Tíminn - 21.02.1948, Blaðsíða 4

Tíminn - 21.02.1948, Blaðsíða 4
TÍMINN, laugardaginn 21. ferúar 1948. 42. blað MsrgunhugSelðin Nokkru eftir aldamót og xram yfir 1930 var öflugasti og um ieið þjóðhollasti félags- sKapur æskunnar í landinu samemaður i ungmennafélög- unum. Ungmennafélögin höfðu mörg ahugamál, er voru vel tíl þess íallin að lyfta hug æskumannsins yfir örðugasta hjallann á þroskabrautinni. Þau ieystu úr læðingi ómót- uð og dulin öfl í sámeiginlegu ataki margra um fjölmörg 'þjóðnýt mál. Innan vébanda ungmenna- félaganna lærði æskan að koma hugsjónum sínum í bún- :ng orðs og athafna. Fyrsta ooðorð U. M. F. er heiðaTleiki orði, heiðarleiki í verki og íórntýsi fyrir málum, er horfðu til íramfara í víðtækri merkmgu. Enginn heiðarlegur angmennafélagi spurði hver 1 unin yrðu fyrir þá fórn. M xrgt af þeim málum, er U. M. F. börðust fyrir, náðu ekki framgangi i því formi, er þau voru hugsuð í upphafi, og fum komust ekki í búning veruieikans í nokkurri mynd. Til þess skorti margt, er að vonum var með jafn fámennri og fátækri þjóð. Það er raunaleg saga hve mörgum hættir til að kasta scemi að brautryöjendastarfi 'U. M F. af þessum ástæðum. Hitt er venjulega lagt í lág- ina, hve miklu U. M. F. komu til leiðar á umræddu tímabili. Þau mál, er U. M. F. börð- ust otulast fyrir, voru meðal annars fánamálið, íþrótta- mál, íegrun móðurmálsins, skólamál, bindindismál Héraðsskólarnir eru nær- cækasta vitnið. Ef sú saga væri skráð án hlutdrægni, er Vist, aö á nútímamælikvarða mundu þær fjárhæðir, er U. M. F. lögðu fram til héraðs- skólanna vera svo miklar, að undrun sætti. Axmar ómetanlegur liður í staríi U. M. F. var fundar- starfsemi þeirra. Við funda- hóld og ræðumennsku lögðu xelögin mikla rækt, enda má svo að oröi kveða, að á blóma- árurn U M. F. væru flestir meðlimir þeirra allgóðir ræðu- menn, er a drengilegan og skipulegan hátt gátu komið nugsunum sinum í búning í ræðutormi á óbjöguðu móður- máli. Bindindismálið var þá, og er :i dag, stormál fyrir æsku þessa lands. Það þótti hneisa, ef sannur angmennafélagi andmælti bmdindisstarfsemi, og tví mæialaust hneyksli ef hann gerðist brotlegur í þeim efn- um. Á þessu glæsilega tímabili æskunnar í landinu var ver- aldlegur auður harla lítill. Æskumenn þeirra ára höfðu ekki íullar hendur fjár úr að spila. Þær fáu krónur, er æsk- an hafði handa á milli voru :i augum hennar dýrmætur sjóður, er ekki mátti verja til annars en hugsjónamála, er miðuðu að fegrun lands og þroskun lýos. I meðvitund fólksins var mótuð sú sterka sannfæring, að fjármununum mætti ekki eyöa til annars en nytsam- iegra framkvæmda, er mið- uðu að ákveðnu marki í við- reisnarstarfi þjóðarinnar. Þó að æskulýðurinn eyddi um þessar mundir engu í „sport“, var hann áreiöan- Hftir Baiiíel Síflsí|áBiss»Ba9 SScigSaacla. lega miklu ánægðari með kjör sín en æskan í ár með fullar hendur fjár, skemmtanir og I „lúxusbíla“. j Ungmennafélagsæska liðnu áranna starfaði í þeirri vissu, að hún væri að vinna í hag- (inn fyrir framtíðina, og hver 1 getur mælt gegn því, að hún hafi gert það. Ungmennafé- lögin hafa skilið eftir verkleg og andleg verðmæti, er eiga ; eftir enn um stund að lýsa okkur veginn fram á leið gegnum öldurót og boðaföll utanaðkomandi áhrifa, er þjóðin öll skelfist af um hríð. i Með styrjöldinni miklu 1939 hefst nýr þáttur í lífi íslenzku æskunnar. ! Hernám og á margan hátt leiðinleg sambúð íslendinga og hersins, leiddu oft til á- 1 rekstra, er ekki voru til þess fallnir að auka á sjálfsvirð- ingu íslendinga, og því síður ,var sú sambúð vel til þess fallin að örva íslenzka æsku til sjálfstæðra dáöa. Einkum varð hið veikara kyn hart úti í þeim viðskiptum, og hafa íslendingar þar . goldið af- ihroð, er eigi verður metið. Auðsóttir og óvæntir fjár- munir flutu inn í landið. Það má svo að orði kveða, að þeir, sem réttu fram hend- urnar, gætu fengið nægtir af fjármunum hjá þessum er- lendu gistivinum. Umrót skapast í þjóðarbú- skapnum. Fólkið streymir frá framleiöslunni, einkum sveit- unum, til höfuðborgarinnar, þar sem erlendi herinn hefir aðalbækistöðvar.Allir fá vinnu og fjármuni. Öldungurinn og fermingardrengurinn eru jafngildir starfsmenn hjá þeim erlendu og orkumaður — 30 ára. Þjóðin veit vart hvar hún er á vegistödd. Forráðamennirnir tvístíga, verða ósammála um skiptingu auðsins og gildi hans fyrir þjóðina. Spákaupmennska og brask er hafið. Fjármunir eyðast á ótrú- legan hátt, renna út í sand- inn, án þéss að skilja eftir varanleg verðmæti fyrir fram- tiöina eins og efni áttu að standa til. Æskan fer ekki varhluta af þessum tímum. Drengir og stúlkur á fermingaraldri vinna fyrir hærra kaupi nú en æðsitu menn þj óðarinnar höfðu fyrir nokkrum árum. Og það sorglega skeður. Æskan lærir ekki að meta gildi auðæfanna á réttan hátt. í stað sparsemi og fullvissu um það, að peningar séu verð- mæti, ályktar æska þessara ára, að peningar séu aðeins verðmæti fyrir líðandi stund, til að kaupa falleg föt, fara á skemmtanir, ferðast í bílum, kaupa vín og tóbak. í stað þeirrar höfuðdyggöar allra sannra ungmennafélaga, að neyta ekki áfengra drykkja, þykir það ekki leng- ur tiltökumál, þótt æskumenn séu þétt ölvaðir á samkomum, og gildir þetta einnig um kvenþjóðina. Eldmóður frumherja U. M. F. er horfinn. Stefnuleysi æskulýðsins um flest þjóð- þrifamál er auðsæ, þrátt fyrir bætt lífskjör. Mörg ungmenni eyöa — jafnvel svo hundruðum króna skiptir — í skemmtanir yfir eina helgi. Auðvitað fer bróð- urparturinn af þeim fjármun- um í áfenga drykki. Haldið þið, sem unnið landi og þjóð, að sú æska, sem lifir slíku eyðslulífi, sé líkleg til að drýgja dáðir? Haldið þið, að þc-tta verði kjarnmikið fólk og uppbyggi- legt í þjóðfélaginu? Þetta fólk á bágt. Það vantar flest er heilbrigð æska þarf að eiga, en það er viljakraftur, trú á sjálfan sig og trú á lífið. Að vísu eru hér margar undantekningar, en þær eru of fáar. 17. júní 1944 var sjálfstæði landsins hátíðlega lýst yfir meö ræðuhöldum og hljóð- færaleik. Mörg hraustleg orð voru töluð og við vorum þá stundina óneitanlega „stórir menn“, sem allir vegir virtust færir. Vonandi verð- um við alltaf sjálfstæð þjóð, er engir örðugleikar fá bugað, en óneitanlega grípur hroll- kenndur kvíði inn í framtíð- ardrauma lcomandi tíma, ef litið er á raunverulegt viðhorf í ýmsum málum. Nægir í því sambandi að rninna á hætt- una, sem þjóðinni stafar af áfengisneyzlunni. Það hefir löngum verið umtíeilt mál, hvort á íslandi ætti að gild-a bann við sölu áfengra drykkja eða hvort leyft skyldi að selja þá. —- Skoðanir um málið voru skiptar, en svo fóru leikar að lokum, að andbann- ingar urðu bindindismönn- um yfirsterkari. íslenzka ríkið hefir um nokkurt árabil rekið hér vín- sölu af miklum dugnáði. Oflangt mál yrði að rekja allar þær sorgarsögur, sem þessi verzlun íslenzka ríkisins hefir leitt yfir hundruð heim- ila og þúsundir einstaklinga i landinu. Ég geri ráð fyrir því, ef formælendur vínsins ættu í þeim efnum að standa reikn- ingsskil ráðsmennsku sinnar, að mörgum þætti reikningur- inn hár. íslenzka ríkið selur vínið með mikilli álagningu, og er ekkert við því að segja, fyrst það er selt á annað borð, því svo virðist, að vínið sé keypt, hvað sem það kostar. En eftirlitsleysið með því hverjir kaupa vínið, er með eindæmum. Það er staðreynd, að mikið af því víni, sem neytt er í landinu, er keypt á „svört- um markaði" af neytendum. Það er opinbert leyndarmál, að á samkomum, sem haldnar eru — einkum að sumrinu — koma bílstjórar úr höfuð- stað landsins með allmikið til sölu á skemmtisamkomum í sveitunum. Álagning frá þeirra hálfu, er selja á svört- um markaöi, mun vera all rífleg. Þetta hlýtur forráðamönn- um þjóðfélagsins að vera kunnugt um, og þetta er ein- mitt skaölegasta vínverzlunin af öllu. Hver áhrif þetta hefir á skemmtisamkomur, þar sem æska héraða og kaupstaða er boðuð saman til saklausra leikja, er auðsæ. Venjulega enda samkomur með barsmíðum og meiðsl- um ölóðra manna, og þeir er utanvið ölæðið standa forða (Frc.mhald á 6. siðu) í dag er Þorraþrællinn en á morg un er konudagur, þegar Góa byrj- ar. Ég var að fá bréf frá Þórarni Þorleifssyni á Skúfi. Það er gott bréf og skemmtilegt og af því að þar eru konudagsvísur birti ég þær strax, þó að þær séu í síöari hluta bréfsins og ljóðmælið heldur langt fyrir þessa. dálka. En nú sný ég aö bréfinu: „Ég hefi hér líka nokkrar skamm hendur. Það eru Konudagsvísur. Á konudaginn byrjar Góan, en þá er einn mánuður til vorinngöngu og í sumum tilfellum vaknar þá vorhug urinn, enda segja menn hér norð- an lands, aö það sé grimmur Góu- dagur, ef ekki „taki í“ í þessum eða hinum staðnum, sem við sólu snýr. Vísurnar eru 12 og ég held að engar 2 séu alveg eins að rími, þó að allar séu þær skammhendur. Þó munar litlu með tvær. Þetta er til gamans gert. Sólin hækkar, sjóar lækka, senn er komið vor, loftið blánar, ludin skánar, léttast mönnum spor. Skríkjan syngur sólar óöinn sinn um morgunstund, hún er æfa ástarljóðin undir vinafund. Sér nú lóa í hugans hilling heiðalöndin sín,, auö og ijóð í árdagsgylling óskaströndin skín. Vetrar brestur bráðum ísinn bölið sezt um leiö, síiSim hesti himindísin heldur br^r á skeið. Geisla hófum hjarnið spornar himins skeiðandi yfir sjó og fannir fornar faxið breiðandi. Fjallsins brettast brúnahryggir, björg sig fetta há. Hrís úr fléttum hreiður byggir hrafn í klettagjá. Grætur klaki, grænkar þakið gaman verður þá, gott að vaka, vængjabaki vorsins svífa á. Hláku asa flæði fjasa færa snjú í sjó, lækir masa, lambagrasa lifnar tó í mó. Ljóðahreimur, ljúfur eimur loft er fyllandi, bjartur hreimur hverjum tveimur hjörtu stillandi. í röðuls fangi rós á vanga roðnar angandi. Vetur strangi leið burt langa leggur gangandi. 'Kií i Lengist dagur gígjan gellur Fullin drekka skal. þrengist bragur, frýjan fellur. gallin, rekka val, Þjóðarvar^ra hörðum hrindi höppin sendandi góðir andar létti lyndi leiðir bendandi." Svo er hér bréf frá sveitakonu: „Ég kom á skemmtun hér um kvöldið. þar talaði þjóðkunnur maður.semhefir setið í mesta valda sæti landsins, maður sem ég hefi dáðst að og litið upp til. Ég hlakk- aði því mikið til að hlusta á hann. Það er nú svo með mig, að ég er ekki menntuð kona. Ég átti lítið fé á unglingsárunum og hefi jafn- an haft nóg að starfa. Þegar „á- standið" ríkti með þjóðinni, var ég gift kona í sveit. Ég fékk því aldrei tækifæri til að læra ensku — —. En þegar blessaður þjóðskörungur- inn fór að tala, á íyrrnefndri sam- komu, þá flaut þar með fjöldi út- lendra orða, sem ég ekki skildi. Þegar ég les sögur á Noröurlanda- málunum, verð ég „sökum mennt- unarskorts" að ráða í merkingu margra orða af efni þeirra, sem fara á undan og á eftir. Sömu að- ferð varð ég að hafa við ræöu þessa landa míns og verð' ég að segja að mig furðar á því, að jafn þjóðhollur maður skuli gjöra þetta og annaö eins. Mér finnst þetta bera vott um lítilsvirðingu á tung- unni og á hlustendum og vera þeim, sem talaði, til hinnar mestu liáð- ungar. Það kemst enginn svo hátt í þjóðfélagsstiganum, það verður enginn svo vinsæll, að honum dugi að misbjóða íslenzkri tungu — eða finnst þér það Pétur minn?“ Mér cr ljúft að koma þessum or*- um á framfæri. Ókærni góðra manna um að vanda mál sitt er svo mikil og almenn, að það er mjög þarft að einhvern tíma heyrist raddir, sem segja þeim þann sann- leika, að þeir vaxa alls ekki af þeirri óvöndun. Pétur landshornasirkilL ? Jörðin Keta í Rípurhreppi, Skagafirði, fæst til kaups og ábúðar á næsta vori. 1. Jörðin er vel í sveit sett. 2. Bílvegur heim í hlað. 3. Stórt, véltækt tún í góðri rækt, ótæmandi rækt- unarland. 4. Vatnsleiðsla sjálfrennandi í íbúð og peningshús. 5. Raflýsing með mótor. 6. Traust og vandað íbúðarhús úr steini. 7. Afgirt beitiland og tún. Áhöfn og heyvinnuvélar geta fylgt, ef óskað er. Semja ber fyrir 20. marz n. k. við undirritaðan ábúanda og eiganda. Réttindi áskilin. Ketu, Hegranesi, 14. febr. 1948 Árni Sigurhsson UTBREIÐIÐ TIMANN

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.