Tíminn - 21.09.1948, Side 1
Bitstjúri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
J6n Helgason
Útgefandi:
Framsókriarjlokkurinn
i, —*
Skrifstofur l Edduhúsinu
Ritstjórnarsiman
4373 og 2353
Afgreiðslu- og auglýs-
ingasimi 2323
Prentsmiöjan Edda
32. árg.
Reykjavík, þriðjudaginn 21. september 1948.
207. blað
Mynd þessi er frá Mööruvöllum í Hörgárdai. KirkjugarðshHöið, sem þarna sest á mynuinnl er íaliegt
og sérkennilegt og setur talsverðan svip á staöinn. (f.jósm.: Guðni Þórðarson)
amir
en stórir vélbátar
l»aa* <3e*ís fíé ©Mii g'erlSfif út alluiafgii.’ opniiL'
feáíai’, aðalk*ga vor og’ leaust.
Til skamms tíma liefir svo verið, að mikill fjöldi smá-
báta hefir verið gerður út frá Vestfjörðum. Nú er þetta líka
farið að breytast þar, eins og annars staðar á landinu. Smá-
bátarnir eru sem óðast að hverfa, en stærri bátar að koma
i staðinn, þar sem lendingaraðstaða er fyrir þá. í fróðlegri
skýrslu, er Davíð Ólafsson fiskimálastjóri hefir samið um
sjávarútveginn 1947, dregur hann fram ýmsar staðreyndir,
sem marga mun fýsa að kynnast, og fer hér á eftir yfirlit
yfir útgerðina á Vestfjörðum.
Opnu bátarnir hverfa
úr sögunni.
Útgerð opinna vélbáta hef-
jr verið all mikil á Vestfjörð-
um til skamms tíma. En á
undanförnum árum hefir hún
farið minnkandi. Þó er svo,
að tala þeirra báta á síðasta
ái-j var heldur meiri en árið
þar áður. Flestir urðu þeir í
maímánuði 63 að tölu, en voru
á sama tíma í fyrra tveimur
færri. Þátttaka þeirra í haust
vertíðinni var einnig nokkru
meiri en árið þar áður.
Vorið og haustið er aðal-
róðratími opnu bátanna. Ára
bátar eru nú að heita má
horfnir úr sögunni á Vest-
fjörðum sem fiskibátar, sem
og víðast hvar annars staðar
á landinu.
Litlu bátunum fer
fækkandi.
Það er svo á Vestfjörðum,
að litlu vélbátunum fer ört
fækkandi, eins og annars
staðar á landinu. Strax með
komu bættra hafnarskilyrða
stækka bátarnir, og standast
litlu bátarnir ekk samkeppn-
ina við þá stóru, enda vilja
menn heldur stunda sjó á
stærri bátunum, sem vonlegt
er. Eru þeir öruggari sjóskip
og auk þess betri mannaíbúð
ir, sem rauna.r engar eru til á
litlu bátunum.
Á Vestfjörður er þó enn
gerður út nokkur fjöldi lít-
illa vélbáta undir 12 lestum.
Þeir hafa aldrei verið færri
en á síðasta ári, en þá voru
þeir tuttugu að tölu í maí-
mánuði. Hefir aðalútgerð
þessara báta jafnan verið síð
ari hluti vertíðar og vorver-
tíðin, og einnig nokkuð á
haustin.
45 stærri bátar.
Á síðustu vertíð var yfir-
gnæfandi meirihluti þein-a
’oáta, sem geröir voru út frá
Vestfjörðum, orðnir yfir 12
lesta bátar. Flestir þessara
stóru báta voru gerðir út á
vetrarvertíðinni, frá janúar
til apríl. Flestir urðu þeir í
aprílmánuði 45 að tölu.
Á Vestfjörðum hefir jafnan
verið nokkur útgerð línubáta
frá því á haustin og fram að
nýári. Síðustu árin hefir held
ur dregið úr þessari útgerð.
Ýmsir stærri bátanna hafa
þá verið aðgerðarlausir þenn-
an árstíma. Síðasta haust
horfði þetta þó öðruvísi við,
vegna óvenjulegra síldveiða
þá um haustið, bæði á Vest-
fjörðum og einnig í Hval-
firði síðar. Voru þannig i des-
embermánuði síðasta gerðir
út 44 Vestfjarðabátar, sem
margir voru við síldveiðar.
Flestir með lóð og
handfæri.
Flestir Vestfjarðabátanna
stunduðu veiðar með lóð og
handfæri. Voru það þorsk-
veiðar. í maímánuði, þegar
þeir voru flestir, voxu þeir
samtals 116 að tölu. Ber í því
sambandi að athuga það, að
þá eru flestir litlu bátarnir
við veiðar, sem annars stunda
ekki veiðar á öðrum tíma árs
Fjórir togarar.
Ekkert skip frá Vestfjörð-
um stundaðj botnvörpuveið-
ar í salt. Allir togararnir, sem
gerðir eru út úr fjórðungn-
um, en þeir voru fjórir á síð-
asta ári, öfluðu í ís. Ennfrem
ur stunduðu fáir af hinum
stærri báturn botnvörpuveið-
ar, eins og vetið hefir undan
farin ár. Ekkj kvað þó meira
að þessum botnvörpuveiðum
Vestfjarðabátanna en svo, að
flestir urðu þeir þrír í einu,
sem stunduöu þessar veiðar.
En þær voru stundaðar á
vetrar- og vorvertíðinni og
einnig um haustið. Nokkrir
bátar stunduðu dragnótaveið
ar, en sú veiði hefir jafnan
verið stunduð nokkuð af bát-
Frjálslyndi flokkurinn vinnur
injog a i Svipjoo
KofifiasMeiBilsÉas’ tapa især Saelfinlifig’i
t»lifigmanna sisena.
í úrslitum kosninganna í Svíþjóð vekur það mesta at-
hygli, hve Frjálslyndi flokkurinn hefir unnið mikið á og
kommúnistar tapað. Frjálslyndi flokkurinn vann 31 þing-
sæti og hefir nú 57. Kommúnistar töpuðu hins vegar 6 og
hafa nú aðeins 9 þingmenn.
Jafnaðarmenn höfðu áður
115 þingmenn af 230, eða að-
eins helming þingmanna.
Þeir töpuðu 3 þingmönnum
og hafa nú 112. Hægri flokk-
urinn hefir 22 þingmenn og
tavaði 17. BændaTtSkkurinn
hefir nú 30 þingmenn og tap
aði 5.
Eftir kosningarnar eru
styrkleikahlutföll í þinginu
lítið breytt vegna þess, hve
Jafnaðarmenn eru líkir að
styrkleik og áður. Hafa þeir
nú 112 þingmenn, en hinir
lýðræðisflokkarnir 109 til
samans. Mesta athygli vekur
hins vegar, hve Frjálslyndi
flokkurinn hefir unnið mikið
á, og virðist það bera því
vitni, að miðflokksstefnan
eigi nú vaxandi fylgi að
fagna í Svíþjóð.
Kommúnistar hafa hins
vegar goldið mikið afhroð,
þax sem þeir hafa tapað 6
þingsætum af 15, sem þeir
höfðu áður.
Miðstjórn Jafnaðarmanna-
flokksins mun koma saman
til fundar innan skamms til
Fjöldahandtökur í
Jerúsalem vegna
morðs Bernadotte
Stjórn ísraelsrikis heldur
áfram handtökum og rann-
sókn á morði Bernadotte
greifa. Hefir hún skipað svo
fyrir, að allir þeir menn úr
Stern-flokknum, sem á ein-
hvern hátt eru grunaðir um
að hafa verið viðriðnir morð-
ið eða nærstaddir, er það var
framið, skuli handteknir. Er
lögreglan búin að handtaka
rúma 200 menn í Jerúsalem
einni.
um á Vestfjörðum. Flestir
voru við dragnótaveiðar í
júnímánuði, en þá voru það
15 bátar.
Herpinótaveiðar stunduðu
flestir bátar í júlímánuði, þá
alls 36 bátar. Auk þess var
síldveiði með reknetum stund
uð nokkuð af nokkrum bát-
um yfir sumarið.
Talið er, að í fyrra hafi
þorskafli á Vestfjörðum ver-
ið með bezta móti, einkum þó
í janúarmánuði. Vorvertíðar-
aflinn varð hins vegar held-
ur rýr.
þess að ræða stjórnmálavið-
horfði nú eftir kosningarnar.
Talið er líklegt, að einhverj-
ar breytingar geti átt sér stað
á stjórninni, en búizt er þó
við, aö Erlander forsætisráð-
hrera muni ekki segja af sér
fyrst um sinn.
Fulltrúar íslands á
allsherjarþingi
S. Þ.
Forseti íslands hefir skip-
að eftirtalda menn til að
vera í sendinefnd íslands á
3. allsherjarþingi Sameinuðu
þj óðanna, sem hefst í París
hinn 21. þ. m.
Bjarna Benediktsson, utan
ríkisráðherra, sem jafnframt
er íormaður nefndarinnar,
Thors Thors sendiherra, er
verður varaformaður, Ólaf
Thors, fyrrverandi forsætis-
og utanríkisráoherra, Her-
mann Jónasson fyrrverandi
forsætisráðherra, Ásgeir Ás-
I geirsson fyrrverandi forsætis
I ráðherra, og Finn Jónsson,
fyrrverandi dómsmálaráð-
herra, og er hann varamaður
Ásgeirs Ásgeirssonar.
Óvíst er enn hvenær utan-
ríkisráðherra fer til Parísar.
100. flugskýrteinið
afhent í gær
í gær var afhent 100. flug-
mannsskírteinið hér á landi.
Eru þeir, sem skírteinin hafa
fengið, allt íslendingar, nema
þrír. Þrír þeirra manna, sem
hlotið hafa flugréttindi hér
á landi, eru nú látnir. Fyrsta
flugskírteinið var afhent 17.
febr. 1940 og var það Sigurð-
ur Jónsson, flugmaður, sem
hlaut það. Af þeim, sem flug-
skírteini hafa hlotið hér á
landi, eru um 60 atvinnuflug
menn, en 37 einkaflugmenn.
Flestir atvinnuflugmann-
anna hafa lært erlendis, en
nokkrir þó hér heima á
seinni árum. Flestir einkaflug
mennirnir hafa hins vegar
numið hér heima. Eru nú
starfandi hér 3 flugskólar.
Sá, er hlaut 100. skírtein-
ið, er Friðþjófur Ó. Jonsson.