Tíminn - 27.09.1947, Síða 4
D A G S K R Á er bezta íslenzka
tímaritíd um þióðfélagsmál
4
REYKJAVÍK
Skrifstofa Framsóknarflokkúns er í
Edduhúsinu. við UndargðtLL Slmi 6066
27. SEPT. 1947
176. blað
Menningar- og minningarsjóður
kvenna hefir nú sinn árlega fjáröfl-
unardag með merkjasölu o. s. frv.
Sumir halda víst að þessi sjóður sé
aðallega merkilegheit og mont úr ein-
hverjum kvenréttindakerlingum, sem
mér fellur nú yfirleitt ekki nema
svona og svona við. En hvað sem um
kvenréttindafólkið er, — sleppum því,
— þá er stofnað til þessa sjóðs í góð-
um og réttmætum tilgangi.
Undanfarna daga hafa margir átt
þess kost að sjá og heyra Þórunni
litlu Jóhannsdóttur, sér til gleði, og
þó færri en vildu. Hún er ein þeirra,
sem sjóðurinn hefir styrkt til náms.
Það eru kannske fleiri en ég, sem
finnst ánægjulegt til þess að hugsa,
að hafa keypt merki sjóðsins í fyrra,
hitti fyrra o. s. frv. og finna þannig
til þess, að sá styrkur var nú svo
sem að einhverju leyti frá manni
sjálfum kominn.
Auðvitað má alltaf deila um út-
hiutun námsstyrkja. Ég er til dæmis
ekki viss um, að menn séu almennt
jafn áfjáðir í að skjóta saman í náms-
för fyrir Ninu Tryggvadóttur, og væri
þó sízt að sjá eftir því, ef henni gæti
farið fram við það.
En hér er ekki aðalatriðið hvaða
álit við höfum á einstökum úthlutun-
um. Kjarni málsíns er sá, hvort við
viljum að samtök kvenna ráði yfir
sjóði til að veita nokkrum stúlkum á
ári hverju styrk til náms. Hitt er
fullvíst, að margar þeirra, sem þess
nytu, myndu borga það margfalt aft-
ur í þjónustu við sæmd og menningu
þjóðarinnar.
Ég kemst alltaf í illt skap, þegar
ég heyri fólk, sem sættir sig við
tóbaksnautn og drykkjuskap,' amast
við þeirri eyðslu, sem á sér stað vegna
menningarmála. Það verð' ég að játa.
Og ég er viss um, að það er meiri
þegnskapur við íslenzka menningu og
íslenzka þjóð, að kaupa merki af
Menningar- og minningarsjóði kvenna,
Rauð# krossinum, Slysavarnafélaginu,
Sambandi berklasjúklinga, templara-
reglunni, landbúnaðarsýningunni o. s.
frv., heldur en t. d. sígarettur til að
bjóða gestum slnum.
Pétur landshornasirkili.
Jarðhiti fundinn . . .
Erlent yfirlit
(Framhald af 2. síðu)
borSi jarðarinnar. Mæla tækin
bæði heitt vatn og gufu. Með
þvi að nota slík mælitæki væri
hægt að spara ógrynni fjár, þar
sem þá þarf ekki að bora, þar
sem óvíst er hvort um mikinn
hita er að ræða, og einnig er
hægt að finna réttu staðina
fyrir boranir á hverasvæðunum
með mælingunum.
Það hefir þegar komið í Ijós
við þessar fyrstu tilraunir með
jarðeðlismælingar hér á landi,
að mun erfiðara er að finna með
þeim hverasvæði á Norðurlandi
en Suðurlandi. Stafar það af
basalts-lögunum þar. En auk
þess eru hverasvæðin yfirleitt
miklu minni og kíaldari norðan-
lands en sunnan. Hins vegar
verður reynt að gera endurbæt-
ur á þessum tækjum, svo hægt
sé að nota þau með betri árangri
norðanlands.
(Framhald af 1. síðu)
sem eru ítölum mestur þyrnir j'
augum. Svar kommúnista á
Ítalíu við þessum fyrirætlunum
virðist vera hin mikla verkfalls-
alda, sem nú geisar yfir landið,
og mun m. a. haía það markmið
að steypa stjórninni áður en
þessar fyrirætlanir komast
fram. Loks hefir þeim tekist að
nota neyðarástandið í landinu
til að fylkja öllum vinstri flokk-
unum gegn stjórninni.
Endursikoðun friðarsamning-
anna við Ítalíu getur orðið all-
heitt deilumál á þingi samein-
uðu þjóðanna, þar sem hér er
raunverulega á ferðinni eitt af
stærstu átakamálum stórveld-
anna um þessar mundir. Jafn-
framt virðist mega búast vic
harðnandi átökum á Ítalíi
sjálfri, sem að sínu leyti mun
rekja rætur til þessara átaka
stórveldanna.
Tvær stúlkur
óskast til Kleppjárnsreykjahælisins í Borg-
arfirði. — Hátt kaup.
Upplýsingar í skrifstofu ríkisspítalanna.
Sími 1765.
Karlmaður
óskast til hjúkrunarstarfa.
Upplýsingar í skrifstofu rikisspítalanna.
Simi 1765.
Ljósmynda- og
ferðasýning
♦
Ferðafélags íslands er opin daglega frá kl. 11
til 11.
Ferðafélag fslands.
TÍ MINN er víðlesnasta anglýsingablaðið!
VINNIÐ ÖTULLEGA AÐ ÚTBREIÐSLU TÍMANS
:*
♦♦
::
H
::
♦♦
::
Tryggið hjá
SAMVIN NUTRYGGINGUM
BRUNATRYGGINGAR
BIFREIÐ ATR Y GGIN G AR
SJÓTRYGGINGAR
Umboðsmenn i öllum kaupfélögum landsins.
SAMVINNUTRYGGINGAR
Sími 7080 Símnefni: Samvinn
::
•**♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦*'
e»*«******4*♦♦♦•♦♦♦♦♦♦*♦♦*♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦*♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦*♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<
••♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•
Heybriini í Eyjafirði
í fyrramorgunn brunnu um
300 hestburðir af heyi að bæn-
um Naustum í Eyjafirði, en bær
sá er skammt frá Akureyri. Hey
þetta var í hlöðu skammt frá
íbúðarhúsinu, sem við illan
leik tókst að bjarga frá skemmd-
um. Á innanstokksmunum urðu
hins vegar nokkrar skemmdir,
einkanlega er verið var að bera
þá út úr íbúðarhúsinu, þar sem
óttast var að ekki tækist að
verja það.
Landhelgisbrot
Nýlega var vélbáturinn
„Nonni,“ G.K. 100, frá Keflavík
staðinn að botnvörpuveiðum í
landhelgi á Faxaflóa. Er rann-
sókn í máli hans nú lokið og
var skipstjórinn dæmdur í
29.500 króna sekt fyrir brot á
landhelgislögunum og ennfrem-
ur var afli og veiðarfæri gert
apptækt.
'lilkaþungi . . .
(Framhald af 1. slðu)
tert ráð fyrir, að votviðrin í
umar myndu hafa haft áhrif
dilkaþungann, en svo virðist
kki vera.
Eftir að haustslátrunin hófst
refir Sláturfélagið selt slátur
il heimatilbúnings eins og að
ndanförnu. Að þessu sinni eru
ó nokkrir erfiðleikar á þessari
lu, vegna vöntunar á ílátum
'g umbúðum til að flytja slátrin
heim til kaupendanna. Hefir
lagið því orðið að taka upp
.á reglu, að afgreiða aðeins 5
látur til heimsendinga. Fást
Ils ekki afgreidd færri eða
leiri slátur, ef óskað er eftir
5 félagið annist á þeim heim-
endingu. Hins vegar er hægt
ð fá allt niður í eitt slátur
:eypt hjá félaginu, ef kaup-
ndur sækja slátrin í slátur-
-.úsið. Blaðinu er ekki kunnugt
m samanlagða tölu slátur-
járins til þessa tíma.
Margt er nú til
í matinn
Norðlenzk saltsíld. Hrefnu-
:jöt. Rófur. Lúða. Sjóbirtingur.
Kartöflur í 10 kg. pokum og
altfiskur á aðeins 2 kr. — í
!5 kg. pokum.
FISKBÚÐIN
Hverfiaötu 123. Sími 1456.
Hafliði Baldvinsson.
ÞRÍHJÓL
Hlaupahjól
Rugguhestar
Hjólbörur
Bílar, stórir
Brúðuvagnar o. fl.
K. Einarsson
& Björnsson h.f.
ffivað geta bændur
lært af óþurrkunum
í sumar
(Framhald af 3. slðu)
jafn en sumir hafa getað þurrk-
að hey sitt alveg á þennan hátt.
Þeim, sem blása upphituðu lofti,
hefir tekizt, að minnsta kosti
sumum, að þurrka hey sitt að
fullu á þennan hátt (Ari Páll í
Sandvík, Bjarni á Laugarvatni,
Pálmi rektor, Jóhannes á
Sturlureykjum o. f].). Sumir
hafa þó tekið það rennandi
blautt, en þá ekki látið nema
þunnt lag inn í einu.
Þeir, sem ekki hafa blásið
nema köldu lofti, geta ekki tek-
ið heyið i^n nema það sé nokkuð
viðrað o» helzt orðið allt af því
fangþurrt áður. Og sé loftið,
sem inn er blásið, mjög rakt,
þurrkar það ekki mikið, og ekk-
ert, sé það mettað með raka,
sem oft á sér stað i óþurrkatíð.
Engu að síður er það augljóst í
sumar, að þeir, sem hafa getað
blásið í heyið, hafa mjög létt
sér heyskapinn, og eiga bæði
betra og meira hey en hinir. En
við þessa heyþurrkunaraðferð
kemur margt til greina, og er
fjanji því, að hún sé enn komin
yfir tilraunaskeiðið. í því sam-
bandi vil ég benda f eftirfar-
andi atriði, sem mér virðast ljós
af reynslunni í sumar. Það þýðir
helzt ekki að setja súgþurrkun
í hlöður, nema að þær séu bæði
með þéttu gólfi oj þéttum
veggjum. Loftið þarf að fara
upp gegnum heyið, en ekki nið-
ur i jörðina né út gegnum
veggina. Stærð blásaranna og
stærð mótoranna þarf að vera
sniðin hvað eftir öðru, og eftir
stærð hlöðunnar, en á þessu
virðast nokkur mistök. Mjög
áríðandi er að heyið sé allt jafn
laust í hlöðunni, það má ekki
þjappast sérstaklega saman
t. d. undir baggagötum, því þá
hefir loftið greiðari aðgang
gegnum heyið á öðrum stöðum,
og sá staður, sem heyið hefir
þjappast saman á þornar því
ekki, þó heyið annars staðar
þorni prýðilega. Þess vegna er
mjög áríðandi að heyið sé ekki
látið inn í söxuín né saman
þjöppuðum tuggum, og verði
jafnlaust yfir alla hlöðuna. En
augljóst tel eftir reynslunni
í sumar, að vel má þurrka hey I
óþurrkum, sé loftið, sem blásið
er gegnum heyið hitað upp, og
að alltaf má nota súgþurrkun-
ina með köldum blæstri til mik-
ils léttis við heyþurrkunina, og
þó sérstaklega í rysjutíð, þar
sem flæsur koma annað slagið,
þó óþurrkar séu á milli. Pétur
Gunnarsson hefir sérstakiega
fylgzt með súgþurrkuninni og
gert tilraunir með hana eða
séð um þær, og ættu þeir sem
hugsuðu sér að koma henni á
(jmla Síé
Vtjja Síé
Blástakkar
(Blájackor)
Bráðskemmtlleg og fjörug sœnsk
söngva- og gamanmynd.
Aðalhlutverkin leika:
Skopleikarinn
Niis Poppe.
Annalisa Ericson,
Cecile Ossbahr,
Karl-Arne Holmsten.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
7ri/scliSíc
f leit að
lifshamingjn
(The Razor,s Edge)
Mikilfengleg stórmynd eftir
heimsfrægri sögu W. Somerset
Maugham, er komlð heflr út
neðanmáls i Morgunblaðinu.
Aðalhlutverk: ..
Tyrone Power
Gene Tierney
Clifton Webb
Herbert Marshall
John Payne
Ann Baxter
Sýnd kl. 5 og 9.
H Sala hefst kl. 1.
Inngangur frá Austurstræti.
TjatHafhíé
Leynilögreglu-
maðnr lieimsækir
Buda-Pest
Spennandi amerísk leynilög-
reglumynd.
Aðalhlutverk:
Wendy Barry
Kent Terylor
Nischa Auer
Dorohtea Kent.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Sala hefst kl. H.
Sími 1182.
Frá Skipaútgerðinni.
Það féll úr auglýsingu Skipa-
itgerðarinnar í síðasta blaði,
ið Esja getur ekki tekið vörur
;il Raufarhafnar.
Frá Furðuströnd-
um
(Blithe Spirit)
Gamanmynd í eðlilegum litum
eftir sjónleik Noel Cowards.
Rex Harrison, Constance
Cummings, Kay Hammonds.
Leikfélag Reykjavíkur sýndi
leik þennan s.l. vetur undir
nafninu „Ærsladraugurinn".
Sýning kl. 7 og 9.
Sjnur Hróa hattar
Ævintýramynd í éðlilegum lit-
um. — Cornel Wilde, Anita
Louis.
Sýning kl. 3 og 5.
hjá sér að tala við hann um
málið eða skrifa honum.
Ég tel sýnt, eftir reynslunni í
sumar, að með því að hafa bæði
súgþurrkun og votheysgerð geti
menn alltaf, ef þeir geta hitað
loftið, sem þeir blása gegnum
heyið, og oft ef þeir hita það
ekki, komizt hjá því, að heyin
skemmist við hrakning, og ég
hygg að bændur muni stefna
að því, að koma sér þannig fyrir.
En á meðan þeir eru að því,
þurfa þeir að nota yfirbreiðsl-
urnar, c>f -«ná með þeim bjarga
miklu og verjast mestu hrakn-
ingunum.
Þá hefir aðstaða manna til
heyskaparins á heimilunum,
verkfæri sem þeir nota, og hlut-
fallið milli þess, hve heyin eru
fljótslegin, og hver aðstaða er
til eftirvinnunnar, mikið að
segja. Það þýðir ekki að slá
mikið niður, t. d. með Farmall-
sláttuvél, nema hægt sé að
sinna því að þurrka mikið, ann-
að hvort af því að komin sé
-núningsyél, sem flýti fyrir
þurrkuninni, eða að mikill
mannskapur sé til að vinna í
þurrheyinu. Og þó getur stund-
um komið sér vel að geta slegið
mikið niður í byrjun þurrka-
kafla, þó eftirvinnan sé lítil.
En þetta hugsar hver bóndi um,
og eitt á við á einum staðnum en
ekki á hinum, svo að ég ætla
ekki að tala um það frekara.
En ljúka vil ég þessum pistli
mínum með því að segja:
Aukið votheysgerðýia. Veriff
undir það búnir næsta vor, aff
geta tekið helming heyjanna í
votl-cy.
Eignist yfirbreiffslur og notiff
þær. Þær geta oft bjargað miklu
heyi frá hrakningi.
Og þiff, sem hugsiff um súg-
þurrkun, og viljiff koma henni
upp. Athugiff hlöffurnar, geriff
þær þéttar, og passiff að dreifa
beyinu jafnt yfir, og láta þaff
okki verffa samanþjappaffra á
einum staff en öffrum.
15. sept. 1947.
SKIPAUTG6RÐ
RIKISINS
M.s. ,Straumey’
til ísafjarðar, Siglufjarðar,
Ólafsfjarðar, Akureyrar, Húsa-
víkur, Kópaskers og Raufar-
hafnar um helgina. Vörumót-
taka árdegis í dag.
E.s. Fjallfoss
fer héðan um miðja næstu
viku til Vestur og Norðurlands.
Viðkomustaðir:
Flateyri,
ísafjörffur,
Siglufjörffur,
Akureyri,
Húsavík.
Vörumóttaka til þriðjudags.
H.f. Eimskipafélag
*
Islands
Búóinqs
du|tJ
Bomm
Vanllle
Sítronn
Appelsín
Súkknlaði
KRON
Skólavörffustíg 12.