Tíminn - 05.07.1947, Blaðsíða 4

Tíminn - 05.07.1947, Blaðsíða 4
m hkAMSÓKNARMENN! 4 Munið að koma í flokksskrifstofuna REYKJÆVÍK Skrifstofa Framsóknarftokksin ser í Eddukúsinu við Lindargötu. Sími 6066 5. JtJLÍ 1947 120. blað Fréttir frá Hiísavík. (Framhald af 1. slðu) félag verkamanna hefir byggt — og er að byggja — 14 íbúðar- hús. Einstaklingar hafa byggt — og eru að byggja — á sama tíma um 25—30 hús. Kaupfélag Þingeyinga hefir reist stóra og vandaða mjólkurvinnzlustöð. Það er einnig að byrja á bygg- ingu þriggja hæða verzlunar- og skrifstofuhúss, 32X13 m. að grunnfleti. Brauðgerðarhús er í smíðum. Hefir kaupfélagið gerzt aðaleigandi þess. Lyfjabúð er í smíðum. Hana reisir Helgi Hálfdánarson lyfsali. — Hvað eru íbúar Húsavíkur margir? — Við síðasta manntal voru þeir rétt um 1200. — Hvað er að frétta af pólit- íkinni hjá ykkur Húsvíkingum? — Hinir svonefndu „borgara- flokkar" höfðu með sér kosn- ingabandalag við síðustu sveit- arstjórnarkosningar. Það telja þessir flokkar í Húsavík rétta stefnu — og starfa samkvæmt henni. • Meirihluti Húsvíkinga er þar af leiðandi vinveittur núverandi ríkisstjórn. — Ætlar ekki Húsavík að fara að fá sér bæjarréttindi, eins og Sauðárkrókur, sem er þó fá- mennari? — Vel getur verið að svo verði fljótlega. Annars er bæjarfé- lagsrekstur dýrari en hreppsfé- lagsrekstur — og fátt sem vinnst við breytinguna. — Fyndist þér ekki meira í munni að koma fram fyrir hönd Húsavíkurbæjar en Húsavíkur- hrepps? — Ekki held ég það. Mér hefir fundist fremur gott að reka er- indi fyrir Húsavíkurhrepp. Aðalatriðið er að staðurinn sé góður. Þá verður nafn hans vel metið, og gott að koma fram fyrir hans hönd. Menningar- og rainn- ingarsjóður kvenna Látið minningagjafabók sjóðs- ins geyma um aldur og ævi nöfn mætra kvenna og frásögn um störf þeirra til alþjóðarheilla. Kaupið minningarspjöld sjóðs- ins. Pást í Reykjavík hjá Braga Brynjðlfssyni, ísafoldarbóka- búðum, Hljóðfærahúsi Reykja- víkur, bókabúð Laugarness. — Á Akureyri: BókaJjúð Rikku, Hönnu Möller og Gunhhildi Ry- el. — Á Blönduósi: hjá Þuríði Sæmundsen. I íslandi boðið á Parísarfundinn Sendiherra Breta, Sir Gerald Shepherd, og sendiherra Frakka, herra Henri Voillery, komu í gær á fund utanríkisráðherra og færðu honum samhljóða orð- sendingar ríkisstjórna sinna, þar sem íslandi er boðið að senda fulltrúa á ráðstefnu um viðreisn Evrópu, um áætlanir varðandi framleiðslumöguleika og þarfir Evrópulandanna og um nauðsynlega skipulagningu í því skyni að koma þeim áform- um fram. Til ráðstefnu þessarar, sem hefjast mun í París hinn 12. júlí n.k., er boðað á grundvelli þeirra hugmynda, sem fram komu í ræðu utanríkisráðherra Bandaríkjanna hinn 5. júní s.l., og er öllum Evrópuríkjum, nema Spáni, boðin þá^ttaka. Fréttabréf. (Framhald af í. síðu) að byggja á tveim býlum og vot- heyshlöður á 3—4. Á Núpi er fyrirhuguð bygging á leikfimishúsi í sumar og á Þingeyri er verið að fullgera 2 íbúðarhús og læknisbústað. Unnið er að jarðrækt með dráttarvélum, en vélakostur hins nýstofnaða jarðræktarsam- bands sýslunnar er ókominn og von um fyrstu beltisdráttarvél- ina í sýsluna síðla sumars. Unnið hefir verið að vegavið- haldi beggja megin fjarðarins í vor, og nýbyggingu vegar inn með firðinum að vestanverðu. Hefir jarðýta verið þar að verki, og er langt komið að leggja veg inn 'að Dröngum. Vinna er ný- lega hafin í Hrafnseyrarbúðar- lega hafin í Hrafnseyrarheiðar- væntanlega vestur yfir heiðina í sumar. Tvö skip ganga á síldveiðar frá Þingeyri í sumar og margir sveitapiltar fara á síld, bæði á þeim og frá ísafirði, og verða þvi færri við slátt í sumar en nokkru sinni áður. Hjálpartæki hafa að vísu stóraukizt á ^íðari árum, en þó eru beiðnir um vélar langt á undan afgreiðsluget- unni. Þurrkaðqr og pressaður saltf iskur Nýskotinn svartfugl lækkað verð. FISKBÚÐIN Hverfisgötu 123. Sími 1456. Hafliði Baldvinsson. Það er víðar en í Reykjavík, sem róstur eiga sér stað á gamlárskvöld. í Málmey í Svíþjóð urðu allmikil átök milii lögreglu og uppvöðsluseggja og sést hér* á myndinni, er verið er að handsama nokkra þeirra og stinga þeim inn. Thomas Ths. Sabroc & Co. A/S Samband ísl. samvinnufelaga : mm____ p. 5Aaí»OE Útvegum allar stærðir og gerðir af sjálfvirkum, raf- knúnum kælivélum fyrir matvörubúðir, veitingahús og heimili. Aðalumboðsmenn fyrir: Þátttaka íslands í Olympíuleikunum. (Framhald af 1. síðu) bréf til allra féíaga innan vé- banda Í.S.Í., óskað samvinnu þeirra að undirbúningi og þjálf- un hæfustu íþróttamannanna og vitneskju um hæfni þeirra og getu. í bréfinu var einnig skýrt lauslega frá starfssviði nefndarinnar. Nefndin hefir látið byrja að þjálfa nokkra íþróttamenn, meðal þeirra sem hæfastir eru. Jón Pálsson, s.undkennari, sem Ólymplunefnd hefir ráðið til að þjálfa kappsundsmennina, er þegar tekin til starfs við undir- búning þeirra. Ennfremur hefir Ólympíunefndin fengið hingað sænskan þjálfara, O. Ekberg, til þess að þjálfa frjálsíþrótta- menn okkar undir Ólympíu- keppnina. Hefir hr. Ekberg nú eftirlit méð þjálfun frjáls- ijjróttamanna hér í bænum i samvinnu við kennara félag- anna, en mun síðar taka við þjálfun hinna hæfustu þeirra. Ólympíuneíndin hefir skipað fulltrúa fyrir sig í London Björn Björnsson, stórkaupmann. Hefir starf hans verið nefndinni mik- ilsvert. Nefndin er að láta jprenta mjög smekkleg merki í Eng- landi, Ólympíumerki, sem verða látin sem kvittun og viðurkenn- ing til þeirra aðilja, sem styrkja starf, nefndarinnar fjárhags- lega, en verða ekki seld. Enn- fremur á að gera Ólympíunæl- ur ,sem gert er ráð fyrir að selja almenningi. Þá ætlar Ólymp^unefndin að stofna til happdrættis, eins og fleiri aðiljar, er starfa að þjóð- þrifamálum. Hinn fyrsti vísir til þess var það, að einhver ágæt- ur og velhugsandi áhugamaður um íþróttamál vann aðaldrátt- inn í happdrætti K.R. og ánaín- aði hann Ólympíunefndinni til happdrættisstofnunar. Vegna hinnar miklu samkeppni á þessu sviði, treystist nefndin þó ekki til að fara á stað með það fyrir- tæki, nema eitthvað fleira yrði á boðstólum — þótt hún hins vegar væri hinum ágæta og ó- •þekkta gefanda mjög þakklát fyrir hugulsemi hans. Þegar svo is aðgangur að öllum leikunum. Ólympíunefndin hefir gert mikið með aðstoð fulltrúa neíndarinnar í London og á annan hátt, til þess að koma íslenzku glímunni að á Ólympíu- leikunum sem sýningaríþrótt, m. a. með því að senda kvik- mynd af glímunni til fram- kvæmdarnefndarinnar. Það mál er enn óútkljáð hjá fram- kvæmdanefndinni og verður Ólympíunefnd íslands látin vita um úrslftin, þegar þau eru fuT- vís orðin. Ólympíunefndin hefir skrifað Eimskipafélagi íslands og Skipa- útgerð rikisins og spurzt fýrir um farkost tii leikanna, bæði fyrir menn þá, sem nefndin þarf að koma þangað og ef tii vill íleiri, en ekki getað fengið lof- orð um hentugar ferðir ennþá, en erindi nefndarinnar var tek- ið fyrir af vinsemd og skilningi. Þetta er aðeins fáorð skýrsla um helztu málin, sem Ólympíu- nefndin hefir haft — og hefir flest enn — til meðferðar. En auk þessara aðalmála er fjöldi annarra mála, sem ekki þykir ástæða til að skýra fr^ í þessu fáorða yfirliti. Að endingu skal hér skýrt frá mikilvægasta málinu, sem Ólympíunefnd íslands hefir tek- ið ákvörðun í: Nefndinni hafa borizt þátttökutilboð til íslend- inga í Ólympíuleikunum í London á næsta sumri og í Vetrar-Ólympíuleikunum í St. Moritz í Sviss næsta vetur. Ólymplunefndin hefir tekið báð- um þessum boðum með þökk- um og heitið þátttöku af ís- lendinga hálfu. — Teikning af fánanum og þjóðsöngur íslands hafa verið send framkvæmda- nefnd Óiympíuleikanna eftir beiðni hennar. Má það skilja,’t sem nokkurs konar trygging fyrir þátttöku okkar. Flugráðið. (Framhald af 1. síðu) stjóra og Guðmund í. Guð- mundsson í ráðið, en flugmála- ráðherra hefir nýlega skipað þá Agnar Kofoed-Hansen lögreglu- stjóra og Örn Johnson fram- kvæmdastjóra til að vera í ráð- inu. ■ Verður Agnar formaður var komið málum, ákvað nefnd- j ráðsins. að hafa einn vinninginn fyrsta 1 Þá hefir flugmálaráðherra ný- flokks 6 manns Hudsonbíl. — j lega sagt upp öllu starfsfólki Þriðji vinningurinn í happ- j flugvallanna, svo að flugráðið drætti nefndarinnar verður fri eigi auðveldara með að endur- ferð á Ólympíuleikana og ókeyp- 1 skipuleggja starfshættina þar. (jamla Bíé \ Friölaml r æiiing j aima (Badman’s Territory) Spennandi amerísk stórmynd. Aðalhlutverk leika: Bandolp Scott Ann Richards George „Gabby“ Hayes Sýnd kl. 5, 7, og 9. Vtfja Síí (við Sfctíl'-'SÖtU ) Ef liepimin er með. Fjörug og skemmtileg musik- mynd. Aðalhlutv.: Vivian Blane, Perry Como, Carmen Miranda, Harry Jamen og hljómsv. hans Sýnd kl. 5, 7 og 9. Villihesturinn REYKUR, Ihestamyndin fallega, sem vakið hefir svo mikla athygli, er sýnd kl. 3. Sala hefst kl. 11 f. h. EnnSieimtu- menn Tímans Munið að senda greiðslu sem allra fyrst. Tjatharbíé SHMGHAI (The Shanghai Gesture) Spennandi amerísk mynd. Gene Tierney, ViCtor Mature. Sýning kl. 5—7—9. Bönnuð yngri en 16 ára. ESör ffiörsson Sýning kl. 3. Sala hefst kl. 11. — :: ♦♦ ♦♦ Í: ♦♦ ?! ♦♦ :: : AGA-eldavél Ný AGA-eldavél til sölu. Verðtilboð sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 30. júlí. :::::::::::: Þetta er myndastytta af Grundtvig. Hún hefir verið reist í garðinum framan við heimili hans í Kaupmannahöfn. Badminton er vinsæl og mjög iðkuð íþrótt meðal ungs fólks víða erlcndis, þótt enn sé hún lítið eða ekki iðkuð hér á landi. Þessar ungu stúlkur eru ánægðar að leikslokum. ■x

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.