Tíminn - 13.01.1949, Síða 2
2
TÍMINN, fimmtudaginn 13. janúar 1949.
9. blað
WVWWV*!
'Jrá kafi tií heiia
í dag:
1 Sólin kom upp kl. 10.00. Sólarlag
kl. 15.12. Árdegisflóð kl. 4.10. Síð-
degisflóð kl. 16.35.
£
í nótt:
Næturlæknir er í læknavarðstof-
tinni í Austurbæjarskólanum, simi
5030. Næturvörður er í Iðunnar apó
teki. Næturakstur annast Litla bíla
Stöðin, sími 1380.
Útvarpib
í kvöld.
Kl. 18.30 Dönskukennsla. — 19.00
Enskukennsla. 19.25 Tónleikar:
Óperulög (plötur). 19.40 Lesin dag
skrá næstu viku. 19.45 Auglýsingar.
20.00 Fréttir. 20.20 Útvarpshljóm-
sveitin (Þórarinn Guðmundsson
stjórnar). 20.45 Lestur fornrita:
Úr Fornaldarsögum Norðurlanda
(Andrés Björnsson). 21.10 Tónleik
sx (plötur). 21.15 Dajjskrá Kven-
félagasambands íslands. — Erindi:
Heilsuvernd barnshafandi kvenna
(Margrét Jóhannesdóttir hjúkrun
arkona). 21.40 Tónleikar (plötur).
21.45 Spurningar og svör um ís-
lenzkt mál (Bjarni Vilhjálmsson).
22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.05
Symfónískir tónleikar (plötur).
23.00 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Eimskip.
Brúarfoss er í Englandi. Fjall-
foss er í Reykjavík. Goðafoss er í
Reykjavík. Lagarfoss eF í Reykja-
vík. Reykjafoss er í Kaupmanna-
höfn. Selfoss fór frá Siglufirði 7.
jan. til Rotterdam. Tröllafoss er á
leið til New York. Horsa lestar
frosinn fisk við Breiðafjörð. Vatna-
jökull er í Antwerpen. Katla er í
New York.
Ríkisskip.
Esja er á Austfjörðum á norður-
leið. Hekla er á leið frá Reykjavík
til Danmerkur. Herðubreið átti að
fara frá Reykjavík seint í gær-
kvöldi eða í morgun austur um
land til Akureyrar. Skjaldbreiö er
í Reykjavík. Súðin lá á Raufarhöfn
í gærdag. Þyrill er í Reykjavík.
Vitaskipið Hermó'ðúr fer annað
kvöld frá Reykjavík til Stykkis-
hólms og Vestfjarðahafna. Sverrir
átti að fara um hádegi í dag til
Snæfellsness- og Breiðafjarðar-
hafna.
Einarsson & Zoega
Foldin er á Húsavík, lestar fros-
inn fisk. Lingestroom lestar í Hull.
Reykjanes er á Vestfjörðum, lestar
saltfisk til Grikklands.
Flugferðir
Flugfélag íslands.
Gullfaxi er 'væntanlegur í kvöld
til New York sunnan frá Caraeaz.
En hingað er J».ann ekki væntan-
legur fyrr en á mánudag.
j&Ekkert flogið innanlands í gær.
ÍLoftleiðir.
'- Geysir er væntanlegur í dag frá
Prestvík og Kaupmannahöfn milli
kl. 5 og 7. Tafðist vegna óveðurs.
.. Ekkert _ flogj£ innanlands í gær.
fi
Árnað heilla
rúlofanir.
:._Nýlega hafa gert kunnugt hjú-
^kaparheit sitt ungfrú Hilda Han-
sén frá Færeyjum og Sölvi bóndi
ttormsson, Síðu í V.-Húnavatns
;slu.
'••• Einnig hafa kunngert hjúskapar
áieit sitt ungfrú Soffía Georgsdótt-
fr og Sigurður Hannesson múrari
Skureyri.
' ÚEnnfremur ungfrú Þórhalla Jóns
dóttir frá Kaldbak og Reynir
Kjartansson bifreiðastjóri frá Mið-
hfauni.
Úr ýmsum áttum
Vegirnir.
Mokaður var snjór af veginum
til Víkur í Mýrdal, svo að bifreiðar
korpust þangað í fyrrinótt, en þær
sátu svo þar í gær og komust ekki
til baka. Kafald var í gær þar
eystra og hætt við að snjótraðirnar,
sem mokaðar voru á veginum hafi
fyllst af snjó aftur.
Holtavörðuheiði er ófær og all-
mikil snjóhöft á vegunum í Húna
vatnssýslum,, sem vegagerðamenn
hafa þó verið að moka að undan-
förnu, svo að bilfært væri þar í
byggð. Fornihvammur er enn í
sóttkví og kvað Ásgeir frá Fróðá í
viðtali við Tímann í gær mjög
örðugt að fást við snjóýtur vega-
gerðarinnar, m. a. af því hve örð-
ugt væri fyrir vélamennina, sem
við þær vinna að fá nokkurs stað-
ar aðhlynpingu eins og þeir þyrftu.
Áætlunarferðin norður féll niður
s.l. þriðjudag. en ætlunin mun vera
að reyna að fara norður á morgun
með póstbifreiðarnar. í Dali og
vestur í Stykkishólm hefir verið
farið að undanförnu.
V erkalýðsf élög.
Stjórnarkosningar hafa að undan
föfnu farið' fram i stöku verkalýðs-
félögum, m. a. í Húsavík og Borg-
arnesi. Ólafur Friðbjarnarson var
kosinn formáður í vérkamannafé-
laginu á Húsavík og í Borgarnesi
var Jón Guðjónsson kosinn for-
maður verkamannafélagsins þar.
Báðir eru þeir Ólafur og Jón ein-
dregnir Framsóknarmenn.
Til Goðdalsbóndans.
Síðan seinast var kvittað fyrir
gjöfum til Jóhanris Kristmundsson
ar frá Goðdal hefir Tíminn tekið
við þessu til hans:
Kr. 100.00 frá J. S. f. F. kr. 100.00
frá G. T. og kr. 50.00 frá H. H."
Tíminn tekur áfram góðfúslega
á móti gjöfum, ef einhverjir vilja
styrkja Jóhann og börn hans í til-
efni hins hörmUlega slyss í Goðdal.
Útgerðin.
Finnbogi Guðmundsson skrifar
athyglisverða grein í Morgunblaðið
í gær vegna útgerðarinnar. Tekur
hann m. a. dæmi af bát, sem fiskar
fyrir 190 þús. krónur: ,
,,Ef keypt hefði verið efni til
fatageröar fyrir aflann hefði hami
orðið ca. kr. 1.405.134,85, þegar
hann var seldur þjóðinni í klæð-
skerasaumuðum fötum“.
Og enn segir Finnbogi:
„Ef meðaltalið er tekið af öllum
innflutningi mun ríkissjóðurinn fá
1 krónu, verzlunin aðra og iðnað-
urinn 2—4 króinur móti hverri
krónu, sem útvegurinn aflar“.
En um lúxuseyðslu sumra útvegs
manna talar Finnbogi ekkert og
er það vöntun í hans að mörgu
leyti ágætu grein. V.
SHIPAUTGeKÐ
RIKISINS
„Hermóöur"
til Vestfjarða hinn 14. þ. m.
Tekið á móti flutningi til Pat
reksfjarðar, Tálknafjarðar,
Bíldudals, Þingeyrar og Flat-
eyrar í dag.
‘ÚtbreiÍii TiltiaitH
| S.G.T.Skeraratifélag Góðtemplara I
jj Félagsvist og dans að Röðli í kvöld kl. 8i/2 stundvís- I
í lega. Spilakeppni til kl. 10y2- Góð verðlaun. Dansað til I
| kl. 1. — Aðgöngum. frá kl. 8. Húsinu lokað kl. 11. — i
Mætið stundvíslega.
Þar, sem S.G.T. er, þar er gott að skemmta sér.
iUiiimMiiitiiKMiiMiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimmiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitwMMMMuiiMMtr
-miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiimiimiiiiiiiiiiiiimifiiiiiiiiiiiimm
| Samband nautgriparæktar-!
I felaganna í Borgarfirði |
tilkynnir:
Sæöingarstöð sambandsins að Hvanneyri tekur á i
móti pöntunum í síma að Hvanneyri kl. 9—12 og |
16—16.30 alla virka daga.
ImmmmmmmmmmiimimiiiiiimmmmmiiiimmmmmmmmimimimiimmmmmmmmmmmmmiT
..............................mmmmmmmmmmm...........................
I Tveir véibátar til sölu |
Bátarnir eru byggðir 1946 úr eik og eftir hæsta I
i Bureu Veritas flokki og var sérstaklega til þeirra I
I vandað. I
í bátunum eru miðunarstöðvar, dýptarmælar, tog- 1
í spil, dragnótaspil og margskonar annar útbúnaður til |
i þæginda.
Stærð hvers báts eru 70 smálestir. Vélarnar eru =
i sænskar Polar-dieselvélar 215 hestöfl hvor. Verð hvers [
i báts er 338 þús. ísl. kr., sem þarf að greiðast í sterlings- i
I pundum eða dönskum krónum. |
Uppl. gefur Óskar Halldórsson, sími 2298. i
TiiiiiiiiiiiiimiiiimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiimiimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimmiiiT
Oiiyfýringar
Smíðum olíufýringar í allar stærðir og gerðir mið-
stöðvarkatla. Útvegum þeim tank, er þess óska.
ATH. 1. Fýringarnar eru samþykktar af véla- og
verksrniðj ueftirliti ríkisins.
(> 2. Mjög góð reynsla er fyrir þessum fýringum.
o Sendum gegn póstkröfu um allt land.
Viðhorf lögregluþjóns af
flugvellinum
Lögregluþjónn, sem um alllangt
skeið starfaði suður á Keflavíkur-
flugvelli, kom á minn fund í fyrra-
dag. Erindið var að benda mér á
ýmis atriði varðandi löggæzluna
þar syðra. eins og það mál liorfir
við frá sjónarmiði lögregluþjón-
anna.
Hann sagði, að lögregluþjónarnir
hefðu ekki fyrirmæli yfirboðara
sinna um að gera annað en það,
sem þeir gerðu. Völlurinn væri op-
inn og öllum frjáls umferð úm
hann, enda væri það mála sannast,
að meðan allt er eins og nú er í
pottlnn búið, væri það að leika
skopleik, ef- fara ætti að leita að
smygluðum varningi eða öðru í
bílunum, sem út af vellinum fara.
Um völlinn eru að vísu girðingar-
hróf á blettum, en eigi að síður
geta menn komizt út af honum
hvar sem þeir vilja og með hvað
sem þeir vilja. Ef einhverjum dytti
í hug að kasta sökinni á lögreglu-
þjónana þar suður frá, fyrir það
sem aflaga fer, væri það á algerðum
misskilningi byggt — það er engin
aðstaða til þsss að stemma stigu
fyrir smygli né óþörfum og óhæfi-
legum heimsóknum á flugvöllinn.
Sæmilegu eftirliti væri fyrst hægt
að koma við, ef völlurinn yrði
rammlega girtur, traustri og mann
heldri girðingu, og lagt bann við
þarfleysuferðum fólks af vellinum
og á, svo að ekki yrði um meiri
umferð að ræða en svo, að unnt
væri að rannsaka þá bíla og það
fólk, er um vallarhliðið færi.
j Hana minntist einnig á starf-
semi þá, sem kvenfélagið og ung-
I mennafélagið í Njarðvíkunum reka
í samkomuhúsinu við völlinn,
I „Krossinum", sem svo er kallaður.
Hann kvað ekki af lögreglunnar
j hálfu gerðan greinarmun á út-
lendum mönnum og irprlendum, að
jminnsta kosti ekki af ásettu ráði.
Hitt er annaíf mál, að ýmsir
, líta starfsemi þá, sem þarna er
! rekin, fremur óhýru auga, svo að
ekki er laust við, að sumum ís-
lendingum, er þangað koma, hætti
I við aö stofna til hnippinga, en
það er skylda lögreglunnar að
j koma í veg fyrir slíkt, þarna sem
' annars staðar, fyrst þessar sam-
komur eiga sér stað á annað borð.
Þessi viðhorf lögregluþjónsins er
mér ljúft að birta, enda hefir mér
ávallt verið fullljóst, að- lögreglu-
þjónarnir, sem settir eru á vörð
þar suður frá, hafa ekki, eins og
öllu hagar til, neina aðstöðu til
þess að ráða bót á því ástandi,
sem lengi hefir þróazt og dafnað í
sambanái við Keflavíkurflugvöll-
inn.
J. H.
í
. Járnsmíðaverkstæðið
Sigtiin 57 (áður Hrísatcig 5).
^'iiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiimmiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimimmmi
j| Höfum fyrirliggjandi |
| KRAMARHÚS |
I til umbúða. i
HAVSÐ S. JÓNSSON & Co.,
| heildverzlun. — Sími 5932. i
fiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiillllliiiiiliimiiiiiiiiiiiiimiiim.miimmmmmmmmmmm
í Símaniimer okkar eru:
| 81105 (skrifstofan)
I 81106 (verksmiðjan)
1 SJÖFATAVERKSMIÐJAN H.F.
:
Bræðraborgarstíg; 7.
:
UTBREIÐIÐ TIMANN
a v a v *. V %' V v Vv/ t v * v/ »•