Hann var vxgður s. 1. laugardag, sbr. grein á öðrum stað í blaðinu.
Ljósm.: Guðni Þórðarson.
Siglfirzkir verkamenn fá ekki að viiina fyrir
frekju reykvískra kommúnista, sem Iiafa látið
Þrótt fyrirskipa ólöglegt verkfall
frá 30. þ. m.
Nú þegar stjórn Verkamannafélagsins Þróttar á Siglufirði hefir
tekið þá afstöffu aff lýsa yfir ólöglegu verkfalli viff Síldarverk-
smiffjur ríkisins á Siglufirffi frá 20. þ. m., þykir rétt aff rifja hér
upp aff nokkru gang kaupgjaldsmálanna á Siglufirffi s. 1. vor og
fram til þess.
Allmikið hefir að vísu verið
ritað um mál þetta, og fram-
koma komm.únistanna í máli
þessu er orðinn landskunn, en
þar sem málsmeðferð þeirra er
með þeim emdemum, sem raun
er á, verður gefið hér glöggt
yfirlit yfir deiluna frá því, að
verkamannafélagið Þróttur
sagði upp kaupgjaldssamning-
við S.R. og þar til stríðsyfirlýs-
ing kommúnista á hendur síld-
ariðnaðinum birtist.
þar til i fyrri hluta apríimán-
aðar.
Þó tókst ekki í byrjun apríl
áil heÆja samningaumleitanir,
þar sem verksmiðjustjórn var
önnum kafin á fundum í
Reykjavík í sambándi við bygg-
ingamál verksmiðjanna og af-
urðasölumálin, en 21. -apríl
hef j ast viðræður samninga-
nefndanna á ný og standa yfir
í tæpa viku.
Niðurgreiðslurnar iækka
vísitöluna um 55 stig
Ríkisstjórnin hefir sent blöðunum svohljóffandi greinargerð
um niðurgreiffslur ríkissjóffs á vöruverði innanlands:
Niðurgreiðslur á vöruverði tiln
að halda vísitölunni i 310 stig-
um, hafa að tilhlutun ríkis-
stjórnarinnar verið gerðar eins
og hér segir:
1. marz s. 1. var verð á kjöti
lækkað um kr. 1.00 pr. kg. og
verð á kartöflum um kr. 0.30 pr.
kg. Verðlækkun þessi svarar til
6.3 vísitölustiga.
1. apríl var verð á kjöti lækk-
að um kr. 1.00 pr. kg. Þessi
verðlækkun svarar til 3.7 vísi-
tölustiga.
• 1. júní var verð á smjöri út á
skömmtunarseðla lækkað um kr.
4.00 pr. kg., verð á smjörlíki um
kr. 2.50 pr. kg. og verð á kar-
töflum um kr. 0.15 pr. kg., sem
samtals svarar til 6 vísitölu-
stiga.
Samtals nema þessar niður-
greiðslur því 16 vísitölustigum,
og mundi því vísitalan nú vera
326 stig, ef þær hefðu ekki kom-
ið til framkvæmda.
Auk þess var kjöt, mjólk og
kartöflur áður greitt niður sem
svaraði 33.4 vísitölustigum.
Þá hefir loks verið keypt ís-
lenzkt smjör til afhendingar
gegn skömmtunarseðlum á sama
verði og áður. Svarar sú niður-
greiðsla til 5.6 vísitölustiga.
Samtals nema þessar niður-
greiðslur því, að vísitalan lækk-
ar um 55 stig, mundi vera 365
stig, ef ekki væri að gert.
Allur kostnaður við niður-
greiðsluna er greiddur úr ríkis-
sjóði.
Islandsglíman
Guðm. Ágústsson varð
glímukóngur.
Íslandsglíman fór fram að
Haukadal í Biskupstungum á
sunnudaginn var.
Keppendur voru átta, og fóru
leikar þannig, að Guðmundur Á-
gústsson varð hlutskarpastur,
lagði alla andstæðinga sína og
hlaut þar með sæmdarheitið:
Glímukóngur íslands.
Guðmundur Guðmundsson
varð annar með 6 vinninga, en
þriðji varð Friðrik Guðmunds-
son með 3+2 vinninga. Urðu
fyrst fjórir keppendur að glíma
um þriðju verðlaun, en síðan
þrír og varð Friðrik þá hlut-
skarpastur.
Sigurjón Guðihundsson, sem
varð skjaldarhafi Ármanns, varð
nú lægstur að vinningum, fékk
aðeirts einn vinning. Glímdi
hann þó vel, en var óheppinn.
Yfirburðir Guðmundar glímu-
kóngs voru miklir og hefir hann
sjaldan glímt betur.
Áhorfendur voru fast að 300,
flestir úr nágrenninu. Dómarar
voru Þorsteinn Einarsson, Bjarni
Bjarnason og Sigurður Greips-
son.
Lítill áhugi á Siglufirffi fyrir
uppsögn samninga.
Þann 14. febrúar s.l. tilkynnti
verkamannafélagið Þróttur á
Siglufirði Síldarverksmiðjum
ríkisins á Siglufirði, að það hafi
samþykkt að segja upp þágild-
andi verkakaupasamningum,
gilda skyldu til 15. apríl
þ. á. Verkamannafélagiö hafði
boðað til leynilegrar atkvæða-
greiðslu um málið, en þátttaka
í þeirri atkvæðagreiðslu var lítil.
Um 150 meðlimir greiddu at-
kvæði af rúmum 600, sem í
Þrótti eru, og var langt frá því,
að Þróttármeðlimir væru þar
á eitt sáttir, því að uppsögn
kaupgjaldssamninga var sam-
þykkt með um 20 atkvæða
meiri hluta.
Sú deyfð, sem ríkti í atkvæða-
greiðslu þessari, stafaði af því
að meiri hluti Siglfirskra verka-
manna töldu ekki ástæðu til, né
heillavænlegt að hækka kaup
og auka með því dýrtíðina.
Þeim litla meiri hluta, sem
j kommúnistar náðu í þessari
fyrstu atkvæðagreiðslu Þróttar-
meðlima á þessu ári, náðu þ§ir
með því að hafa í frammi mik-
inn áróður að þeirra hætti.
I Afstaffa kommúnista til grunn-
I kaupshækkunar, meðan Áki
var í ríkisstjórn.
Það er vert að athuga það við
birtingu hinnar ólöglegu verk-
fallstilkynningu kommúnista,
að í vetur flutti einn meðlimur
í Þrótti tillögu um 10 aura
grunnkaupshækkun. Kommún-
istar áttu ekki nógu sterk orð
þá til þess að lýsa andúð sinni
á þessu brölti og felldu tillög-
una. Þá var það af einskærri
þjóðhollustu, og ef til vill fyrir
áeggjan Brynjólfs og Áka, sem
enn sátu í mjúkum ráðherra-
stólum og áttu fastlega von á
framlengingu sem slíkir. Það
ber ekki allt upp á sama daginn.
Síld fyrir Aust-
urlandi
Seinustu dagana hafa borizt
margar fregnir um, að síld hafi
sézt vaða víða fyrir Austfjörð-
um, og fiskur, sem hefir veiðst
þar, liefir verið fullur af síld.
Forsetinn kominn
heim
Forseti íslands kom heim með
flugvél frá Kaupmannahöfn á
laugardagskvöldið var.
Forsetinn fór utan seint í ap-
ríl til að vera viðstaddur jarð-
arför’Kristjáns konungs, en síð-
an var hann til lækninga í Sví-
þjóð. Forsetinn hefir nú fengið
fulla bót meina sinna.
Fulltrúar frá stjórn S. R. og
Þróttar ræffast við.
Eftir að stjórn S.R. hafði
borist tilkynning um uppsögn
samningsins við Þrótt, hófust
viðræður milli stjórnar Þróttar
og stjórnar S.R. um kaupgjalds-
málin. Ákveðið var af aðilum
þessum, að fulltrúar frá hvor-
um aðila tækju upp samninga-
tilraunir, og hófust þær 11.
marz og stóðu nokkra daga.
Samþykkt var þá að fresta
frekari samningaumleitunum
Samkomulag næst.
Þann 26. apríl skeður svo það
að fullt samkomulag næst um
deiluatriðin milli fulltrúa Þrótt-
ar og fulltrúa verksmiðjustjórn-
ar (þá var línan ekki komin frá
Reykj avík).
í upphafi samkomulags, sem
fulltrúar beggja aðila undirrita,
segir svo:
„Undirritaðir fulltrúar verka-
mannafélagsins Þróttar, Siglu-
firði og fulltrúar frá stjórn
Síldarverksmiðja ríkisins höfum
oröið sammála um að leggja
fyriF til úrskurðar hverjir fyrir
sinn umbjóðanda eftirfarandi
breytingar á verkakaupssamn-
ingi þeim milli nefndra aðila,
sem gilti frá 1. marz 1946 til 15.
apríl s.l.“
Hér kemur fram eindreginn
vilji samninganefndarmanna
beggja aðila og hann er sá, að
(Framhald á 4. siðu)
Verkamenn taka
ráðin af komm-
únistum
Kommúnistar hafa bcðið mik-
inn ósigur hjá verkamönnum í
Borgarnesi. Stjórn verkamanna-
félagsins þar, sem er skipuð
kommúnistum, hafði fyrirskipað
samúðarverkfall vegna Dags-
brúnardeilurmar að félagsmönn-
um forspurðum. Margir félags-
manna mótmæltu þessum að-
förum og var haldinn fundur í
félaginu á sunnudaginn. Fund-
urinn stóð í fimm klst. og sendi
Alþýðusambandið félagsstjórn-
inni mann til aðstoðar. Það kom
fyrir ekki, og var samþykkt með
48:8 atkv. að lýsa vantrausti á
félagsstjórnina og taka ekki
þátt £ samúðarverkfalli.
Þá hefir verkamannafélagið
Fram á Sauðárkróki samþyikt
með 52:1 atkv. svohljóðandi á-
lyktun:
„Fundurinn lítur svo á, að til
þessarar kaupdeilu sé ekki stofn-
að vegna félagslegra og sam-
eiginlegra stéttarhagsmuna
fyrir launþegana og alþýðuna í
þessu landi, og getur þar af leið-
andi ekki fallizt á, að félagið
gangi út í samúðarverkfall á
þessu stigi málsins.“
Sveinafélag járnsmiða á Ak-
ureyri hefir einnig neitaö að
taka þátt í samúðarverkfalli.
Áður hefir verið sagt frá slíkum
ákvörðunum vcrkamannafélag-
anna á Akranesi, ísafirði, Seyð-
isfirði og Fáskrúðsfirði.
\