Tíminn - 05.05.1948, Síða 4

Tíminn - 05.05.1948, Síða 4
4 TÍMINN, miðvikudaginn 5. maí 1948. 99. blað Vettvanéur í erindi mínu um húsmæð- ur nútímans, ræddi ég um ýmsa kosti sveitalífsins og margt það, sem lífið í sveit- inni hefif" sér til ágætis. Þarf ekki að fjölyrða um það, að sveitaheimili með góðri bygg ingu á góðri jörð, með raf- magni, ýmsum tækjum, sem létta vinnuna og er vel í sveit sett, er ágætis heimili fyrir fjölskyldu með börn og hefir .mikla möguleika til að ala þau þannig upp, að þau kom ist til manns, og það er mesta gleði foreldranna að það mégi takast. Sveitaheimili, þar sem allir vinna saman, foreldrar og börn, er skóli, verklegur skóli, sem húsbóndinn og húsmóðir in stjórna. í þeim skóla eiga börnin að geta sýnt eðlis- gáfur sínar og haft margþætt viðfangsefni. Verk foreldr- anna er að leiðbeina þeim og beina hneigðum þeirra og hæfileikum í réttar áttir. Það er með mörg okkar dýr mætustu verðmæti þannig, að við gerum okkur ekki grein fyrir þvi hvers virði þau eru fyrr en við höfum misst þau. Svo er einnig með heim- ilið. Fyrst þegar heimilið hef ir verið uppleyst eða lagt í rústir, kunnum við að meta það. Við heyrum nú hörmunga- sögurnar utan úr stríðslönd- unum, þar sem heimilin hafa verið ejðilögð og fólkið lifir við húsnæðisleysi, kulda, klæðleysi og sult. Heimilin og öll þeirra verðmæti eru eyði- lögð og um Ieið öll vellíðan og öryggi milljónaþjóða. Við hér á íslandi höfum nú sloppið við þessar hörmungar af völdum stríðsins, loftárásir, herskyldu og annað, sem því fylgir. En það er annað, sem ógn- ar okkar íslenzku heimilum, það er flótti ungu stúlknanna frá heimilunum. Fljótlega eft ir ferminguna fara þær í ein_ hver önnur störf en þau, sem til falla á heimilinu, bæði í bæ og byggð, og eftir stendur móðirin, meira og minna þreytt, með yngri börn og annað heimilisfólk. Það er fínna að fara á skóla, helzt þar sem lítið þarf að læra, eða þá í búð eða vinna við einhvern iðnað, ?heldur en að vinna við heim- ilisstörf hjá mæðrum sínum eða öðrum, sem vantar hjálp. Þessi hugsunarháttur er skað legur heimilunum. Með þessu dragast stúlkurnar meir og meir frá heimilunum. Þær læra engin algeng heimilis- störf. Þegar bezt lætur fara þær einhvern tíma á hús- mæðraskóla áður en þær gifta sig, ef það ber þá ekki svo brátt að, að enginn tími vinnist til þess. Þessar konur verða því í vandræðum, þeg- ar þær þurfa að fara að stofna heimili og heimilið verður eftir því, sem efni standa til. Margar duglegar konur sigrast á þessum erfiðleikum, ef maðurinn skilur þær og hjálpar til, en margar gugna því miður og heimili þeirra verður ekkert heimili. Ungu konurnar vantar almennt allan undirbúning til starfs- íns. Þá hefir þjóðfélagið reynt að ráða bót á þessu með Útvarpserineli fru Jéníim Sigasrl^ardóttur fjíndal á liækjarmáti. stofnun húsmæðraskólanna og lögum, sem ekki hafa náð framkvæmdum um aukna verklega kennslu í barna_ og unglingaskólum. Eg held nú, að margar hús- freyjur gætu haft meiri áhrif á dætur sínar í því efni að halda þeim við heimilisstörf- in, en þær gera. Þeim finnst mörgum það ekki vera fínt fyrir þær að vinna heimilis- störf, öll önnur störf utan heimilis séu þeim hentugri. Þetta álít ég mikinn miskiln ing^Ég held, að þeim sé yfir- leitt hollt að fá vinnu á heim ilum sínum, að minnsta kosti til 18 ára aldurs, þó æskilegt væri, að þær, á þeim tíma, gætu fengið einhverja kennslu á unglingaskóla eða námsskeiðum. Ég beini þessu máli mínu einkum til sveitahúsfreyjunnar. 18 ára gamlar eru stúlkur teknar á húsmæðraskóla og eftir það getur þeim frekar verið fært að velja sér eitthvert starf og fara sinna ferða. Auðvitað væru þar vissar undantekn- ingar með stúlkur, sem hafa einhyerjar sérstakar gáfur og stunduðu langskólanám. En að senda ungar' stúlkur, á aldrinum 14—18 ára til Reykjavíkur, til allra ókunn- ugra og jafnvel þó það séu einhverjir vandamenn eða kunningjar, er mjög athuga- Vert og hefir valdið margri ungri stúlku mikilla rauna, sem hafa varanleg áhrif allfc lífið. Ég veit, að margri húsfreyj unni finnst ekki staða sín svo góð eða glæsileg, að hún óski dætrum sínum þess að lenda í hinu sama. Ég hefi heyrt konur segja: „Það er ekki von að dætur mínar vilji vera hjá mér,þeim líður ekki svo vel“. En vita þessar konur nokkuð hvað ungu stúlkunum líður, þegar þær eru komnar af æskustöðvum sínum og börn- um að aldri ætlað að sjá um sig sjálfar. Flestar konur lenda í nús- móðurstöðu seint eða snemma á ævinni, og fái þær ekki undirbúning undir hana á unglingsárunum, er hætt við að það verði aldrei. ÞajJS- þarf að gera meira fyr ir unga fólkið í sveitunum en nú er gert. Það er ekkert gert fyrir það, þar sem ég þekki bezt til. Ungmennafélagsskap urinn er í kalda koli vegna fólksfæðar og unglingarnir, sem vaxa upp, hafa ekkert sér til skemmtunar og enga hjálp við lærdóm í grennd- inni, ekkert nema það, sem ( heimilin geta veitt. | Sveitabörnunum þykir yf- . irleitt gaman að vera í barna 1 skóla, ef kennarinn er góð- ur og aöbúð þeirra sæmileg. Þegar skólatíminn er ekki ( nema 2—4 mánuðir er þetta j tilbreyting frá venjulegum störfum og félagsskapurinn ! við jafnaldrana er þeim mik_ ils virði. Þau taka fullnaðar- próf og eru fermd 14 ára. Þá er öll kennsla búin og lítil tækifæri til að hitta skólafé- laga sína. Ég hefi oft fundið jsárt til þess, hve mikil þörf j væri á því að gera meira fyr- , ir þessa unglinga, hafa nám- skeið fyrir þá eða góðan fé- lagsskap tii fróðleiks og skemmtunar. En ég legg á- herzlu á það, aö það sé fé- lagsskapur og fræðsla, sem ekki taki unglingana burt af heimilum, heldur fi’æðsla, sem fari fram í sambandi við heimilin og verði þannig heimilunum til styrktar, en ekki niðurrifs, með því að taka unglingana alveg burtu. Væri hentugra að taka upp það fyrirkomulag, sem fræðslulögin einnig gera ráð fýrir, að hafa sérstaka ungl- ingakennara í hverri sýslu, sem gætu stundað kennslu á ýmsum stöðum, þar sem ungl ingarnir gætu komið saman. Eins og vegir eru nú víða orðnir góðir, gætu kennararn ir átt sín heimili og jeppa til að fara á milli þeirra heimila og staða, þar sem unglingarn ir kærnu saman. Væri þeim vissulega ekki síður þörf þess ara farartækja en starfs- mönnum ríkisstofnana hér í borginni, sem hafa jeppa og lúxusbíla til að fara í milli húsanna, þrátt fyrir það, að strætisvagnar gangi um göt- urnar allan daginn. En í þessar kennarastöður er ekki til neins að hafa nema duglega, áhugasama kennara, sem vita hvað þeir eru að gera og gera sér ljósa grein fyrir því, sem þarf að gera. Skólabila fyrir skólabörn og unglinga er líka víða farið að nota. Tel ég það mikið betra fyrirkomulag en setja ! öll börn og unglinga á heima j vistarskóla, sem áreiðanlega ! tekur börnin meira burt af | heimilum og dregur hu^ann j burt frá þeim. Þar næst er iðnaðurinn. Hann hefir ekk'i mátt hverfa úr sveitunum og kauptúnum eins og nú hefir orðið raunin á. Áhrifamáttur heimilanna hverfur með honum. Börn og unglingar hafa færri við- fangsefni, færri áhugamál. Það' þarf að dreifa honum aftur út um landið ,í ein- J hverri mynd. Utan um iðnað- ! inn skapast atvinna, þar þarf fólk og þar er líf. Vélar eru ómissandi við búskap og ann að, en þær eru dauðir hlut- ir, sem gera fólkið óþarft að miklu leyti. Vélarnar skapa einangrun og leiðindi, ef ekki er bætt við nýjum við- fangsefnum. Vinnan og gleð- in yfir vel unnu starfi verð- ur ávallt þung á metunum, en við þurfum líka að hafa félagsskap og sambúð við gott fólk. í bók, sem liggur á borðinu hjá mér, er mynd af her- bergi, sem heimasætunni er ætlað. Það væri ánægjulegt, að sem flestar ungar stúlkur gætu átt hlýtt og vinalegt herbergi heima hjá sér og sinnfc þar áhugamálum sín- um og viðfangsefnum. Síðastliðið sumar kom hér til landsins finnsk kona, sem hafðj sett sér það mark að koma iðnaði affcur inn á heim ilin. Einu kynni, sem ég hafði af henni,var erindi, sem hún lét þýða og flytja í útvarpið. Hún átaldi mjög þá stefnu, að stóriðnaður ætti að taka Fengið hef ég bréf frá sveita- manni úti á landi, þar sem tekið er nokkuð í annan streng, en stund um er gert, þegar rætt er um sveita lífið. Þessi hefir séð ljósu hliðarn- ar við sveitalífiö og heldur þeim fram. Og ég sé ekki annað, en hann hafi að mörgu leyti lög að mæla, þrátt fyrir allt, sem rétti- lega er mælt á annan veg. „Ýmsir hafa haft orð á því í bað- stofunni, aö nú væri oröið fámennt í sveitunum, stúlkur sæjust þar varla framar og ekki vildu þær gift ast bændaefnuui og horfði því víða til landauðnar. Á þennan veg er lesturinn rakinn og þetta er svo skýrt með þægindaleysi, strjálbýli, érfiðleikum og skemmtanaleysi. Ég ætla ekki að mótmæla þessu í heild, en ég ætla mér að benda á annað. sem þessu er samfara. Sveitafólkið þolir engan skort. Lífs kjör þess eru að vissu leýti engu verri en annarra, því að það er í rauninni ekki aöalatriðið hváð vinnustundirnar eru margar, — hvort þær eru 6 eða 16 eða eitt- hvað þar á milli. Hvernig líður fólk inu? Hvernig er afkoman, heilsan og endingin? Ég held helzt, að sveitafólkiö þurfi ekki að öfunda almenning í þorpunum, þegar. þessa er gætt. Þaö er misjafnt til hvaða starfa menn hneigjast. Sumir hafa unun af skepnum og ræktun og þeiin hæfir bezt að vinna slíkt. Þeir eru sælastir í sveitinni og eiga því að vera þar. Ég tel það eðlilegt, að mönnum þyki skemmtilegra að að vinna jarðyrkjustörf í sveitinni, brjóta nýtt land og rækta og kyn- bæta búfé sitt og gera sem afuröa- mest með ræktun, fóðrun og hirð- ingu, heldur en að lulla til bókhalds á skrifstofu, gatnasópunar, upp- skipunar, afgreiðslustarfa o. s. frv. Og ég held að menn slitni meira og endist ver við vinnu, sem þeim leiðist, enda þótt vinnutíminn sé styttri og verkin léttari. Því held ég, hvað sem tímareikningi og taxtakaupi líður, að skipti um til hins verra fyrir ýmsa, sem yfirgefa búskapinn. Svo cr það kvenfólkið. Ég mót- mæli því að það sé rétt að konan eigi að velja manni sínum lífstarf. Vel má hafa hana með -í ráðum, en ef hún ætlar fyrst og fremSt að vera húsfreyja innanstokks og móðir barna þeirra og slíkt ber sízt að lasta, þá er það ekki henn- ar að segja fyrir um það, hvort bóndinn stundi landbúnaö, fisk- veiðar eða skrifstofuvinnu. Ég er ekki hér að mæla i móti góðu sam- starfi hjóna, en mér finnst að karl- menn mættu stundum vera á verði um „réttihdi“ sín á þessu sviði. Góð kona er manni sínum holiur ráðu- nautur, en þá hefir hún líka sjón- armið, se.m eru hafin yfir þrengstu eigingirni og sérgæði. Annars verð- ur hún hvorki góð kona né holl- ráð. Um skemmtanir og þægindi má margt ræða. Ég veit að við förum ekki á bíó og ball á hverju kvöldi, en sýniö mér í Reykjavik þann hóp, sem á eins vel saman og nýtur jafnvel frjálsrar, saklausrar, gleði og títt er um okkur í sveitinni. Það væri þá helzt innan einhverra fé- lagshópa, en alls ekki á hinum al- mennu skemmtistöðvum. Og þó að við höfum kannske ekki tök á að sækja nema tvær raunverulegar danskemmtanir á vetri og dóms- málaráðherrann skipi okkur heim á slaginu eitt, hverju við erum þó blessunarlega laus við eftirlit með, þá skemmtun við okkur oftar og gerum það vel og hjartanlega. Margir mættu öfunda okkur af skíðabrekkunum og skautasvellun- um, sem við höfum jafnvel innan- túns, hestunum, gróðrinum og hreina loftinu. Og þó að þetta séu ekki beinar tekjulindir, eru bíó- feröir og Borgarsumbl Reykvíkinga það ekki heldur. Mér finnst að foreldrar meti það yfirleitt mest, ef börnin þeirra gætu orðið nýtir menn. Og mér hefir sýnst að börnin úr sveitunum gætu kinnroðalaust tekið sér stöðu á vett vangi heiðarlegra þjóðnytjastarfa við hlið frændsystkina sinna úr bæjunum, svo að þrátt fyrir allt séu uppeldisskilyrði sveitanna að minnsta kosti sambærileg að dómi reynslunnar. Svona er þetta, þrátt fyrir allt, en svo getum við, ef viö bara viljum og vinnum saman gert óendanlega margt til bóta fyrir sveitirnar okkar, ef við metum það meira en að hlaupa frá öllu sam- an.“ Og þá hafið þið þessa hugvekju. I-Ivað segið þiö nú? rétur landshornasirkill. Jarðarför I*órðar Ólafssonar, fyrrum prófasts að Söndurn í Dýrafirði, fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 7. maí og hefst með húskveðju að heimili hans, Framnesvegi 10, kl. 1 e. h. Kirkjuathöfninni verður útvarpað. Börn og tengdabörn. Hjartanlega þakka ég öllum þeim, er komu og færðu mér gjafir, blóm og skeyti á 80 ára afmæli mínu. Þið öll gerðuð mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. Guðrún Ingimundardóttir, Fossatúni, Bæjarsveit, Borgarfjarðarsýslu. allan iðnað og fannst eins og mér, að með því væri mikið veiklaður máttur heimilanna og þau gerð tómlegri að öllu leyti. Iðnaðinn á heimilunum þyrfti að efla og bæta eftir föngum. Forráðamenn landbúnaðar ins hafa í erindum sínum þessa dagana rætt um margs konar framfarir á sviði land_ búnaðarins, hverjar hafa ver ið gerðar og hverjar þarf að framkvæma. Það er nú allt gott og blessað, en ég vil (Framhaltl á 6. síðu) /

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.