Tíminn - 05.03.1948, Side 4

Tíminn - 05.03.1948, Side 4
6 TIMINN, föstudaginn 5. marz 1948. .Heyrist mér gráta harpan þín’ Meðan Þjóðviljinh gleíist yfir sigrum og velgengni Gott- walds hins tékkneska, verður honum ýmislegt að angri hér heima fyrir. Austur í Bæ- heimslöndum sér hann bjarma af hinu austræna lýðræði, þar sem flokksstjórn- in hefir vald til að meta og dæma verðleika manna til að sitja á þingi, sem þjóðkjörnir fulltíúar. Þar eru sérstakir flokksdómar stofnaðir • til að kveða á um það, eftij^ að hafa kynnt sér afstöðuna til ríkis- stjómarinnar. Merk.jamáfkommúnista. ÍSl'enzkir lesendur fara nú að skilja nokkur helztu tákn- in í merkjamáli Þjóðvilja- manná. „Alþýðan“ og „þjóð- in“ táknar kommúnista og ríkisstjórn Rússlands. Þeir, sem tala og skrifa -eða á ein- hvern hátt beita áhrifum sín- um gegn kommúnistum, heita því „skemmdarverkamenn" og „fjandmenn þjóðarinnar“ eða „böðlar alþýðunnar". Og ekki þarf að því að spyrja, að „skemmdarverka- mennirnir“ hafa fyrirgert rétti sínum, ekki aðeins til valda, heldur líka til lífsins. Svo var það um „skemmdar- verlí;amennina“ Petkoff og ManuiJsky og svo er það sjálf- sag t um þá, sem hér eru á móti „þjóðinni" eins og t. d. núverandi ráöherrar. Þeir hafa. að minnsta kosti óspart verið nefndir „skemmdar- verkamenn“, sem von er, því að ggngi kommúnista fer hrakandi í landinu. Harmatölur Þjóðviljans. Fyrir nokkrum dögum ráku kommúnistar hér upp harma- kvein. Blaðamenn Þjóðviljans létu merki hamarsins og sigð- armnar síga á miðja stöng og meðal þeirra var grátur og gnístrah tanna. Með „and- vörpunum og -trega sárum“ skýrðu þeir frá því, að ein af verzlúnum bæjarins hefþi nú lokað annarri vefnaðarvöru- búð sinni af tveimur, „þar til úr rættist". Þarna sagði Þjóðviljinn, að menn gætu. ^éð ávextina af hinni slæmu ríkisstj órn „skemmd arverkamannanna". Hennar vegna væri nú einni sölubúð færra i miðbæ Rvíkur. Það er mál út af fyrir sig hvers vegna umrædd verzlun hafir verið lokað. Ýmislegt benúir til þess, aö vöxtur hennar og velgengni á undan- förnum þenslutímum hafi ekki verið í hlutfalli við gengf annarra verzlana. Það kemur mai-gt til greina við verzlun- arrekstur, en hitt þarf engan að„undra, þó að kaupmaður, sejn lítið færðist í aukana und ir.,sarnstjórn Ólafs Thors og kommúnista, þurfi nú að drá^ga saman seglin. Hér skal því alveg ósagt látið, að nú- véranði ríkisstjórn, ráðuneyti eðá'’fjárhagsráð, beri nokkra ábyrgð á lokun þessarar búð- ar. Það getur alltaf atvikast svo, að einstakur aðili minnki rekktur sinn, jafnvel á hin- Um' mestu uppgangstímum í gréifíinni. En sleppum því. Þjóðviljinn telur það áhrif núverándi stjórnarstefnu, að þessari vefnaðarvörubúð var lokað. í því tilefni er fyrir- skipuð sorgarathöfn í flokkn- um. Og grátkonur Sameiningar- flokks Alþýðu úthella sorg Efíir ISalldór Krssíjásissoia. hjartna sinna í beiskum tár- um, því að einn af kaup- mönnum bæjarins hefir fært saman kvíarnar. Slík er of- sókn ríkisstjórnarinnar á hendur „alþýðunni“. Hagsmunir þjóðárinnar. | Flestum hugsandi mönnum murt koma saman um það, að vöxtur og útþensla verzlunar- stéttarinnar sé með fullu ó- eðli. Áhrif þess koma fram í fernu, sem vert er að gefa gaum: Of margt fólk fer frá þjóð- > hagslega arðbærum fram- jleiðslustörfum til milliliða- starfa og verzlunar, sem framleiðslan ein ber uppi. Of mikið húsnæði er bundið af verzlunarstarfsemi og því búa fleiri við óviðunandi húsakynni og gróðaskilyrði braskara og okrara vaxa. Verzlunin í heild verður þjóðinni óeðlilega dýr. Of mikið fjármagn er bund- ið í verzluninni. • Þessi fjögur atriði eru svo mikilvæg, að hugsandi menn og góðviljaðir gleðjast yfir því, að verzlunum fækki, og reksturinn í heild losi sig við hús og fólk og fé, sem allt vantar átakanlega til annarra hluta. Þegar jaröir fara í eyði og fiskiskipum er ráðið til hlunns, vekur það ekki neina þjóðarsorg, þó að einni verzl- unarbúð sé lokað. Hitt væri hættulegt, ef kaupmanna- stéttin græddi gegndarlaust, svo að enginn, sem inn gengi í þjónustu hennar, ætti þaðan afturkvæmt, þó að stéttin sé orðin miklu fjölmennari en þjóðin þarf með. Það er því nauðsynlegt fyrir þjóðina að fleiri búðum sé lokað, þó að það kunni að opna tárakirtla kommúnista. Út af hverju ertu að vola? „Mér heyrist gráta harpan þín. Hvað veldur þeirri sorg?“ Svo kynnu margir að spyrja Þjóðviljámenn þessa dagana. Hann hefir lengstum viljað eigna íhaldinu fjölgun og vöxt verzlananna í bænum á tímum samstjórnar þeirra. Ekki mun það rakið til róta hér, en þunnt virðist nú móð- ureyra Þjóðviljans, þegar verzlun Björns Kristjánsson- ar lokar annarri vefnaðar- vörubúð sinni. Þjóðvilja- mönnum virðist þá ekki hafa verið svo leitt, sem þeir létu, hvernig heildsalarnir höfðu það, þegar Áki og Brynjólfur sátu í stjórn. Tvær skýringar kynnu aö vera hugsanlegar á harmatöl- um Þjóðviljans. Önnur er sú, að hér séu á ferðinni taugaveiklaðir vesal- ingar, sem er alls kostar ó- sjálfrátt, eiga sér enga sjálf- stæða skoðun, en nudda og nöldra út.af öllu, sem ríkis- stjórnin gerir, án tillits til þess, hvort það er í samræmi við fyrri kenningar þeirra sjálfra eða ekki. Sj á allir hversu ráðlegt væri að fela slíkum mönnum forsjá sína eða taka á þeim eitthvert mark. Hin skýringin væri sú, að kommúnistar vilji raunveru- lega öngþveiti og vandræði og gleðjist yfir öllu, sem dregur frá framleiðslunni. Þá væri líka eðlilegt, aö þeir beittu sér fyrir verkföllum af þvi, að verkfallið væri þeim í sjálfu sér takmark. Þeim væri það þá aðalatriði, að fólkið kæmi ekki að framleiðslunni, en væri við ófrjóa milliliðastarf- semi eða í verkfalli. Fjár- magn, húsnæði og vinnuaíl vildu þeir hafa bundið um- fram allar þarfir við milliliða- störfin, blátt áfram til þess, að það notaðist ekki annars- staðar. Ekki batnar hagur þeirra við þá skýringu. í þriðja lagi er sú skýringin til, að Þjóðviljamenn trúi því, að það sé raunverulega skaði fyrir þjóðina, ef einhverri búð væri lokað. Þjóðin megi ekki missa neinn af sínum kaup- höndlurum til annars. Trúi blaðið þessu, þrátt fyrir allt, sem það hefir áður sagt, þá er harmur þess eðlilegur og sorg þess virðingarverð. En afstaða þess er í jafn- miklu ósamræmi við hags- muni þjóðarinnar og vilja þjóðarinnar fyrir því. Skyldi annars ástin til kaupmannanna geta leitt Þjóðviljamenn svo langt, að að þeir vildu draga saman starfsemina hjá Kron, svo að „elztu og þekktustu“ kaup- mannaverzlanir bæjarins gætu haldið áfram? Að fylkja rétt. Hér skal ekki um það dæmt hver þessara skýringa. sé rétt- ust, eða hvort hægt kynni að vera að finna fjórðu skýr- inguna. Hún er þó ekki kom- in fram ennþá og ólíklegt að Þjóðviljinn vilji ekki leiða menn í allan sannleika um það efni, ef hann getur betur. Það er fjarri lagi, að fjand- skapast við kaupmenn al- mennt. Þeir geta verið mjög góðir og gagnlegir starfs- menn og hafa ýmsir reynzt nýtir menn. En þjóðfélagiö hefir ekki ráð á að hafa verzl- unarstéttina alltof fjölmenna. Auk þess er það algild regla, að búi einhverjar stéttir við forréttindi og ó- eðlilega gróðaaðstöðu um- fram aðra menn, fylgir því jafnan spilling, því að ævin- týramenn og braskarar leita þar að, sem þeir sjá sér leik á borði, og sjást þá lítt fyrir um frekju og óíyrirleitni. Slíkum mönnum þótti fýsilegt að stunda verzlunarrekstur meðan kommúnistar voru hér í ríkisstjórn. Og með þeim hefir auðvitað borizt spilling inn í stéttina. Ekki væri kaupmönnum gert rangt til persónulega, þó að sumir þeirra sæu sér hag í því að söðla um og leggja fé sitt í útveg, landbúnað eöa iðnað. En þjóðfélagið þarf þess með, að slík þróun verði knúin fram. Skipulagsgáfa, hagsýni og dugnaður myndi áreiðanlega notast jafnvel við hin nýju viðfangsefni. Þeir, sem stjórna þjóð til framsóknar og sigurs, verða að fylkja rétt. Til að ná bezta árangri, þarf hver maður að hafa fullt verk að vinna, svo að liðsaflinn notist til fulls. Því gleðst þjóðin, þegar Þjóðviljinn hnípir í sorgum yfir því, að ofþenslan í milli- liðastarfseminni byrjar að hj aðna. Mér er sagt í tilefni af bréfi hlaupara um daginn, að þegar upp- kastiö fræga var á ferðinni áriö 1908, hafi þetta víáuupphaf komið á loft: Er til. grafar komu kurl kappar landsins átu snarl. Einn af mörgum botnum, sem þá voru kveönir, er þessi: Betra en þetta bölvað nurl er brennivín og skyrhákarl. Nú botna Sósíalistar þetta svo: Stefanía stundar nurl. Stebbi Jóh. er lítill karl. Þaö er nú náttúrlega eins og á þaö er litið, en svo mikið er- víst, að gæfulcgri er ráðherradómur Steíáns en þeirra Bryniólfs og Áka, enda hægt við að jafnast. Hann gæti því svarað eins og strákarnir: „Étt ann sjálfur. Verri varst þú.“ En hvað um það. Þetta var nú botn frá einum forystumanni Sósí- alistaflokksins. | Svo er hér bréf frá Guðmundi Inga: j „Ég þakka þér fyrir það, Pétur minn, að þú tókst svari mínu, þeg- ar Síiða)M(eistari) Þjóöviljaris tók mig til bæna í Bæjarpóstinum sín- um. Þaö tekur okkur útkjálka- mennina langan tíma, þegar við viljum koma svörum á framfæri. Siðameistaranum hefði verið óhætt að nefna mig á Kirkjubóli, en ekki frá Kirkjubóli, því að hér sit ég vestur í Önundarfirði, á Kirkju- bóli í Bjarnardal, og hér les ég Þjóðviljann við eldhúsborðið og á baðstofuloftinu. Sá draumur hefir enn ekki rætzt, að allir flýi úr | dölum Vestfjarða til fteykjavíkur eða annarra kaupstaða. Annars hefði Siðameistarinn átt að hugsa sig betur um áður en I hann kom með harða dóma. Ég , skrifaöi engar fullyrðingar, heldur | hin hógværlegu orð: „Ekki furðar | mig.“ Það var fallega gert af rit- ; stjóra Bæjarpóstsins að feitletra þessi orð í fyrirsögnina. Þegar ég skrifaði bréfið til þín, datt mér í hug að byrja setninguna: „Það ér j engin furða,“ — en ég sá mig I óðara um hönd. Ég vildi ekki fara með neinar órökstuddar fullyrð- ingar, heldur aðeins segja mitt á- lit. Þess vegna vona ég, að allir greindir lesendur hafi fundið, að ég var aðeins að segja mína skoð- un öðrum til umhugsunar, en ekki að staðhæfa og hrópa ósannaöar fullyrðingar. Ég skrifaði líka undir fullu nafni öðrum til fyrirmyndar, því aö mér hefir alltaf fundizt það ; aumingjaskapur og ræfilsháttur að koma með ásakanir og fela sig á bak við dulnefni, eða sundurlausa bókstafi. Sunnudaginn 8. fcbrúar fékk Helga Sigurðardóttir hnútur hjá Þjóðviljanum fyrir að tala um bræðing í útvarpinu. Bæjarpóstur- i inn kveðst hafa fengið bréf frá ! ungri húsmóður, en ég held, að blaðamenn Þjóðviljans hafi samið þetta sjálfir. Þar er bræðingurinn alltaf nefndur „þetta frumstæða viðbit." Hitt skiptir engu máli, hvort hann er hollur eða bragð- góður, hann er bara „þetta frum- stæða viðbit,“ „sem var eitt af hin- um óhjákvæmilegu einkennum daglegs lífs, meðan hér lifði hungrað fólk.“ Mér þykir bræðing- ur góður, og ég veit, að hann er holl ur og þá gæti ég neytt hans, þótt hann hefði verið fæða fólks í hungri og haröindum á aumustu niöurlægingartímum. En mér datt í hug, livort þeir, sem ekki vilja láta borða bræðing, muni fá sig til að lesa Heimskringlu Snorra Sturlusonar. Hún var skrifuð á þeim hryggilegum timum, þegar ís- lendingar glötuðu frelsi sínu og sjálfstæði og skriðu undir kon- 52. blað ungsokið. Eigum við nokkuð að líta á efni hennar eða málfar? Eigurn við ekki að -fordæma hana sem bræðing frá ófremdartímum þjóð- arinnar?" Þingeyingurinn, sem gerði vart við sig. hjá okkur um daginn, er kominn aftur. Hann færir nú rök að því, að' um dali Þingeyjarsýslu varð alls ekki bilfært fyrr en í febrúar, og dráttarvélinni, seiri getið var um, „vár ekið ofan á snjó frá Einarsstöðum til Húsavík- ur“ og ruddi það eðlilega ekki veg- inn. En að þessum áréttingum máls síns loknum snýr hann að oðru og segir: „Til þess aö þú og aðrir fái*ekki þá leiðinlegu hugmynd um mig, að ég geti ekki látið mig uppi með annað en 'skammir og aðfinnslur, vil ég víkja að öðru efni, og er beint tilefni þess.' „óskemmtileg saga,“ sem sögð er í Baðstofu- hjalinu, af skömmtunarbókinni, sem leysa varð út með of fjár. En sá er munurinn, að mín saga er þar til mótvægis, falleg saga, saga af mönnum, sem ekkert girnast, sem náungans er, mönnum, sem ekki telja eftir ómak og fyrirliöfn fyrir náungann og ekki vænta eða þægju laun fyrir ómök sín. Slíkir menn eru, því betur, ,fjölmargir til. Um þáð get ég borið. En sagaií er svona: Þaö var seint í janúar í ár, i þegar enn var ekki bílíært innan , héraðs í Þingeyjarsýslu, að maður var að koma heim úr kaupstað,' með nokkuð af myitvöru á sleða, þar á meðal matbaunir í poka. Svo vildi til, að gat kom á pokann og rann nokkuð úr honurn niður á fönnina áður pn vart varð við. Er gert hafði verað að lekanum var háldið áfram, enda' dimmt af nóttu. Næsta dag á aldrað'ur mað- j ur leið um þessar stöðvar og sér baunaröstina á hjarninu og lízt að auðvelt muni að ná nokkru upp en hafði sjálfur ekkert ílát hand- bært. Per hann þá heim á næsta bæ og lætur vita í síma, þann, er baunirnar haföi misst, en sá taldi lítils virði og ekki sv'ara fyrirhöfn a'ö hiröa. En frá bay.iúm, þar sem gamli maðuririn sagöi frá fundi sínum, fór maður ■ meö ílát og hreinsaði með kostgæfni baunirn- ar af fönninni og færði síðan heim gamla manninum, sem fúndið hafði, þar sem upphaflegur eig- andi taldi þær sér einskisvirði. Gamli maðurinn felldi sig ekki við þá ráöstöfun og færði hinum upp- haflega eiganda baunirnar heim til sín. Ég get búizt við, aö einhver ykk- ar brosi og finnist sagan smá- munaleg. En ég vel hana úr mörg- um hliðstæðum, einungis vegna þess, að hér er um smátt að ræða, og vegna þess,- að þessir menn og þvílíkir, eru þeim mun líklegri til þess að leggja á sig ómök. og erfiði til að varðveita eignir náunga síns, þegar um meira er að ræða og greiðinn stærri.“ Pétur landshornasirkill. Vanskil Þeir kaupendur Tímans, sem verða fyrir vanskilum á blaðinu eru vinsamlega beðn- ir að láta afgreiðsluna strax vita um þau. Endurtákist van skilin, eru menn vinsamlega beðnir að reyna áftur — þangað til að blaðið er farið að koma með skilum. Tíminn kemur venjulega út nokkru eftir hádegið alla virka daga.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.