Tíminn - 03.01.1948, Blaðsíða 3

Tíminn - 03.01.1948, Blaðsíða 3
1. blað TÍMINN, laugardaginn 3. jan. 1948 3 FIMMTUGUR í DAG PÁLMI HANNESSON Pálmi Hannesson, er Skag- | firðingur. Hann er kominn af einhverjum stærstu og merk ustu ættstuðlum héraðsins, sem þar standa djúpum rót- um bæði í fortíð og nútíð. Hann er alinn upp í því fagra og söguríka héraði. Enda leynir það sér ekki að Pálmi er sonur Skagafjarðar, upp- runninn þaðaxr, mótaöur þar. Pátt er ánægjulegra og meir heiliandi, en að ferðast með Pálma um Skagafjörð. Hvert orð hans og hver hreyfing ber vitni um aðdáun hans og ást til héraðsins og til fólks- ins, sem þar heyir lífsbaráttu . sína. Þegar Pálmi Hannesson hóf langskólanám valdi hann náttúrufræði sem sérnám. Það er engin tilviljun, að Pálmi hóf nám í náttúru- fi’æði. — Fyrir 25 til 30 árum síöan var ólíkt erfiðara og óvissara til þess að öðlast embætti að stunda náttúru- fræðinám, en feta einhverja hina venjulegu embættis- námsleið. Þá leið, sem Pálmi valdi, fara trauðla aðrir en þeir, sem elska og trúa á landið, ekki aðeins með vör- unum, heldur raunverulega. Pálmi Hannesson gerir hvort tveggja af jafn heilum huga og allra beztu synir þjóðar okkar á öllum öldum hafa gert. Frá hverju oröi sem hann ritar og hverri sten- ingu, sem hann flytur í mæltu máli andar ást hans til lands og þjóðar, og trú, sem er studd öruggri vissu mótaðri af mikilli þekkingu, um að ísland sé öndvegis- land, sem hafi meira að bjóða en flest- önnur lönd. Þessi örugga vissa um gæði lands- ins — og að börn þjóöarinn- ar verði fær um að hagnýta sér þau, svo að hér vaxi and- leg og vei’kleg menning, það er þessi bjartsýni, þessi trú sem er sterkasti þáttur í störfum Pálrna Hannessonar og stefnu. Pálmi Hannesson er lýð- ræðismaður í þess orðs beztu stefnu. Trú hans á fólkið sjálft er sterk. Þess vegna vill hann að þjóðin sjálf ráði, að valdið sé í höndum almenn- ings. Pálmi er öruggur mál- svari samvinnustefnunnar og telur hana lýðræðislegustu og helztu þjóðfélagsstefnu, sem beri að fylkja sér um. í samræmi við þessa lífsskoðun' hefir Pálmi skipaö sér undir merki Framsóknarfl. í stjórn málum og verið um langt skeið einn öflugasti og áhrifa mesti stuðningsmaöur þess flokks. Kynni ( okkar Pálma Hennessonar hófust ekki fyrr en við vorum báðir orðn ir fullþroskaðir menn. En síð ustu 15 árin hafa leiðir okk- ar legið saman varðandi ýmis mál og því verið um náin kynni og samstarf að ræða. í fimm ár vorum við sam- þingismenn fyrir Skagafjai’ð arkjördæmi og samstarf okk- ar í milli þau ár því að von- um sérstaklega mikið. Ég hefi átt því láni að fagna að kynnast mörgum ágætismönnum og eiga sam- leið með þeim og starfa með þeim, bæði varðandi stjórn- mál og annað. Ég hefi eng- um kynnst heilsteyptari, ör- uggari og um leið skemmti- iegri samstarfsmanni, en Pálma Hannessyni. Sumir menn, sem virðast glæsilegir við fyrstu sýn, tapa við kynn- ingu, svo aö þeir falla í diúp meðaimennskunnar, eða jafn vel enn dýpra. AÖrir vaxa við kynn'ingu og því meir, sem hún er nánari. — Pálma Hannessyni er þannig var- ið. — Hann er höfð- inglegur álitum, gæddur á- gætum gáfum og prýöilega menntaður. En það, hversu | Pálmi vex við náin kynni, j stafar ekki af þessu fyrst og fremst, heldur er það vegna þess, að hann er heiisteypt- ur drengskaparmaður. Svipur Pálma og allt yfir- bragð ber þess vitni, en við- kynning sannfærir hvern mann um að þar fer góður drengur í þess orðs beztu merkingu. Það er af þessum ástæðum, að ég tel mér það heiður að mega kalla Pálma Hannesson vin minn, jafn- framt því sern ég þakka hon- um allt hið liðna, sem okkur hefir í milli farið. Pálmi Hannesson ann sveií um og íslenzku sveitalífi. Hann skilur manna bezt mik- ilvægi landbúnaðarins bæði menningarlega og atvinnu- lega. Pálma Hannessyni er ekki gjarnt að hreykja sér hátt, en þess þykist ég hafa orðið var, að hann sé stoltur af því að vera af bændurn kominn og upprunninn úr sveit. Þessa skoðun sína hefir Pálmi undirstrikað eins og bezt má verða. Þrátt fyrir umsvifamikil og margþætt embættisstörf liefir hann stundað búskap um mörg ár. Vinnur hann að búi sínu hve nær, sem stund gefst til frá öðrum störfum. Ekki er þetta fjárplógsstarfsemi, því að litt mun Pálmi hafa auðgast á búskap fremur en margir aðrir. Heldur er það lífsskoð- un Pálrna, sem þarna birtist, það er trú hans á gildi s'veita lífs og sveitamenningar. Þessi fáu orð mín til Pálma Hannessonar nú á fimmtugs- afmæli hans eiga ekki að vera neiir eftirmæli. Pálmi er ungur enn. Viö vinir hans og samstarfsmenn vonumst eft- ir því, að hann eigi enn lang- an starfsdag framundan. Við berum þá ósk fram í nafni allrar þjóðarinnar, en jafn- framt er það eigingjörn ósk, því að með þér þykir okkur gott að stai’fa og viljum við þig blanda geði. Ég flyt þér, Pálmi Hannes- son, hugheilar þakkir fyrir öll okkar kynni og óska að gæfa og gengi fylgi þér og ,’><T>n heimili. Sieingrimur SLcwþórsson. Pálmi Hannesson rektor er fimmtugur í d2P.. I-Iann er fæddur 3. janúar 1898 að Skíöastöðum í Lýtingsstaða- hreppi í Skagafirði. Hann er sonur Hannesar bónda Pét- urssonar og konu hans, Ingi bjargar Jónsdóttur. Pálmi Hannesson tók stúd- entspróf 1918, en fór að því loknu til Kaupmannahafnar, og stundaði nám í náttúru- fræði við háskólann þar. Hann valdi sér dýrafræði sem sérgrein og í henni tók hann magisterspróf vorið 1926. Á námsárunum fór Pálmi ferðalög til aö rannsakg nátt úru íslands. Hann var í tveim leiðöngrum með Niels Niels«i til óbyggðanna í þeim. erindum. Þá þegar var jarð- fræðin orðin helzta viðfangs efni lrans á sviði náttúruvís- indanna, enda hefir löngum fai’ið svo fyrir íslenzkum nátt úrufræðingum. k Jarðfræðin hefir heillað þá til sín og orð- ið sérgrein þeii’ra í lífi og starfi. Svo var á dögum Sveins Pálssonar og Jónas- ar Hallgrímssonar jafnt og á tímum Pálma, Steinþórs og Trausta. Það er líka eðlilegt, svo mikiö og .glæsilegt starf, sem ísland býður á því sviði. Þegar Pálmi kom frá námi var hann kennari viö mennta skólann á Akureyri í þrjá vetur, en haustið 1929 tók hann við rektoi’sembættinu við menntaskólann í Reykja- vík. Veiting rektorsembættis- ins varð mikið deilumál. Þá voru hörð stjórnmálaátök í landinu og því,eins og löngum vill verða, setið um tækifæri til ádeilna vegna embætta- veitinga sem annars, en auk þess var fullkomið brot á hin- um gömlu veitingavenjum að sniðganga svo mjög embættis aldur og alla hefð.Við mennta skólann í Reykjavík kenndu þá ýmsir gamlir og merkir menn, sem talið var sam- kvæmt gömlum og grónum reglum, að hefðu rétt til em- bættisins. En Jónas Jónsson skipaði í þess stað þrítugan náttúrufræðing, sem aðeins þrjá vetur haföi kennt, og það við amran skóla. Rektorsembættiö í Reykja- vík er eitthvert þýðingar- mesta embætti landsins. Þaö er erfitt starf að stjórna f jöl- mennum unglingaskóla hvar sem er, en ekki sízt þegar húsakynni' hans eru ófull- nægjandi svo fjölmennri stofn un og skólinn starfar auk þess í bæjaríélagi, þar sem allt aörir siðir tíðkast en hæf ir eða hentugir^ykja í skóla- lífinu. í byrjun var Pálmi rektor óvelkominn mörgum Reykvík ingum í starfið, en síöar kom styrjöldin og hernámið með þeim áhrifum, sem því fylgdu. Það hafa því margs konar óvenjulegir erfiðleikas orðið á starfsferli rektors þetta tímabil. (FramhalcL á i. síðu) :: H § ♦♦ :: AUGLÝSINO NR. 30/1947 frá skömmtunarstjóra. Um Mrgðfflkönnnn á öllum sköinmtuu* arvörum. 1 I :: ♦♦ i! :: I ♦ ♦ :: ♦♦ :: ♦ ♦ :: 8' ?! !l « :: § il ♦♦ i: :: :: Samkvæmt heimild í 15. gr. reglugei’ðar frá 23. sept- ember 1947, um vöruskömmtun, takmörkun á sölu, dreifingu og afhendingu vara, er hér með lagt fyrir alla þá, er hafa undir höndum skömmtunarvörur kl. 6 e. h. miövikudaginn 31. desember þ. á., að framkvæma birgðakönnun á þessum vörum öllum, svo og gildandi skömmtunai’reitum. Undanþegnar þessu eru þó heim- ilisbirgðir einstaklinga, sem ekki eru ætlaðar til sölu eða notkunar í atvinnuskyni. Birgðakönnun skal fara fram áður en viðskipti hefj- ast 2. janúar n. k. og skal tilfæra magn eða verð var- anp.a eftir því, sem segir til um á hinum þar til gerðu eyðublöðum, sem send hafa verið út. Birgðaskýi’sluirum skal skila, greinilega útfylltum og undirskrifuðum til bæjarstjóra eða oddvita (í Reykja- vík til skömmtunarskrifstofu rílcisins) eigi síðar en :: mánudaginn 5. janúar n. k. :: Jafnframt er lagt fyrir bæjarstjóra og oddvita að H ♦♦ senda í símskeytum til skömmtunarskrifstofu ríkisins í :: Reykjavík skýrslu um heildai’birgðirnar af skömmtun- :| arvörunum í hverju umdæmi, sundurliðað eins og vör- ?? ♦♦ urnar eru aðgreindar á skýrslueyðublaðinu, eigi síðar :: en miðvikudaginn 7. janúar n. k. H ♦♦ ♦ ♦ ♦♦ ♦♦ . ♦♦ Reykjavík, 30. desember 1947. :: ♦♦ ♦♦ ♦♦ ♦♦ Skömiutiinarstjjórí. H ♦« ♦♦ :: BáimnninniM Einar Halldórsson Ifii’eppstjórl á M.árastölSmii Þegar komið er vestan yfir Mosfellsheiði og farið að nálg ast Þingvelli er það fyrsta, sem vekur verulega eftirtekt vegfarandans, mikill og reisu legur bær, byggður í gömlum byggingastíl, stór sambyggð fjárhús á tveim stöðum, stíl- hrein og falleg, og stór renn- slétt tún. Þetta eru Kárastaö- ir, þar sem Einar Halldórsson hreppstjóri þeirra Þingvell- inga hefir búið og gert garð- inn frægan. Er auðséð á öllu að þarna hefir meira en meö almaður verið að verki. Vita líka allir sem til þekkja aö svo er. — En lífið er ekki eins varanlegt og vel unnin verk, og nú er Einar fallinn frá, en verkin hans munu lengi vara. — Einar var fældur að Heiða bæ í Þingvallasveit 18. nóv. 1883. Voru foreldrar hans Jöhanna Magnúsdóttir og Halldór Einarsson er þar bjuggu þá. Þau hjón bjuggu víðar í Þingvallasveit, en lengst af á Kárastöðum, en þangað fluttust þau árið 1903. — í æskú stundaði Éin- ar öll venjuleg sveitastörf, en auk þess var hann barnakenn ari í nokkur ár bæði í Þing- vallasveit og Grafningi. Til þessara æskustarfa greip hann einnig á efri árum þegar þess þurfti með. Mútti yfirleitt um Einár segja að hann væri "jáfnvigiír á állt, sem hann tók fyrir hendur. — Snemma varð Einar Hall- dórsson einn af þekktustu bændum Suðurlands og bar þar margt til. — Kárastaðir liggja við þjóðbraut eiirs og kunnugt er, og meðan ferða- lög voru með öðrum hætti en nú, voru Kárastaðir jafnan sjálfkjörinn viðkomu- og gististaður og var oft mann- margt þar, en þó sérstaklega um haust og vor. Þótti þar öllum gott að koma. Þetta átti sinn þátt í þeim kynnum sem menn höfðu af Kára- staðaheimilinu og þeirri vin- áttu er þar hófst og entist mörgum ævina út. — En hér um var Einari ekki allt að þakka, þvi hann gekk ekki einn til verks. Árið 1912 gift- ist hann Guðrúnu Sigurðar- dóttir (Loftssonar) og hófu búskap á Kárastööum árið eftir. Þau eignuðust 11 börn og eru nú 9 gift. — Guðrún var manni sínum samhent eins og bezt má verða og er ekki hægt að minnast Ein- ars svo, að Guðrúnar sé ekld jafnframt getið. Hygg ég það ekki of sagt þótt fullyrt sé, að Guðrún sé einhver ágáet- asta kona sem verið getur. — Einar á Kárast. var mikill at- hafnam. eins og bújörð Káris ber gleggst vitni um. En þó er fjarri því að þar hafi vgr-. ið allur vettvangur stai’.fa hans og áhugamála. ,Um langt skeið var hann sjálf- kjörinn forsvarsmaður sveit- ar sinnar út á við; og innan sveitar mun hann hafa gengt öllym þeim trúnaðarstörfum sem hægt er að koma á eintt mann. Hreppstjóri var hanh sðustu 25 árin, en annars er Öþarft að skilgreina hér nán ar hin ýmsu störf Einars"í þágu sveitar sinnar og sýslu. Út á við tók Einar virkan þátt í ýmsum bændasamtökum ög Ivar ötull og áhugasamur um (Framliald á 6. siðu)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.