Tíminn - 27.11.1948, Qupperneq 3
264. blað
TÍMINN, iaugardaginn 27. nóv. 1948.
3
Fréttabréf úr Oxarfirði
Tíðarfar.
Sumarið er liðið og vetur- j
inn genginn í garð. Þetta síð j
asta misseri hefir tíðarfarið'
verið næsta mislynt, þótt,
stórillt hafi það ekki mátt
kallast. Vorið var eitt hið
kaldasta og grcðurlausasta,
sem elztu menn muna og
héldust kuldarnir cslitið all-
an júnímánuð. Um það leyti
byrjar sláttur venjulega. En
að þessu sinni var hér þá
hvergi sláandi gras. Með júlí
brá loks til nokkurra hlýinda
og tók þá gras að spretta, svo
að ýmsir gátu farið að slá ný
rækt um miðjan mánuðinn.
En yfirleitt byrjaði sláttur
ekki fyrir alvöru fyrr en dag-
ana 23. og 24. júlí. En ekk-
ert hirtist þó af heyjum í
þeim má-nuði sökum votviðra.
Með ágústbyrjun gekk í
þurrka og héldust þeir allan
mánuðinn. Var þá hin ágæt-
asta heyskapartíð. Luku þá
allir fýrri slætti að fullu og
sumir voru byrjaðir á háar-
heyskap. En þessi góða hey-
skapartíð varð heldur enda-
slepp. Með 1. sept. gekk í hina
verstu ótíít og má segja, að
hún hafi haldist óslitið síð-
an. Síðast í sept. komu þrír
góðviðrisdagar og aðrir þrír
dagar fyrir miðjan okt. Þá
voru menn við fjárrekstra
eða í göngum, svo að þessir
dagar notuðust illa til hey-
þurrkunar, en talsvert var þó
hirt, en óvíða að fullu. Eiga
sumir talsvert af há ennþá
úti, sem kemur þó áð nokkr-
um notum, þar sem heyið er
í sátum. Heyfengur mun yfir
leitt hafa orðið í meöallagi
og sumstaðar betri, þar sem
tún voru að spretta fram und
ir ágústlok, n|á telja víst, að
heyin séu mjög góð, nema
það sem lenti í hausthrakn-
ingi.
Fénaðarhöld.
Skepnuhöld voru með ein-
dæmum góð í vor þrátt fyrir
kuldana. Var það að þakka
góðum og miklum heyjum,
svo og því, að engin áfelli
komu eftir hvítasunnu. Ær
munu hafa verið með meira
móti tvílembdar og lifði vel
undir, nema hvað tófan drap
talsvert eins og venjulega.
Hún gengur nú eins og fén-
aður um allar afréttir og drep
ur hvarvetna, einkum vor-
lömb, og er þetta þungur
skattur á bændum. Að sumu
leyti mun þetta stafa af því,
hversu erfiðlegá gengur að fá
menn til að vinna grenin á
vorin. Helzt eru það miðaldra
menn og eldri, sem fást til
þess að liggja á grenjum.
Yngri mennirnir þykja hvik-
ulli við þa.ð, enda þótt góðar
skyttur séu. Heyrzt hefir og
það fullyrt, að hér í sýslunni
hafi það borið við, að tveir
ungir menn hafi yfirgefið
greni, áður en það vanst, til
þess að geta komist á dans-
leili eða samkomu, en slíkt
mundi aldrei henda ,h.ina
eldri kynslóð.
Vænleiki dilka í haust mun
ekki hafa verið yfir meöallag
hér í sveitinni, enda óvenju
mörgum tvílembingum slátr-
að, þar sem víða var helm-
ingur af ánum með tveimur
lömbum og sumsstaðar tveir
þriðjú.
Frámkvs&rfidm
Byggingaframkvæmdir voru
með langminnsta móti hér í
sveitinni í sumar. Stafaði
það bæði af efnisskorti, svo
og því, að hvergi var hægt að
fá verkamenn, en bændur
flestir einyrkjar með allstór
bú og geta því ekki bætt á
sig aukastörfum að nokkru
ráði. Þeir fáu ungu menn,
sem ennþá telja sér heimili
hér í sveitinni, svo sem skóla
nemendur o. fl„ vilja ekki
vinna hjá bændum að sumr-
inu, heldur seilast þeir eftir
því að komast í vinnuflokk
við brúargerðir, vegavinnu
eða helzt af öllu síldarverk-
smiðju, þótt engin veiðist
síldin. Ekki ber þó að skilja
þetta svo, að rnikið sé unnið
að vegagerð hér í sveitinni,
því það sanna er, að óvíða á
landinu munu vera jafn
bölvaðir vegir og hér, að
mrnnsta kosti ef miðað er við
það, hvað gott er að leggja
hér vegi. T. d. hefir neðri
hluti Hólssandsvegar mátt
kailast því nær ófær í mest
allt sumar.
Póstsamgöngur.
Næst vegunum ber að
minnast á póstsamgöngurn-
ar. Að sumrinu eru hér viku-
legar póstferðir, og skil á
pósti fara alltaf batnandi
með ári hverju. En með vetr-
arpóstferðirnar gengur á
ýmsu. Undanfarna vetur hef-
ir venjulega verið byrjað með
hálfsmánaðar póstferðum á
fhilli Húsavíkur og Þórshafn-
ar, og hefir þetta verið hið
ákjósanlegasta fyrirkomu-
lag, þegar það hefir haldist
allan veturinn. En því miður
hefir sú orjSið raunin, að oft
hefir dottið botninn úr þess-
um ferðum á miðjum vetri,
til stórbaga fyrir þessa sveit.
Einn veturinn vóru engar
fastar póstferðir hér í 74
daga, og var það óþolandi á-
stand. í fyrravetur voru póst
ferðir þessar nokkurn veginn
reglulegar allan veturinn og
væntum við þess, að þessu
yrði framhaldið í vetur, því
fátt er bölvaðra í strjálbyggð
um sveitum en lélegar póst-
samgöngur. Eu viti menn. Nú
í haust vorum við algjörlega
sviptir þessum póstferðum,
svo að segja má, að þó að á-
standið hafi oft verið illt í
þessu efni, þá hefir það
aldrei í fleiri áratugi verið
verra en nú. Við erum nefni-
lega sviptir skyndilega öllum
póstferðum, nema hvað ein-
hverjar póstferðir verða til
Kópaskers öðru hverju, en
þær eru okkur því nær gagns
lausar, þar sem þær standa
ekki í sambandi við sveita-
póstinn og ekki heldur í sam-
bandi viö skipakomur til
Kópaskers og eru á allan
hátt óábyggilegar. Sem dæmi
i má nefna, að bréf, sem send
i eru með sveitapósti, liggja
, fyrst viku á bréfhirðingu hér
I og síðan á Kópaskeri von úr
i viti eða þar til næsta skip
; kemur. Með þessu lagi má bú
| ast við, að bréf héðan verði
' allt að þvi mánuð til Reykj a-
víkur.
Meðal frétta héðan má
I nefna það, að hinn 31. ágúst
; s.l. hélt alþingismaöur okkar
i þingmálafund á þingstað
hreppsins að Lundi. Flutti
hann langa og fróðlega fram
söguræðu. Að henni lokinni
u'rðu fjörugar umræður um
landsmál.
Merkileg málverka-
sýning
Félag íslenzkra myndlist-
armanna hefir sýningu í
listamannaskálanum þessa
dagana og mun hún standa i
vnuiiiimimmiii
iiuiuuiiiiiiiuuiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiimiiiuiiiimiiiuii
til 5. desember og er opin!
daglega klukkan 11—11.
Eins og að líkum lætur er
þetta allmikil sýning. Þar eru
75 verk eftir 30 höfunda. Eru .
mest 5 myndir eftir sama J
mann, nerna Sverrir Haralds
son á 4 málverk og 2 teikn- j
ingar. Sumir higa þarna eitt
verk aðeins. j
Einna fyrirferðarmestir mál
aranna eru Jón Stefánsson,
sem á 5 stór málverk, sem
skipað er í öndvegi inni á
gafli, Ásgrímur Jónsson,:
Gunnlaugur Ó. Scheving og
Jón Þorleifsson.
Þó að þessi sýning sé vitan
lega fróðleg um margt, má
þó enginn teka hana- *sem yf- '
irlitssýningu, sem mark sé
takandi á sem alhliða yfirliti.
Verk sumra, sem þarna koma
fram, segja næsta lítið um
list þeirra í heild. Rakstrar-
konur Sveins Þórarinssonar
eru t. d. engan veginn sam- 1
boðnar því hlutverki að túlka
list hans, þó að gamli bærinn :
bæti þar úr skák. Eins gefur
þessi sýning litla hugmynd
um list Kjarvals, þó að fuglar
hans séu með séreinkennum
höfundar síns. Stóra myndin,
Alvizka einstæðingsskaparins
(eða glíman við engilinn)
lýsir öllu betur skapgerð og
andlegu lífi listamannsins en
beinlínis myndlistinni. Slík
verk verða menn að skilja
eftir því sem þeir geta. Ég
tek þetta málverk sem
snjallt og ófyrirleitið en hár-
beitt og smellið skop um
vissa spámenn í heimi nú-
tímamyndlistar. Aðrir munu
skilja þetta á annah veg. Þeir
um það, en Kjarval hefir kos
ið að sýna þessa hlið listar
sinnar ‘á þessari sýningu.
Þarna koma fram ýmsir ó-
þekktir menn og skal engu
spáð um framtíð þeirra. En
sannarlega kemur mér það á
óvart, ef Gestur Þorgrímsson
á eftir að verða meiri mynd-
höggvari en Ásmundur.Sveins
son eða t. d. Helga Thors
meiri málari en Finnur Jóns
son. Það vantar nefnilega al-
1 veg á þessa yfirlitssýningu
menn eins og Ásmund og
Finn, Gunnlaug Blöndal,
. Eggert Guðmundsson, Jón
Engilberts og Guðmund frá
i Miðdal, svo að gripið sé á fá-
einum nöfnum. Mörgum
' mun finnast, að það sé rangt
! að kalla það yfirlitssýningu
um íslenzka myndlist, sem
! svo stórkostleg sköi’ð eru í.
! Að þessu leyti virðast hafa
' orðið alvarleg mistök þegar
efnt var til sýningarinnar.
! Það er fróðlegt að líta inn
á þessa sýningu. Sá, sem af
alvöru og einlægni skoðar
myndirnar þar, getur eflaust
orðið fróðari um ýmsa þætti
íslenzkrar myndlistarsögu í
samtíð okkar. H. Kr.
Merkisafmæli.
Hinn 23. ágúst s.l. átti
fimmtugsafmæli sr. Páll Þor-
leifsson, prestur að Skinna-
stað. Hann hefir verið sókn-
arprestur hr í 22 ár og áunn-
ið sér miklar vinsældir al-
mennings. Hann er skarpgáf-
aður maður og skemmtinn,
(Framhald á 5. síðuj
Höfum opnað nýja búð 1
|S
á Bræðraborgarstíg 5 |
Sild og Fiskur
MIIIIUIIIIIIIIIIISIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllinilllllMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIlUIIII?
Stúdentaráð Háskóla Islands.
Fullveldisfagnaður
verður að Hótel Borg 1. des. og hefst með borðhaldi
kl. 5.30 e. h. c
Ræffa: Guðni Guðjónsson, náttúrufræðingur
Upplestur: Tómas Guðmundsson, skáld
Glunta-söngur.
Aðgöngumiðar verða seldir í herbergi Stúdentaráðs í
Háskólanum kl’. 4—6 e. h. á mánudag, ef eitthvað verð-
ur óselt.
Samkvæmisklæðnaður.
Dansað til kl. 2.
STÚDENTARÁÐ.
j miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiimitiiiiiiiiiMitfiiM*
a urunfi
Öíl úr, sem koma á vinnustofu mína fyrir 15. nóv. |
eru tilbúin. Eigendur þeirra eru vinsamlega beðnir að |
vitja þeirra sem fyrst. |
^’ranci
L WicLeLn,
ao
úrsmíðameistari,
Laúgaveg 39.
lí.VA' .
iiiimiiiiimiiiiiiiii
iiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiii)
Símanúmer
vort er nú
áttatíu og sex hnndruð
5 límir
Munið síma
8 06 00
Jén ÍQftsson li.f.
Viknrfélagið li.f.
VökisIS h.ff.
íli’ingbraut 121.
Fasteignasöla-
miðsfoðin
Lækjargötu 1,0 B. ^Sími; 6530.
BHÍIÍ7
Annast sölu fasteigna, skipa,
bifreiða o. fl. Ennfremur alls
konar tryggingar, .‘;Jsvo; ’sém
brunatryggmgar, innhúSr, líf
vátryggingarfélag íslahds ff.
trygglngar o. fl. 1 umboði Sjó-
M.s. „Lingestroom
fer frá Reykjavílc til Amster-
dam/Antwerpen mánudaginn
29. þessa mánaðar.
Einarsson, Zoega
& Co. H.f
iDflOCÍ
riasM
f. Viðtalstími alla virka dága
kl. 10—5 aðra tíma eftir sam-
komulagi.