Tíminn - 03.02.1949, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur í Edduhúsinu
Ritstjórnarsímar:
4373 og 2353
Afgreiðslusími 2323.
Auglýsingasimi 81300
Prentsmiðjan Edda
33. árg.
Reykjavík, fimmtudaginn 3. febrúar 1949
24. blalfii
Frásögn Sigurðar Stefánssonar,Stakkahiíð:
Sveitasími á alla bæi
í Loðmundarfirði
næsta vor
]\auðsynlest að haldist vikulegar sumar-
jferðir sjóleiðis milli Seyðisf jarðar og' Loð-
mnndarf jarðar
Sigurður Stefánsson, bóndi í Stakkahlíð í Loðmundar-
íirði, er um þessar mundir í Reykjavík, og hafði tíðinda-
maður frá Tímanum tal af honum í gær Og spurði frétta úr
hyggöinni við Loðmundarfjörðinn.
Samgöngumál Loðm-
firðinga.
Eins og flestir mnu hafa
hugboð um, sagði Sigurður, er
byggðin okkar bæði fremur
3ítil og einangruð. Jarðirnar í
Xioðmundarfirði eru níu, en af
J>eim eru ekki nema sjö í
byggð, og hefir svo verið síð-
asta áratuginn. Loðmundar-
fjörðurinn er ekki í neinu
vegasambandi við aðrar sveit
ir eða byggðalög. En mikil
nauðsyn væri okkur á að fá
akfæran veg til Seyðisfjarðar,
ng fer fjarri því, að slík vega-
gerð sé ókleif með nútíma-
tækni.
Öll viðskipti okkar eru við
Seyðisfjörð, og nú fara allir
aðdrættir fram á sjó. Hefir
lítill vélbátur frá Seyðisfirði
gengið til Loðmundarfjarðar
vikulega á sumrin, en við og
við aðra árstíma. En þessara
samninga munum.við nú ekki
lengur njóta, nema hækkað-
nr verði flóabátastyrkurinn.
Hafa þrjú þúsund krónur
verið veittar til þessara ferða
að undanförnu. Nú er farið
fram á, að þetta verði hækk-
að í sex þúsund krónur.
Afkoma.
Það mun mega segja, að af-
koma manna sé heilbrigð.
Þótt við Loðmfirðingar ber-
umst ekki á, erum við ekki
öðrum háðir fjárhagslega. En
ekki munum við gera ráð fyr-
ir háu kaupi fyrir vinnustund
okkar eða viðvik, sem við inn
um af höndum, fremur en
sveitamenn almennt.
Sveitarsími.
Landsímastöð hefir verið í
Loðmundarfirði á þriðja ára-
tug. En á næsta vori er gert
ráð fyrir, að einkasími komi
á flesta eða alla bæi í byggð-
inni. Efni tií þessa kom aust-
ur í fyrrasumar og biður það
þess, að nýtt sumar gagni í
1 garð.
I
Búskaparhættir.
| Búskapurinn í Loðmundar-
firði byggist fyrst og fítemst
1 á sauðfénu, og höfum við
j átt þvi láni að fagna að eiga
hraustan fjárstofn. En geig-
| vænlegt er það, að vita garna
j veikina á báða bóga — á
j Flj ótsdalshéraði og í Borgar-
| firði. Berist hins vegar til
.okkar skæð fjárpest, eins og
garnaveikin, er afkoma okk-
. ar í voða, því að ekki er unnt
að lifa á nautgriparækt, eins
og öllu hagar.
Ræktunarmál.
í vor eru fjögur ár síðan við
fengum dráttarvél í sveitina,
og hefir hún verið notuð til
jarðvinnslu, eftir því sem
kleift hefir verið, fjárhags-
lega og sökum mannafla.
Hafa menn hug á að auka
ræktun eins og kostur er á.
/ r * /í •
Þrjár kynslóðir bænda i Stakka'ilíð í Loömundarfirði hafa starfað
að bygr ja nýlendur handa æðarfugli. Balivin Jóliannesson í Stakka
hlíð hóf þctta starf fyrir röskum sexlíu árum, cn sonUr hans, Stefán,
og sonarsonur, Sigurðar, hafa haldið því áfram. Þeir hafa ckið grjóti
á ísnum út á sjávarleirur og hlaðið þar síöan um upp í hólma um
fjöruna, þegar voraði og ísa leysti. Ofan á grjótið hafa þeir hlaðið
hnausum. Hér birtist mynd af varphólma þessum, sem er um tvcir
metrar á hæð og fimmtán mctrar á annan veg, cn átján á hinn.
Þama fást nú fjögur til fimm kíló af dúni árleja. Vafalaust er þetta
hæpin fjármálaráðstöfun, ef meta á allt í dagsverkum og aurum, en
þeim mun meira augnayndi og ánægja er að þessari nýlendu æðar-
fuglsins.
Maður verður úti
í Þistilfirði
Hinn 24. jan. s.l. brast á
stórhríð norðaustan lands
með mikilli fannkomu og
hvassviðri. Þá vildi það slys
til í Þistilfirði, að ungur mað
ur varö úti. Hét hann Björn
Jóhannesson í Flögu, sonur
hjónanna þar, Sigríðar Gests
dóttur og Jóhannesar Guð-
mundssonar bónda þar. Björn
var aðeins 22 ára að aldri
hraustur og efnilegur maður.
11111111111 IIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHII^IIIIIIIIIIMIIIIIIim/
I Munið framsókn-j
| arvistina annað I
I kvöld |
| Eins og auglýst er á öðr- |
= um stað hér i blaðinu verð |
| ur framsóknarvist í sam- I
| komusal mjólkurstöðvar- |
|innar við Laugaveg annað 1
1 kvöld og hef jast spilin kl. |
| átta. Á eftir verða veitt |
i verðlaun að venju. Þá flyt- |
i ur Stefán Jónsson, frétta- i
§ maður, stutt erindi og |
| kvartettinn Leikbræður i
I syngur. Síðan verður dans- |
| að. Menn ættu ekki að i
| gleyma að tryggja sér |
i miða í síma 6066 eða 81300, \
1 því að aðsókn verður að lík 1
| indum mikil að venju.
•IIIIIIIIIIIIIIIMMIIIIIIIIIIIltMIIMMIIIIIIIIIII llllllllllllllllll
Afmælishátíðahöld
Ármanns:
Fjölbreytt skemmt-
un í Austurbæjar-
bíó í kvöld
í kvöld heldur Glímufélagið
Ármann fjölbreytta samkomu
í Austurbæjarbíó klukkan 9.
Hefst hún á ávarpi Stefáns
Jóh. Stefánssonar, forsætis-
ráðherra. Að öðru leyti verð-
ur dagskráin sem hér segir:
Sigríður Valgeirsdóttir, mag-
ister í íþróttafræðum flytur
erindi, Sif Þórs og Sigríður
Ármann _ sýna ballett-dans,
flokkur Ármenninga sýnir er
lenda þjóðdansa, sem Sigríð-
ur Valgeirsdóttir hefir æft,
Árni Óla rithöf. flytur frá-
sögu, er hann nefnir Ármenn
ingar í Þýzkalandsför 1929,
síðan sýnir þjóðdansflokkur-
inn aftur nýjan dans, nem-
endur Klemensar Jónssonar
sýna skylmingar undir stjórn
hans, Hawaigitar-kvartettinn
leikur og syngur Edda Skag-
field með honum og að lok-
um verður Hawai-dans. Leik
ur Hawai-kvartettinn undir
en með syngja þau Ólafur
Maríusson og Edda Skagfield.
Á morgun verður barna-
skemmtun í Austurbæjarbió
kl. 2,30 og verður nánar skýrt
frá skemmtiatriðum þar hér í
blaðinu á morgun.
FrúBodilBegtrup
afhenti embætt-
isskilríki sínígær
Hinn nýskipaði sendiherra
Dana á íslandi, frú Bodil
Begtrup afhenti í dag forseta
íslands embættisskilriki sín
við hátíðlega athöfn á Bessa-
stöðum, að viðstöddum utan-
ríkisráðherra. Að athöfninni
lokinni sat sendiherrahjónin
og utanríkisráðherrahjónin
ásamt nokkrum öðrum gest-
um hádegisverð í boði forseta
hjónanna.
Þakið fýkur af flug-
skýli í Hornafirði
S. 1. þriðjudag gerði af-
spyrnurok i Hornafirði. Stóð
veðrið þó aðeins skamma
stund eða um eina klukkú-
stund. í veðri þessu fauk þak
ið af flugskýlinu i Höfn í
Hornafirði og þak tók af
stórri hlöðu í Lónu. Víðar
fuku járnplötur af íbúðarhús
um og ýmsar smávægilegar
skemmdri urðu aðrar.
Afli hefir verið góður hjá
Hornafjarðarbátum þótt
gæftalítið hafi verið og um-
hleypingasöm tíð. Ráðgert er,
að skip taki fisk af Horna-
fjarðarbátum á vertiðinni og
flytji hann út ísaðan.
Komraúnistar töp-
uðu í Þrótti
Urslit stjörnarkjörs í vöru-
bílstjórafélaginu Þrótti voru
tilkynnt á félagsfundi i gær-
kveldi. B-listi — listi lýðræð-
issinna í félaginu hlaut 131
atkvæði en listi kommúnista
Brezkir framleið-
endur óttasí sam-
keppni Þjóðverja
Brezkir framleiðendur ótt ■
ast nú mjög samkeppn:
þýzkra framleiðenda urr.
markaði. Hafa þeir rætt þess:
mál við brezku stjórnina
Segja þeir, að samkeppn:
Þjóðverja sé ekki með öllt
heiðarleg, þar sem þéir eigi
við aö búa miklu lægri laur.
verkafólks en í Englandi og
geti því selt framleiðslu sína
miklu vægra verði. Hernáms-
stjórn Breta hefir tilkynnt aí
þessu tilefni, að hún muni i
engu breyta áfstöðu sinni ti.
mála á hernámssvæði sínt
vegna þessa, því að hún st
staðráðin í að gefa Þjóðverj-
um færi á að efla fram-
leiðslu sína sem mest og taka
sinn þátt í efnahagslegri við-
reisn álfunnar.
126. Á kjör§krá voru 264 og
neyttu 257 atkvæðisréttar,
sést á þessu, að kjörsókn hef-
ir verið óvenjulega mikil. Þeir
sem kosningu hlutu, voru þess
ír: Friðleifur Friðriksson, for
maður, Jón Guðlaugsson,
varaformaður, Stefán Hannes
son ritari, Alfons Guðmunds-
son, féhirðir og Ásgeir Gísla-
son meðstjórnandi.
Bretar hæstir í
bílaútflutningi
Samband brezkra bifreiða-
framleiðenda hefir birl
skýrslu um framleiðslu og
sölu bifreiða í Bretlandi á s
1. ári. í skýrslu þessari segir
að Bretar hafi aukið mjöe
framleiðslu þessa á árinu, og
útflutningur bifreiða frá
Bretlandi, einkum til Banda-
ríkjanna, hafi aukizt svo, að
Bretland sé nú fremst allra
iahda um bifreiðaútflutning
Hafi þessi utanríkisverzlur
aflað þjóðinni 146 millj
punda í gjaldeyri og sýni það
hve mikil þjóðarnauðsyn það
sé að efla þessa framleiðslu
Hörgull hefir þó veriö á stáli
í Bretlandi að undanförnu oe
hefir það dregið nokkuð úi
framleiðslunni.
Uppreisnarmenn
bef ja sókn á bökk-
um Jangtshe-fljóts
Kommúnistar hafa nú haf-
ið sókn á bökkum Jangtshe-
fljóts og virðast, sem þeir séu.
að búa sig undir sókn yfir
fljótið að Nanking. Sendi-
nefnd hefir farið frá stjórnar
hernum í borginni á fund her
foringja þessara herja og far-
ið þess á leit við þá, að þeir
reyni ekki að brjótast yfir
fljótið, fyrr en útséð er um
það, hvort friðarumleitanir
þær, sem nú eiga sér stað,
takast eða' ekki. Hersveitir
uppreisnarmanna í Jangtshe
dalnum hafa sums staðar orð
ið að láta undan síga fyrir
hersveitum stjórnarinnar.