Tíminn - 31.12.1948, Page 1

Tíminn - 31.12.1948, Page 1
—— Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson Fréttaritstjórl: Jón Helgason Útgefandi: Ffamsóknarflokkurinn Skrifstofur í Eááuhúsinu Ritstjórnarsimar: 4373 og 2353 AfgreiBslu- og auglýs- ingasimi 2323 PrentsmiSjan Edda 32. árg. Reykjavík, föstudaginn 31. desember 1948. 288. bla$ Dr. Ralpli Bunche, sáttasemjari S. Þ. í Palestínu kveður Abdullha konung Transjordans cftir langar við'ræður 58 ísiendingar fórust af slysförum áriö 1948 Minxta af slysffirnm á þessn árl en oft áðnr. Að minnsta kosti 58 íslendingar fórust af slysförum á sjó og landi á árinu, sem nú er að líða. í fyrra var talið, að 82 íslendingar hefðu farizt af slysförum. Hefir verið mun minna um slysfarir að þessu sinni en oft áður. Til dæmis drukknaði nú enginn maður af skipum, sem strönduðu eða Stúdentafél.fundur iim hernaðarbanda- lagsmálið á sunnud. Stúdentafélag Reykjavíkur heldur umræðufund í Lista- mannaskálanum, sunnudag- inn 2. janúar. Umræðuefni er: Hlutleysi og hernaðar- handalag. Málshefjandi er Pálmi Hannesson. Fundurinn hefst klukkan 2 e. h. Engin síld í Hvalfirði Engin síldveiði er nú. Hafa þrír bátar nú leitað að síld í íirðinum í nokkra daga og ekki orðið varir annarrar sildar en smásíldar, kræðu. Síðast 1 fyrrinótt var Akra- nesbátur inn í firði, en var ekki síldar var, nema smá- síldarinnar. Munu nokkrir bátar hinkra við að hætta veiðum fram yfir áramótin, en komi síldin ekki þá, munu þeir hætta. ’ Vildu ekki hvalkjöíið Laugardaginn 11. desem- ber, fóru mörg þúsund Osló- búar í kröfugöngu um borg- ina til að láta yfirvöldin vita, að þeir vildu ekki kaupa hvalkjöt í sunnudagsmatinn, eins og stjórnarvöldin ætluð- ust til. Hafði þá dagana áð- ur komið til.borgarinnar 250 smálestir af frosnu hvalkjöti, sem var frá hvalveiðistöðinni hérna í Hvalfirði. Gekk hersingin, sem taldi mörg þúsund manns, fylktu iiði um götur borgarinnar og voru þeir fremstu með hvgl- kjötsbita á stöng með áletrun, þar sem stóð: „Við kaupum ekki hvalkjöt.“ Auk þess hróp aði skarinn þessar setningar í talkór öðru hverju. Gekk liðið á milli bústaðs forsætis- ráðherra, ráðhúss borgarinn- ar og þinghússins og stað- næmdist fyrir dyrum úti á hverjum stað. En forsætisráð- herrann lét ekki sjá sig, og fóru húsmæðurnar því með hvaíkjötsbitann sinn heim aftur. fórust. Af þessum 58 mönnum, sem fórust, biðu nítján bana á sjó eða í skipum, tíu fórust af völdum umferðarslysa, 23 fór ust á annan hátt á landi og sex fórust við flugslys. Af þeim nítján mönnum, sem drukknuðu í sjó eða fór- ust á skipum, féllu átta út- byrðis, fimm fórust af slys- förum á skipsfjöl, þar af þrír við sprengingu, tveir drukkn uðu í höfnum og fjórir fór- ust við ásiglingu. Af þeim, sem á landi fórust, Mænuveikifaraídur- inn ekki kominn tii Reykjavíkur enn lentu sex i snjóflóði, einn varð úti, tveir drúkknuðu í ám og vötnum, tveir hröpuðu í klettum, þrír biðu bana við byggingavinnu, einn varð undir dráttarvél, einn féll af hsetbaki, einn féll í stiga, einn fórst af eldi í lýsisgeymi, einn fórst í hver, tveir dóu af völdum rafstraums og einn fannst örendur á götu eftir að hafa fengið flog. Tveir þeirra sex, sem fór- ust í flugslysum, biðu bana í svifflugvél, en fjórir í far- þegaflugvél. Einn íslenzkur togari strand aði á árinu, tveir vélbátar strönduðu, en náðust báðir á flot, tveir bátar brunnu á sjó úti, og einn togari skemmdist af eldi. Þrir brezkir togarar strönd uðu hér við land á árinu, og fórust af þeim 25 menn, en 28 var biargað. Það var tekið fram í frá- sögn norskra blaða af þess- um atburði, að þetta væri í sjálfu sér ekki gert til að mótmæla gæðum hins ís- lenzka hvalkjöts, en þetta kjöt mun hafa legið lengi í Englandi í sumar og var ekki útgengilegra fyrir það. Hús- mæðurnar mótmæltu vegna þess að hvalkjöt er hvalkjöt, og þær vildu ekki sætta sig við að láta af hinum nauma kjötskammti sínum fyrir það. Mænuveikisfaraldur sá, sem geysað hefir norðanlands, hef ir ekki enn borizt til Reykja- víkur, að því er héraðslækn- irinn tjáði Tímanum i gær. Að vísu hafa komið hér fram eitt og tvö mænuveikitilfelli á mánuði í haust, eins og oft vill verða á haustin, og mun síðasta tilfellið hafa verið í byrjun þessa mánaðar. En slíkt er af öðrum toga spunn- ið en hin útbreidda farsótt nyrðra. Kvefpest í upp- siglingu í Reykjavík Mögnuð kvefpest virðist vera í uppsiglingu í Reykjavík þessa dagana. Liggja margir rúmfastir af þessum sökum. Hefir kvefpest þessi gripið um sig allra siðustu daga. Norðmenn ráðgera að senda stóran fiskiskipaffota tii Oræniands Er ckki komtiui (inti til. að Mendittgar ípyggi sér aívinnm'éítsndi á Gramlandi. þegar aflatregða er «rðiis keiina íyrir? Norðmenn ætia á næsía suinri að senda stóran báta- flota til fiskveiða við vesturströnd Grænlands. Eru það eink- wm sjómenn frá Norður-Noregi, sem ætla að stunda þessai veiðar, þar sem heimafiskimið þeirra eru orðin þurrausin fiski. Væri ekki athugandi fyrir íslendinga að fara að nokkru að dæmi frænda vorra og reyna svo að tryggja sér þau rétt indi, er þarf til fiskveiða við Grænland? Um þessar mundir eru I uppi í Noregi stórfelldar á- I ætlanir um fiskveiði við Grænlandsstrendur á næsta sumri. Iiafa þegar gefið sig fram um sextíu stórir bátar, sem vilja taka þátt í þessum veiðum og er yfirgnæfandi meiri hluti þeirra frá Norður- Noregi. En fiskveiðarnar þar norður frá hafa ár frá ári farið minnkandi, vegna þess, að fiskigengdin á þessum slóðum virðist beinlínis fara minnkandi. Þar sem áður voru ágæt veiðisvæði og mið og mokafli, er nú orðið næst- um fiskilaust og telja norsku sjómennirnir þetta stafa af því, að kaldi sjórinn hafi hrakið fiskinn burt. Nær landi eyðileggja togarar í stórum stíl veiðarfæri línubát anna og telja fiskimenn á þessum slóðum Grænlands- miðin eina bjargráðið, sem hægt er að treysta á. í sam- bandi við fiskveiðarnar ætla Norðmenn að senda móður- skip til vesturstrandarinnar í Grænlandi með salt, olíu og annan varning handa bátun um, en síðan á móðurskipið að taka saltfiskinn heim til Noregs, það sem bátarnir koma ekki sjálfir með að ver- tíð lokinni. Aflabrögð eru talin örugg og góð við vesturströnd Græn lands og er gert ráð fyrir, að hver bátur geti aflað og geng ið frá í salt 150—200 lestum af saltfiski. Þannig ráðagerðir eru nú uppi í Noregi og er hér raun- ar um ákveönar áætlanir en ekki ráðagerðir að ræða. En hvað hugsa menn hér. Við erum mun nær hinum græn- lenzku fiskimiðum en Norð- menn og eigum á allan hátt auðveldara að sækja þang- að. Væri ekki ráð fyrir okk- ur að senda einhvern-hluta af okkar ágæta bátaflota til Grænlands til fiskveiða næsta sumar, í stað þess að hætta allri afkomunni við það að bíða eftir síld, fyrir Norðurlandi, sem óvíst er hvort lætur sjá sig frekar á komandi sumri, en því síð- | astliðna. Rúgbrauðsverðið lækkar til muna Rúgbrauðsverð í Reykjavík mun lækka um fjörutía aura, úr 2.50 i 2.10, nú um áramót- in. Öll rúgbrauð, sem Reykvík ingar kaupa, verða framvegm bökuð í hinni nýju rúgbrauðs gerð i austurbænum, þar sem notaðar verða fullkomnai vélar. Veldur þetta því, að unnt er að lækka brauðverð- ið. Rúgbrauðsgerðin var stofr.. uð fyrir nokkrum árum ai bakarameisturum í Reykja- vík, og er Karl Kristinssor, ! formaður félagsstjórnarinn- ar. Er brauðgerðin til húsa í stórhýsi miklu. Á efstu hæð hússins er mylla, sem getur malað 800 kílógrömm korns á klukkustund. Þegar mjölið kemur úr myllunni, er það blandað, en síðan fer það i deighrærivélar á neðri hæð- unum. Úr þeim er deiginu steypt í vél, sem mótar brauð in, en frá henni fer það á færiböndum að ofnunum. Stjórnarmyndun í Egiptalandi lokið Ibrahim pasja hefir lokið stjórnarmyndun i Egiptalandi Ráðherrarnir eru úr öllum stjórnmálaflokkum landsins, nema Wafdistaflokknum. ( TKEVIIMN l óskar ©Himi les- | eiirtimi síiiniii «g i viðskiptaviiiiim i gleðilegs árs með i þökk fyrir gamfa árið. •llllllllllllltlllllllttlllllillllllllHIIIIIIDIIIIIIHIIIHIIIIIIIIC lítllllHIIIUllllllllllllllllIIUHIHIHtlHHIIIIIimiinUHIIH

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.