Tíminn - 05.07.1947, Síða 2
2
Tölixrv. langardagiim 5. julí 1947
120. blað
Laugurdayur 5. júlí
Einn ávöxtur fjár-
málaspillingarinnar
í frásögn af Stórstúkuþinginu,
sem birtist í seinasta blaði, voru
greindar tölur, sem hljóta að
vekja alla ábyrga og þjóðholla
menn til alvarlegrar umhugsun-
ar. Samkvæmt þeim voru á ár-
inu 1944 fluttir til landsins 284,-
000 lítrar af alls konar áfengi, en
árið, sem leið voru seldir 733.139
lítrar af áfengi í landinu. Svarar
það til þess, að seldar hafi verið
um ein millj. flöskur eða sjö
flöskur á hvert mannsbarn *í
landinu. Á þessum tvelmur árum
hefir áfengissalan hvorki meira
né minna en næstum þrefald-
azt.
í fljótu bragði átta kannske
ekki allir sig á því til fulls, hve
ægilegar þessar tölur eru. Það
er ekki sóun fjármunanna, sem
er ömurlegasti þátturinn í þess-
um málum, þótt hún sé gífur-
leg. Það, sem er hryggilegast
við þessar tölur, er sú mikla só-
un á starfskröftum og lífsham-
ingju, sem þær raunverulega
segja frá, — eyðilegging fjöl-
margra efnismanna og heilla
heimila, og aukning hvers konar
spillingar og lasta, sem eiga
eftir að draga margan slæman
dilk á eftir sér. Hér hefir vérið
efldur og látinn laus sá voði, sem
getur reynzt manndáð og menn-
ingu þjóðarinnar hinn mesti
fjötur um fót á ókomnum ár-
um.
Til þess að reyna að ráða bót
á þessum vanda, þurfa menn að
skilja orsakir hans. Þær eru
næsta fljótfundnar. Það er eng-
in tilviljun, að þau tvö ár, sem
meiri fj ármálaspilling ríkti í
landinu en áður hafa verið
dæmi til vegna óframsýnnar og
spilltrar stjórnarstefnu, skuli á-
fengisneyzlan hafa næstum því
þrefaldazt. Það er segin saga,
að vaxandi áfengisnautn er fast-
ur fylgifiskur illra stjórnarhá'tta
og fjármálaóreiðu. Þetta hefir
enn á ný sannazt hér, svo að
ekki verður um villst.
Þegar orsökin er fundin, þá
eru læknisaðgerðir líka fljót-
fundnar. Það er vissulega gott
og sjálfsagt að styðja hvers kon-
ar bindindísstarfsemi af fremsta
megni. Bindindlsstarfsemi hefir
áorkað ótrúlega miklu síðustu
árin, þótt árangurinn sjáist ekki
í fljótu bragði, en hefði hennar
ekki notið við, myndi ástandið
vera miklu verra. Það þarf jafn-
framt að herða kröfurnar til
fyrirsvarsmanna þjóðfélagsins
um bindindissemi og góð for-
dæmi. Það á að hætta að sví-
virða æðstu stofnanir þjóðfé-
lagáins eins og Alþingi og stjórn-
arráðið með forsetaþrennivín-
inu og ráðherrabrennivíninu.
Það á ,g£ki að auglýsa það þann-
ig eins og hin eftirsóknarverð-
ustu hlunnindi, að menn geti
drukkið frá sér vitið fyrir litla
peninga. En aukin bindindis-
starfsemi og auknar kröfur til
for$yarsmannanna eru hins
vegar ekki höfuðúrræðið. Höfuð-
úrræðið er að ráðist sé gegn
fjármálaspillingunni og verð-
bólgunni og öruggar ráðstafanir
gerðar til að lækna hana. Það
verður að skapa þann grundvöll,
að iðjusemi, ráðvendni og ráð-
deild verði viðurkenndar dyggð-
ir enn á ný. Þegar svo er komið
hefir ekki aðeins verið unninn
bugur á fjármálahpillingunni,
heldur hefir áfengisspillingunni
einnlg verið hnekkt. Þannig
ýjtw ttaþéttir TítmaHA
Íþróttastarfsemí sumarsins um allt land stendur nú sem hæst
og íþróttamót eru haldin hvert af öðru. Hér birtast fréttir og
frásagnir af nokkrum slíkum mótum og öðrum íþróttaviðburðum.
í slandsglíman
Myridir frá afmæÍLsmóti I. R. í Reykjavík
Íslandsglíman i ár var haldin
í Haukadal i Biskupstungum
þann 15. þ. m. á hinu forna
menningarsetri, sem Sigurður
Greipsson, glímukappi, endur-
reisti fyrir 20 árum síðan.
íþróttasamband íslands lagði
svo fyrir, að glíman skyldi hald-
in að Haukadal, Sigurði til heið-
urs á þessum tímamótum í hans
athyglisverða starfi í þágu
íþróttanna og var það vel til
fallið.
Áður en glíman hófst flutti
Sigurður Greipsson ágæta ræðu.
Hann minntist landsins og hér-
aðsins og taldi þennan dag vera
merkisdag ekki einungis fyrir
sig, heldur einnig fyrir þetta
hérað. Hann benti á gildi íþrótta
fyrir hvern mann en talaði þó
mest um íslenzku glímuna, sem
hann sagði að þjálfaði menn
ekki aðeins líkamlega, heldur
einnig andlega, því að líf okkar
allra væri í rauninni allt „glíma“
við hitt og þetta.
Að því búnu hófst glíman
sjálf. Glímustjóri var Jón Þor-
steinsson, íþrótttakennari, en
dómarar Þorsteinn Einarsson,
Sigurður Greipsson og Bjarni
Bjarnason.
Keppendur voru að þessu
sinni átta, sem mættu til leiks,
þó 12 hefðu verið skráðir tál
keppni, og er þáð leitt að það
skuli koma fyrir, að þriðjungur
keppenda komi ekki til leiks.
Guðmundur Ágústsson frá
Glímufélaginu Ármann bar sig-
ur úr býtum og sýndi greinilega
yfirburði. Má með réttu segja,
að hann hafi aldrei verið betur
að sigri kominn í Ísland,sglímu
en nú, þar sem við mjög jafn
sterka menn var að etja, og
margjr töldu honum t. d. hættu
búna fyrir Guðm. Guðmunds-
syni, Steini, Friðrik og Sigurjóni,
en ekkert slíkt skeði. Guðmund-
ur beitti mörgum brögðum, en
skæðust var nú sem fyrr hin
háa og tignarlega sniðglíma á
lofti. Þetta er í 5. sinn, sem
Guðmundur vinnur íslands-
beltið, og var það mál margra,
sem sáu þessa glímu að. Guð-
mundur muni vera einhver
mesti og skemmtilegasti glímu-
maðurinn, sem unnið hefir ís-
landsglímuna í þau 37 skipti
sem hún hefir verið háð.
Guðm. Guðmundsson, Á, varð
annar og fékk 6 vinninga, lá
aðeins fyrir Guðm. Ágústssyni.
Hann er mjög öruggur glímu-
maður, kann mikil og góð brögð
en hættir sér ekki út í neina
tvísýnu. Leggur öruggt og karl-
mannlega. Lýkist hann mjög
nafna sínum í tígulegri fram-
komu og glæsilegum leik. Hann
hefir á undanförnum árum oft-
ast^verið næstur Guðm. Ágústs-
syni í kappglímum, og oft mun-
að litlu hvor ynni.
Um þriðja sæti glímunnar var
mikil barátta milli Friðriks Guð-
mundssonar KR, Kristjáns Sig-
urðssonar, Á, Davíðs Hálfdánar-
sonar KR og Ágústs Steindórs-
sonar KR, sem allir urðu jafnir
með 3 vinninga hver, og lauk
stefnir allt að þeirri niðurstöðu,
að baráttan gegn fjármálaóreið-
unni og verðbólgunni er sameig-
inlegt áhugamál allra þeirra,
sem vilja skapa aukna menn-
ingu, betra þjóðfélag og batn-
andi lífskjör á íslandi.
henni með sigri Friðriks eftir 2
atrennur milli þessara manna.!
Friðrik er mikill glímumaður,!
sterkur og beitir hábrögðum.1
Hann er glímukappi KR-inga.1
Hann fékk að þessu sinn alls 5
byltur og er það mikið, því hann !
er hinn fræknasti glímumaður. |
Kristján Sigurðsson, Á, glímir
mjög hratt og fær oft færi á'
klofbj:agði, en snýst heldur mik- '
ið með manninn í brögðum, sem
lýtit glímu hans. Annars sýnir,
hann alltaf röskar og hressileg- j
ar glímur. Davíð Hálfdánarson j
glímdi létt og liðlega og tók ágæt!
brögð. Sérstaklega vakti athygli
mjaðmarhnykkur sem hann
undirbýr með mikilli sveiflu.
Ágúst Steindórsson glímir nokk-
uð fast, en ákveðið og röskt.
Steinn Guðmundsson Á., er
snöggur maður og glímir
skemmtilega fjörugt, og fékk að
ýmsra áliti minna út úr þessari
glímu, hvað vinninga snarti, en
hann átti skilið, en glímur hans,
sérstaklega við Guðmundana og
Friðrik, voru mjög glæsilegar og
fjörugar. Hann fékk tvo vinn-
inga.
Sigurjón Gumundsson frá
Umf. Vöku í Flóa hlaut í þessari
glímu aðeins einn vinning, og
má hann muna tímana tvenna
frá því hann lagði að velli glímu-
kappann Guðm. Ágústsson í
Skjaldarglímu Ármanns í vetur,
og vann þá glímu.
Það var auðséð frá því í vet-
ur, að Sigurjón er að breyta um
glímulag, hann er nú miklum
mun mýkri og léttari én í vetur.
Þegar menn breyta þannig til,
vilja þeir vera það sem kallað
er „langt niðri“ um tíma, og
þannig var í þetta sinn ástatt
með Sigurjón að mínu áliti. Ef
Sigurjón heldur áfram að æfa
sig með þessu nýja lagi, tel ég
engan vafa á því, að hann komi
„upp“ aftur og verði hættuleg-
ur keppinautur hverjum sem er
í framtíðinni.
f heild tel ég þessa glímu hafa
verið með betri Íslandsglímum,
sem ég hefi séð, enda varla við
öðru að búast, fyrst og fremst
vegna þess, að hér mættust mjög
svipaðir menn, þó að almennt
hafi verið búizt við Guðm. Ág.
sem sigurvegara, og enn fremur
vegna þess, að allir þessir menn
voru ágætlega æfðir undir þessa
keppni og höfðu gott úthald
glíniuna á enda, þó erfið væri
hún hjá sumum.
Að glímunni lokinni afhenti
Kjartan Bergmann framkv.stj.
í. S. í. verðlaun, sem var íslands-
beltið til Guðm. Ágústssonar og
ennfremur fagran skjöld, sem
sigurvegari Íslandsglímunnar á
að fá hér eftir til minningar.
Ennfr. voru veitt verðlaun II. og
III. manni.
Þeir Bjarni Bjarnason skóla-
stjóri og Erl. Pálsson ávörpuðu
Sig. Greipsson að lokum. Minnt-
ist Bjarni hans sem glímukappa,
héraðsleiðtoga og bónda, en Er-
lingur færði honum þakkir í. S.
í. og heíllaóskir.
G. J. B.
l'IJinnumií ^
óLu (Lr vorrar vi&> iandii.
-Jieitd á oCa ndyrœ&i Íu-íjó<f.
0
JjLrifíto^a -JJlapparitty 29.
Afmælismót I. R. er rétt afstaðið og
hefir það verið mjðg glæsilegt íþrótta-
mót og ný met sett. — Á mótinu
hafa keppt fimm Svíar og hefir það
auklð mjög á fjölbreyttni mótsins og
hert á íþróttamönnum okkar. Hefir
nánar verið sagt frá þessu móti hér í
blaðinu.
Svíarnir, sem þarna kepptu, eru
sumir meðal allra beztu íþróttamanna
í Svíþjóð.. Svo undarlega brá við, að
þeir tveir Evrópumeistarar, sem þarna
kepptu, urðu að lúta í lægra haldi. —
Sigraði Svíi íslenzka Evrópumeistar-
ann, en íslendingur hinn sænska.
Nú birtast hér þrjár myndir frá
mótinu. Á fyrstu myndinni sjást
hlauparar í 200 m. hlaupi, og er þar
fyrstur Haukur Clausan, þá Finnbjörn
Þorvaldsson og Svíinn Curt Lundquist.
Á annari myndinni sést Gunnar
Huseby vra að varpa kúlunni, og á
þriðju myndinni er Skúli Guðmunds-
son yfir slánni í hástökkinu.
(Ljósm.: Guðni Þórðarson).
Héraðsmót vestfirzkra
ungmannafélaga
Héraðsmót vestfirzkra ung-
mennafélaga var haldið að Núpi
21. og 22. júní. Laugardaginn
fóru fram undanrásir.
Á sunnudaginn messaði sr. Jó-
hann Pálmason sóknarprestur á
Stað í Súgandafirði. Formaður
héraðssamb., Halldór Kristjáns-
son á Kirkjubóli setti mótið en
síðan fór fram íþróttakeppni:
Fyrstu menn:
100 m. hlaup:
1. Einar Einarsson, Gísli Súrs-
son, 12 sek. 2. Jens Kristjánsson,
Bifröst, 12,1 sek. 3. Gunnlaugur
Finnsson, Grettir, 12,2'sek.
80 m. hlaup kvenna:
1. Ingibjög Ólafsdóttir, Höfr-
ungur, 11,5 sek. 2. Þóra Ragnars-
dóttir, Höfrungur, 12,4 sek. 3.
Sigríður Jónsdóttir, Gisli Súrs-
son, 13 sek.
1500 m. hlaup:
1. Sigurjón Jónasson, 17. júní,
5,04,5. 2. Guðmundur Ragnars-
son, 17. júní, 5. 3. Andrés
Eggertsson, Gísli Súrsson, 5,22.
Kúluvarp:
1. Hagalín Kristjánsson, Bif-
röst, 11,67 m. 2. Bjarni Helgason,
Gísli Súrsson, 11,56 m. 3. Jens
Kristjánsson, Bifröst, 11,09.
Kringlukast:
1. Jens Kristjánsson, Bifröst,
33,60 m. 2. Hagalín Kristjánsson,
Bifröst, 32,67 m. 3. Bjarni Helga-
son, Gísli Súrsson, 28,70.
Spjótkast:
1. Kristján Hagalínsson, Höfr-
ungur, 39,43 m. 2. Bjarni Helga-
son, Gísli Súrsson, 38,40 m. 3.
Kristmundur Finnbogason, Höfr.
33,08 m.
Langstökk:
Gunnlaugur Finnsson, Grettir,
5,85 m. 2. Jónas Ólafsson, Höfr-
ungur, 5,56 m. 3. Jens Kristjáns-
son, Bifröst, 5,52 m.
Þrístökk:
1. Svavar Helgason, Gisli Súrs-
son, 12,06 m. 2. Jens Kristjáns-
son, Bifröst, 11,90 m. 3. Hagalín
Kristjánsson, Bifröst, 11,87 m.
Hástökk:
1. Svavar Helgason, Gísli Súrs-
son, 1,58 m. 2. Högni Jónsson,
Grettir, 1,53 m. 3. Gunnlaugur
FinríSon, Grettir, 1,38 m.
Boðhlaup 4x100 m.:
1. Gísli Súrsson, 53,8 sek. 2.
Höfrungur, 54,4 sek. 3. Grettir
54,8. sek.
Stig:
Gísli Súrsson, 19 stig. Bifrost
15 stig. Höfrungur 13 stig. Grett-
ir 54,8 sek. t
Flest stig einstaklings:
Jens Kristjánsson 9 stig.
Handknattleikur stúlkna:
Stefnir og Höfrungur 8:1.
Að lokir.pm íþróttum flutti
Friðrik Hjartar skólastjóri á
Akranesi ræðu ■ um íslenzka
tungu.
Síðan dansað.
Mótið var fjölsótt og var hið
ánægjulegasta. Enginn maður
sást ölvaður á mótinu.
Snæfellingamót
Héraðsmót Snæfellinga var
haldið sunnudaginn 8. júní s.l.
Mótið hófst með messu séra
Sigurðar Péturssonar frá
Breiðabólsstað kl. 2\/2. Þá fór
fram íþróttakeppni.
Þátttaka í íþróttunum var
með minnsta móti. Umf. Grund-
arfjarðar átti flesta keppendur.
Árangur var með lélegra móti,
vegna erfiðra æfingarskilyrða og
einnig þess, að mótið varð að
hafa svo snemma vegna þess að
Grundfirðingar fara flestir á
síldveiðar.
Úrslit urðu sem hér segir:
100 m. hlaup:
1. Þorkell Gunnarsson, G, 12,3
sek. 2. Einar Skarphéðinsson, G,
12.4 sek. 3. Baldvin Baldvinsson,
G, 12,4.
400 m. hlaup:
1. Einar Skarphéðinsson, G, á
61,6 sek. 2. Kristján Torfason, G,
62.5 sek. 3. Jón Guðmundsson H,
68,0 sek.
1500 m. hlaup:
1. Rargnar Kristjánsson, G,
5,23,8. 2. Einar Skarphéðinsson,
G, 5,23,4. 3. Jón Guðmundsson H,
5.37,4.
80 m. hlaup kvenna:
1. Ester Árnadóttir, G, 12,2 sek.
2. Kristín Árnadóttir, G, 12,8 sek.
3. Hulda Þorkelsdóttir, G, 13,0
sek.
Hástökk:
1. Einar Skarphéðinsson, G,
1,50 m. 2. Kristján Torfason, G,
1,45 m. 3. Baldvin Baldvinsson G,
l, 40 m.
Langstökk:
1. Baldvin Baldvinsson, G, 6,04
m. 2. Kristján Torfason, G, 5,78
m. 3. Einar Skarphéðinsson, G,
5,28 m.
{
í
Þrístökk:
1. Kristján Torfason, G, 12,85
m. 2. Þorkell Gunnarsson, G,
12,51 m. 3. Baldvin Baldvinsson,
G, 11,58 m.
Kúluvarp:
1. Kristinn Ásmundsson, G,
11,08 m. 2. Gunnlaugur Finn-
bogaf'ion, G, 10j60. 3. Þorkell
Gunnarsson, G, 10,55.
Kringlukast:
1. Gísli Jónsson,. S, 33,02 m.
2, Þorkell Gunnarsson, G, 31,76
m. 3. Gunnlaugur Finnbogason
G, «29,33 m.
Spjótkast:
1. Gísli Jónsson, S, 44,97 m.
2. Þrokell Gunnarsson, G, 36,73
m. 3. Gunnlaugur Finnbogason
G, 35,78 m.
i
Stig félaganna:
Umf. Grundarfjarðar, 52 stlg-
2. Umf. Snæfell, 6 stig. 3. Umf.
Helgafell, 2 stig.
Stig einstaklinga:
1. Einar Skarphéðinsson, 11
stig. 2. Þorkell Gunnarsson 10
stig. 3. Kristján Torfason, 9. stig.
Jón Þórisson kennari frá
Reykholti var aðaldómari móts-
ins.
Mótig fór vel fram. Enginn
meiddist og íþróttirnar gengu
greitt. Stúlkur úr Umf. Snæfell
sýndu handknattleik og var það
nýbreytni. Dansað var á stórum
palli fram eftir kvöldi. Veður
var kalt og dró það úr aðsókn
að mótinu. Allt fór prúðmann-
lega fram.
F. h. Sambandsstjórnar
Bjarni Andrésson
form.