Tíminn - 23.06.1948, Blaðsíða 6
iSiiiiiiiiiiiniiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiúiiiiiiiiiiiiiihiiiiiiiiiillitiliiiiliiiiiiiiiiliíiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii.
6
TÍMINN, miðvikudaginn 23. júní 1948.
136. blað
TRIPOLI-BÍð
Þrjár sysíur
(Ladies in Retirement)
Mikilfengleg dramatísk stór-
mynd frá Columbia, byggð á
samnefndu leikriti eftir Regin-
ald Denham og Edward Percy.
Aðalhlutverk leika:
Ida Lupino
Evelyn Keyes
Louis Hayward
(lék í myndunum „Maður
inn með járngrímuna og Sonur
greifans af Monte Christo").
Sýnd kl. 5 7 og 9
Bönnuð innan 14 ára.
Sími 1182
Ást og stjórnmál
(Mr. Ace).
Efnismikil amerísk kvikmynd.
Aðalhlutverk:
George Raft
NÝJÁ BIÖ
Seo&laml Yard
skerst í leikiim
Spennandi og vel leikin ensk
leynilögreglumynd
Aðalhlutverk
Eric Portman
Dulcie Gray
Bönnuð börnum yngir en 16 ára
Sýnd kl. 5. 7 og 9
TJARNARBIÖ
Virgiiiia City
Errol Flynn
Miriam Hopkins
Randolph Scott
Humphrey Bogart
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl.9
lngí og íeikur sér
(Our Hearts Were Young and
Gay)
Gail Russell
Diana Lynn
Charles Ruggles
......Sýnd kl. 9
i — ii ■ i —
* i»‘ VF K írt' — ■
Erlent yfirlit
(Framhald af 5. síðu)
ur. Hann er annálaður mælsku-
garpur og ágætlega ritfær. Hins
vegar hefir oft verið deilt um
hann sem samningamann og stjórn
anda, enda vill svo oft verða,
þegar menn hafa jafn örðuga að-
stöðu og Ben-Gurion hefir haft
og þræða þarf torfæra leiö milli
skers og báru. Það er fyrst nú,
sem Ben-Gurion fær verulegt tæki
færi til þess að 'sýna stjórnhæfni
sína. Það þykir sýna, að Gyðingar
bera gott traust til hans, að al-
gert samkomulag var um að fela
honum forsætisráðherrastöðuna og
töldu Gyðingar ekki annan koma
til greina, ef hann fengist til að
gegna henni.
Völd þau, sem hafa fallið Ben-
Gurion i skaut, hafa ekki haft
þau áhrif á hann, að hann hafi
breytt um lifnaðarhætti. Hann býr
enn í litlu húsi í einu af verka-
mannahverfum Tel Aviv og ber
heimili hans ekki af venjulegum
verkarnannaheimilum að öðru en
því, að þar er óvenjulega stórt
bókasafn. Ben-Gurion er hinn
mesti lestrarhestur, enda jafnvígur
á sex tungumál. Einkum hefir hann
lesið bækur um sagnfræði og þjóð-
félagsmál, en í seinni tíð hefir hann
einnig lagt sig eftir bókum um
hernaðarmál og þykir orðið vel
fróður í þeim efnum. Hinar sósial
istísku skoðanir hans eru taldar
hafa gert hann víðsýnni en títt
er um marga þjóðernissinna meðal
Gyðinga, og er það m. a. haft
til marks um þetta, að elsti sonur
hans, sem var liðsforingi i brezka
hernum á stríðsárunum, er giftur
enskri stúlku, sem ekki er af Gyð-
ingaættum. Útlit Ben-Gurions er
þannig lýst, að hann sé lágur
‘vexti og gildvaxinn, hvíthærður,
augun eldsnör, og hreyfingarnar
fjörlegar. Hann getur því verið
hinn aðsópsmesti í sjón, þegar
hann er kominn á ræðupallinn og
talar af krafti, sannfæringu og
eldmóði um hugðarmál sín.
Kaupmenn!
Kaupfélög!
Eftirtaldar vörur útvega ég
frá Hollandi og Tékkóslóvak-
íu gegn innflutnings- og
gj aldeyrisleyf um.
Léreft,
Damask,
Flúnel,
Handklæði,
Sokka,
Nærfatnað,
og hvers konar
aðrar vefnaðar-
vörur.
Ráðstafanir hafa verið gerð-
ar við útflytjendur varanna
um að afskipa þeim jafn-
skjótt og innflutningsleyfi
eru fyrir hendi.
Þess vegna fáið þér hvergi
vörur þessar eins fljótt af-
greiddar og hjá mér.'
Talið við mig áður en þér
ráðstafið leyfum yðar annað.
* *
Asbjörn Olafsson
Heildverzlun,
Reykjavík.
Jóhannes Ellasson
— lögfræðingur —
Skrifstofa Áustutstræti 5, IIÍ. hæð."
(Nýja Búnaðarbankahúsinu)
Viðtalstími 5—7. — Sími 7738.
Sylvia Sidney
Sýnd kl. 5. 7 og 9
Vér viljum vekjá athygli almnenings á því, að vér
höfum tekið við rekstri Flugvallarhótelsins í Reykja-
vík. — Tekið verður á móti ferðamannahópum og öðr-
urn næturgestum. - -
Tveir stórir og vistlegir veitinga- og danssalir
verða leigðir til samkomu- og veizluhalda.
Seldar eru einstakar máltíðir, kaffi, heimabakaðar
kökur, gosdrykkir og aðrar veitingar eftír vild gest-
anna. Ennfremur fast fæði.',rt8SI*’S*->;*llííí
Áherzla lögð á þægilegah'áðttúnáfe'! óg góðar veit-
■■■ingar. . --■■•
Klassisk lög, dægurlög og danslög verða leik-in öðru
hverju. Hótelið er við Nauthólsvíkina, þar sem hinn
vinsæli sjóbaðstaður Reykvíkinga var áður. Borðið og
drekkið við ströndina að loknu dágsverki, sjávarloft-
ið er hressandi.
Aðeins fimm mínútna akstur úr bænum, strætis-
vagnar ganga frá Búnaðarfélagshúsinu á klukkutíma
fresti. —
Símar hótelsins eru 1385, 6433 og 5964.
Ferðaskrifstofa ríkisins.
miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
AUGLÝSING NR. 171948
frá skömmtunarstjóra.
Ákveðið hefir verið, að skömmtunarreitirnir „stofn-
auki nr. 14“ og skammtur 1,“ sem gilda nú, hvor um
sig til kaupa á einu kg. af skömmtuðu smjöri, skuli
ekki vera löglegar innkaupaheimildir lengur en til 1.
júlí næstkomandi.
Allar þær verzlanir, er selt hafa skammtað smjör og
eiga ofaíigreinda skömmtunarreiti 1. júlí skulu þann
dag skila þeim til skömmutnarskrifstofu ríkisins, með
því annað hvort að afhenda/jpa' á skrifstofunni’, eða
póstieggja þá til hennar, í ábýf’gðai-pöst/'
Reykjavík, 2Í1. juní'
Sk&mrntunarstjórL
^nnmmmiiininmmmMmmmHimmmmmii..................................."
UIIIIIIIIIIIUUUIIIIIIIII|IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIilltv«(llllllllimillllllllllllllllllllll|}IIIIIIIIIMIIIIICI
[ GtlNNAR. WIDEGREN: 36. dagur
| U ngf rú Ástrós
— Þú ert ætið sjálfri þér lík, kom í þungum rykkj-
I um út úr minni ástkæru stjúpmóður. Þú ætlar að gera
| mér þetta til skammar. En það skal verða þér dýrt
| spaug.
| — Nú ber ég inn smurða brauðið, og svo skaltu bara
\ hringja, þegar þú'vilt fá áfengið, sagði ég góðlátlega
| og byrjaði að raula lag fyrir munni mér. Með það
1 strunsaði ég út. Ég vissi aldrei, hvað stjúpa mín sagði.
1 En það hljómaði ekki fallega.
Ég kom sigri hrósandi inn með vínið. En ég hefði ekki
1 átt aö vera of sigurviss, þótt mér hefði tekizt að leika
1 á stjúpmóður mína og gera fyrirætlanir hennar að
I engu. Ég sást ekki fyrir. Ég rak fótinn í þröskuldinn og
| hrasaði, svo að allt vínið og glösin þeyttust niður á
Í gljáandi eikargólfið í stofunni. Reiðin sauð niðri í mér,
\ og tár læddust fram í augnakrókana. En það gat samt
Í ekki komið í veg fyrir, að ég héyrði krimtið í gestunum
| og illyrmislegar athugasemdir stjúpmóður minnar.
— Gestirnir verða að afsaka það, sagði hún, að
| Birgittu hefir aldrei skilizt, að fólk verður að læra að
| skríða, áður en það getur gengiö upprétt. Stúlkur á
| greiðasölustöðum ættu að leggja meiri stund á það að
| halda almennilega á bakka en leggjast á grúfu á gólf-
i in fyrir framan gestina.
Ég tíndi glasabrotin í svuntuna mína og hörfaði síð-
| an út. Ég heyrði, að stjúpmóðir mín sagði:
1 — Það er bezt, að Emerentía gangi um beina. Það er
I hyggilegast, að hver vinni þau störf, sem hann kann.
1 Gestina verö ég að biðja að afsaka þennan hræðilega
| klaufaskap. Mig tekur þetta mjög sárt.
Ég gat ekki annað en barizt við grátinn og sogið blóð-
\ uga fingur mína. En ennþá sárar blæddi þó hjarta
I mitt yfir því, að gtjúpmóðir mín, fædd Andersson,
| skyldi geta hrósað sigri á svona svívirðilegan hátt,
| einmitt þegar ég þóttist vera að kveða hana í kútinn.
Ég var í voudu skapi í marga daga og reikaði um
| niðri við ána, eins og flækingur og útlagi á fnihni eigih
| lóð. Þá var það einu sinni, að ég heyröi allt í einu
I skrjáfa í runna. Ég leit við og sá litla telpu, sþrota á
I ættmeiði Emerentíu, smeygja sér gegnum girðinguna,
i sem var á milli garðsins okkar og garðsins, sem heyrði
| til prestsetrinu. Þetta var öótturdóttir bróður hennar.
— Ég þori ekki gegnum hliðið, sagði barnið. Ég held,
[ að konan og hundurinn bíti mig.
— Hundurinn er meinlaus, sagði ég. Hvað vilt þú
1 annars, góða mín?
i — Ég átti að færa Emerentíu frænku þetta. Barnið
| veifaði bréfi, sem það var með í hendinni. Þetta er
1 biðilsbréf, sem við fi^idum í dóti, sem hún gaf okkur,
| en mamma heldur, að það sé vitlaus maður, sem hafi
I skrifað það.
i — Hvað? sagði ég, agndofa yfir óvæntri endurheimt
\ þessa dularfulla bréfs.
— Pabbi sagði þaö líka, hélt barnið áfram. Það myndi
1 enginn heilvita maður láta sér detta í hug að kalla
í gamla kerlingu ungfrú Ástrós, segir hann. Hvað finnst
f þér?
— Emerentía frænka er ekki heima svaraöi ég, þótt
| ég vissi vel, að hún var í eldhúsinu. En ég skal taka
| við bréfinu og koma þvi til skila, svo að þú getir haldið
| áfram að leika þér. Hérna eru tuttugu og fimm aurar
1 fyrir ómakið.
Það var mesta heppni, að ég var nýbúin að selja þrjú
I bundin af hreðkum, svo að ég var með smápeninga á
| mér. Annars hefði-ég orðið að fara með barnið inn í
| eldhús og gefa því sáft, en þar var Emerentía einmitt.
| Nú læddist ég bak við runna, sem voru niðri á árbakk-
1 anum. Þar var gott afdrep, enda þótt Emerentía kynni
| að koma út. Ég hagræddi mér sem bezt og hugsaöi mér
§ að lesa bréfið í ró og næöi. -
„Emerentía hjartans elsku ungfrú Ástrós!“ byrjaði
| það, og ég kvittaði fyrir ávarpsorðin með ægilegri
1 grettu, sem þó máðist fljótlega út. Fyrst fór ég hálf-
= vegis hjá mér, svo hitnaöi mér um hjartaræturnar, og
| þegar ég hafði lesið fyrstu síðuna, var ég orðin ást-
| fangin. Ég var orðin eins ástfanginn og blóðheit stúlka
| af Hamarsættinni getur orðið — þegar aðeins er um
I bréf að ræða. Ég sá stráx, að bréfið var frá piltinum
i'iiimiiiimiiiuiiiimiiiiiniiiiiiiuiiimimiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiMiiiHHiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiii iiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiii iniiiiiiiiiiiiiiiniiHHiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuHiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiliiiiniiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiHiHiiiiiHiiiimiu