Tíminn - 27.11.1948, Blaðsíða 4
4
TÍMINN, laugardaginn 27. nóv. 1948.
264. bia*
Rektor hins íslenzka há-
skóla hefir nýlega flutt er-
Indi og því veriö útvarpaö
fyrir allan landslyö. Hann
talaði þar um áfengismálin
og sagði ýmislegt um taum-
lausan drykkjuskap þjóðar-
innar og það siðleysi, er
hann taldi honum samfara.
Þessu þyrfti að breyta. Þar
iægi sæmd og velferð þjóð-
arinnar við.
Rektor minntist þess, að
sér væri faiín andleg forsjón
og forusta um uppeldi 500—
600 æskumanna, sem margir
ættu eftir að veröa leiðtog-
ar þjóðarinnar á ýmsum svið
um.
Bjargráðið, sem hann boð-
aði, var svo það, að venja
þjóðina við að hafa áfengi
hófsamlega um hönd. Það
þyrfti að kenna ungum mönn
um að umgangast áfengi.
Giimul saga.
Það er ekkert nýtt við það,
að talað sé um slíka kennslu.
í fornum bókum er varað viö
ofnautn áfengis. Á tímum
Gamla testamentisins þekktu
menn cgæfu þeirra, sem sitja
við drykk um nætur. Þá
vissu menn líka., að þótt vín-
ið glói í skálinni og renni
ijúflega niður, bítur það að
síðustu sem höggormur og
.ípýti" eitri sem naðra.
Það er líka bent á það í
Hávamálum, að ekkert sé
verra veganesti en ofdrykkja
öls. Það er því búið að glíma
við þessa þraut öldum sam-
an. Það er viðfangsefni, sem
barist hefir verið við um ald-
ir og árþúsundir að kenna
mönnum að umgangast
áfengið.
Reynsla háskólans.
jNú mætti ætla, að háskóli
íslands hefði einhverjar
betri aðferðir á valdi sínu til
þessarar kennslu en þær,
sem áður voru þekktar. Það
er því rétt að ræða um árang-
ur síðustu áranna.
Svo mikið er víst, að þegar
háskólinn fagnar nýjum
nemendum og býður þá vel-
komna á vegu sína, er áfengi
haft um hönd. Það mun vera
byrjun á kennslu háskölans íj
þeirri list, að umgangast á- |
fengio og hafa það hófsam- !
'lega um hönd.
Hvernig hefir sú kennsla
gefizt? . I
Hún hefir gefizt illa. Marg
ir þeirra, sem áttu að læra
hófsemina, hafa borizt út í
ógæfu vegna áfengisnautn-
ar. Það þarf enga sérfræð-
inga. í sögu háskólans og há-
skólaborgara til að vita um
raúnasögur drykkjuskapar-
ins á þeirri braut. Menn hafa
glatað trausti samferða-
mannanna og trúnaði þeirra
nær og fjær. Heimili og
heimilislíf hefir snúizt á
verri veg. Menn hafa tapað
embættum og trúnaðarstörf-
um. Slíkt auðnuleysi hefir
jafnvel fylgt þeim, sem
lengst hafa haldið sér við
hina akademisku mennta-
braut. Hver er sá, að hann
viti ekki um dæmi, sem vitn-
að hafa um gj aldþrot þess-
ara uppeldistilrauna?
Dómsorð lífsins.
Það er ekki ætlunin með
þessari grein að ýfa sár
manna að óþörfu. En hér
Eftfr IfalSdór Kmtjánsson
hefir rektor háskólans talað,
og yiö því má ekki þegja, þó
að máiið sé viðkvæmt.
Það væri rangt að þegja
vegna þeirra, sem reynt hef-
ir verið á hinni æðri mennta
braut að kenna að umgang-
ast áféngið, en síðan hafa
orðiö píslarvottar Bakkusar
ogrjLeitt ógæfuna yfir heimili
sitt og fjölskyldu og varpað
skugga hennar á alla, sem
létu sér annt um þá.
Það er skylda að mótmæla
þessari uppeldisstefnu rekt-
orsins.
Reynslan hefir talað gegn
hehni.
Lífið sjálft hefir kveðið
upp dómsorð sitt.
Þeim dómi verður ekki á-
frýjað. f krafti hans er lýst
vantrausti á þeirri uppeldis-
stefnu, sem rektor háskólans
boðar í þessum efnum.
Af hollustu við ólánsmenn-
ina, sem drukku frá sér
heimilislán og tiltrú annarra
er skylt að fylgja því van-
trausti. Vegna allra, sem létu
sér annt um ógæfumennina,
verður sú skylda tvöföld. Og
vegna þjóðarinnar, sem
þurfti að njóta þeirra með
fullu fjöri, viti og starfskröft
um, verður skyldan marg-
föld.
Þessu vantrausti á stefnu
háskólans í áfengismálum er
skírskotað til mannúðarinn-
ar, sem lætur sér annt um
hvert einstakt mannslíf og
hvert einstakt heimili og öll-
um vill v'el.
Því er líka skírskotað til
skynseminnar, sem vill hag-
nýta og fara vel með dýrustu
verðmæti fátækrar þjóðar,
vinnuaflið, manndóminn.
Heilbrigð skynsemi og heil-
brigð mannúð mótmæla upp-
eldisreglu háskólans.
Yfírbreiðslur og
afneitanir.
Vitanlega eru til menn, sem
neyta^ að kannast við stað-
reyndir. Þeir leggja sumir
kapp á að þræta fyrir* og
breiða yfir áfengisnautn há-
skólaborgara. Um það má
finna ótal dæmi.
Það má vel benda á til sýn
is sem ofurkapp í þeirri vörn,
að nýlega lét Agnar Bogason
blað sitt andmæla 10 mán-
aða gömlum blaðaummælum
um áramótadansleik stúd-
enta í fyrra. Þau ummæli birt
ust nafnlaust í Alþýðublað-
inu. Agnar segir:
„Sá dansleikur var bæði
nemendum háskólans og
kennurum til sóma. Menn
voru þar kátir en ekki ofsa-
fengnir, skemmtilegir en
ekki ruddalegir, hýrir en
ekki drukknir. Um þetta geta
allir vitnað“.
Ég ætla ekki að andmæla
þessu. Hitt veit ég, að þegar
samkomugestir voru að ná
yfirhöfnum sínum í lok þessa
ágæta dansleiks á fyrsta
morgni ársins, urðu pústrar
og hrindingar. Agnar Boga-
son má auðvitað telja það
sérstakan „sóma“, „skemmti-
lega kæti“ aðeins, óskylda
ruddaskap og ofsa. Hann um
það. En ég tel rétt að geta
þessara veizluloka vegna full
yrðingar hans, og ég get bætt
því við, að í minni sveit væri
slíkt ekki tálið til sóma.
Það mun heldur ekki vera
takmark hins akademiska
uppeldis í áfengisumgengni,
að „hýrir“ menn „skemmti"
sér við að berjast um þann
„sóma“, að ná fyrstir í hatt
sinn og frakka, þegar heim
sko.l halda.
Þó að þetta komi ekki ræðu
rektors beinlínis við, er það
þó ekki fjarskylt þeim afleið-
ingum og árangri, sem upp-
eldisaðferð Rússagildanna
hefir í raun og veru. Þess
vegna nefni ég hana hér. Er
ekki á^æða til að athuga
málið, þegar það er kallaður
„sómi“ að hinir verðandi
þjóðarleiðtogar og mennta-
menn flj.úgast á í iðandi kös
að veizlulokum? Vill þjóðin
raunverulega mælá með slíku
uppeldi?
Regla, sem gildir.
Það er auðvitað hægt að
nefna marga, sem fara vel
með vín, sem kallað er. og
drekka ekki frá sér vitið og
eru hvorki sér né sínum til
leiðinda. Hitt er jafnvíst, að
þó að 100 manna hópur, sem
byrjar áfengisnautn, ætli sér
þá meðferð, mun þó nokkur
hluti hans drekka sér til
skaða og leiðinda. Þaö er stað
reynd, sem öll fengin reynsla
styður og sannar.
Það er líka víst, að þó að
100 ungir og hraustir menn
væru sprautaðir með tauga-
veikissóttkveikjum, myndu
ýmsir þeirra lifa. Sá, sem
ekki þekkir lögmál veikinn-
ar, kynni að halda, að það
væri bara vesaldómur sumra
að þola hana verr en aðrir og
það yrði að laga með upp-
eldinu.
Hvers vegna ekki
bindindi?
Hvers fara menn svo á mis,
þó að þeir láti áfengið alveg
vera? Á að skilja rektorinn
svo, að þeir, sem umgangast
áfengið-á þann hátt að neyta
þess aldrei, séu ekki samboðn
ir háskólanum? Hvað á þá að
segja um þá háskólakennara,
sem eru bindindismenn og
aldrei hafa tamið sér um-
gengnisvenjur Rússagild-
anna? Með fullri virðingu fyr
ir vísindastörfum núverandi
rektors geri ég þó ráð fyrir,
að margir vilji telja, að Har-
aldur Níelsson hafi verið
hlutgengur maður í þjónustu
við menningu og andlegt líf
þjóðarinnar.
En sé nú samkomulag um
það, að bindindismenn séu
hlutgengir á vegum háskól-
ans, vildi ég spyrja, hvort
það myndu ekki vera beztu
umgengnisvenj urnar, sem
þeir temja sér gagnvart á-
fenginu? Þar er engu að tapa
nema áhættunni.
Réttmæt krafa.
Það munu árlega koma um
100 manns til náms í háskól-
anum. Sökurn mikillar skóla-
veru undanfarið, er lífs-
reynsla þeirra næsta takmörk
uð, enda fólkið ekki af mót-
unaraldri.
Dettur nú nokkrum í hug,
að foreldrar, systkini, frænd-
ur og vinir þessa fólks láti
sig einu gilda, í hvaða mynd
(Framhald á 6. síðu).
Þa3 má heita daglegur viðburður
að í smáletursdálkum hiuna blað-
anna sé heimtaður rýmri kaffi-
skammtur eða helzt afnám kaffi-
skömmtunar. Hér hefir því hins
vegar ailtaf verið haldið fram, að
skömmtunin ætti að vera jöfn og
réttláj;. Því hefir verið mótmælt.
að menn fengju kaffi og sykur og
sætabrauð skömmtunarlaust á veit
ingastöðum og brauðbúðum, þegar
heimilunum er skammtað smátt.
Og alveg sérstaklega er ég á
móti því, að heimilin séu neydd
til að kaupa af öðrum þá vinnu,
sem þau geta og vilja vinna sjálf
við sauma og matreiðslu, og það
allra sízt, ef sú vinna væri seld
uppsprengdu okurverði.
Hitt tel ég persónulega vel for-
svaranlegt að gæta hófs og draga
við sig notkun kaffís og sykurs.
Ef við viljum spara og færa gjald-
eyri okkar frá daglegri neyzlu til
framkvæmdamála, þá verður það
einhversstaðar að koma fram. Ef
við erum „nýsköpunarmenn" meg-
um við ekki éta og drekka út allt.
sem við öflum. Alfcir grannþjóðir
okkar lifa spart og skammta. svo
að fjármagn fáist til viðreisnar-
starfa. Skyldum við þá einir geta
lifað í taumleysi? Hitt er fjarstæöa,
að láta skömmtunina bitna hart
á heimilunum og jafnvel skatt-
leggja þau fyrir gróðamenn. Það
er bæði heimska og siðspilling og
á ég þar við þaö meðal annars,
þegar saumastofur auðmanna fá
30—40 krónur fyrir að sauma held-
ur lélega léreftsskyrtu. Hitt er
svo rétt að votta og viðurkenna,
að kaffiskömmtunin er komin vel
á veg að snúa Víkverja, svo að
hann fylgi áfengisbanni. Minnsta
kosti er hann farinn að mæla
með skömmtun á því.
Kunnur kaupsýslumaður flutti
inn 80 kæliskápa í leyfisleysi og
hefir í undirrétti verið dæmdur
í 25 þúsund króna sekt. Einskis
var um það getið, hvað ætti að
gera við skápana. Þess er ekki að
dyljast, að magnaður orðrómur
hefir gengið um það, að innflytj-
andinn selji þá sjálfur, og er jafn-
vel sag,t, að rnenn kaupi þá því
verði, að kaupmaður muni hagn-
ast um 50 þús. á verzluninni að
fródregnum sektum. — Þetta er
sagt. Hins vegar er haft eftir máls-
metandi ráðamönnum í verðlags-
málum, að kaupmaður fái aldrei
að selja þessa skápa, og er- þess
jafnvel getið til, að þeir vei’ði
endursendir úr landi. — Þess skai
þó enn getið, að aðrir segja, að
innflytjandinn sé nú þegar búinn
að selja eitthvað af skápunum.
Fjarri sé mér að leggja trúna®
á bæjarslúður. Annað mál er hitt,
að í þetta sinn tel ég rétt að við-
komandi valdamenn heyri hvað
sagt er og hverju menn trúa. Ég
tel líka, að þeir ættu að birta
skýrslu um málið, því hér á engin
leynd við. Fólkið á fullan rétt til
að vita hvernig tekið er á svona
málum.
En hvað á að gera við skápana
hans Gísla? Þessu vil ég biðja les
endurna að svara sjálfum sér og
það strax. Verði hann látinn selja
þá, er sagt að sektin sé minni en
gróðinn, og þaö er alls ekki lík-
legt til að skapa löghlýðni, því
að þessir menn miða meðfram við
það, hvað borgi sig. Taki ríkið
skápana og bjóði þá upp, verður
þaö kallaö „svartamarkaösbrask“
hins opinbera, „okurstarfssemi" og
svo framvegis. — margfalt laga-
brot. 'Selji ríkiðþáeinhverjummönn
um á réttu verði, munu þeir verða
kallaðir stjórnargæðingar og skáp-
arnir mútur eða gjafir, en salan
hneyksli.
Og verði, skáparnir sendir úr
landi, er ég hræddur um að ein-
hver tali um þá fásinnu, að borga
flutningskostnað þessara þörfu og
góðu gripa og vilja þá svo ekki.
Ég tel aðalatriði ef hægt væri aS
að kenna innflytjendum manna-
siði, en annars ætla ég ekki að
hafa áhrif á dóma manna í þessu
tilfelli. Hitt er vonandi, að bráð-
lega berist fréttatilkynningar, sem
drepa niður öllu slúðri um málið
og bjarga sæmd okkar ágætu yfir-
valda.
Starkaður gamli
nsmtMiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiimiiiiiiiiiiiimiiHiiiiiiiiiHiumiiiiiiiiiii
Vegna jarðarfarar
Halldórs Eiríkssonar j
verður skrifstofum vorum, mjólkurbúðum og vöruaf- |
greiðslu lokað frá kl. 1 í dag.
i
MjólknrsaMsalau. |
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuimiiiiiumiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiB
AUGLÝSING
Til sölu eru tveir vélbátar, annar 10 lestir með 30
hesta Skandia mótor. Hinn ca. 12 lestir með 50 HKr.
Skandia mótor. Báðum bátunum geta fylgt veiðarfæri.
Upplýsingar gefur:
Einar Sigurðsson
Kaupfélagsstj óri Fáskrúðsfirði.