Tíminn - 17.06.1947, Blaðsíða 4
FRAMSOKNARMENN!
/Vtuníð að koma í flokksskrifstofuna
REYKJAVÍK
Skrifstofa Framsóknarflokksin ser í
Edduhúsinu við Lindargötu. Simi 6066
17. Jtm 1947
109. blað
Aðalfundur
Sambands ísl.
verður haldiiui að Þingvöllum dagana 23. til
25. júní næstkomandi.
Dagskrá verður samkvæmt samþykktum
Sambandsins.
Fundurinn verður settur mánudaginn 23.
júní klukkan 10 f. hádegi.
Þeim fulltrúum, er þess óska, verður séð
fyrir fari frá Reykjavík daginn, sem fundur-
i im hest.
, INánari upplýsingar á skrifstofunni, sími
7080.
Reykjavík, 16. júní, 1947.
Sambands ísl. .samvinnufélaga
Eftir tvö hallærissumur
Minni Jóns Sigurðs-
sonar.
(Framhald af 2. slðu)
um til starfs, er horfði því til
heilla.
En hvert er þá orðið starf Jóns
Sigurðssonar og' hvernig býr
heimurinn nú í dag að minningu
slíkra manna, sem hann var,
og þeim hugsjónum, er þeir
börðust fyrir?
Ég ætla ekki að fjölyrða um
ástandið í alþjóðaviðskiptum í
dag. Þið þekkið það öll eins vel
og ég og miklu betur en ég. En
sú staðreynd, að smáþjóðum
hefir verið sýnd ágengni og þar
á meðal okkur íslendingum,
sýnir það og sannar, að ennþá
situr ránshyggjan að völdum i
heiminum.
Þegar við íslendingar í dag
minnumst Jóns Sigurðssonar,
hygg ég, að okkur væri hollt að
leiða getum að því, hvert svar
hann hefði veitt þessari ágengni,
og það er einlæg ósk mín, að á
þesum afmælisdegi Jóns Sig-
urðssonar heiðri íslenzka þjóð-
in minningu hans með því að
strengja þess heit að standa ein-
huga vörð um rétt sinn, vörð
um fresið og sjálfdæmi þjóð-
anna í eigin málum, svo að í
eyðimörk stríðshyggju og ráns-
hyggju megi hið íslenzka nei við
hvers konar áleitni verða eld-
stólpi, er lýsi á leið frelsisins.
Þá hygg ég, að Jón Sigurðsson
hefði ekki unnið afrek sín fyrir
gýg og að minning hans muni
lengi lifa í landinu sem aflgjafi
hins rétta og sanna.
Sky master-f I ug'vél
Loftleiða.
(Framhald af 1. síðu)
flugleiðum Norður-Atlanzhafs-
ins, enda stjórnað stórum flug-
förum í strlði og friði á þessum
leiðum.
6
Fyrirhugaðar ferðir flugvél-
arinnar.
Vélin kemur nú fullbúin til
millilandaflugs og mun hefja
ferðir næstu daga. Fyrstu tvær
ferðirnar verða farnar beina leið
til Kaupmannahafnar og næstu
tvær til Stockhólms og Osló, og
verður íþróttaflokkur Ármanns,
sem fara á til Finnlands, flutt-
ur í þeim ferðum. Ákveðið er að
halda einnig uppi ferðum til
Bretlands og Frakklands og víð-
ar, eftri því sem ástæður leyfa.
Mun félagið, svo fljótt sem auð-
ið er, auglýsa fastar áætlunar-
ferðir á þessum leiðum. Far-
gjöld verða eins og þau gerast
nú lægst. Verður fargjald til
Kaupmannahafnar t. d. kr. 850,
og munu þau verða tilsvarandi
á öðrum leiðum. Skymaster vél-
in mun hafa bækistöð á flug-
vellinum hér í Reykjavík, og
verður það farþegum til mikils
hægðarauka.
Starfsemi Loftleiða.
Flugfélagið Loftleiðir h. f. var
stofnað í marzmánuði 19á4, og
hóf starfsemi sína með einni 4
sæta Stinson sjóflugvél. Flug-
kostur félagsins hefir smám
saman aukizt og á félagið nú 4
Grumman flugbáta, 2 Anson
flugvélar, 2 Stinson og 1 Norse-
man flugvél. Félagið hóf starf-
semi sína með áætlunarflugferð-
um til Vestfjarða, Siglufjarðar
og annarra þeirra staða, sem
verst voru settir með samgöng-
ur. Félagið heldur nú uppi áætl-
unarflugferðum til ýmsra staða
á svæðinu frá Siglufirði vestur
um land og allt til Fagurhóls-
mýrar í Öræfum.
Fyrsta starfsár félagsins, 1944,
voru fluttir 702 farþegar með
vélum félagsins, en síðastliðið
ár varð farþegatalan 5672.
Hjá félaginu starfa nú um
30 manns.
(Framhald af 1. síðu)
samkomulagstillögurnar séu
bornar undir atkvæði Þróttar-
meðlima og stjórnarmeðlima S.
R. Enn fastar er kveðið að orði
um þennan sameiginlega vilja í
niðurlagi sáttmálans, en þar
segir svo:
„Breytingar þessar á kaup-
gjaldssamningunum ber að
skoða sem eina heildartillögu
og skulu umbjóðendur vorir
hafa sagt til eigi síðar en 2.
næsta mánaðar hýort þeir sam-
þykki hana og að fengnu sam-
þykki beggja aðila skulu samn-
ingar undirritaðir.“
Siglfirzkir verkamenn ánægðir
með samkomulagið.
Eftir að samkomulag hafði
náðst, lét formaður Þróttar í
ljós þá skoðun, að samkomulag-
ið væri tiltölulega jafn gott og
kröfur Dagsbrúnar.
Þótt vitað væri, að verkamenn
á Siglufiröi fögnuðu þessu sam-
komulagi, drógst alllengi að
stjórn Þróttar bæri samkomu-
lagið undir atkvæðagreiðslu í
Þrótti.
Stjórn síldarverksmiðjanna
hins vegar samþykkti sam-
komuiagstilllögurnar 2. maí.
Stjórn Þróttar snýst, eftir að
hafa fengið „línu“ frá Rvík.
Svo 'stóð á norður á Siglu-
firði, þegar samkomulagið var
undirritað, að símasambands-
laust var við Reykjavík. Full-
trúar Þróttar áskyldu sér því
rétt við undirskrift samkomu-
lagsins, að atkvæðagreiðsla í
Þrótti þyrfti ekki að fara fram
fyrr en símasamband væri á
komið við Reykjavík — en at-
kvæðagreiðsla skyldi alltáf
fram fara, sbr. niðurlag sam-
komulagsins.
Var drátturinn á atkv.greiðslu
fyrst í stað eðlilegur, eða meðan
símasambandslaust var milli
Reykjavíkur og Siglufjarðar.
En það einkennilega skeðúr,
að þegar símasamband er á
komið bólar ekkert á neinni
atkvæðagreiðslu í Þrótti.
6. maí er mál þetta loks tekið
fyrir á fundi í Þrótti, en í stað
þess að láta ganga til atkvæða-
greiðslu um samkomulagið, er
endanlegri afgreiðslu í málinu
frestað þar til væntanlegt alofn-
þing Alþýðusambands Norður-
lands væri um garð gengið.
Stjórn S.R. taldi rétt að bíða
átekta eftir svari Þróttar, þar
til að umrætt þing væri af-
staðið.
Dansað eftir „línunni“.
Eftir heimkomu fulltrúa af
þingi Alþýðusamb. Norðurlands
fóru línurnar að skýrast.
Voru nú kommúnistar á-
kveðnir, hvað gera skyldi og
boðuðu til fundar 31. maí. Þar
var samþykkt, að sameiginleg-
ur kaupgjaldssamningur skyldi
gerður fyrir allar síldarverk-
smiðjur á Norðurlandi og virða
fyrra samkomulag að vettugi
og formaður verkamannafélags-
ins, sá hinn sami, sem undir-
ritaði samkomulagið 26. apríl,
lét bóka: „að hann teldi sig
ekki geta mœlt með þvt, að
ísamningsuppkast S.R. og full-
trúa Þróttar yrði lagt fyrir
fund i félaginu til atkvceða-
greiðslu þar sem miðstjórn Al-
þýðusambands íslands hefði
ekki verið samþykk uppkas^inu“
Beri nú hver saman heilindi
kommúnista frá 26. apríl og svo
afstöðuna á íundinum 31. maí.
Svo sterk er flokksskipunin
að ekki er hikað við að ganga
á gerða samninga, komi fyrir-
skipanir frá æðsta ráðinu í
Reykjavík þar að lútandi.
Málinu vísað til sáttasemjara.
’ Eftir að kunn varð afstaða
ráðamanna Þróttar til gerðs
samkomulags og séð varð, að
þeir mátu meira a0 hlýða í
blindni pólitískum yfirmönnum
sínum í innsta hring kommún-
istaflokksins, en að standa við
gerða samninfea, sá stjórn S.R.
sér ekki annað fært, en afhenda
málið sáttasemjara í vinnudeil-
um, Þorsteini M. Jónssyni, Ak-
ureyri. Andstaða kommúnista
og framkoma þeirra öll eftir að
málið var afhent sáttasemjara
er orðin landsfræg.
Verða þó þau afskipti rakin
nokkuð hér, því þau varpa enn
nýju ljósi yfir það, hverju þjóðin
má eiga von á, komist flokkur
þessara manna til frekari valda í
þjóðfélaginu en orðið er.
Sáttasemjari kveður upp
úrskurð.
Eftir árangurslausar sáttatil-
raunir hvað sáttasemjari j^pp
úrskurð þess efnis, að atkvæða-
greiðsla skyldi fram fara meðal
Þróttarfélaga og stjórnar S.R.
um miðlunartillögu hans er var
samhljóða samkomulaginu frá
26. apríl.
Óskaði sáttaSemjari hvað eft-
ir annað samvinnu við stjórn
Þróttar um framkvœmd at-
kvœðagreiðslunnar, en komm-
ilnistarnir i stjórn Þróttar neit-
uðu, t{l að þóknast „Ifmunni
að sunnarí' og í því skyni að
koma í veg f^rir að hinn sanni
vilji félagsmanna fengi að
koma í ljós.
Félagaskrá Þróttar — einka-
eign kommúnista?
Eftir að sýnt var að kommún-
istar neituðu að hlýða lögunum
og láta fram fara atkvæða-
greiðsluna í Þrótti um miðlun-
artillögu sáttasemjara. Óskaði
sáttasemjari að fá afhenta fé-
lagaskrá Þróttar, en var neitað
um það af stjórn félagsins —
kommúnistum.
Fór nú ýmislegt í framferði
kommúnistanna að minna á
hrunadans þeirra í Kaupfélagi
Siglufirðinga þegar þeir ráku
70 kaupfélagsmeðlimi á einni
nóttu, af því að skoðanir þeirra
samrýmdust ekki skdíðunum
hinna kommúnistísku ráða-
manna kaupfélagslns og þeir
töldu sig komna í minni hluta
í kaupfélaginu.
Sáttasemjari skipaði fimm
manna kjörstjórn samkvæmt
lögum og lét birta auglýsingu
um atkvæðagreiðslu, er standa
skyldi dagana 6. og 7. júní.
Samtimis því lét hin komm-
únistíska stjórn Þróttar setja
upp svohljóðandi auglýsingu til
meðlima sinna:
„Atkvæðagreiðsla sú, sem hér-
aðssáttasemj ari, Þorsteinn M.
Jónsson, hefir auglýst í Þrótti,
er brot á „lögum um stéttarfé-
lög og vinnudeilur“. — Trúnað-
armannaráð Þróttar samþykkti
í gærkvöldi með 21 atkvæði að
mótmæla atkvæða^reiðslunni,
Alþýðusamband íslands hefir
einnig mótmælt.
Hér er um að ræða tilrann til
að koma stjórn verkalýðsfélaga
í hendur atvinnurekenda. —
ÞorsteinítM. Jónsson situr ólög-
lega í sæti sáttasemjara i deiiu
þessari.
Félagsfundur í Þrótti verður
haldinn um málið í kvöld kl. 8.30
í Alþýðuhúsinu.
Við skorum á þá, sem taka
þátt í hinni ólöglegu atkvæða-
greiðslu, að fella tillögu ríkis-
verksmiðjustjórnar og sátca-
semjara og standa þannig vörð
um sjálfsákvörðunarrétt verka-
lýðssamtakanna“.
Kommúnistar létu ekki við
þetta sitja, heldur kröfðust þess
að Þojrst. M. Jónsson viki sæti
sem sáttasemjari í deilu þessari,
þar eð hann ætti sæti í bæjar-
stjórn Akureyrar og Akureyrar-
kaupstaður ætti Krossanesverk-
smiðjuna. — Af þeim sökum
átti hann ekki að geta starfað
(jatnla Síó
Kvennastríð
(Keep your Powder Dry)
Amerisk Metro Goldwin Mayer
kvikmynd.
Laraine Day
Susan Peters
Lana Turner
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Tjafhatbíc
S j ömánasÉaðir
(Madonna of the Seven Moons)
Einkennileg og áhrifamikil
mynd.
Phyllis Calvert
Stewast Granger
Patricia Boc
Bönnuð innan 14 ára.
Sýningar kl. 5, 7 og 9.
Rlesi
(Hands Across the Border)
Roy Rogers og hstur hans.
Sýning kl. 3.
sem slíkur að miðla deilumál
milli SR og verkamannafél.
Þróttar. Kommúnistar kærðu og
til ríkisstjórnarinnar yfir fram-
komu sáttasemjaar og munu
hafa krafizt þess að hann yrði
að víkja sæti. Stjórnin synjáði
að sjálfsögðu þessari kröfu.
Atkvæffagreiðslan og viðbúnaffur
kommúnista.
Fyrri dag atkvæðagreiðslunn-
ara greiddu um 150 Þróttar-
meðlimir atkvæði, eða álíka
margir og mættu til að segja
upp samningum s.l. vetur.
Þennan dag birtu kommún-
istar eins og fyrr greinir avarp
til meðlima Þróttar og gengu
manna á milli og brýndu fyrir
mönnum að mæta ekki á þess-
ari „ólöglegu" samkundu. 'í
fyrstu munu kommúnistar hafa
ætlað, að auglýsingar með
nægilega sterkum orðum og
nógu oft endurtekin einkasam-
töl myndu duga til að fæla
menn frá að sækja kjörfund,
en þegar þeir að kvöldi fyrri
dagsins sáu þátttökuna, um-
hverfðust þeir og tóku til þeirra
ráða, sem ekki hafa enn þekkst
á íslandi í frjálsum kosningum.
Verkamenn hræddir frá
kjörstað.
Síðari dag atkvæðagreiðsl-
unnar, hófst atkvæðagreiðslan
kl. 13. Voru þá mættir á kjör-
stað nokkrir kommúnistar. —
Festu þeir upp auglýsingar um
það, að hver, sem gerðist svo
djarfur að fara inn og greiða
atkvæði, væri svikari við verka-
lýðssamtökin. Síðan stóðu þeir
vörð í lítilli forstofu, sem um
var gengið. Tóku þeir hvern
mann tali, er á kjörstað kom
og tilkynntu þeim, að þeir væru
til þessa staðar komnir, til að
fylgjast með hverjir stæðu með
sinni stétt — margir hverjir
vóru kallaðir á eintal og gengið
með frá dyrunum. Fjölda verka-
mannanna fundust aðfarir þess-
ar moðgun við sig, sem og var
og gáfu kommúnistum viðeig-
andi ábendingar. Meðal annars
voru kommúnistar að því spurð-
ir, hvert þeir ætluðu að hafa
þessar aðfarir við næstu Al-
þingiskosningar og kom þá á
þá hik. — Vissulega væri þetta
freystandi þegar Áka lægi á.
Nöfn þeirra verkamanna sem
greidddu atkvæði þennan dag
voru rituð niður og munu verða
géymd af kommúnistum — en
til hvers, er eigi enn vitað.
Aðfarir þessar eru svo einstakar
að flestum frjálshugsandi mönn
um hris hugur við og spyr: —
'Hvað verður um frjálsar kosn-
ingar og um félagafrelsið í
landinu, vaxi kommúnistunum
fiskur um hrygg?
Atkvæffatalning.
Atkvæðatalning hófst 7. júni
Ittjja Síi
(rið Skúlaf$ötu)
TANGIER
Spennandi og viðburðarík
njósnaramynd; frá Norður-Af-
ríku.
Aðalhlutverk:
Maria Montez og
Sabu Robert Paige.
Bönnuð yngri en 16 ára.
Aukamynd:
Nágrannar Ráðstjórnarríkjanna
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
HART Á MÓTI HÖRÐU
Hin sprenghlægilega Abbott og
Costello gamanmynd.
Sýnd kl. 3.
Sala hefst kl. 11.
kl. 9 að kvöldi. 200 Þróttarfélag-
ar greiddu atkvæði. Tillaga
sáttasemjara var samþykkt með
164 atkvæðum gegn 32. Þrír
seðlar voru auðir og einn ógildur.
Samkomulagið, sem Þróttar-
stjórn gerði í apríl og hljóp frá,
var þannig samþykkt af Þróttar-
félögum.
Kommúnistar boffa einnig
til atkvæffagreiffslu.
Þegar sýnt þótti, að Þróttar-
meðlimir tóku þátt í atkvæða-
greiðslu sáttasemjara, þá fékk
kommúnistastjórnin í Þrótti
samþykktá heimild á félagsfundi
sér til handa um að boða til al-
mennrar atkvæðagreiðslu meðal
Þróttarmeðlima. Bjuggu þeir út
atkvæðaseðil svohljóðandi:
ATKVÆÐASEÐILL.
Atkvæðaseðill -við allsherjar-
atkvæðagreiðslu í Verkamanna-
félaginu Þrótti 7. og 8. júní 1947.
Ert þú samþykkur fyrri félags-
samþykkt og stefnu stjórnar og
trúnaðarmannaráðs í yfirstand-
andi deilu um samræmingu
kaupgjalds í síldarverksmiðj-
um norðanlands.
já
nei
Þeir, sem svara játandi, setji
X við já.
Þeir, sem svara neitandi,
setji X við nei.
Þátttaka í atkvæðagreiðslu
þessari var mun meiri en þeirri
fyrri, enda smöluðu kommúnísc-
ar óspart. Fór svo, að rúmir 400
Þróttarmeðlimir greiddu at-
kvæði og tókst kommúnistum að
fá um 70 atkvæða meirihluta.
Þess ber að gæta í sambandi
við þessa atkvæðagreiðslu (eins
og atkvæðaseðillinn ber með
sér) að alls ekki var greitt at-
kvæði um samkomulagið við
SR, heldur um almenna félags-
málatillögu, sem menn gátu
fylgt jafnframt því að fylgja til-
lögu sáttasemjara.
Verkfallsyfirlýsingin.
Þrátt fyrir það, að komin er
á, samkv. niðurstöðu í atkvæða-
greiðslu sáttasemjara, gildandi
kaupsamningur milli Þróttar og
SR, hafa kommúnistar tilkynnt
verkfall hjá Síldarverksmiðj.um
ríkisins á Siglufirði frá 20. þ. m.,
sem er í fyllsta máta ólöglegt.
Fullyrða má, að það sé gert í
fullri óþökk meirihluta þeirra
verkamanna, sem hjá SR starfa
og ver]famanna almennt í Siglu-
firði.
Fyrir hótanir og yfirgang
kommúnista fékkst ekki meiri
þátttaka í atkvæðagreiðslunni
6. og 7. júní. Þó sögöu yfir 80%
já við þá atkvæöagreiðslu og
um 50 Þróttarmeðlimir fleira
greiddu atkvæði þá en þegar
kaupsamningunum var sagt upp
í vetur.
Þaff, sem koma skal.
Þeim, er fylgst hefir með gangi
þessara mála frá því að deil-
urnar hófust á Siglufirði, er það
ljóst, að kommúnistatr hafa lagt
inn á nýjar enn ósvífnari braut-
ir en nokkuru sinni fyrr ( og er
þá mikið sagt) í flokkshags-
munabaráttu sinni, þar sem þeir
í frjálsum kosningum koma fyr-
ir vörðum og bægja burtu kjós-
endum eða rita niður nöfn
þeirra líkt og þekkist í einræð-
islöndunum. Þótt segja megi, að
hér birtist í smáum stíl einræð-
isbrölt kommúnista og fyrirlitn-
ing þeirra fyrir lögum og rétti,
er ekki að efa, að það sem koma
skal, fái þeir nokkru ráðið, er
einræði og kúgun.
í