Tíminn - 05.09.1948, Síða 7
195. blað
TÍMINN, sunnudaginn 5. sept. 1948.
7
o x r
ð Jaðri í dag
skemmtLskrá.
st ki 2 e.h.
Ferðir frá Ferðaskrifstofunni.
AHalfcmsÍHi*
Stét4as*samlsaHílsms
(Framhald c/ 1. siðu)
tímabilið 1. sept. 1948 tii
31. ágúst 1549. Um þær til-
lögur náðist ekki samksmu
lag við fúlltrúa neytenda.
Málið fór því til yfirdóms
og felur sá dómsúrskurður
í sér 5% hsekkun á verði
landbúnaðarvara til
bænda.
Þessa málsmeðferð telur
fundurinn óviðunandi, þar
sem bændur fá of Iágt verð
fyrir afurðir sínar eftir
þeim upplýsingum sem fyr
ir liggja og Iægra verð en
felst í grundvellinum frá
fyrra ári ef hann hefði
gilt áfram. Fundurinn skor
ar því á fulitrúa framleið-
enda í verðlagsnefndinni
og stjórn Stéttarsambands
ins að safna sem allra bezt
um gögnum um reksturs-
kosínað og afurðamagn
meðalbúsins, þar á meðal
um vanhöld, áhættu- og
atvinnurekendagjöld svo
og vaxtabyrðar, viðhald
fasteigna o. fl. og krefst-
þess, að sfðan sé verðá-
kvörðun . landbúnaðarvar-
anna við betta miðuð.
Ti’iKÍn e&? sf jé?’=amálin
(Framliald á 7. síOu)
að siðbæta og göfga bæði ein
staklingana og þjóðlífið. -—
Kristur hefir að bjóða hina
æðstu lífshugsjón, heilbrigð-
ara og hollara mat lífsverö-
mætanna, siðferðilega festu
og bjarta trú á lífið og höf-
und þess, Guð máttarins og
kærleikans. Og þar er einnig
að finna elöinn eilífa, kraft-
inn til þess að sigrast á erfið-
laikum og andstreymi —
kraftinn til aö lifa þrótt-
miklu og lieilbrigðu lífi. Bern
hard Shaw sagði það áreiðan
lega ekki út í bláinn eða ó-
hugsaö, að eina leiðin út úr
öngþveiti yfir.standandi tíma
væri Kristur.
Þess vegna er það engan-
veginn ótímabært nú að
ræða um samband trúar og
stjórnmála, einnig hér á
landi.
Ráðamenn þjóðarinnar
verða að minnsta kosti með
sjálfum sér, að þeir hafa ekki
verið færir um að leysa vanda
mál þjóoarinnar.
Ástandið er ískyggilegt.
Það eru ekki fjármálin ein,
sem eru í ólestri. Þjóðin sjálf
er á villigötúm. Þjóðlífið er
sjúkt niður í rót. Þetta verð-
ur ekki lagað til fulls með
neinni löggjöf eða nýjum
kosningum. Þetta verður ekki
lagað nema þjóðin sjálf taki
sinnaskiptum, eignist æðr lífs
hugsjón en einstaklingshyggj
una, nautnaáfergjuna og
gróðabrallið, lífshugsjón, sem
kennir hennj að horfa hátt
og tendrar henni eld í æð.
Kristindómurinn er slik lífs
hugsjón. Þess vegna er það
ekkí aðeins skylda, heldur
hin ítrasta nauðsyn að efla
nú og styrkja áhrifavald hans
i íslenzku þjóðlifi. Það þarf
að kynna þjóðinni lífshug-
sjón og lífsskoðun Jesú
Krists. Og það starf þarf að
skipuieggja þannig, að sem
vænlegast verði til árangurs
og nota til þess þá tækni,
sem nútiminn ræöur yfir, út-
varp, biöð, kvikmyndir, fyrir-
lestraferðir o. s. frv. í öllum
skólum æðri og lægri á hin
kristna hugsjón að skipa önd
vegið. Kristilega æskulýðs-
starfsemi á að efla og auka
til stórra muna.
Að þessu geta allir stjórn-
málamenn okkar stutt, ef
þeir vilja. En ef þeir ekki vilja
það, er þá ósanngjarnt, að
þeir sýni það í verki, að þeir
séu gáfaðri en Bernhard
Shaw, og sjái og sým þjóð-
inni aðra heppilegíi og rétt-
ar leið sýktu þjóðfélagi til
bjargar en þá, sem hann bend
ir á eftir sextiu ára íhugun —
veg Jesú Krists.
(Dagskrá).
tr Norðiir-Þingeyj*
sýslsi
(Framhald af 1. síðu)
nema hvað við höfum öðru
hverju haft kandidata, sem
verið hafa að Ijúka tilskilinni
þjónustu sinni. Þetta er ekki
gott ástand, þótt okkur hafi
líkað ágætlega við alia þá
kandidata, sem hjá okkur
hafa verið. En nú eigum við
von á, að úr rætist fyrir okkur
í þessu efni. Innan skamms
eigum við von á Karli Strand
til læknisþjónustu hjá okkur,
og um áramótin mun Erlend-
ur Kc.nráðsson frá Laugum
taka við embættinu og setjast
að í hinurn nýja læknisbústað.
Hyggjum við gott til þess.
Nýtt slátur- og frystihús
í sviíðum.
Það er einnig frásagnarvert,
að í smíöum er nýtt og stórt
slátur- og frystihús á Kópa-
skeri. Það er kaupfélagið, sem
reisir þá byggingu. Búið er að
steypa veggina, en enn vantar
nokkuð af því efni, sem þarf
í þakið. Vonum við þó, að það
fáist, án allt of langrar tafar.
En ekki kemur til greina, að
þessi bygging verði tekin í
notkun, fyrr en næsta ár.
Vélavinna eykst sífellt.
Notkun véla við landbún-
aðarstörf eykst stöðugt hjá
okkur þarna norður frá.
Margir bændur eiga nú orðið
afkastamiklar heyvinnuvélaí’,
svo að viðhorfið til heyöflunar
er að gerbreytast. Sums stað-
ar er einnig í uppsiglingu, að
súgþurrkunartæki verði sett
í hlöður. Að nokkrum árum
liðnum ætti heyskapurinn að
IHÍfr <$>
fyrir 220 og 110 volt útvegum
við með stuttum fyrirvara,
frá Auto Diesel Ltd. Uxbridge
Englandi.
Einnig benzin rafstöðvar
32 volta í ýmsum stærðum.
RAFTÆKJAVERZLUN
ÍSLANDS H. F.
Nýja Bíó — Sími 6439
Reykj avík
-»
|
I
I
!
t
§
♦
0
$
❖
A
Kaup -- Sala
Ef þér þurfið að kaupa eða
selja hús, íbúðir, jarðir, skip
eða bifreiðar, þá talið fyrst
við okkur. Viðtalstími 9—5
alla virka daga
Fasteignasölumiðstöðin
Lækjargötu 10 B. Síml 6530
SLöld harií og
heitur vcizlumatur
sendur út um allan bæ.
SÍLD & FISKUR
vera oröinn leikur einn hjá
því, sem hann hefir verið
hingað til.
Mikil afköst.
Það er til dæmis, hve’miklu
má afkasta á skömmum tíma
með litium mannafla, ef vél-
um er á að skipa, ao síðast-
liöið sumar heyjaði einn mað-
ur, mgö aðstoð eins drengs,
ræktunarland, sem Raufar-
hafnarbúar eiga hjá Leirhöfn,
á þremur vikum. Land þetta
er nálega fimmtíu dagsláttur
að stærð. Þykja þetta mikil
og góð afköst við heyskap og
sýnir, hve miklu má koma í
verk, ef nægur og hentugur
vélakostur er fyrir hendi.
Líffé selt vestur
í Húnavatnssýslu.
Skepnuhöld hafa verið góð í
héraði. Gert er ráð fyrir, að
eitthvað af líffé verði selt vest
ur í Húnavatnssýslur í haust
af svæði því, sem er norðan
Sléttugirðingarinnar.
Garnaveiki hefir magnazt
svo í Vopnafirði, að ekki þykir
annað skynsamlegt en gera
ráð fyrir, að sýking hafigetað
átt sér stað i byggðunum aust
an Jökulsár. Hins vegar er
Melrakkasléttan afgirt, svo að
ekki er nein ástæða til þess
að ætla, að veikin hafi komizt
þangað.
I
DILKAKJÖT, L!FUR,
’ HJÖRTU OG SVIÐ
FRYSTIMSIÐ HERÐURREIÐ i
BIMI 26VB 4
| MyndIistaskóli F.!. F.
í tekur til starfa 1. október í nýju húsnæði Laugaveg 166.
í Kennt verður: Teikning, meðferð lita og höggmynda-
j list. Kennt verður í dag- og kvölddeildum, fólki á öll-
t um aldri. Sérstök deild fyrir börn og unglinga.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í bókabúðunum:
| Eymundsson, ritfangaverzlun ísafoldar og Bækur og
| Ritföng.
j Hafnarfirði: Hjá Valdimar Long.
Umsóknir sendist til Kristjáns Sigurðssonar, Hverfis-
götu 35.
f
Félarg ísl. frístundamáiara
x
! Atvinna
|| Frá 1. nóvember þ. á. vantar fjósamann á tilrauna-
« stöðina á Sámsstöðum í Fljótshlíð. Góð 3ja herbergja
|| íbúð fylgir.
? Allar upplýsingar um kaup og kjör hjá Klemenz
í Kristjánssyni, Sámsstöðum. Simi um Hvolsvöll.
^ÍSíSÍÍSSSÍÍÍÍíœSísSíSÍÍSÍ'SÍÍSSÍSÍÍSSÍÍSSæSSÍSSSÍSÍÍÍÍSíæ^