Tíminn - 05.02.1948, Page 8

Tíminn - 05.02.1948, Page 8
Fyrir nokkru síðan gerði hræðilegan fellibyl á Filippseyjum. Æðandi stormurinn kollvarpaði fjölda húsa, og margir menn biðu bana í þessum hamförum náttúrunnar. Myndin hér að ofan gefur dáiitla hugmynd um það, hvernig vistarverur fjölda fólks voru Iciknar, þeg- ar fellibylinn lægði. Skemmdir í ofvíðrinu: Þrjár hlöður fuku að Seljavöllum und- ir Eyjafjöllum í ofviðrinu, sem geysaði um helgina síðustu, fuku þrjár hlöður að Seljavöllum undir Eyjafjölium. Sviptist þakið af þeim öllum á aðfaranótt mánudagsins, og var aðeins ein hlaða á bænum, sem stóð af sér veðrið. Hey fauk þó ekki til muna, en miklar skemmdir urðu á heyjum af völdum rigningar. Mjög erfitt hefir verið að setja nýtt þak á hlöðurnar, því að járn er ófáanlegt. Hef- ir orðið að tína saman gam- alt plöturusl til þess að gera við hlöðurnar til bráðabirgða. — Bóndinn á Seljavöllum heitir Óskar Ásbjörnsson. Skaftfellingar vona, að Dyrhólaós verði mældur í sumar t Frá fréttaritara Tímans í Vík í Mýrdal. Almenn ánægja er yfir því hér eystra, að vonir standa til þess, að mælingar og at- huganir á aðstöðu til hafn- argerðar við Dyrhólaós fari fram á næsta sumri. Kunna héraðsbúar þing- manni kjördæmisins beztu þakkir fyrir framgöngu hans og afskipti af málinu og vænta þess, að sú verði nið- urstaðan, að þeim, sem hafn- armálum landsins stjórna, þyki tiltækilegt að ráðast í framkvæmdir við ósinn. Tíð hefir verið mjög mild í vetur, en nokkuð umhleyp- ingasöm. Snjór hefir enginn verið, nema um tíma framan af janúarmánuðí. Símasambandslaust var eina viku vegna bilana á lín- unni undir Eyjafjöllum. Einkennileg eld- fluga á lofti yfir Siglufirði Kom úr austurátt og bar hratt yftr í gærmorgun klukkan skömmu fyrri sjö sáu verka- menn, sem voru að fara til vinnu sinnar, einkennilega eldflugu á lofti, sem fór með talsverðum hraða yfir himin- hvolfið og virtist vera í mik- illi hæð. Eldfluga þessi kom úr austur átt og hvarf jafn skyndilega og hún hafði kom- ið. Ljós þetta virtist alltaf haldast í jafnmikilli hæð með- an það sást frá Siglufirði. Þetta var bjart Ijós með blá- an blossa aftur úr sér og virt- ist helzt vera rakettulag á. Ekki hefir blaðið frétt af því, að tekið hafi verið eftir þess- ari eldflugu annars staðar, þar sem hún hefir farið yfir Norðausturland eða Vest- firði, því að í þá átt stefndi hún. Ljósfyrirbrigði þetta verður ekki skýrt með neinni vissu, en það minnir á svipuð fyrir- brigði, er orðið hefir vart á Norðurlöndum og víðar í vet- ur. Bátar almennt að hefja róðra í Eyjum Frá fréttaritara Tímans í Eyjum. Róðrar eru nú almennt að hefjast frá Vestmannaeyjum og er fyrirhuguð útgerð allra báta þar. Tólf línubátar eru þegar byrjaðir veiðar og hafa þeir aflað vel, þegar gefið hefir. Afli þeirra hefir þá ver- ið upp í sex smál. Margir dragnótabátar eru að búast á veiðar og fyrstu togbátarnir leggja út frá Vestmannaeyjum í þessari viku. Fjölda brezkra íþróttamanna fýsir að koma hingað, en óvíst enn, hvað verður í vetur ÍUáSið of seint tckið ú dagskrá.^ið þessu sinni og landið ckki nógsi |»ekkt Eins og áður hefir verið sagt frá í Tímanum er mikill áhugi vaknaður í Englandi fyrir ferðalögum hingað til lands, bæði að vetrar- og sumarlagi. Brezkir skíöamenn eiga þess nú ekki kost að fara til Noregs eða Sviss, en hingað er þeim frjálst að fara, þar eð ísland er á hinu svokallaða sterlingsvæði. Þó eru ekki líkur - til að mikið verði úr skíðaferðunum hingað að þessu sinrti, meðal ann- ars vegna þess, að Island er enn of lítið þekkþ sem vetrar- íþróttaland. Hins vegar má búast við, að brezkt vetrarí- þróttafólk verði búið að átta sig að ári og kömi þá hingað í stórum stíl, að óbreyttum aðstæðum. Þar siíin þetta mál getur varðað mjög hagsmuni Islands í framtíðinni, er vert að fylgjast vel með því sem gerist í þessu efirw. í Englandi er enn sem fyrr verulegur áhugi fyrir skíða- ferðum hingað til lands i vetur. En vegna þess, hve þessar ferðir komu seint til tals og undirbúningur þeirra var skammt á veg kominn, þegar menn ákveða almennt slíkar ferðir, er óvíst, að mik- ið verði úr ferðum brezkra í- þróttamanna hingað i vetur. Hins vegar má búast við mikl- um fjölda vetraríþróttamann að ári, að óbreyttum öllum að- stæðum á gjaldeyrissviðinu. Er það þýðingarmikið, að hægt sé að beina hingað straumi brezkra skíðamanna einmitt á meðan gjaldeyris'- ástand í Bretlandi er þannig, að fólk á þess ekki kost að fara til Noregs eða Sviss. Þeg- ar ferðir hingað eru einu sinni komnar á, leggjast þær ekki niður, nema fyrir eindæma klaufaskap og sinnuleysi okk- ar sjálfra. Möguleikarnir á því að gera ísland að vetraríþróttalandi eru mjög miklir. Loftslagið hér er mun hlýrra á veturna yfirleitt en í Noregi og Sviss, en hins vegar er oftast næg- ur snjór á Norðurlandi og allt- af uppi til fjalla. Gistihúsin eru líka til norðan lands, nægilega stór til að byrja með, þótt vitanlega vanti hér mikið af gistihúsum, ef veru- legur skriður kemst á ferða- mannastraum hingað. Mikill fjöldi fyrirspurna. Ferðaskrifstofa ríkisins hef- ir gefið erlendum aðilum allar þær upplýsingar um ísland sem ferðamanna- og skíða- land, sem óskað hefir verið eftir. Berst skrifstofunni svo að segja daglega fjöldi bréfa, þar sem óskað er svars við ýmsum spurningum. Er það bezta sönnunin fyrir þeim á- huga, sem ríkir nú í Bretlandi á ferðalögum hingað til lands. Þorleifur Þórðarson, for- stöðumaður ferðaskrifstof- unnar, fór í desember til Eng- lands og ræddi þar við áhuga- menn um skíðaferðir hingað. Ekkert var ákveðið um ferðir að því sinni, en skrifstofan auglýsti skíðadvalir hér á landi í janúarhefti brézka skíðablaðsins „Ski Notes and Queries". Hefir skrifstofunni síðan borizt fjöldi fyrirspurna fólks, sem hug hefir á að komast hingað á skíði í vetur. 10, 15 og 20 ddgg. dvalir. í áætlun sin-ni. gerir skrif- stofan ráð fyrir þremur mis- munandi löngum dvölum skíðamanna hér-,.— 10, 15 og 20 daga. Gert er. ráð fyrir, að fólkið komi hingað og fari með islenzku,flugvélinni Heklu, sem kemur við í Prest- vík í áætlunarfarðum sínum, á 10 daga frestij,.auk þess sem Flugfélag Íslands hefir hálfs- mánaðarlega ferðir með leigu- flugvél. En ef úm stóra hópa væri að ræða, rpyndi flugvél- in Hekla verða,,fengin til að flytja þá beina,'jeið frá Lon- don, ef þess væri óskað. En það, sem einkum er þröskuld- ur í vegi fyrir .því, að skíða- ferðir takist hingað i stórum stíl frá Bretlandi í vetur, er tvennt. ísland komst ekki á dagskrá í Englahdi, sem vetr- aríþróttaland fyrr en í haust, og ferðin hingað með dvöl er nokkuð dýr, en þó ekki dýrari en svo, að þúsundir Englend- inga væru fúsir að koma hing- að þrátt fyrir það, enda er verðlag á gistingu yfirleitt hækkandi víða um- lönd, með- al annars í Englandi. Brezkar ferðamannaskrif- stofur taka á móti pöntunum. Ferðaskrifstofa ríkisins hef- ir falið nokkrum brezkum ferðaskrifstofum að taka á móti pöntun á vetrardvölum skíðamanna hér i vetur. Ann- ast skrifstofurnar alla fyrir- greiðslu og veita nauðsynleg- ar upplýsingar, ef á þarf að halda. Þá hefir skrifstofan ráðið sérstakan umboðsmann fyrir sig í London, og veitir hann einnig upplýsingar um landið og aðstæður til vetrar- íþróttaiðkana hér. Smásíld og þorsk- ganga uppi við Iand- steina við Hofsós Góðnr afli í laálfan máiassð, cn gangasa nú liorfin Frá fréttaritara Tímans á Hofsósi. Nú fyrir nokkru gekk smá- síld hér upp í fjörusteina og var talsvert veitt til beitu í landnætur. En fyrir síðustu helgi hvarf hún aftur brott. Var þá nálægt hálfur mán- Úður frá þvi hennar varð vart. Á eftir síldinni kom þorsk- ganga og var þá róið á trillu- bátum, sem eru fimmtán hér í þorpinu, fékkst ágætur afli á línu uppi við landsteina. En þegar sildin hvarf, lón- aði þorskurinn einnig burt. Tveir þilbátar eru hér á Hofsósi, en hvorugur þeirra hefir enn byrjað róðra, enda ekki venja, að þeir byrji fyrr en í lok febrúarmánaðar eða byrjun marz. Liggja þeir norður á Siglufirði á vetrum. En nú verður hvað úr hverju byrjað að búa þá á veiðar. Koraa brezku samn- ingamanna dregst Fyrir nokkru var frá því skýrt, að samningaumleitan- ir við Bretland mundu hefj- ast hér i Reykjavik um 10. febrúar. En nú hefir borizt hingað frétt frá sendiráðinu í London um að brottför brezku samningamannanna dragist lítilsháttar og munu því samningaumleitanirnar frestast nokkuð. 3000 rúður brotn- uðu, en Snorrastytt- an haggaðist ekki í ofviðrinu, sem geisaði um helgina urðu miklar skemmd ir í Reykholtsdal. Rúður brotnuðu víða á bæjum og þök fuku af húsum. Mestar i skemmdir urðu þó að Sturlu- Reykjum, sem er bær utar- lega í dalnum. Þar eru mikil gróðurhús og stórt tveggja hæða íbúðarhús. Heita má, að gler úr tveimur gróður- húsum hafi fokið og eyðilagzt en grindur húsanna standa uppi að mestu. Þá brotnuðu einnig 20 rúður í íbúðarhús- inu, og mun láta nærri. að samtals hafi brotnað um 3000 rúður á þessum eina bæ. Hefir bóndinn þar, Jóhannes Erlendsson, orðið fyrir til- finnanlegu tjóni, sem nemur mörgum þúsundum króna, auk þess, sem illmögulegt er sem stendur að fá gler í stað- inn fyrir það, sem brotnaði. Framar í dalnum og í Hálsa sveit urðu einnig mikil spjöll á húsum í veðrinu, en ekki mun fólk hafa sakað neitt að ráði. Snorrastyttan, sem menn hafa talið riða talsvert í stormum, stóð hins vegar af sér veðrið, og er henni vænt- anlega ekki hætt við falli fyrst um sinn. Veður þetta er eitt hið alra mesta, sem komið hefir á þessum slógum í mörg ár:

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.