Tíminn - 23.06.1948, Side 3
136. blað
TÍMINN, miðvikudaginn 23. júní 1948.
»li:iiiiiii!isiiiiiiiiiiiiiiii>iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii>(iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii|||||||||||||,i||||||||||||||||,|l|,|,,,,l(|,,|,,,|,|,|l,|,,,,,|l,,|,l,|,,|,,,,|||||||nii||||||||t|||)itiiiiiii|iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiihiiiiiiiM
ÆSKUNNA
» MÁIMA.ÍÍN SAMKANÐS UNGSSA ÚRAMSéKNAKMANMA - KITSTJF. JÓA HJAUTASOA —
UlllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllAIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIlllllllllllllllllllllklllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHÍIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIHIlíÍlÍllllLllllCU
■ A'
sjavaru
Landbúnaðarmál
Fjórða þing Sambands ungra Framsóknarmanna telur
lífsnauðsyn vegna öryggis, menningar og sjálfstæðis þjóð-
arinnar að efla íslenzkan landbúnað samhliða öðrum megin-
atvinnuvegum landsmanna. Telur þingið, að þessu verði bezt
náð með því aö vinna að eftirfarandi málum.
Ræktun: Þar sem ræktun landsins er undirstöðuatriði
landbúnaðarins, telur þingið höfuðnauðsyn að efla Rækt-
unarsjóð íslands svo, að fullnægja megi fjárþörf bænda til
ræktunarframkvæmda. — Ennfremur að stórauka framlög
til verkfærakaupasjóðs, svo að hann nái tilgangi sínum. Þá
leggur þingið áherzlu á, að aukinn verði innflutningur jarð-
yrkjutækja og nægra varahluta til þeirra. — Þingið telur
þær 50 milljónir króna, er Nýbyggingarráð ætlaði til inn-
flutnings á landbúnaðarvélum, sízt of háa upphæð og vítir
því harölega þær ráðstafanir fyrrverandi ríkisstjórnar að
skerða hana um 20 milljónir. Telur þingið það vera þeim
mun ámælisverðara, þegar þess er gætt, að í þessari upphæð
er meðtalið andvirði allra þeirra jeppabifreiða, er inn voru
íluttar, þótt landbúnaðurinn nyti þeirra einungis aö nokkr-
um hluta.
Áburðarverksmiðja: Þingið vítir harölega það sleifar-
lag fyrrverandi rikisstjórnar, að verja eigi hluta af gjald-
eyriseign þjóðarinnar til byggingar áburðarverksmiöju.
Um nauðsyn slíkrar verksmiðju nægir að benda á gjald-
éyriserfiðleika þjóðarinnar, svo og á hitt, að eins og sakir
standa, fullnægir heimsframleiðslan hvergi nærri eftir-
spurninni. — Skorar þingið á alþingi og ríkisstjórn að hraða
sem mest framkvæmdum þessa máls.
■Skógrækt: Þingið telur, að efla beri þá vakningu, sem
orðið hefir meðal þjóðarinnar um skógrækt og þá einkum
ræktun nytjaskóga. — í þvi sambandi leggur þingið áherzlu
á, að Landgræðslusjóður verði efldur svo, að hann nái til-
gangi sínum. — Aukin verði fræðsla um skógrækt í skólum
landsins og með því skapaðar sæmandi umgengnisvenjur
varðandi skóglendi, — enda lítur þingið svo á, að skógrækt-
armálið sé eitt af menningar- og sjálfstæðismálum þjóðar-
innar.
Verðlagning landbúnaðarafurða: Þingið leggur á það
ríka áherzlu, að verðlagningu landbúnaðarafurða sé hagað
þannig, að t'ryggt sé, að framleiðendur þeirra beri svipað
úr býtum og aðrar stéttir þjóöfélagsins. Vill þingið í þessu
sambandi sérstaklega benda á það, að fullt tillit sé tekið til
hins mikla stofnkostnaðar við ræktun og byggingar vegna
búrekstursins og vaxta af þeim höfuöstól, sem í búrekstur-
inn þarf að leggja. — Telur þingiö fjarri öllum sanni, að í
þessu efni sé reiknað með svipuðum fjárhæðum og gert er
í núgildandi verðlagsgrundvelli.
Samgöngumál sveitanna: Þingið telur, að hvert það
toýli, sem æskilegt er að haldist í byggð, þurfi að komast i
akvegasamband við samgöngumiðstöð síns héraðs og ak-
vegakerfi landsins, og sé þá frekar tekið tillit til landkosta
hvers býlis og framtiðarmöguleika, en fjarlægða frá aðal-
vegum.
i' í þessu sambandi vítir þingið harðlega þær tillögur, sem
líomið hafa fram um 35% niðurskurð á fjárframlögum rík-
issjóðs til opinberra framkvæmda.
Símamál: Þingið telur að hvert býli þurfi að komast í
.símasamband sem fyrst, þar sem síminn er eitt hið nauðsyn-
legasta tæki til eflingar menningar, félags- og öryggismála
sveitanna. Einnig telur það vegasambandið ekki koma að
fullum notum fyrr en símasamband er einnig fengið.
v Raforkumál: Þingið telur það eitt mesta nauðsynja- og
ftamtíðarmál þjóðarinnar að næg raforka verði framleidd
tíl iðnaðar og heimilisnota. Telur þingið framtíðarstefnu
þessara mála þá, að ríkið eitt reki og eigi yaforkustöðvar
og háspennulínur og selji rafmagn við sama verði um land
allt. Ennfremur leggur þingið áherzlu á, að málum þessum
verði hraðað svo, sem kostur er á.
ByggSahverfi í sveitum: Þingið lítur svo á, að byggða-
hverfi og félagsbúskapur sé eitt af aðal-framtíðarmálum
landbúnaðarins. Vill í því sambandi benda á hversu öll fé-
lags- og menningarsta'rfsemi er auðveldari í þéttbýli, en 1
strjálbýli, en einyrkjabúskapur í strjálbýlum sveitum er
ýmsum armmörkum háður, sem ekki er sjáanlegt aö komist
verði framhjá. Ennfremur hversu miklu aúðveldara er að
skapa tæknilega aðstöðu þar sem þéttbýlið er. Telur þingið
eölilegt aö framleiðslumál landbúnaðarins og skipulag sveit-
anna verði athuguð í heild í því augnamiði að þoka bygg-
ingu andsins í heppilegra horf, fremu'r en að tílviljunin
verði látin ráða í þessu efni jafnmikið og nú er gert. Enn-
fremur vill þingið lýsa stuðningi sínum við lögin um land-
nám og nýbyggðir og harmar að dregið skuli hafa verið úr
þeim fjárframlögum ríkisins, sem þéssi lög gerðu ráð fyrir. i
Bændaskólarnir: Þingið leggur áherzlu á, að betur sé
búið að bændaskólum landsins fjárhagslega en verið hefir,
svo að þeir geti staðizt fyllstu kröfur nútímans hvað kennslu,
húsnæði og vélakost og arða aðstöðu snertir. — Ennfremur
að ötullega sé unnið að byggingu bændaskólans i Skálholti.
— Jafnframt verði veitt meira fé til tilrauna í þágu land-
búnaðarins i sambandi við bændaskólana og á öðr.um vett-
vangi en gert hefir verið til þessa.
Bændasamtökin: Þingið leggur áherzlu á eflingú böéhda
samtakanna og telur, aö þau geti orðið ómetánleg i bar-
áttumálum sveitanna.
Sjávarútvegsmál
1) 4. þing-S. U. F. telur að hefjast beri handa um stofn-
un samvinnu-útgerðarfélaga sjómanna í verstöðvum lands-
ins, á þeim togurum, sem bætt verður við fiski$kip,afl£>tann.
Þingið vekur athygli á hinum fjöimörgi^ ,:verk-
efnum, sem bíða samvinnumanna í verstöövunum, - • bæöi
varðandi fiskveiðarnar og nýtingu aflans, og telur sjálfsagt,
að samvinnufélög sjómanna, sem sækja fiskinn á miðin,
fullvinni framleiðsluvöru sína í landi, þannig að hún verði
þeim sem verðmætust.
2) 4. þing S. U. F. telur starfstíma isíenzkra togárasjó-
manna óhæfilega langan, — þar sem þeim, samkvæmt nú-
gildandi „vökulögum“ eru ætlaðar einar átta stundir til
hvíldar á sólarhring, og verulegur hluti þess tíma verður
ekki nýttur til svefns. — Þingið telur því tímabært að taka
vökulögin til alvarlegrar endurskoðunar.
3) 4. þing S. U. F. vekur athygli á hættunni, sem í því
llggur, ef hlutföllin í kaupgjaldsmálunum raskast nokkuð
verulega frá því, sem nú er, þannig að sjómenn sjái sér hag
í því, að yfirgefa hin erfiðu störf á sjónum vegna betur
borgaðrar og hægari vinnu í landi. — Leggur þingið til að
rannsókn verði hafin á því, á hvern veg sé unnt að tryggja
sem bezt afkomu hlutarsjómanna með eflingu tryggingar-
sjóða og öðrum ráðstöfunum.
4) Þingið lýsir ánægju sinni yfir ráðstöfunum núver-
andi ríkisstjórnar til eflingar landhelgisgæzlu, en vekur jafn
framt athygli á því, að ekki verður viðunandi ástand í þeim
málum fyrr en landhelgisgæzlan er orðin slík, að landhelgis-
brot verði ekki talin eins gróðavænleg og togbáta- og togara-
skipstjórar virðast telja þau.
Þingið skorar á ríkisstjórnina að vaka yfir því nauð-
synjamáli að landhelgi íslands verði Týmkuð þannig að klak-
stöðvar allar og uppeldisstöðvar nytjafiskjar á grunnmiðum
verði vernduð fyrir ágangi togaranna.
5) 4. þing S. U. F. telur brýna nauðsyn, að lögin um
skipaskoðun verði endursköðuð og þaö tryggt, áð'þeim verði
framfylgt til hins ýtrasta.
6) Þingið vekur athygli á nauðsyn þess,_að.Slýsavarna-
félagi íslands verði tryggð öll hin fullkomnustu tíjorgunar-
tæki og hið opinbera sjái svo um að fjárskortur hindri ekki
starfsemi þess.
7) 4. þing S. U. F. lýsir yfir aðdáun sinni á afreki Vest-
firðinganna sem björguöu áhöfninni af brezka tqgu^m
Dhoon á sl. vetri.
Aðalstjórn S.U.F.
í gær voru birt nöfn með-
lima í aðalstjórn S. U. F.;en
var ekki lokið. Hér kem'ur
framhaldið.
Suður-Þingeyjarsýsla:
Böðvar Jónsson, Gautlönd-
um, varam. Baldvin Bald-
ursson, Rangá.
löftV"
Norður-Þingeyjarsýsla.
Jóhann Helgason, Leir-
höfn, varam. Óli Halldórsson
Gunnarsstöðum.
Norður-Múlasýsla.
Örn Ingólfsson, Meíufh,
varam. Ásgrímur Halldárssóri
Vopnafirði.
Seyðisfirði.
Bjarni Magnússon.
Suður-Múlasýsla.
Björn Eysteinsson, Reyðar-.
firði, varam. Guðmundur
Magnússon Hjartarstöðúm.
Austur-Skaftafellsýsla.
Jón Hjaltason, Hólum,
Varam. Aðalsteinn Aöalste.ins
son, Höfn í Hornafirði.
Vestur-Skaptafellssýslu.
Þórarinn Sigurjónssony: Péfc
ursey, varam. Erla Einarsdótt
ir. 'r'U??'
■ r[>Ivsíf
Rangárvallasýsla.
Ólafur Ólafsson, kaupfél.st,
Hallgeirsey varam. GuÖsteinii
Þorsteinsson, Köldukinn.
.t:.ip
Árnessýsla. ...
Þorsteinn Eiriksson, Braut-
arholfi, varam. Gunnar Hall-
dórrson Skeggjastööum.
Vestmannaeyjar.
Páll Helgason.
Hafnarfjörður.
Vilhjálmur Sveinsson, vara,-f
m. Stefán Þorsteiiisson.
Fyrir meinleg mistök stend.
ur innan sviga i 1. lið stjórn-
arskrárályktunar frá 4. þnigi
S. U. F. í Vettvangi Æskuiin-
ar í gær, að þingi'ð teldi bdt á
núverandi kjördæmafyrir-
komulagi, að landinu væri
skipt í nokkur stór kjördæmi.
Þessi málsgrein ályktunar-
innar var felld á þinginu og
skal því það, sem stendur
innan sviga í nefndri ályktur..
falla* niður. Leiðréttist ttér
með.
Leiðrétting
Kaup -- Sala
Ef þér þurfið að kaupa eð%
selja hús, íbúðir, jarðir, skipp
eða bifreiðar, þá talið fyrstT
við okkur. Viðtalstími 9—í£
alla virka daga.
*
Fasteignasölumiðstöðin *
Lækjargötu 10 B. Sími 6530?
Vlniiið ötullcga afí f
lithrciðslu TímasiSo