Tíminn - 06.09.1947, Side 4
DAGSKR'Á er bezta íslenzka
tímaritib um þjóðfélagsmál
4
REYKJAVÍK
Skrifstofa Framsóknarflokksins er í
Edduhásirm við Lindargötu. Sími 6066
5. SEPT. 1947
161. blað
Nýtt bókmenntaféiag
(Framhald af 3. slðu)
bindi útgáfunnar verða 15 nýjar
smásögur.
Bókaútgáfan Helgafell, sem
eins og kunnugt er, annast af-
greiðslu fyrir félagið Land-
námu, hefir tekið að sér af-
greiðslu á bókum „Kaldbaks".
í útgáfuráði Kaldbaks eru
eftirtaldir menn:
Alexander Jóhannesson dr. phil.
Steingrimur Þorsteinsson pró-
fessor Bjarni Vilhjálmsson cand.
mag. Þorsteinn Þorsteinsson
sýslumaður. Ragnar Jónsson
forstjóri. Vilhj. S. Vilhjálmsson
rithöfundur. Birgir Kjaran for-
stjóri. Ásgeir Ásgeirsson banka-
stjóri. Þorsteinn Jósepsson
blaðamaður. Andrés Kristjáns-
son ritstjóri. Sigurður Bjarna-
son alþingismaður. Ingimar
Jónsson skólastjóri. Jón Helga-
son blaðamaður. Kristján Eld-
járn fornfræðingur. Helgi Sæ-
mundsson blaðamaður.
hina vinsælu sendiferðabíla útvegum vér til af-
greiðslu á þessu ári gegn innflutnings- og gjald-
eyrisleyfum fyrir vörubílum frá Ameríku.
Allar nánari upplýsingar í síma 7080
Einkaumboð
Ástandið í fjárhagsmálum
skýrsla, er sýnir, að einnig á þessu sviði er brýn nauðsyn að beina
fjármagninu sem allra mest til framleiðsluatvinntiveganna.
(Framhald af 1. síBu)
eyrinn og nauðsynlegt fjármagn innanlands handa framleiðsl-
unni. Skal það nú athugað hvað um sig.
Viðskiptanefnd hefir gert nokkurt yfirlit um innflutnings-
þarfir fimm síðustu mánuði ársins, og varð niðurstaðan sú, að
nm 170 milljónir þyrfti til þess innflutnings.
Þetta yfirlit var að vísu ekki miðað við neyðarástand, en þó
dregið úr ýmsu frá því sem verið hefir. Innflutningsáætlun sú,
er miðað verður við um innflutning síðari hluta þessa árs, hefir
enn ekki verið gerð, þar sem hana verður að sníða eftir upplýs-
ingum, sem enn eru ekki fyrir hendi svo að fullnægjandi sé.
Snemma á þessu sumri gerði Landsbankinn áætlun um vænt-
anlegar gjaldeyristekjur bankanna á árinu 1947. Var sú áætlun
miðuð við, að útfluttar væru 50.000 smál. síldarolíu, 40.000 smál.
síldarmjöls, og 200.000 tunnur saltsíldar. Var áætlun bankans
sú, að gjaldeyristekjurnar yrðu þá 387.7 milljónir króna, en 95.1
milljón króna af verði útfluttrar vöru 1947 kæmi ekki inn fyrr
en eftir ársbyrjun 1948. En þegar sýnt þótti að síldveiðarnar
mundu bregðast, endurskoðaði Landsbankinn áætlunina meö
þeim forsendum, að út yrði flutt: 25.000 smál. síldarolíu, 15.000
smál. mjöls, og 100.00 tn. saltsíldar.
Sú áætlun er þannig:
Gjaldeyrir bankanna raunverulega lnnkominn jan,—apríl
1947 1 pundum, dollurum og clearing..................... 59.820
óinnkomið fyrir síldarafurðir o. fl. til aprílloka....... 11.930
Gjaldeyristekjur maí—ágúst, áætlaðar.................. 116.103
---- sept.—des. áætlaðar .................. 111.844
---- fyrir annað en útflutning................ 9.500
309.197
Er þá gert ráð fyrir, að 55.9 milj. króna séu ekki komnar inn
um áramótin.
Enn er óvíst, hvort svo mikið aflast, að þessi áætlun standist.
Áætlun þessi var endurskoðuð í Fjárhagsráði. Var þá áætlað
hve mikils gjaldeyris yrði aflað á árinu, og varð niðurstaðan sú
að naumast mætti vænta meiri gjaldeyristekna á árinu en um
eða lítið yfir 300 miljóna.
Ef tölur þessarar skýrslu eru notaðar til þess að gera upp gjald-
eyrishorfurnar, verða þær þessar:
Gjaldeyriseign í ársbyrjun 1947 .......................... 223.1
Gjaldeyriskaup bankanna 1947 (áætl.) ...................... 309.2
Samtals 532.3
Gjaldeyrisleyfi til 9/8.................................... 499.0
Eftir eru þá ............................................... 33.3
Þessi niðurstaða sýnir, að um 137 miljónir vantar á, að fullnægt
yrði þeim þörfum, sem fyrir liggja, ef ástand væri eðlilegt, þó að
öll gjaldeyriseign í ársbyrjun væri notuð, og ekkert eftir um næstu
aramót.
Þess ber þó að gæta, að leyfi þau, sem í umferð eru, koma ekki
öll til framkvæmda, að minnsta kosti ekki á þessu ári. Fer nú
iram rannsókn á því máli, og verður ekki sagt, fyrr en henni
er lokið, hve mikið af þessum leyfum fellur niður. Er varlegast
að áætla sem fæst um þetta efni, fyrr en útkoma sést af skrán-
mgu leyfanna, sem verður innan skamms. En þó mun þessi fjár-
hæð ekki hafa nein úrslita áhrif um gjaldeyrisaðstöðuna, enda
kemur þar á móti, að líkurnar verða æ minni fyrir því, að síldar-
afurðir nái því magni, sem miðað er við í lægri áætluninni, og
ennfremur verður að athuga, að gjaldeyrisaðstaðan þrengist
verulega við það, að allmikið af gjaldeyrinum er bundið á clear-
ingsreikningi.
En þar sem æskilegt er, að nokkur gjaldeyrisforði sé til um
áramótin, er augljóst, að sníða verður innflutningsáætlun næstu
mánaða afar þröngt, og nota þannig þann gjaldeyri, sem aflast,
til þess að efla framleiðsluna og auka möguleika þjóðarinnar til
heilbrigðrar efnahagsþróunar.
Þar sem hér kemur til greina ekki eingöngu gjaldeyrisafkoman,
heldur einnig fjáröflunarmöguleikar innanlands, er birt hér
6. Fjármagn bankamia.
Aðal lánsfjárstofn bankanna, að seðlabankanum undanteknum
(þ. e. sparisjóðsdeildar Landsbankans, Útvegsbankans og Búnað-
arbankans) er innstæðuféð. Það hefir verið:
1/8. ’45 þús. kr. 521.127, þar af laus innst. 114.733
1/8. ’46 þús. kr. 514.718, þar af laus innst. 99.237
18. ’47 þús. kr. 450.493, þar af laus innst. 82.500
Útlán þessara banka hafa verið á sama tíma:
1/8. '45 þús. kr. 258.953
1/8. ’46 þús. kr. 369.543
1/8. ’47 þús. kr. 450.648
Auk þess er verðbréfaeign þeirra, sem raunverulega er löng lán:
1/8. ’45 þús. kr. 30.366, eða alls 289.319
1/8. ’46 þús. kr. 79.335, eða alls 448.876
1/8. ’47 þús. kr. 108.797, eða alls 559.445
Af þessu má sjá, að spariféð hefir minnkað nokkuð, en útlán
liafa hækkað afar mikið. Þetta hefir m. a. valdið gerbreyttri að-
stöðu bankanna til seðlabankans. Innstæður bankanna hjá seðla-
bankanum voru þessar:
1/8. ’45 þús. kr. 237.493
1/8. ’46 þús. kr. 105.310
1/8. ’47 þús. kr. -í- 32.5991)
Breytingin frá 1/7. 1945 til 1/7. 1947 nemur því 270.1 milj. kr.
Aðrar innstæður hjá seðlabankanum hafa einnig rýrnað mjög.
Þær voru:
1/8. ,45 þús. kr. 126.756
1/8. ’46 þús. kr. 99.550
1/8. ’47 þús. kr. 79.978
Rýrnunin nemur því þús. kr. 46.778, eða innstæðu fé hjá seðla-
bankanum alls, þús. kr. 316.9.
Útlán sjálfs seðlabankans hafa aukizt, þau eru:
1/8. ’45 þús. kr. 9.240
1/8. ’46 þús. kr. 80.537
1/8. '47 þús. kr. 150.4432)
Seðlaumferðin hefir haldist svipuð:
1/8. ’45 þús. kr. 167.560
1/8. ’46 þús. kr. 169.370
1/8. '47 þús. kr. 159.185
Þetta yfirlit sýnir, að lánsmöguleikar bankanna eru mjög svo
tæmdir, og í raun og veru fram yfir það sem heilbrigt er. Þess
er þó rétt að geta, að skuldir viðskiptabankanna við seðlabank-
ann nú stafa af lánum til framleiðslunnar, og eiga að skila sér
jafnóðum og afurðir eru greiddar. óþarft er að geta þess, að
erfiðleikar bankanna hljóta að aukast stórum vegna þess hve
síldarvertíðin bregzt.
Einhver öruggasti mælikvarðinn á lánsfjárástandið er aðstaða
viðskiptabankanna hjá seðlabankanum, sem lýst var hér að ofan.
Það að þeir eru nú komnir í skuld við seðlabankann í stað mik-
illar inneignar áður, stafar af hinni geysilegu þennslu í viðskipt-
unum, og ætti slíkt ástand jafnan að hvetja tii mjög alvarlegrar
athugunar á fjármálaástandinu. Sem dæmi um lánsfjárþörfina
má nefna, að fyrir liggja hjá Landsbankanum lánbeiðnir í byrjun
júlímánaðar:
I. RíkisstofnaSnir ......... 68.000 millj.
II. Aðrir opinberir aðilar .. 119.426 millj.
Fyrir fjárhagsráð hafa komið beiðnir um að reisa full 800 hús
í Reykjavík einni, svo að nefnt sé aðeins dæmi þess, hvílík geysi-
leg fjárfesting fer nú fram, og hve miklar kröfur slíkar fram-
kvæmdir hljóta að gera m. a. til lánsstofnanna.
7. Dýrtíðarmálfn.
í þessari skýrslu er ekki unnt að gefa yfirlit um það, hvaða
áhrif dýrtíðin hefir á fjármál og framleiðslu landsmanna. Skýrsl-
!) Endurkeyptir víxlar ekki meðtaldir.
2) í þessu eru endurkeyptir víxlar 15.267, auk stofnlánadelldarinnar, en lán
hennar voru 1/8. ’47, 40.9 milj.
(jamlœ Bié
Hjartaþjófuriim
(Heartbeat)
Bráðskemmtlleg amerísk kvik-
mynd, er gerist í htnni lífs-
glöðu Parísarborg.
Ginger Rogers
Jean Pierre Aumont
Basil Rathbone
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Börn innan 16 ára
fá ekki aðgang.
Tripoli-Bíc
Þú ert umiustan
mín
Pjörug dans- og söngvamynd.
Að alhlutverk leika:
Alice Faye
George Murphy
Charles Winninger
William Gargan
Sýnd kl. 3, 5 og 9.
Sími 1182.
Vtjja Bíc.
(við Skulagötu)
Tónlist og
tilhugalíf
(„Do You Love Me“)
Palleg músíkmynd í eðlilegum
litum.
Aðalhlutverk:
Maureen O’Hara
Dick Haymes
Harry James
og hljómsveit hans
Sýnd kl. 3, 5 7 og 9.
Sala hefst kl. 1.
Inngangur frá Austurstræti.
7jatwatbíc
„VIRGEWA
CITY“
Spennandi amerísk stórmynd
úr ameríska borgarastríðinu.
Errol Flynn,
Miriam Hopkins,
Randolph Scott,
Humphrey Bogart.
Bönnuð yngri en 14 ára.
Sýnd kl. 5 og 9.
Sala hefst kl. 11.
Kapltulaskipti
(Framhald af 2. síðu)
hverri jörð, eigi minna en tún-
ið, ætti að verða takmark
næstu áratuga! Vildi að sem
svaraði dagsverki yrði gert að
sérskatti vegna skógræktar, og
happdrættið að hálfu leyti.
Enda ræki uppblásturinn á eft-
ir! —
„Engir þegnar og engin stjórn
getur til lengdar búið í landi
sem er að blása upp,“ sagði
Ármann Sigurðsson bóndi á
Urðum. Landið sér um vegi,
skóla og fleiri sameiginleg mál.
En fyrst og fremst ætti það að
sjá um að landið haldi áfram
að vera byggilegt. Innleiddi Ár-
mann umræður um verkaskipt-
inguna milli ríkis og áhuga-
manna sem leiddi til ályktana
frá fundinum er þetta snerti.
Þá ræddi Hálfdán Sveinsson
kennari frá Akranesi um hugs-
unina, sem lægi að baki álykt-
unum kennaraþingsins i skóg-
ræktarmálunum. Eins og stæði,
væri það einkum eldri kynslóð-
in sem hefði lifandi áhuga á
þessum málum. En eina séttar-
félagið sem tekið hefði að sér
málstað skógræktarinnar, væri
kennarastéttin. Þetta gerði hún
fyrst og fremst vegna barn-
anna! Við værum illa stödd í
þéttbýlinu. Ættum ekki enn
sem komið væri það sem kalla
mætti bæjarmenningu. Barnið
á mölinni á ekki jafngóð vaxt-
arskilyrði og síðasta kynslóð.
Gatan, hraðinn, jazzinn, bíó-
in, er þeirra umhevrfi. Sú
þjóð, sem ekki öðlast í æsku
snertingu við moldina, situr
ekki landið með sæmd. Kenn-
ararnir hugsi sér að freista að
nota skógræktarúrræðin til
þess, að bæta fyrir hin breyttu
skilyrði sem börnin hafa hlot-
ið. (Las ræðumaður síðan hinar
stórathyglisverðu ályktanir
kennaraþingsins). Vildi að öll-
um barnakennurum yrðu kennd
undirstöðuatriði í skógrækt.
an er fyrst og fremst tölulegar staðreyndir, úttekt á ástandi í
fjármálum og viðskiptamálum, þegar fjárhagsráð hefur störf
sín, — og tekur við úr höndum þeirra, sem með þessi mál hafa
íarið.
En þrátt fyrir það, þykir þó rétt að láta það koma hér fram,
að auðsætt er, að ráðstaíanir þær, sem nú er verið að gera, geta
alls ekki náð tilgangi sinum, nema ráðist sé gegn dýrtíðinni, og
framleiðslu landsmanna komið í það horf, að framleiðslukostn-
aður sé í eðlilegu samræmi við það verð, sem fyrir afurðirnar
fæst á erlendum markaði.
8. Yfirlit.
Hér má að lokum draga saman í nokkrar niðurstöðutölur.
1. Gjaldeyrir, sem líkur eru til að verði til ráðstöfunar 9./8.
til 31./12. 1947 er ............................... 33.3 millj.
Auk þess er svo það, sem ekki kemur til framkvæmda af leyf-
um, en frá dregst aftur það, sem á vantar að gjaldeyrisvonir ræt-
ist og óhagræði af því, að allmikið af gjaldeyrinum er ekki til
írjálsrar ráðstöfunar (clearing-gjaldeyrir).
2. Nýbyggingarreikningur, eins og hann hefir fram til þessa
verið greiddur til Landsbankans, er yíirdreginn, þegar teknar
eru leyfisveitingar þær, er til framkvæmda geta komið, er hér
um bil............................................. 45.6 millj.
3. Stofnlánadeild vantar, ef framkvæma skal þær lánveitingar,
sem nýbyggingarráð hefir mælt með ................. 57.8 millj.
4. Aðstaða viðskiptabankanna til seðlabankans hefir versnað
síðan 1./8. 1945 um ................................ 270. millj.
5. Lánsþörfin til opinberra framkvæmda og einstaklinga og fé-
laga er geysileg, og langt um fram möguleika lánsstofnananna.
Fjárhagsráð hefir í skýrslu þessari leitast við að vekja athygli
á staðreyndum, og gert það með því, að birta þessar tölur, en
það hefir hliðrað sér sem mest hjá því að kveða upp dóma.
Skýrsla þessi leiðir þó í ljós, að ástandið í fjárhagsmálum þjóð-
arihnar er mjög alvarlegt, og að nauðsyn er fljótra og gagn-
gerða ráðstafana.