Tíminn - 11.10.1947, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI: S
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTQEPANDI:
FRAMSÓKN ARPLOKKURINN
Símar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
31. árg.
Reykjavík, laugardaglim 11. okt. 1947
RITSTJÓR ASKRIPSTOFUR:
EDDUHÚSI, Lfndargötu 9 A
Símar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA '
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A
Sími 2323
186. blað
ERLENT YFIRLIT:
Robert A. Lovett
Fyrir nokkru síðan tók nýr maður við embætti aðstoðarutan-
ríkisráðherrans í Bandaríkjunum. Sá, sem fyrir var, Dean Ache-
son, dró sig í hlé, þar sem hann taldi sig ekki hafa efni á að
gegna stöðunni, því að hann fengi miklu meiri tekjur fyrir að
starfa í þjónustu einkarekstursins. Maðurinn, sem tók við stöð-
unni, Robert A. Lovett, hefði vel getað afsalað sér að þiggja hana
með þeirri forsendu, að hann fengi hærri laun annars staðar.
Löngun hans til að glíma við hin vandasömu verkefni á sviði
utanríkismálanna, hefir ráðið meiru en tekjuvonin.
Truman forseti hefir stundum
undanfarið sætt allharðri gagn-
rýni fyrir það, að hann tæki
menn frá Wall Street, aðal-
stöðvum bandarísku auðkóng-
anna, til að gegna helztu trún-
aðarstörfum ríkisins. Robert A.
£ovett er einn þessara manna.
Truman til afsökunar hefir ver-
ið bent á, að Roosevelt hafi einn-
ig sótt ýmsa samstarfsmenn
isína þangað, m. a. Harriman,
sem nú er verzlunarmálaráð-
herra Bandaríkjanna. Val Lov-
etts er m. a. rökstutt með því,
að Truman hafi talið eðlilegt,
að stjórn utanríkismálanna yrði
sameiginlega í höndum sterk-
ustu aflanna í Bandaríkjunum,
hersins og stóriðjuhöldanna.
Marshall væri fulltrúi hersins,
«n Lovett fulltrúi þeirra síðar-
nefndu.
Robert A. Lovett, sem nú er
annar voldugasti maðurinn i
utanríkisráðuneyti Bandaríkj-
anna, er kominn af skozkum
ættum og er sagður hafa erft
marga beztu kosti forfeðra
sinna, eins og hófsemi, glað-
lyndi og staðfestu. Hann er
fæddur í Texas og brauzt til
mennta að mestu leyti af eigin
xamleik. M. a. stundaði hann
nám við Yale- og Harvarþhá-
skólana. Hann lagði aðallega
stund á lögfræði, en markmið
hans var að brjóta sér braut á
sviði viðskiptalífsins. Þessi
draumur hans rættist þó ekki
strax, því að heimsstyrjöldin
fyrri kom til sögunnar um líkt
leyti og hann lauk námi, og
;gekk hann þá í fluglið sjóhers-
ins. Hann gat sér þar mikið
frægðarorð og hlaut m. a. eitt
af helztu heiðursmerkjum hers-
ins fyrir dirfsku og hugrekki.
Eftir styrjöldina fékk hann
stöðu sem bankafulltrúi. Hann
gegndi henni ekki lengi, heldur
tókst fljótlega á hendur stærri
verkefni, einkum á sviði járn-
brautarrekstrarins og trygging-
arstarfseminnar. Innan skamms
tíma var hann orðinn
forstjóri eins stærsta firmans,
sem hefir með þessi mál að gera,
Brown Brothers, Harriman &
Co.
Þótt Lovett væri fylgjandi
demokrötum, mun ekki hafa
verið neinn sérstakur kunnings-
skapur milli hans og Roosevelt
og Lovett mun ekki hafa verið
aðdáandi New Deal, nema þá að
takmörkuðu-leyti. Þegar Banda-
ríkin lentu í styrjöldinni í árs-
lok 1942 framleiddu Bandaríkja-
menn ekki nema 4 sprengjuflug-
vélar á mánuði og Roosevelt
taldi sig þurfa sérstaklega ötul-
an mann til þess að stjórna
þessari framleiðslugrein. Hann
minntist þá hins kunna flug-
garps frá fyrri styrjöldinni, er
nú var orðinn einn af mestu
áhrifamönnunum á sviði við-
skiptanna. Lovett var því boð-
aður til Hvíta hússins og erind-
islokin urðu þau, að hann var
skipaður varaflugmálaráðherra
og skyldi framleiðsla sprengju-
flugvélanna heyra sérstaklega
undir hann. Störf hans báru
fljótt árangur, því að eftir
skamman tíma framleiddu
Bandaríkin 500 sprengjuflugvél-
ar á mánuði.
Eftir styrjöldin, voru Lovett
boðin ýms mikilvæg opinber
embætti, en hann kaus heldur
að hverfa til fyrirtækja sinna í
New York og annast stjórn
þeirra. Nú hefir hann hins vegar
orðið við þeim tilmælum að fara
til Washington á ný og gegna
þar enn þýðingarmeira embætti
en áður.
Enn er ekki fullreynt, hver
stefna Lovetts er í utanríkismál-
um. Nokkuð má þó kannske
marka hana á því, að hann hefir
nýlega látið svo ummælt, að
rétta svar Bandaríkjanna við
stofnun hins nýja bandalags
kommúnista væri að hraða
hinni fyrirhuguðu aðstoð við
þjóðirnar í Evrópu.
ERLENDAR FRÉTTIR
Bretar hafa nýlega fengið 80
millj. sterlingspunda lán hjá
stjórn Suður-Afríku. Lánið fá
þeir útborgað í gulli, sem þeir
geta síðan keypt dollara fyrir.
Bandalag Arabaríkjanna hefir
hótað að grípa til vopna, ef
Palestínu verði skipt, til þess að
hindra skiptinguna. í bandalag-
inry eru Egiptaland, Irak, Liban-
on, Tranzjórdan, Sýrland og
Saudi-Arabia.
Stjórnmálanefnd þings sam-
einuðu þjóðanna hefir ákveðið
að leggja til, að skipuð verði ný
Palestínunefnd. Sovétríkin og
ríkin í Austur-Evrópu hafa á-
kveðið að eiga ekki fulltrúa í
nefndinni.
IÍVGRID BERGMA1\ OG HIM SVARTI
FYLGDARSVEUVN IIENNAR
Byrjað að þjálfa 40 íslendinga
vegna Olympíuleikjanna
íslenzk glíma fæst seimilega ekki sýnd að
þessu sinni
Undirbúningur að Olympíuleikjunum er nú hafinn af kappi
víða um heim. Leikirnir verða haldnir í London næsta sumar,
eins og kunnugt er. Hingað til lands er kominn fyrir nokkru
sænskur þjálfari, sem búa á íslenzka íþróttamenn undir Olympíu-
leikana, og hafa 40 menn verið valdir til þjálfunar. Starfar þjálf-
arinn á vegum íslenzku Olympíunefndarinnar.
í gær var nokkuð sagt frá afstöðu sænsku kvikmyndaleikkonunnar Ing-
rid Bergman til Svertingjakúgunarinnar í Bandaríkjunum. Hún hefir
meðal annars Iátið hug sinn í ljós með því að ráða í þjónustu sína
ungan Svertingja, sem er förunautur hennar, þjónn og flygdarmaður,
hvert sem hún fer. — Hér að ofan sést leikkonan, ásamt hinum þei-
\ dökka fyigdarsveini sínum.
Vinnosamningar í Lík f innst við
Skipsstr andið:
Skipið er
talið ónýtt
Norska skipið Bro, er strand-
aði á Straumfjarðarfjörum að-
faranótt síðastliðins fimmtu-
dags, er nú álitið sama sem
ónýtt, samkvæmt því, er Slysa-
varnafélagið tjáði blaðinu í gær
kvöldi.
í gær var athugað, hvort það
myndi svara kostnaði að reyna
að bjarga einhverju úr skipinu.
] En við þá athugun munu for-
; ráðamenn þess og tryggingafé-
j lagið hafa komizt að þeirri nið-
urstöðu, að slíkt væri tæplega
I framkvæmanlegt.
Hafnarfirði fram-
lengdir
Viðræður milli Dags-
brúnar «g vimmvcit-
enda í Reykjavík
Samkomulag hefir náðzt milli
verkamannafélagsins Hlífar í
Hafnarfirði og atvinn'uveitenda
þar, úm að ekki skuli koma til
vinnustöðvunar í Hafnarfirði
nú um miðjan mánuðinn, held-
ur skulu gömlu samningarnir
um kaup og kjör verkamanna
gilda þar áftam, en að þeim
megi hins vegar segja upp, með
mánaðarfyrirvara af beggja
hálfu.
Síðastliðinn miðvikudag rædd
ust við fulltrúar frá verkmanna
féla;Jinu Dagsbrún og Vinnu-
veitendafélaginu í Reykjavík.
Varð ekkert samkomulag þá að
sinni, en ákveðið var hins veg-
ar, að fulltrúar frá þessum aðil-
um skyldu koma saman aftur
til viðræðna á mánudaginn
kemur. Verður því ekki enn sagt
um það með vissu, hvort til
vinnustöðvunar kemur um
miðjan mánuðinn hér í bænum
eða ekki.
Oddný Sen gengst fyr-
ir kínverskri list-
munasýningu
Fyrir tæpum tíu árum síðan
efndi frú Oddný Sen, þá nýlega
komin austan frá Kína, til kín-
verskrar listmunasýningar hér
í Reykjavík. Þótti sú sýning ær-
ið nýstárleg, enda flestir, er
höfðu haft harla óljósar hug-
myndir um kínverska listmenn-
ingu.
Nú hefir Oddný Sen ákveðið
að efna á ný til sýningar á hin-
um kínversku listmunum sín-
um. Verður sýningin að þessu
sinni í Listamannaskálanum,
og mun ráðgert, að hún verði
opnuð I næstu viku.
Viðey
Rcyndist vera af
inairni, er livarf í
sumar
Fyrrihluta dags í fyrradag
fann starfsmaður við búið í
Viðey lík rekið í klettavík sunn-
an í eyna vestanverða. Var lög-
reglunni í Reykjavík gert við-
vart. Gerði hún út menn á bát
til þess að sækja líkið.
Allerfitt reyndist að ná lík-
inu, því að ekki var hægt að
lenda þarna í víkinni, og varð
að bera það upp klettaeinstigi.
Lagði lögreglan líkið í kistu, er
hún hafði með sér, og flutti til
Reykj avíkur.
Líkið var mjög torkennilegt
orðið. En við rannsókn kom þó
í ljós, að þetta var Rögnvaldur
Jónsson, Bergstaðastræti 53 í
Reykjavík, miðaldra maður, er
hvarf í lok ágústmánaðar í
sumar, og var þá mjög mikið
leitað að, en spurðist aldrei til.
Islenzka Olympíunefndin f
hefir unnið mikið starf.
íslenzkir íþróttamenn eru nú
farnir fyrir alvöru að búa sig
undir þátttöku í Olympíuleikj -
unum, sem haldnir verða í Lond-
on seinast í júií og í byrjun
ágúst, næsta sumar.
í apríl 1946 skipaði stjórn Í.S.Í.
7 manna Olympíunefnd til að
vinna að þátttöku íslands í
ieikjunum. í nefndinni eiga
^æti þeir Hallgrímur Hallgríms-
son, sem er formaður, Kristján
L. Gestsson, Erlingur Pálsson,
Steinþór Sigurðsson, Ólafur
Sveinsson, Jón Kaldal og Jens
Guðbjörnsson. Nefndin hefir
haldið fundi tvisvar í mánuði og
þegar leyst af hendi mikið starf,
snertandi þátttöku íslands í
ieikjunum.
Glíman fær ekki að vera
sýningaríþrótt.
Eitt af því fyrsta, sem nefndin
gerði, var að reyna að fá því til
leiðar komið, að íslenzka glíman
fengist sem sýningaríþrótt inn
á leikina. Voru í því sambandi
höfð mikil bréfaskipti við al-
þjóða Olympíunefndina, sem
situr í Sviss, og sendar út kvik-
myndir af glímunni. Þrátt fyrir
alla þessa fyrirhöfn, eru ekki
íkur til þess að glíman fáist
sýnd á leikjunum, enda margar
þjóðir, sem sækja fast að nefnd-
inni með sýningaríþróttir.
Sænskur þjálfari ráðinn.
í fyrra gerði nefndin ráðstaf-
anir til að ráða þingað góðan
bjálfara, til að þjálfa íslenzka
iþróttamenn fyrir ieikina. Réðist
til þess starfa kunnur sænskur
þjálfari, og kom hann hingað til
(Framhald á 4. síðu)
309 dómar í umferð-
armálum í september
ÍOO dómum fleira en í
ágíist
Umferðadómstóllinn kvað upr
309 dóma í septembermánuði
fyrir brot á umferðalögunum.
Er það 100 dómum fleira en í
ágústmánuði, en þá voru alls
kveðnir upp 209 dómar fyrir
sömu brot.
Flestir dómarnir eru fyrir ó-
lögleg bifreiðastæði, eða 186. Þá
eru brot í sambandi við ljósaút-
búnað bifreiða 33, og 24 dómar
fyrir of hraðan akstur. Þá voru
ýmsir dómar fyrir brot af óveru-
legra tagi.
Ölvun var nokkru meiri í
bænum í september en sumar-
mánuðina, en þó ekki tiltölu-
lega meiri en undanfarin haust.
Hefir það ávallt verið svo, að
ölvun í bænum hefir aukizt með
haustkomunni, er fjölga tekur
í bænum.
ÞINGSTÖRFIN
GANGA HÆGT
24 þingmeim fjarver-
andi í gær
Þingið hefir nú staðið á aðra
viku og hefir fátt borið til tíð-
inda. Einna helztu tíðindin eru
þau, að ekki var hægt í gær í
sameinuðu þingi að vísa" máli
til nefndar, nema að viðhöfðu
nefnakalli, vegna þess, hve
margir þingmenn voru fjar-
staddir. Við atkvæðagreiðsluna
reyndust 24 þingmenn fjarver-
andi.
Enn hafa engin stórmál verið
lögð fyrir þingið. Þau mál, sem
hafa verið lögð fyrir þingið, eru
aðallega- bráðabirgðalög og
minniháttar þingsályktunartil-
lögur.
Fjárlögin munu verða lögð
fyrir þingið innan fárra daga.
Dýrtíðarmálin munu sennilega
ekki verða lögð fyrir þingið fyrr
en stéttarráðstefnunni er lokið
og sýnt verður hvaða afgreiðslu
málið fær þar.
EKKI MJUK I MÁLI
4000 benzínbókum
hefir verið úthlutað í
Reykjavík
50 vörubifreiðar liafa
fengið aukaskaminí
Að undanförnu hefir benzín-
bókum verið úthlutað til bif-
reiða og annarra véla, er hafa
benzín að aflgjafa.
í gærkvöldi hafði alls verið
úthlutað um 4000 benzínbókum.
úuk þess hefir nóvember-
,kammtur verið veittur 50 vöru-
lifreiðum. Þessi nóvember-
.kömmtun er veitt samkvæmt
sérstakri heimild frá skömmt-
unarstjóra, er tilkynnt var í
auglýsingu nr. 14.
Þá hefir verið úthlutað
benzíni handa 150 v£lum. Eru
bar á meðal dráttarvélar,
steypuhrærivélar, ljósavélar og
aðrar hjálparvélar.
Alls munu um 6000 bifreiðar
vera skrásettar hér í Reykjavík.
Allmargar þeirra munu vera í
því ástandi, að þær fái ekki
benzínúthlutun. Samt má óhætt
gera ráð fyrir, að eftir sé að
úthluta benzíni á að minnsta
kosti 1000 bifreiðar.
Enn mun ekkert ákveðið um,
hvort benzínúthlutunin verður
aukin til sérstakra bifreiða-
flokka, svo sem leigubifreiða.
Gyðingar um heim allan heyja
um þessar mundir harða og
skefjalitla baráttu fyrir því að
tryggja ítök Gyðinga í Pal-
estínu. Arabar, sem búið hafa
einir í landinu í átján aldir búa
sig undir að láta hart mæta
hörðu. — Myndin hér að ofan
er af Gyðingafrú einni, sem
heitir Goldie Meyerson og er
meðal leiðtoganna í stjórnmála-
deild Gyðingasamtakanna Je-
wish Agency. Hún er hér að
halda ræðu, og andann í boð-
skap hennar má ráða af því, að
hún sagði meðal annars: „í dag,
þegar Hitler er liðinn undjr lok,
er Bevin foringi Gyðingahatar-
anna. En hvað sem enska
stjórnin gerir, þá munu Gyð-
ingar engin úrræði láta ónotuð
til þess að öðlast staðfestu í
Paléstínu. Gyðingaríkið skal
rísa upp“.