Tíminn - 09.08.1947, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEPANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Símar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDÐA h.I.
: -ITST JÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Llndargötu 9 A >
sunar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9A í
Simi 2333 '
31. árg
Reykjjavík, laugardagiiiii 9. ágúst 1947
143. blað
Keflavíkurvöllurinn er einhver
bezti flugvöllur í heimi
ViJltal við ISyron Moore flngstjjóra á Ilekln
Flugtækninni í heiminum fleygir ört fram. Með hverju árinu,
sem líður verða farþegaflugvélarnar fleiri, stærri og hraðfleygari,
en um leið styttast raunverulega vegalengdirnar á jarðkúlunni.
íslendingar eignuðust í sumar flugvél af svokallaðri Skymaster-
gerð, en þær eru nú meðal stærstu og fullkomnustu farþegaflug-
véla, sem notaðar eru. Er hér átt við HEKLU, flusyél Loftleiða.
Tíðindamaður Tímans hitti nýlega flugstjórann á Heklu, Byron
IVioore, sem er amerískur og átti viðtal við hann um starf hans
hér og flugmál yfirleitt.
— Mér er sagt, að þú sért
enginn viðvaningur í fluglist-
inni?
— Ég hefi flogið síðan 1925,
en þá útskrifaðist ég af flug-
skóla hersins i Bandaríkjunum,
um svipað leyti og Lindberg
flugkappi, en við vorum skóla-
bræður og kunningjar. Seinna
Byron Moorc.
réðist ég í þjónustu ameríska
flugfélagsins American Airlines
og hefi starfað sjá því félagi að
heita má óslitið síðan, þar til
nú, áð ég hefi ráðið mig til eins
árs starfs hjá Loftleiðum. Að
þvi loknu býst ég við að fara
aftur tíl fyrra félags míns.
— Þú hefir þá ekki tekið þáþt
í starfsemi flughersíns á styrj-
aldarárunum?
— Nei, ekki sem hermaður, en
ég flaug þó í þjónustu hersins.
Meðal annars flaug ég framan
af stríðinu á áætlunarleiðinni
milli Bandaríkjanna og Ástral-
iu, með viðkomu í Honululu. í
stríðslokin flaug ég fyrir félag
mitt til Evrópu, aðallega til
Þýzkalands og kom þá oft við
hér á landi. Þá kynntist ég ís-
landi og íslendingum og tók
ástfóstri vjð land og tijóð. Þess
vegna er ég nú kominn hér.
— Hvað viltu segja mér um
ísland og þýðingu þess fyrir
Atlantshafsflug?
— ísland hefir stórkostlega
yfirburði fram yfir önnur lönd,
sem vlðkomustaður í Atlants-
hafsflugi. í Þýzkalandsfluginu
reyndum við ýmsar suðlægari
leíðir, en leiðin um ísland
reyndist okkur ævinlega bezt.
— Og hvað um flugvellina?
— Þið hafið tvo ágæta flug-
velli. Keflavíkurflugvöllurinn er
•^inhver bezti flugvöllur i heimi
og þar geta örugglega lent hvað
stórar flugvélar, sem er og i j
hvaða vindátt sem er, og einnig
hafið sig til flugs. Umhverfi
Keflavíkurflugvallarins er mjög
heppilegt og auðveldlega hægt
að koma að honum úr hvaða átt
sem er, vegna þess að engin
fjöll eru nálæg.
Reykj avíkurf lugvöllurinn er
ERLENDAR FRÉTTIR
í gær fóru fram framhalds-
umræður í brezka þinginu um
tillöguT verkamannastjórnar-
innar. Churchill var frummæl-
andi. af hálfu stjórnarandstæð-
inga.
einnig ágætur. Hann er nógu
stór til að lenda á honum stór-
um vélum, svo sem Skymaster,
og lika í lang flestum tilfellum
nógu stór til að hefja flugið,
nema þegar vindáttin er þannig
að fljúga þarf yfir Öskjuhlíðina.
Þó að veður séu oft slæm hér
við land, er venjulegast alltaf
Hægt að komast inn, þó að
stundum verði að bíða stund og
stund eftir réttu lagi.
— Hvað viltu segja mér um
flugmál okkar íslendinga?
— Ég vil fyrst og fremst segja
það, að ég tel íslendinga yfir-
leitt ákaflega vel fallna til að
vera flugmenn. Ég hefi séð fjöl-
marga unga menn hér, sem ég
er sannfærður um, að yrðu úr-
ræðagóðir og .snjallir flugmenn.
Ég er búinn að kynnast þeim
það mörgum, að ég held að ég
sjái það no.kkuð á mönnum.
Annars eru þeir íslenzku flug-
menn, sem ég hefi kynnzt, góðir
og áhugasamir. En það er afar
áiríðandi að til flugstarfanna
veljist gáfaðir og úrræðagóðir
menn.
íslendingar þurfa að gera
miklu meira en gert er til að
örfa unga menn til að nema
flug og aðrar sérgreinar í sam-
bandi við það, svo sem flugvéla-
virkjun, sem engu síður er
nauðsynleg. Sannleikurinn er
sá, að hér heima er hægt að
læra allt það í þessum greinum
sem kennt er erlendis. Ég tel
það mjög þýðingarmikið fyrir
bróun flugmálanna hér á landi,
að ríkið eða flugfélögin í sam-
einingu komi upp litlum flug-
skóla, sem mennti flugmenn
ykkar. En þá verður líka að vera
fyrir hendi fast námskerfi, svo
þeir, sem læri geti stefnt að
ákveðnu marki.
Ég er þeirrar skoðunar, að
íslendingar geti átt glæsta
framtíð fyrir sér í loftinu, t. d.
að sínu leyti eins og Norömenn
á sjónum. Það er ekkert því til
fyrirstöðu, að íslendingar komi
upp stórum loftsiglingaflota
með eigin áhöfnum, er annist
flugþarfir að einhverju leyti
fyrir aðrar þjóðir. ísland ligg-
ur svo einstaklega vel við flug-
samgöngum milli hins gamla og
nýja heims, að það hlýtur að
hafa yfirburði fram yfir önnur
lönd til að reka slíkan flug-
flota.
F. í. flytur 183 farþega
á einum degi
í fyrradag fluttu flugvélar
Flugfélags íslands alls 183 far-
þega. Er það með mesta fjölda,
sem flugfélagið hefir flutt til
þessa á einum degi.
Flestir farþegar voru fluttir
milli Reykjavíkur og Vest-
mannaeyja, alls 89 farþeg-
ar. Á milli Reykjavíkur og
Akureyrar voru fluttir 22 far-
þegar, Rvikur og Keflavikur 22,
Rvíkur og Hólmavíkur 3, Rvíkur
og ísafjarðar 20, Akureyrar og
Ísafjarðar 13 og frá Reykjavík
til Prestwick 14.
GRISKU KONUNGSHJÓNIN
Mikil óöld ríkir nú í Grikklandi, eins og oft áður, og vaða skæruliðar
kommúnista víða uppi og valda skemmdum og spellvirkjum. Grisku kon
ungshjónin, sem sjást á þessari mynd í nýrri amerískri bifreið, virðast þo
glöð í skapi, þar sem þau heilsa þremur börnum við veginn. Páll Grikkja
konungur kom til valda í vetur, þegar Georg bróðir hans Iézt.
Búizt við góðum árangri
á meistaramóti íslands
^æstiiBii sallir bo/lu fi\*álsíbrótlaim»iin lantlsins
taka þátt í l>ví
Meistaramót íslands í frjálsunt íþróttum hefst á sunnudaginn
og fara aðalkeppnir þess fram þá og á mánudagskvöldið. Alls
verður keppt á mótinu í 22 greinum og eru þátttakendur 57 frá
10 héraössamböndum og íþróttafélögum. Eru flestir beztu frjáls-
iþróttamenn landsins meðal þátttakenda á mótinu og má yfirleitt
búast við mjög harðri keppni og góðum árangri, ef veður verður
iiagstætt.
Mótið hefst á sunnudaginn
kl. 2 og verður þá keppt í 200 m.
hlaupi, hástökki, 800 m. hlaupi,
spjótkasti, 5 þús. m. hlaupi,
langstökki og 400 m. grinda-
hlaupi. Á mánudagskvöldið
heldur mótið áfram kl. 8,15, og
verður þá keppt í 100 m. hlaupi,
Síldveiðin
í fyrrakvöld var allmikil síld
á Vopnafirði og við Langanes,
en í fyrrinótt versnaði veður og
síldin hvarf að mestu. í gær
barst því mjög lítil sild til verk-
}njðjanna. Þó komu allmörg
skip með sild til Raufarhafnar
og verksmiðjanna við Eyjafjörð
í gær, en sú síld hafði aðallega
veiðst austan Langaness í fyrri-
nótt. í fjyrakvöld var alls búið
að salta um 2000 tunnur á Rauf-
arhöfn. Örlitil veiði var og við
Grímsey í fyrrinótt og fengu
skip allt að 150 mál í kasti. Sú
síld var söltuð á Siglufirði.
stangarstökki, kringlukasti, 400
m. hlaupi, þrístökki, 15 þús. m.
hlaupi, sleggjukasti, og 110 m.
grindahlaupi. Síðar verður
keppt í 4x100 m. boðhlaupi,
4x400 m. boðhlaupi fimmtar-
þi’aut, 4x1500 m. boðhlaupi, 10
þús. m. hlaupi og tugþraut.
Þátttakendur í 200 metra
hlaupi eru 9, og mun þar að
vænta harðastrar keppni milli
Finnbjarnar Þorvaldssonar og
Hauks Clausens. í kúluvarpi eru
þátttakendur 8, þar á meðal
Vilhj^lmur Vilmundarson og
Sigfús Sigurðsson. í hástökki
eru keppendur 4, og er Skúli
Guðmundsson þar efalaust
snjallastur, en Kolbeinn Krist-
insson og Sigurður Friðfinnsson
heyja sennilega harða keppni
um annað sætið. í 800 m. hlaupi
eru þátttakendur 4, og berjast
þeir Óskar Jónsson og Kjartan
Jóhannsson þar um meistara-
tignina. í spjótkasti eru 4 þátt-
takendur, þar á meðal Jóel Sig-
urðsson og Hjálmar Torfason.
í 5000 m. hlaupi eru líka 4 þátt-
takendur, þar á meðal Þórður
Þorgeirsson og Sigurpríir Ársæls-
Enn vantar 21 þús. smál.afsíldar-
lýsi til þess að tryggja söluna á
hraöfrysta fiskinum
Lrsisfrainleiðslan er mi um 16 liús. smál.
Um seinustu helgi munu síldaverksmiðjurnar liafa verið búnar
að framleiða um 16 þús. smál. af síldarlýsi, og er það helmingur
af því, sem þarf að fást til að tryggja söluna á hraðfrysta fisk-
inum. Síðan um helgi hefir sáralítil síld veiðst og inun lýsis-
framleiðslan því sama og ekkert aukast þessa vikuna.
Uppsögn samninga á
kaupskipaflotanum
Sjómannafélag Reykjavíkur
hefir nýlega sagt upp samning-
um á kaupskipaflotanum og fer
fram á svipaða kauphækkun
fyrir hásetana og Dagsbrúnar-
menn hafa fengið. Samninga-
viðræður munu vera í þann veg-
inn að hefjast.
Kauphækkun
á Bíldudal
Kaupdeila, sem staðið hefir á
Bíldudal frá mánaðamótum
leystist í fyrradag.
Verkamenn fengu kauphækk-
un í ýmissi vinnu. Almenn
vinna karla hækkar í kr. 2.56 úr
2.40, skipavinna úr 2.5 í 2.85,
skipavinna við kol, salt, sement ;
og uppstöflun sements í húsi í
3.25 úr 2.75. Kaup kvenna og
drengja hækkar í hlutfalli við
þetta.
Sumardvöl barna
í sumar eru það alls 210
drengir og telpur, sem dvelja í
sveitum landsins á vegum
Rauða Kross íslands.
Flest af þessum börnum eru
við Silungapoll, eða 110, þar af
37 telpur. Að Kolviöarhóli dvelja
alls 52 börn, þar af 35 drengir.
Að Löngumýri í Skágafirði
dvelja 30 telpur og að Sælings-
dal í Dalasýslu 28 drengir.
D Eii>s og kunnugt er, hafa
Bretar samið við okkur um kaup
á 12. þús. smál. af síldarlýsi
gegn því, að þeir fái iy2 smálest
af lýsi með hverri smál. af hrað-
frystum fiski, er þeir kaupa af
okkur. Þarf þannig rúmar 18.000
smál. af síldarlýsi til þess að
tryggja þessa fisksölu til Bret-
lands.
Þá hafa Rússar einnig samið
við okkur um kaup A 10 þús.
smál af hraðfrystum fiski með
sviþuðum skilmálum. Þarf því
um 15 þús. smál. af síldarlýsi til
að tryggja þessa fisksölu þang-
að.
Þá þarf ennfremur 4y2 þús.
smál. af síldarlýsi til þess að
tryggja fisksölu til annarra
landa, sem gerðir hafa verið við
svipaðir samningar. Lýsisfram-
leiðslan þarf því alltaf að verða
37 y2 þús. smál. til þess að
tryggja þá fisksölu, sem búið er
að semja um. Okkur vantar því
mun meira en helming eða rúm-
lega 21 þús. smál. af síldarlýsi
til þess að geta fullnægt gerð-
um samningum.
Ef við getum ekki afhent um-
samið magn af síldarlýsinu, eru
hinir samningsaðilarnir ekki
skuldbundnir til að kaupa þann
hluta af fiskinum, sem ekki er
hægt að láta síldarlýsi með. Og
þótt þeir fengjust til að kaupa
þennan fisk, myndu þeir greiða
mun lægra verð fyrir hann, því
að hið umsamda, háa verð hefir
eingöngu byggzt á því, að þeir
fengju síldarlýsið.
Meðan ekki gengur betur með
síldveiðarnar, er þannig allt í
óvissu með mikinn hluta fisk-
sölunnar og horfur á, að hún
ætli aö ganga mun verr en vonir
hafa staðið til. Sést vel á þessu,
{hve mikið þjóðin á undir þvi,
| að betur rætist úr með síldveið-
I arnar en nú er útlit fyrir.
Norsku knattspyrnumennirnir
róma gestrisni Islendinga
Álit Dalils á íslcnzkri knattspyrmi
Norsku knattspyrnumennirnir, sem voru hér í fyrra mánuði,
láta mjög vel af íslandsförinni. Ilafa mörg norsku blöðin átt við-
S:al við þá og róma þeir alls staðar viðtökurnar hér.
Páll á Ásólfsstöðum
látinn
Páll Stefánsson bóndi frá Ás-
ólfsstöðum andaðist að heimili
sinu hér í bænum aðfaranótt
fimmtudagsins. Hann var á 71
aldursári. Páll gekk heiþ. til
’nvílu um kvöldið, þótt hann
hafi átt við vanheilsu að stríða
hin síðari ár var hann orðinn
hress. — Hann andaðist í svefni.
Páll Stefánsson var þjóð-
kunnur maður. Hann bjó lengi
rausnarbúi að Ásólfsstöðum
í Þjórsárdal, en brá búi fyrir
nokkrum árum og tók þá sonur
hans, Ásólfur, við jörðinni.
(FramhalcL á 4. síBu)
A
Ný Islandsmet
Nýlega hafa verið sett tvö ís-
landsmet í íþróttum. Á drengja-
mótinu setti Haukur Clnusen
íslandsmet í 400 m. hlaupi á
50.4 sek., en gamla metið, sem
var 50.7 sek., setti Kjartan Jó-
hannesson. Þá setti boðhlaups-
sveit úr Í.R. nýlega met á inn-
anfélagsmóti í 4x800 m. boð-
hlaupi. Rann hún skeiðið á 8.10,8
mín., en gamla metið var 8.20,4
mín. Í.R. sveitin var ‘ þannig
skipuð: Örn Eiðsson, Pétur
Eiðsson, Óskar Jónsson, Kjartan
Jóhannsson.
Morgenbladet í Osló heíir átt
tal við Reidar Dahl, formann
norska knattspyrnusambands-
ins og fararstjóra knattspyrnu-
mannanna, sem komu hingað.
Hann segir þar, að norskir
knattspyrnumenn hafi farið
margar skemmtilegar ferðir, en
íslandsförin sé alveg einstæð.
Okkur fannst alltaf, sagði hann,
að við værum heima hjá okkur
og gestrisninni og vinsemdinni,
sem þeir mættu hjá háum og
lágum, munum við aldrei
gleyma.
Um íslenzku knattspyrnuna,
segir Dahl, að hún standi á
lægra stigi en knattspyrna
Norðmanna. Hún minni á knatt-
‘spyrnu Norðmanna fyrr á ár-
um, þegar mikið var lagt upp
úr löngum spyrnum, hraða og
hörku. Þó bregði oft fyrir góðri
tækni og Albert Guðmundsson
sé sönnun þess, að íslendingar
geti orðið góðir knattspyrnu-
menn, en hann sé með beztu
knattspyrnumönnum í Evrópu.
Þá segir Dahl frá viðtali sínu
við Gibbs, enska knattspyrnu-
dómarann, en hann lauk sér-
sttóku lofsorði á þrjá knatt-
spyrnumenn Norðmanna, þá
Gunnar Thoresen, Gunnar
Andresen og Knut Brynildsen.
Yfirleitt hlýtur Alþert Guð-
mundsson mikið lof í íiorsku
blöðunum. Aftenposten líkir
honum t. d. við Nordahl ssgnska,
en hann er af mörijrum talinn
bezti miðframherjinn i Evrópu.