Tíminn - 01.08.1947, Side 1

Tíminn - 01.08.1947, Side 1
RITSTJÓRl: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON ( ÚTGEFANDI: ) FRAMSÓKNARFLOKKURINN ' Símar 2353 og 4373 PRENTSMIÐJAN EDDA h.I. :. ITSTJÓR ASKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI. Llndargötu 9 A Simar 2353 og 4373 AFGREIÐSLA, INNHETMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Ltndargötu 9A Siml 31. árg. Reykjavík, föstudaginn 1. ágiisl 1947 138. blað Fréttabréf frá London: Næsti vetur mun verða brezku þjóðinni þungur í skauti Þrátt fyrlr alla erflðleika halda Bretar bjart- sýni sinni, glaðværð og góðvild Tímanum hefir borizt eftirfarandi fréttabréf frá Snæbirni Jónssyni bóksala, dagsett í London 27. júlí síðastl. Þar er gefið allgott yfirlit um þá örðugleika, sem Bretar eiga nú við að stríða, en þeir eru miklir og margvíslegir. Til viðbótar öllum erfiðleik- unum af völdum stríðsins, var seinasti vetur hinn harðasti, sem þar hefir komið í heila öld, og þegar hörkunum lauk, urðu þar meiri vatnsflóð, en dæmi munu til, og hlaust af þeim tjón, sem nam þústindum milj. sterlingspunda. M. a. fórst mikið af bú- peningi. í vor voru svo óvenjulega miklir hitar og þurrkar, sem ollu stórfelldu tjóni á uppskerunni. Allir þessir erfiðleikar af völdum náttúrunnar, hafa tafið viðreisnina eftir styrjöldina stórkostlega og orðið þess valdandi, að enn virðist langt í land til afturbatans. En þráít fyrir þetta allt láta Bretar ekki bugast og sérhver, sem þekkir til þeirra og sögu þeirra, trúir því, að þeir eigi eftir að rísa á ný. Hefst svo fréttabréf Snæbjarnar: FLAKIÐ AF TRIPITZ Minjar loftárásanna. Sá maður, sem dvaldi í London fyrir stríðið og nú kemur þang- að á ný. lætur það sjálfsagt í flestum tilfellum verða eitt sitt fyrsta, að kynna sér skemmd- irnar á borginni af völdum loft- árásanna, Hann er sjálfsagt við því búinn, að sjá að þær eru miklar, og fyrstu dagana kann honum að virðast sem þær séu vonum minni. En þegar frá líð- ur og hann fær tóm til að kynna sér málið nokkuð rækilega, þá verður annað uppi á teningn- um. Hann mun þá sjá að skemmdirnar voru ægilegri en hann hafði gert. sér í hugarlund. Svo að segja hvarvetna getur að líta stærri eða minni svæði þar sem ekkert er eftir nema auðnin, og hivergi þarf langt að fara til þess að sjá merki eftir meiri eða minni skemmdir. Jafn veA heilir borgarhlutar eru að hálfu leyti í rústum og að miklu meira en hálfu leyti skemmdir. Svo er t. d. um Lewisham, vel- megandi og vel byggða útborg í suðausturhlutanum, mikinn verzlunarstað með allmikilvægri járnbrautarstöð. Óvéfengjanleg skýrsla stjórnarvaldanna (offi- cial survey) segir að af 56.000 húsum í þessari borg hafi aðeins 370 verið óskemmd. Manntjón- ið var, eins og vænta mátti, gífurlegt. Eitt sinn vildi það til þarna að hættumerki var gefið ERLENDAR FRÉTTIR Brezka stjórnin hefir boðað, að hún hafi í undirbúningi víð- tækar ráðstafanir vegna fjár- hagserfiðleikanna og er m. a. talið líklegt,. að hermönnum verði fækkað, svo að hægt sé að auka vinnuafl í þjónustu framleiðslunnar. Er búizt við, að Attlee kynni þessara ráð- stafanir í útvarpsávarpi næstu daga. Öryggisráðinu hefir nú borist kæra frá Ástralíu og Indlandi yfir framferði Hollendinga í Indonesiu. Hófust umræður um málið í öryggisráðinu síðd. í gær. Stjórn Nýja-Sjálands hefir til- kynnt, að fulltrúi Nýja-Sjálands í öryggisráðinu muni styðja málstað Indonesíumanna. Stjórnin í Rúmeníu hefir bannað bændaflokkinn þar, en hann var í stjóamarandstölðu. Formaður flokksins, Maniu hef- ir veriö fangelsaður, og er ákærður fyrir byltingartilraun. í París kviknaði í kvenna- fangelsi í fyrradag og brunnu 22 konur inni. í byrjun hádegisverðartímans, rétt þegar stúlkurnar (um kari- menn var náttúrulega varla að ræða) úr búðunum og skrif- stofunum voru komnar út á götuna. Þær voru reknar inn í loftvarnabyrgi í aðalverzlunar- hverfinu. En svo hrapallega vildi til, að sprengja hitti sjálft byrgið og yfir 200 stúlkur misstu þar lífið. Eftir nokkgjð rækilega athug- un á Lundúnaborg — en til slíkrar athugunar þarf mánuði — getur engum skynbærum manni dulist það, að Þjóðverjar hljóta að hafa komist mjög ná- lægt því að gera borgina óbyggi- lega, sem vitaskuld var tak- markið. En það er ekki Lonndon ein sem er hart leikin (Plymouth var nálega lögð i rúst), nálega hver einasta borg á S.uður- Englandi er meira eða minna sundurtætt. Það er með öllu ómögulegt fyrir okkur, sem fjarri stóðum, að gera okkur ljósa þá eldraun, sem þjóðin gekk í gegnum. Og við þessi kjör, við knappan matar- skammt, húsnæðiseklu og kulda — að ógleymdu mjargra ára myrkri, sem máske var hræði- legast af öllu — vann hún baki brotnu, nótt og nýtan dag, horfðist í augu við ógnirnar, lét aldrei hugfallast og missti aldrei ^itt einstæða jafnvægi eða sitt góða og. gjaða skap- lyndi. Hvaða þjóð mundi eiga virðingu skilið, ef ekki þessi? Raunir berzku þjóðarinnar ekki á enda. Og eftir nærri átta ár fer því fjarri, að raun hennar sé enn á enda. Erfiðleikar brezku þjóð- arinnar eru enn svo miklir og marffaldir, að þeir mega vel kallast ægilegir. í ræðu, sem Anthony Eden flutti í gær (26 júlí), sagði hann að nú væri svo mikil hætta fyrij: dyrum og svo mikil eldraun fram undan á komanda vetri að ef þjóðin sigraðist ekki á henni, þá yrði sá ósigur engu síður dauðadóm- ur hennar heldur en ósigur í sjálfri styrjöldinni hefði orðið. Með svipuðum hætti hafa ýmsir aðrir hinna mestu merkis- manna talað í seinni tíð. Jafn- vel sjálf ríkisstjórnin ymprar á hinu sama, en þó hættir henni til að slá úr og í, svo að fyrir það saka andstæðingar hennar hana um óheilindi og skort á einurð. Umræður um ástand og horfur eiga að hefjast í þinginu næstkomandi miðviku dag, og má telja víst að margt komi í Ijós við þær umræður og efalítið verður aðstaða stjórnarinnar erfið. Jafnvel (Framhald á 4. sí'-t) Myndír þessar er frá Tromsö í Noregi. Á efri myndinni sést það sem eftir er af flaki þýzka orrustnskipsins Tripitz, sem sökkt var þar á stríðs- árunum. Á neðri myndinnl sjást nokkrir ferðalangar vera að skoða flakið. Kvikmyndahús Tónlistarfélagsins í Tripoli tekur til starfa Laugardaginn 2. ágúst verð'ur fyrsta kvikmyndasýningin í Trípólibíó Tónlistarfélagsins. Hefir félagið nú gert þær endur- bætur og breytingar á húsinu, sem krafizt var til þess að hægt væri að sýna þar kvikmyndir. Kvikmyndavélarnar eru af allra nýjustu gerð frá De Vry og eru tóngæði þeirra með afbrigðum mikil. Síldveiðin í gær var lítil síldveiði fyrir norðurlandi Nokkur skip urðu þó síldar vör á austursvæðinu en bræla gerði veiðina erfiða þó var samt betra veður á mið- unum í gær, en í fyrradag. Fá- ein skip komu með síld til Siglu fjarðar í gær, flest með lítinn afla. Mjög lítið hefir borizt á land af söltunarhæfri síld undanfarna daga. Skip sekkur Aðfaranótt miðvikudagsins var sökk síldveiðiskipið Ragnar úti fyrir Melrakkasléttu. Skipið mun hafa verið með fullfermi af síld. Áhöfninni var bjargað um borð í m.b. Skjöldur, sem var skammt frá. M.s. Ragnar var 100 smál., gamall línuveiðari. Eigandi skipsins vár Egill Ragnars á Akureyri. Þetta er fjórða skip- ið, sem ferst á síldarvertíðinni. Hin eru Snerrir, sem einnig sökk með fullfermi af sild, Bris, sem strandaði, og Einar Þver- æingur. Kauffraann sendi- herra staddur hér * Undanfarið hafa verið haldn- ir æði margir hljómleikar í Tripoli og ber öllum, jafnt söng- fólki og hljóðfæraleikurum, íaman um, að hvergi sé betra að troða upp. Senunni hefir allri verið breytt, settir nýir hliðar- veggir úr krossvið og parkett- gólf. Aliar rafleiðslur hafa verið settar nýjar, steyptur sýningar klefi, settar nýjar öryggisdyr og allt húsið málað. Eftir af gömlu Tripoli eru aðeins veggirnir Að sjálfsögðu verður Tripoli eftir sem áður fyrst og fremst notað fyrir aðra starfsemi fé- lagsins. Næsta vetur er gert ráð fyrir að þar verði óperettusýn ingar, auk þess sem húsið verð- ur yfirleitt leigt fyrir konserta og fyrirlestra á venjulegum bíótíma. Ennfremur hefir skóla stjóri Tónlistarskólans ákveðið að hefja almenna tónlistar- fræðslu á vegum skólans næsta vetur og þar munu framvegis fara fram æskulýðstónleikar félagsins. Hins vegar munu hljómleikar styrktarfélaga Tón- listarfélagsins framvegis fara fram í Austurbæjarbíó. Fyrsta kvikmyndin sem sýnd veröur í Tripoli er ensk, með Paul Robesoh, hinum heims- fræga söngvara i aðalhlutverki og síðar í næsta mánuði Strauss óperetta með hinum glæsilega þýzka tenór, Richard Tauber, í aðalhlutverki. Auk amerískra mynda hefir félagið í hyggju að tryggja sér nokkuð af enskum og frönskum myndum. Henrik Kauffmann, sendi- herra Dana í Washington, kom hingað í fyrradag til stuttrar dvalar. Verður hann gestur dönsku sendiherrahjónanna Seinasta kappleiknum viö Norö- menn lauk meö jafntefli IVorðnicnn hciðra forustumcnn knattspyrnu- samtakanna hcr Seinasta kappleiknum milli Norðmanna og íslendinga, sem fór fram á miðvikudagskvöldiö, lauk með jafntefli 1:1. Lið Norð- manna var þá mjög svipað og í landsleiknum. Lið íslendinga, sem var úrvalslið, var nokkuð breytt frá því sem var í lands- leiknum. M. a. vantaði nú Albert, sem er kominn til útlanda. Leikurinn var fjörugur og skemmtilegur, þótt ekki væri hann alltaf vel leikinn. Liðin voru nokkuð jöfn, en þó áttu Norðmenn heldur meira í leiknum. Það virtist koma glöggt fram í þessum leik, að íslendingar væru farnir að sækja sig, snerp- an var meiri hjá þeim en í hinum leikjunum, og úthaldið reyndist meira. Þeir stóðu sig nú öllu betur í seinni hálfleikn- um en þeim fyrri. Norðmenn virtust hins vegar öllu slappari og má vera, að þeir hafi ekki hvílt sig nógu vel hér. Fyrri hálfleiknum lauk með 1:0 Norðmönnum í vil. Markið setti Vang-Sörensen á 34. mín- útu leiksins. Þremur mínútum seinna skoraði Haukur Óskars- son mark hjá Norðmönnum, en það dæmdist ógilt, þar sem Ríkhard Jónsson hafði verið rangstæður. í fyrri hálfleiknum lá meira á íslendingum. í síðari hálfleiknum tókst Akranes fær fyrsta bæjartogarann Fyrsti togari bæjarútgerðar- innar á Akranesi, Bjarni Ólafs- son, kom þangað á þriðjudag- inn eftir þriggja sqlarhringa ferð frá Englandi. Við komu hans fór fram hátíðleg mót- tökuathöfn og var mikill mann- fjöldi þar viöstaddur. Bjarni Ólafsson er einn af togurum þeim, sem byggðir eru á vegum ríkisstjórnarinnar í Englandi. Ríkhard að ,,kvitta“ á 26. mín. leiksins. Nokkru áður höfðu Norðmenn skoirað mark. sem reyndist þó ógilt, þar sem knött- urinn hafði áður farið út fyrir endamarkallín’una. í þessum hálfleik veitti íslendingum engu ver en Norðmönnum. íslenzku leikmennirnir stóðu sig yfirleitt sæmilega og enginn iila. Sé?staka athygli vakti Kristján úr Fram. Hann er að verða einn duglegasti og snarp- asti knattspyrnumaðurinn hér, en gætir sín ekki alltaí nógu vel. Með aukinni aðgætni og æf- ingunni getur hann kannske orðið nýr Albert. Guðjón Einarsson dæmdi leikinn og fórst það vel úr hendi. Leikurinn við Fram. Annar leikurinn við Norð- mennina fór fram á mánudags- kvöldið var og kepptu þeir þá við Fram, sem er íslandsmeist- ari. Norska liðið var þá skipað öllum varamönnunum og því mun veikara en landsliðið. Strax í fyrri hálfleik sýndi það þó talsverða yfirburði, þótt honum lyki með jafntefli 0:0. í seinni hálfleik tóku þeir strax forustuna og skoruðu þá fimm mörk. Var leikur Framara mjög i molum eftir að þeir fóru að fá mörkin á sig. Markmaður Fram, Adam Þor- gríKisson, stóð sig þó yfirleitt (Framhald á 4. síðu) Félag Snæfellinga og Hnappdæla reisir gistihús á Búðum Mikil hátíðahöld )»ar iuu hclgina Um næstu helgi efnir Félag Snæfellinga og Hnappdæla í Reykjavík til héraðsmóts Snæfellinga að Búðum. Um leið fer iram vígsla hins glæsilega gistihúss félagsins þar, en það verð- ur bárðlega opnað fyrir almenning. Unc'anfarln ‘y ’ -fn. yfir ýmsar framkvæmdir á vegum Félags Snæfellinga og Hnappdæla. Félagið hefir meðal annars gengizt fyrir friðun stórs svæðis af Búðahrauni, en það er eins og kunnugt er eitt meðan hann dvelur hér. í kvöld mun Kauffmann halda ræöu á samkomu, sem haldin er af félögum Dana liér í bænum. Nýir ræðismenn Forseti skipaði á ríkisráðs- fundi 30. júlí 1947, eítir eftir- talda ræðismenn: 1. Seth Brinck til að vera ræðismaður ísl'ands 1 Stokk- hólmi. 2. Robert Massel til að vera ræðismaður íslands í Boulogne sur-Nor. 3. Alf Jochumsen til að vera ræðismaður íslands í Mar- seilles 4. Fred R. Emerson til að vera ræðismaður íslands í St. John’s á New-Foundland. 5. Francisco Suarez til að (Framhald á 4. síðu) gróðursælasta hraun á landinu. Þá hefir félagið látið leggja veg heim að Búðum. Er lagningu vegarins nú lokið, en eftir er að malbera hann. Loks hefir félagið komið upp myndarlegu gisti- og veitingahúsi og verður það vígt á sunnudaginn kemur, eins og áður segir. Ráögert er að húsið verði | jafnframt notað sem hús- , mæðraskóli að vetrinum, meðan | enginn kvennaskóli er til í sýslunni, en í ráði er að hann | verði reistur á Helgafelli. Enn er ekki fullráðið, hvort skólinn ! tekur þarna til starfa í haust, en gert er ráð fyrir að húsið muni rúma um 20—30 náms- |meyjar í heimavist. Þeir, sem fara á vegum Snæ- fellingafélagsins til Búða um helgina, munu fara héðan í bif- reiðum og verður lagt af stað klukkan 2 e. h. á laugardaginn. jókeypis tjaldstæöi verða látin I af hendi við þá, sem koma á j laugardaginn. (Framhald á 4. síðu)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.