Tíminn - 29.01.1949, Síða 2
2
TÍMINN, laugardaginn 29. janúar 1949
20. blað
Jrá kafi til keiía
f dag:
er 9. Þorradagur. Sólaruppkoma
kl. 9.18. Sólarlag kl. 16,11
„Huldar eru lendur allar
þéttu lagi þykkrar mjallar".
I nótt:
Næturlæknir er 1 læknavarðstof-
unni í Austurbæjarskólanum, sími
5030. Næturvörður er í Reykjavíkur
apóteki, sími 1Í60. Næturakstur
annast Hreyfill, sími 6633.
Útvarpib
í kvöld.
Kl. 18.30 Dönskukennsla. — 19.00
.nskukennsla. 19.25 Tónleikar: Sam
söngur (plötur). 19.45 Auglýsingar.
20.00 Préttir. 20.30 Útvarpstríóið:
Einleikur og trió. 20.45 Leikrit:
„Morðið í rannsóknarstofunni" eft
ir Escabeau. Leikstjóri: Haraldur
Björnsson. 22.00 Préttir og veður-
fregnir. 22.05 Danslög (plötur).
24.00 Dagskrárlok.
í
Hvar eru. skipin?
Esja er í Reykjavík og fer héðan
næstkomandi mánudagskvöld aust-
ur um land í hringferð. Hekla er
í Álaborg. Herðubreið var væntan-
leg til Reykjavíkur í morgun að
austan og norðan. Skjaldbreið var
á Akureyri í gær. Súðin er í
Reykjavík. Þyrill er í Reykjavík.
Hermóður var á Skagaströnd í gær
á leið til Hvammstanga og Blöndu
óss. .
Einarsson & Zoega
Poldin er á leið frá Hull til
Reykjavíkur með viðkomu í Pær-
eyjum. Lingestroom fór frá Aber
deen á miðvikudagskvöld til Reykja
víkur með viðkomu í Færeyjum.
Reykjanes er á Húsavík, lestar
saltfisk til Grikklands.
Flugferðir
Geysir er í New York. Gullfaxi
er á Gander. Hekla er í Reykjavik.
Ekkert flogið innanlands í gær
vegna óveðurs og snjós á flug-
völlunum.
Árnað heiila
Trúlofanir.
Nýlega hafa birt hjúskaparheit
sitt ungfrú Helga Leifsdóttir frá
Þingeyri og Hákon Kristófersson
vélvirki frá Hvestu.
Einnig ungfrú Lóa Bergmann
Puglavík og Sigurjón Þorvaldsson
Gamla- Hrauni.
' Ennfremur ungfrú Hulda Sveins
dóttir af Barðaströnd og Kristinn
Jósefsson, Patreksfirði.
Úr ýmsam áttam
Gestir í bænum.
Magnús Ólafsson bóndi Vestur-
botni Patreksfirði. Kristmundur
Björnsson Patreksfirði. Júlíus Þórð
arson Múla Barðarströnd. Frú Guð
rún Guðmundsdóttir Seyðisfirði,
Kristján Þórðarson Múla Barða-
strönd. Steinþór Þórðarson Múla
Barðaströnd. Sæmundur Ólafsson
Bíldudal. Páll Ágústsson Bíldudal.
Barnaskemmtun.
Á morgun kl. 1.15 veröur haldin
skemmtun fyrir börn i Tjarnarbíó,
og verður vel til hennar vandað.
Lárús Pálsson leikari mun lesa upp
og Barnaleikflokkur Melaskólans
leika sjónleik. Að lokum verður
sýnd kvikmynd.
Skjaldarglíma.
Eins og venjulega verður skjaldar
glíma Ármanns háð 1. febr. og
fer hún fram í íþróttahúsinu að
Hálogalandi. Þátttakendur kváðu
verá frá fjóum félögum: Ármanni
■ K. R„ U. M P Vöku og U M P
Reykjavíkur.
Skjaldarglíman fór fyrst fram ár
ið 1908 og hefir oftast farið fram
á hverju ári síðan og jafnan verið
fjölsótt og vakið mikla eftirtekt.
þó að það væri einkum á fyrri
árum glímunnar, þegar þeir voru
upp á sitt bezta. Sigurjón á Ála-
fossi, Magnús Kjaran, Halldór
Hansen. Guðmundur Kristinn o. fl.
Frá Króksfjaröarnesi.
Préttamaður frá Tímanum átti
símtal við Jón Ólafsson í Króks-
fjarðarnesi í gær. Kvað hann mik
inn snjó þar vestra og nærri hag-
laust fyrir fé, dálitlir hagar væru
fyrir hross ennþá.
Deyfð og kyrrð væri yfir fá-
mennurn sveitum þar vestra. Sam-
göngur við fjarlægari byggðir væru
engar, hvorki á landi né sjó. Á
Króksfirði og Gilsfirði væri mikill
ís og væri hann þó meira á reki
um firðina heldur en fastur. En
hann hamlaði algerlega að hægt
væri að komast nokkuð á bátum
sjóleiðina. Og bílfæri á landi væri
ekki að tala um.
Frá Landgræðslusjóði.
A árinu 1948 námu gjafir og á-
heit til sjóðsins kr. 5025 — og eru
þar í fáeinar minningagjafir.
Stjórn sjóðsins hefir gefið út
minningarspjöld. sem fást á skrif-
stofu sjóðsins, Borgartúni 7. en
verða væntanlega til sölu víða um
land. Allar minningargjafir eru
færðar í sérstaka bók, og má þar,
ef þess er óskað, láta bóka helztu
æviatriði hinna látnu. Fyrsta dánar
gjöfin kom frá U. M. P. Kjalarness
til minningar um Bjarna Ólafsson
frá Brautarholti.
Styrktarfélagar sjóðsins hafa
reynst honum góðir.
Landgræðslusjóður á nú um 480
þús. krónur.
Það er ósk og von stjórnar sjóðs-
ins, að menn muni hann og leggi
honum lið. Pé, sem til hans renn-
ur fer beint til uppgræðslu landsins-
« LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR sýnir
GULLNA HLIÐIÐ
á morgun kl. 3. Miðsala í dag frá
kl. 2—4.
|| VOLPOIVE
:: í kvöld kl. 8. Miðasala í dag frá kl. 4—7. Börnum :f
♦♦ ♦♦
:: innan 16 ára bannaður aðgangur. — Sími 3191.
♦♦
itit♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦*♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
■ IIIIIIIIIIlllllllllllllllltlllllllllllllllllllllllllltllllllllllIIIIIIIIIIIlIlllllllIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIllllIIIIIIIIIIIIllllIIIIIIIIIIl*llll
S. G. T. Dansleikur
I áð Röðli í kvöld kl. 9. (Nýju- og gömludansarnir). Sími |
1 5327. |
niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuii|iiimiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii>*»*i>ii»i*>iii
S. K>T.
Eldri dansarnir I G. T.-húslnií
í kvöld kl. 9. — Húsinu lokað kL
10.30.
Aðgöngumiðasala kl. 4—6. — Sími 3355.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<
:: INGÓLFSCAFÉ.
::
♦♦
U
édídri di
cmMinur
í Alþýðuhúsinu í kvöld kl. 9.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 5. Gengið inn frá Hverfis-
götu. — Sími 2826. — ÖLVUN BÖNNUÐ. f|
::::::::::::
>♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
>*♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»»»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦«
u
::
Markarfliótsf lóðið
Ungur maður, Jón Sigurðsson
frá Brúnum í Vestur-Eyjafjalla-
hreppi, hefir sent Timanum bréf
rnn atburðina þar eystra, og fer
það hér á eftir. Eins og margir
munu vita, var fljótið áður búið að
leggja þrjá bæi í þessum hreppi
í eyði, eftir að fyrirhleðslan var
gerð, og var einn þeirra æsku-
heimili Jóns. Hann segir svo:
„Vegna greinarkorns, í heiðruðu
blaði yðar frá 25. þ. m., er nefn-
ist „Hamfarir Markarfljóts,"
langar mig að gefa smáskýringu,
er gæti orðið til þess, að misskiln-
ingur er virðist mjög útbreiddur,
verði leiðréttur og þar með komið
í veg fyrir óþarfar og ómaklegar
getsakir í garð Eyfellinga. (í Tím-
anum var aðeins beint fyrirspurn
til yfirvalda, sm mannvirki
eins og Seljalandsgarðurinn heyra
undir.)
Ég er fæddur og uppalinn á bæ,
sem stendur vestan við Markar-
fljót og því vel kunnugur fljótinu
og háttum þess.
Fréttaflutning þann sem við-
hafður hefir verið um hina svo-
nefndu „stiflu" er mér og fleiri
kunnugum mönnum litt skiljan-
legur, þeir sem ókunnugir eru
hljóta að álita að um klakastíflu
sé að ræða á mjög takmörkuöu
svæði í farvegi fljótsins, vegna
þeirra ætla ég að reyna að lýsa
staðháttum í sem stytztu máli.
Eins og þeim er kunnugt, sem
farið hafa þjóðveginn austur und-
ir Eyjafjöll er Markarfljót i til-
tölulega þröngum farvegi við
brúna, því að frá brúnni liggur
garður norður sandana í Stóru
Dímon og svo í áframhaldi, inn
eftir aurunum, garðspottar, til
þess að veita vatninu austur undir
Markarfljótsbrúna úr farvegum
Þverár, Affalls, Ála og Fauska.
Þegar suður fyrir brúna kemur
rennur fljótið dreift” um aurana í
mörgum kvíslum. Þar er ekki ann-
að aðhald að því en garðstubbar,
sem hlaðnir hafa verið til þess að
kasta þvi vestur á bóginn til þess
að verja þjóðveginn, sem liggur
suður með Eyjaf jöllunum frá
Markarfljótsbrú að Seljalandi, en
þar beygir vegurinn til austurs,
einnig eiga þessir straumbrjótar
að varna landbroti á jörðum þeim
sem þarna eru.
Syðstur og mestur þessara garða
er garðurinn við Seljalandsmúla,
sem nú hefir brostið.
Eins og þeim er kunnugt, sem
landafræði hafa lært, er fljótið
myndað úr alimörgum jökulám,
sem koma saman við svonefndan
Merkurrana, sem er syðst á Þórs-
mörk.
Suðaustan við Þórsmörk koma
árnar: Jökulsá, Steinsholtsá, Kross
á og Hvanná, en norövestan við,
Markarfljót sjálft, þessar ár sam-
einast því og heldur það nafni
sínu til sjávar.
Þar sem fljótið rennur svo langa
leið, er það auðskilið að krap hlýt-
ur að myndast í því í frosthörk-
um og snjóum, enda hefir sú orð-
ið raunin á oft á undanförnum
árum. Vegna þess hve fljótið renn-
ur dreift, þegar framar dregur, eru
víða grynningar og brot í því, þar
stöðvast krapið og botnfrýs með
þeim afleiðingum að vatnið renn-
ur yfir þessar hindranir og út á
eyrarnar í nánd og frýs þar smám
saman, þegar straumurinn stöðv-
ast á brotunum, og myndast þann-
ig smámsaman samfelld íshella,
oít margra kílómetra löng eftir
farvegi fljótsins, sem engri skepnu
er fært út á. •>
Meðan Þverá rann eftir sínum
gamla farvegi kom þetta ekki svo
mjög að sök, en nú þegar allt
vatnsmagnið rennur í farvegi
Markarfljóts þoldi varnargarður-
inn við Seljalandsmúla ekki vatns-
þungann, sem á hann lagðist.
Af framanrituðu má sjá að um
eina stíflu var ekki að ræða, held-
ur samfellda ís og krapahellu, sem
ógjörningur var að ráða við, enda
engum íært út á eða yfir hana,
nema fuglinum fljúgandi, og því
ekki hægt að ásaka Eyfellinga né
aðra fyrir vanrækslu eða slóða-
skap í þessu máli. Ef einhverjum
er um að kenna, hvernig komiö
er, eru það þeir menn, sem réðu
því að Þverá var veitt í Markar-
fljót án þess að styrkja áður garð-
ana við Markarfljót, svo að þeir
þyldu hið geysilega vatnsmagn og
það voru áreiðanlega ekki Eyfell-
1 ingar, sem voru að því ráði.
I Ef einhver efast um að ég fari
1 með rétt mál, vil ég ráðleggja
' honum að taka landabréf og
I grúska í því dálitla stund, eða
| sem betra væri að fara og sjá
' hvernig til hagar við Markarfljót
I ef hann á þess kost, áður en hann
slær fram getsökum í garð þeirra
' mappa. sem eiga þarna við mikla
j og alvarlega erfiðleika að stríða“.
1939-1949
::
::
HALLBJORG BJARNADOTTIR
syngur í Aiisturbæjcirisíó
:: l>riðj)udag'inn 1. febrtiar kl. 11,30 c. h.
::
♦♦ ♦♦
U Hljóinsveit undir stjórn Einurs MarUús H
i H
♦♦ - , ♦♦
U sonar aðstoÓar. Hraðteikuarinn sýnir
♦♦ ít
ft
skop ojí sjónbverfingateikningar.
::
♦♦
a
♦♦
::
U Aðgöngumiðar í Hljóðfærahúsinu Bankastræti. Sími U
:: H*
:: 3656. U
:: H
:: :?
miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii»iu»i»iiiiiiMi>iii»iiii>»m»>»mimiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiuiii»u»»i»»iii>
Atvinna
Duglegur og reglusamur verzlunarmaður, með §
I góða þekkingu á innflutningsverzlun, getur fengið at- f
1 vinnu hjá ríkisstofnun nú þegar. Ennfremur vantar 1
I vana vélritunarstúlku, sem er vel að sér í tungumálum =
i og hraðritun í sama fyrirtæki. |
§ Umsóknir merktar „Atvinna ríkisstofnun" leggist 1
I inn á afgreiðslu blaðsins fyrir mánudagskvöld 31. jan.- i
I»i*»i»imim**limi*>*i***>»imm>>>>»mm>H»m»»*iiM*i>m»m»»iiiiimmmimmmiHm>iM*H»i»»»»*,,*,,»*
Lokaðí
Vinnufatagerð íslands h.f.