Tíminn - 29.01.1949, Síða 4

Tíminn - 29.01.1949, Síða 4
4 TÍMINN, laugardaginn 29. janúar 1949 20. blað Hálfyrði um stjórnarskrármálið i. Stundum fer það svo þegar um vandamál er að ræða, sem krefst bráðrar úrlausnar, að tillögur um það hvernig oeri að leysa þau ákjósanlega yerða svo margar og sundur- leitar, aö úr því skapast ring- olreið, sem einatt reynist erf- itt að ráða fram úr. Ýmislegt bendir til þess, að ívo ætli að fara um endur- skoðun stjórnarskrár vorrar, pann hlutann, sem kveður á .im fyrirkomulag elztu stjórn ar landsins, kosningatillög- jnina, kjördæmaskipan og pingmannatölu.Vegna þess að ýmsir landshlutar hafa und- anfarið verið rændir fjár- ínagni við hina miklu fólks- rlutninga til fjölmennari staða, svo til fullkominnar auðnar horfir í sumum byggð jm, þá hyggja ýmsir menn, að helzt henti, að setja undir penna leka með því að setja a stofn svonefnd fylkisþing, með tilheyrandi stjórn, í því skyni að skapa jafnvægi í pessu efni. Af þessum rótum munu runnar hinar nýstárlegu til- iögur þeirra Norðlendinga og Austfirðinga í stjórnarskrár- málinu, sem birtar voru í olöðunum í haust. — Þar er gert ráð fyrir sérstökum fylkjum og fylkisþingum, er iomi saman árlega, og kosið skuli til á svipaðan hátt og ;il Alþingis. — Hugmynd þeirra er, að iylkisþing þessi hafi ríf fjár- fáð, annist eða leggi fé til samgöngumála, og ýmissa at- /innumála fylkjanna, og svo cil kennslumála þeirra sem ekki eru bundin sérstökum iögum, að sjálfsögðu til hvers ioriar menningamála. Hugsun þessara manna er að efla héraðsvaldið. Því skal líka sízt neitað að slíks sé brýn þörf. — En hér virðist mér skotið yfir markið. — Hér er stofnað til nýrra héraða- skipunar ofan á þær, sem fyr- :ir eru. Helzt er svo að sjá, sem það sé amtafyrirkomulag ið gamla í breyttri mynd og með nokkuð víðtækara valds- sviði, sem fyrir tillögumönn- -im vakir. Svipað fylkjaskipulag er í Noregi, og nokkuð í líkingu við það í Svíþjóð. Hér er ætlast til að bætist við ný stofnun, og hún ekki smávægileg, sem nokkurs kon ar yfirstjórn, sýslunefnda og oæjarstjórna í fylki hverju. Tilganginum með valda- aukningu héraðanna virðist mér' betur náð með því, að efla vald núverandi héraðs- stjórna, og þá einkum sýslu- nefndanna. Yrði þá fyrst að útvega þeim nýja og aukna tekjustofna. Mætti gera það með tvennu: Tillagi úr ríkis- sjóði, og meira eða hærra sýslusjóðsgjaldi, ellegar hlut- deild í skattgjaldi viðkomandi öýslufélags. — Máske öllu þessu. Jafnframt þarf að breyta núverandi sýsluskiptingu ger- samlega. — Það er eitt hið xurðulegasta fyrirbrigði í stjórnmálasögu okkar að sýsluskipting landsins skuli hafa staðið óbreytt öldum saman. — Að vísu hefir sýslu- xélögunum sums staðar verið breytt, og nokkrir verzlunar- /staðir innan sýslunnar feng- jEfiis* Mrisljása Jónsson, Garðsstöðuni ið kaupstaðaréttindi, en lög- sagnarumdæmin, valdssvið sýslumannanna, eru óbreytt. Er óhætt að fullyrða það, að gervöll skipting sýslufélag- anna, og lögsagnarumdæma landsins er gersamlega úrelt og óréttlát um leið. Má það teljast næsta furðu legt, að Alþingi skuli ennþá ekki hafa hugkvæmst að skipa milliþinganefnd til að endurskoða sýsluskiptingu landsins. Það mál þolir varla lengri bið. Með því að efla sýslufélögin á nýjum grundvelli ætti að nást sá hugsanlegi tilgangur Norðlendinganna, að auka vald héraðanna á stórum ein- faldari kostnaðarminni og heppilegri hátt, en með fylkja fyrirkomulaginu. — Það er gersamlega þýð- ingarlaust, að ætla sér að hrófla upp nýjum stofnunum, og það jafn veigamiklum og hér er ráðgert; án þess að ætla þeim rífleg fjárráð. Eft- ir því valdssviði, sem þessum fylkisþingum er ætlað, mundu engar smá-upphæðir nægja þeim til handa. í tillögum Norðlendinga er gert ráð fyrir árlegu fylkis- þinghaldi. Það yrði, ef að lík- um lætur talsvert umfangs- meira en þing aðalatvinnuveg anna. Búnaðarþings og Fiski- þings, ellegar stéttarfélag- anna. Þing þessi eiga að skipa 15 og upp að 30 fulltrúar. Ó- þarft er að gera ráð fyrir að slíkar samkomur stæðu skem ur en mánaðar tíma. — Nú er gert ráð fyrir 6 fylkisþing- um, og getur þá hver sagt sjálfum sér, að þingkostnað- ur þeirra allra yrði ekkert smá.ræði. Ofan á þetta bætist svo fylkisstjóri, starfslið hans og annað skrifstofuhald. — Geti uppástungumennirnir bent á hagkvæm ráð að minnka Alþingiskostnaðinn um tilsvarandi upphæð, eða að draga úr embættiskostn- aði ríkisins, því sem fylkja- kostnaðinum nemur, myndu sennilega renna tvær grímur á ýmsa þá, sem nú munu spyrna fast gegn fylkja upp- ástungu þeirra. — Ég tel kostnaðinn þó ekki aðalatriði málsins, heldur þá margskipt ingu héraðsvaldsins, (hrepps- nefndir, sýslunefndir, bæjar- stjórar og fylkisþing), sem hér á að stofna til — auk upp- ástungunnar um að láta fylk isþingin kjósa efri deild Al- þingis. Ýmsir virðast hallast að þessum fylkjatillögum, sem hinum heppilegustu til rétt- látrar dreifingar á innflutn- ingsvörunum, þannig að hvert fylki hefði innflutnings málin í sínum höndum. Ó- þarft er að gera ráð fyrir slíkri stefnu þótt fylkja fyrir- komulagið yrði lögfest. — Yf- irstjórn þessara mála verður að vera á einum stað. Heppi- legra væri þá að skipa einn fulltrúa úr hverjum lands- fjórðungi í slíka nefnd, ef til- tækilegt sýndist. Um skömmtunarmálin er það að öðru leyti að segja, að þau eru tímabundið ástand, sem enginn getur sagt um hvernig snúast kunni i fram- tíðinni. En í bilj má slá því föstu, að úr því einstaklingi hverjum eru skammtaðar vör ur, fleiri eða færri tegundir, þá hljóti þessi sami einstakl- ingur að mega ráða því, hverj um hann felur að kaupa þess ar vörur fyrir sig. — Sá hrá- skinnsleikur, sem hér er hafð ur í frammi og þau falsrök, sem teflt er fram gegn þessu sjálfsagða fyrirkomulagi hljóta von bráðar að falla um sjálft sig. II. Þá er eftir að minnast á eitt aðalhlutverk þessara fylkisþinga, en það er að kjósa 18 fulltrúa til efri deild ar Alþingis. — Álitamál er mikiö hvort Alþingi skuli tví- skipt, og mun það ekki gert að umræðuefni hér. En eigi að halda sér við tveggja deilda fyrirkomulagið, þá er einsætt, að þingm. sjálfir eiga ekki að velja sér sínum hóp þangað. Annað hvort verður — ef halda skal tveggja deilda fyrirkomulaginu — að kjósa til efri deildar í stórum kjördæmum með hlutfalls- kosningum, ellegar þá að ein- hverjar stofnanir, verða að kjósa efri deildar þingmenn- ina. Ef fylgt skyldi hugmynd Norðlendinganna og Aus’tfirð inganna, en fylkjahugmynd- in riæði ekki fram að ganga, væru sýslunefndir, eða máske hreppsnefndir og bæjarstjórn ir landsins þar rétti aðilinn. — Þeir, sem ólmir vilja taka upp þenna hátt með skipt- ingu efri deildar, þurfa ekki þeirra vegna að taka upp fylkjaþinga fyrirkomulag. Hins vegar munu flestir telja að sýslunefndum eða hrepps- nefndum og bæjarstjórnum væri veittur ótilhlýðilega mik ill réttur með því að veita þeim vald til kjörs á efri deild ár þingmönnum. Til þess mun því ekki koma. Loks er svo að minnast á þá uppástungu fylkjahöfund- anna, að forseti skuli kosinn beinum kosningum af alþing- isstjórnendum, og að forset- inn sé jafnframt forsætisráð- herra. — Hann skuli mynda ríkisstjórn, eða eiginlega skipa ráðherra sér við hlið. — Alþingi geti að vísu samþykkt vantraust á stjórn forsetans, en þá skuli þegar rjúfa Al- þingi og jafnframt alþingis- kosningum fara fram forseta kjör. Ef forseti verður endur- kosinn, fellur vantraustsyfir- lýsingin, forseti fer áfram með stjórn, og má ekki bera fram vantraustsyfirlýsingu í næstu tvö ár. Ella fer fram forsetakjör. Þetta mun eiga að vera skrautbl. í fjórðungsþingatill. Allt virðist þetta þung- lamalegt fyrirkomulag, og endurómar af stjórnarfyrir- komulagi Bandaríkjanna. Fyrsta spurningin er: Hvers vegna á að svipta Alþingi rétt inum til að mynda ríkis- stjórn? Er ekki yfirleitt regl- an sú, að kjörnir fulltrúar kjósi sér stjórn, en aðrir að- ilar skipi hana ekki? í þessu sambandi er vert að minna á það, að um nokk- urra ára skeið var sá háttur haföur, aö bæjarstjórarnir (Framhald á 6. siðu). Útvarpið okkar barst í tal milli mín og félaga míns í strætisvagni í gær. Hann fór að tala um morgun tónleikana og taldi þá ærið mis- heppnaöa. Þarna væru leikin dans- lög og virtist þannig vera reynt að miða við smekk yngra fólks, en það væri ekki vaknað á þeim tíma dags, nema skyldan ræki það, en þá færi það líka heiman að til náms eða starfs og gæti því ekki hlustað. Prestarnir ættu að skiptast á um morgunbænir í útvarpinu, sagði þessi maður. Þannig ætti að byrja hvern dag. Það myndi ekki neinn 'hafa illt af því og það þyrfti ekki að verða þreytandi eða leiöinlegt fremur en til dæmis að hlusta á þjóðsönginn á hverju kvöldi, eins (og flestir kunna vel við. Þetta sagði þessi maður og ég vil gjarn- an lofa tillögum hans og athuga- semdum að berast út til almenn- ings. * Pólitískar fréttir skipa alltof mikið rúm í útvarpinu að áliti þessa manns, — það er að segja útlendum fréttum auðvitað. Ó- merkileg ummæli eftir ómerkileg- um blaðamanni eða stjórnmála- manni væru sögð og endursögð í tíma og ótíma, ef þau lytu að styrj- aldarmálum og stórpólitík, en merkar fréttir um heilbrigöismál og þess háttar heyrðust ef til vill aðeins í morgunfréttatíma. Ég hef áður orðið var við svipaða skoðun og vel má ræða það, hvort almenn ingi sé ljúft, að annar blær komist á fréttaþjónustuna að þessu leyti. Hitt er augljóst, að það þykir að vissu leyji meira fréttnæmt við það, sem þykir eitthvað snerta á- stand og horfur í stríðshættumál- O.i um og benda til hverra veðra sé von á því sviði, heldur en sumt annað, sem hefir langan aðdraganda eða þá skýrslur um ástand liðins tíma. En ég ætlaði annars ekki að ræða þessi mál annað, en að flytja álit kunningja míns. Ég fann hérna í skúffu minni kveðskap, sem legið hefir fyrir um stund. í dag læt ég koma ljóð Jóns bónda um sálnaveiðar: Mörg voru mótin í sumar, meina víst snótir og gumar að önnur eins öskur og læti eitthvað úr vandanum bæti. Poringjar flokkanna vóru fyrstir á dansana stóru, þeir fluttu þar fegurstu ræður þið fylkið nú með okkur bræður. En trúin á mátt sinn og megin meinlega yfirgaf greyin, svo allir þeir urðu að hafa aðra, sem liðugra skrafa. Þar „Konni“ var kærasti gestur þá komið er austur og vestur. Eins er hann Alfreð svo slyngur og ágætyr þegar hann. syngur. Öskubuskurnar ungu, æfðu sig „jóðluðu" og sungu. Kvikmyndir komu í skörðin svo kafrjóð af gleði var hjörðin. Dauðinn frá ríkinu deiddi dáðir. En lokkaði og seiddi æskuna að unnast og kyssa svo enginn vill skammtinn sinn missa. Þarna hafið þið það kvæðið. Starkaður gamli Öllum þeim, sem sendu mér skeyti og ávörpuðu mig á níræðis afmæli mínu sendi ég beztu þakkir og óska þeim alls góðs í framtíðinni. Björn Björnsson, frá Hólum. | TILBOÐ | I óskast í efni og smíði á 28 gluggum fyrir síldarverk- 1 | smiðju Fáxa s.f., Reykjavík. Uppdrátta og lýsingar má f \ vitja á teiknistofu Almenna byggingafélagsins h.f., | 1 Borgartúni 7, í dag og á morgun. 1 Faxi s.f. IIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIMIIMMIMIMIIIIIIIMItllllllllllllllMIIIIIIMIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIU Vér eigum fyrirliggjandi Galvaniserað boltajárn y2” og %”. Skipsspídara, ýmsar stærðir. Kýraugu, opnanleg og óopnanleg. VERÐ MJÖG HAGSTÆTT. Landssmiöjan Sími 1680. Auglýsið í TÍAAANUM Jk %

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.