Tíminn - 03.02.1949, Page 8
„ERLEJVT YFlltLIT“ í dag:
íá Tsunq-jjen
33. árg.
Reykjavík
99-
Á FÖRNLM VEGÍ í DAG:
Póstsamyöngur of§ helihopt■
erfluqvélar
3. febrúar 1949.
24. blalff
Staiin býður Truma
til fundar við sig
Vill ekki koitia til Wasliingíton en býður kÁ,
funslarsíað í Rússiamii, Póliamli cSa
Tékkóslóvakíu
»
Stalia hefir tjáS sig reiðubúinn til að hitta Truman á
fundi og ræða varðveizlu friðarins í heiminum. Hann sting-
ur upp á fundarstað í Rússlandi, Tékkóslóvakíu eða Pól-
landi. Frakkar vilja hafa fund þeirra í París, og Tryggve
Lie stingur upp á Genf, sem fundarstað.
Svar við ummælum Trumans.
Stalín hefir nú birt eins
konar svar við ummælum Tru
mans forseta um það, að
hann væri reiðubúinn til
fundar við Stalín í Washing-
ton. Stalín kveðst fús til fund
arins og hafi sig lengi langað
til að þiggja boð Trumans um
að koma til Washington, en
heilsa sín leyfi sér ekki slík
ferðalög, og hafi læknar sín-
ir bannað sér að takast á
hendur slíkar ferðir bæði sjó-
leiðis og flugleiðis.
Nógir aðrir fundarstaðir til.
Hins vegar segir Stalín, að
nægir aðrir fundarstaðir séu
til og nefnir borgir í Rúss-
landi, svo sem Leningrad,
Stalingrad og Yalta á Krim-
skaga. Einnig megi halda
fundinn einhvers staðar í
Póllandi eða Tékkóslóvakíu.
Gaf Stalín þessar upplýsing-
ar í svarskeyti við fyrirspurn
fréttastofu um það, hvort
hann væri fús til fundar við
Truman, ef hann yrði haldinn
annars staðar en í Washing-
ton.
Ekkert formlegt boð.
Blaðafulltrúi Trumans hef-
ir lýst yfir, að forsetinn hafi
enn þá ekkert formlegt boð
fengið frá Stalín, en getur
þess jafnframt, að hann hafi
margsinnis boðið Stalín til
Washington og annað muni
hann ekki fara til fundar við
hann.
París eða Genf?
Þá hefir forsætisráðherra
Frakklands lýst því yfir í sam
bandi við þessar fregnir, að
■ hann mundi fús til að styðja
að því, að þeir Truman og
Stalín gætu hitzt í París.
Fregnir hafa og borizt um
það, að Tryggve Lie hafi
stungið upp á Genf i Sviss-
landi sem fundarstað.
Vilja að brezka
itjórnin lýsi and-
úð á Mindtzenty-
málinu
í neðri deild brezka þings-
ins í gær, var borin fram fyr-
irspurn til Bevins utanríkís-
ráðherra í spurningatíma
um það hver væri afstaða
brezku stjórnarinnar til
Mindtzenty-málaferlanna í
Ungverjalandi, en réttarhöld
í þeim eiga að hefjast á morg
un. Bevin svaraði því til, að
brezka stjórnin hefði látið í
ljós ótvíræða andúð sina á
þessum málarekstri, en hún
teldi hins vegar eklci ástæðu
til frekari aðgerða í málinu
að sinni, fyrr en gangur rétt-
arhaldanna yrði ljósari. Þing
menn íhaldsflokksins og
Frjálslynda flokksins létu í
ljós andúð sína á hlédrægni
stjórnarinnar í þessum efn-
um og víttu það, að stjórnin
skyldi ekki bera fram skelegg
ari mótmæli nú þegar gegn
því réttarhneyksli,, sem verið
væri-að frémja í Ungverja-
landi.
Ný friðarráðstefna
um Palestínu
Dr. Bunche, sáttasemjari S.
Þ. í Palestínu hefir boðað til
nýrrar friðarráðstefnu með
Gyðingum og ýmsum Araba-
ríkjum nágrönnum þeirra.
Eru Transjórdaníumenn þar
efstir á blaði. Ekki hefir ver-
ið tilkynnt neitt um það, hvar
þessi ráðstefna verður hald-
in eða hvort hún er hugsuð
sem framhald ráðstefnunnar
á Rhodos. Ráðstefnu Gyð-
inga og Egypta á Rhodos mun
hins vegar ljúka á morgun,
en á laugardaginn mun dr.
Bunche afhenda fulltrúa S.
Þ. skýrslu um ráðstefnuna og
árangur hennar.
Þetta eru glímumenn í skjaldarglímu Ármanns í fyrrakvöld. Þeir eru
talið frá hæj,ri: Rúnar Guðmundsson, Guðmundur Guðmúndsson,
Ármann Lárusson, Ottó Marteinsson, Gunnlaugur Ingason, Gísli
Guðmundsson, Ágúst Steindórsson, Steinn Guðmundsson og glímu-
stjórinn, Þorgeir Guðmundsson íþróttakennari. Tvo glímumenn vant-
ar á myndina. . ,
Skjaldarglíma Ármanns var
háð í fyrrakvöld
Giiðmundur Guðmundssou vann skjjöldinn
Rimar Guðmnndsson hlaut vegurðarverð-
launin
Hin miklu hátíðahöld í tilefni af 60 ára afmæli Ármanns
hófust í fyrrakvöld með Skjaldarglímunni, er háð var í
íþróttahúsinu við Hálogaland.
Bretar leita nýrra
samninga við
Argentínu
Brezk nefnd embættis-
manna er lögð á stað frá
Bretlandi til Buenos Aires.
Lágði hún áf stað í gær og er
erindi hennar að hefja nýj-
ar samningagerðir við Argen
tínumenn um viðskipti. Hafa
Bre.tar keypt mikið af kjöti
frá Argentínu, en nú segja
þeir, að Argentínumenn hafi
ekki staðið við gerða samn-
inga í þessum efnum og lát-
ið miklu minna af kjöti í té,
en samningar ákveða. Nú
vilja þeir leita nýrra saminga
og fá úr þessu bætt, en að
öðrum kosti verði að grípa til
þess ráðs að minnka enn kjöt
skammtinn í Bretlandi, og er
hann þó svo lítill nú, að það
þykir varla fært.
„Afmælisósk Ármanns er
að eignast félagsheimili.“
Hátiðahöldin hófust með
skrúðgöngu flestra starfandi
íþróttamanna Ármanns og
kennara inn í salinn. Formað
ur Ármanns setti hátíðina
með stuttu ávarpi. Formaður
Ármanns Jens Guðbjörnsson
gat þess að glíman væri önd-
vegisgrein félagsins, enda
verið fyrsta iþróttagreinin,
sem iðkuð var hjá félaginu.
Einkum lagði formaðurinn á
það áherzlu að félaginu væri
lifsnauðsyn að eignast félags
heimili og íþróttasvæði.
„Mér finnst að andi ung-
mennafélaganna hafi
ætíð ríkt í Ármanni.“
Eysteinn Jónsson mennta-
málaráðherra ávarpaði gesti
og íþróttamenn með snjallri
ræðu.Ráðherrann ræddi nokk
uð um hlutverk íþróttanna og
gildi þeirra í nútíma þjóð-
félagi. Megin áherzlu lagði
ráðherrann á að æskan yrði
að sækja þann þrótt i íþrótt-
irnar.sem fyrirrennarar okk-
ar sóttu í hin margvíslegu og
erfiðu störf, sem ráðherrann
drap nokkuð & hin hollu upp
eldisáhrif sem æskan yrði
fyrir í íþróttahreyfingu, eins
konar aukin þegnskapur og
fórnfýsi. Til Ármenninga
beindi ráðherrann þeim orð-
um að í Ármanni ríkti hinn
gamli og sanni andi ung-
mennafélaganna enn í dag.
Elsti keppandinn 47 ára
sá yngsti 16 ára.
Tíu keppendur mættu til
leiks af 11 skráðum. Sigurður
Sigurjénsson K. R. gat ekki
mætt. Þrír keppendur
gengu úr leik í keppninni
vegna smávegis meiðsla.
Glíman fór fram mjög
sæmilega, þó að einstaka
glímumaður liti á glímuna
sem aflraun. Geta má þess að
einn glímumaðúr fékk
dæmda á sig vitabyltu að mak
legu. Á þessari skjaldarglímu
glímdu auk hinna eldri nokkr
ir nýliðar, bráðefnilegir. Þeir f
Ármann Lárusson, yngsti
keppandinn, Ágúst Steindórs- j
son og Gísli Guðmundsson j
bróðir Rúnars. Einnig glímdi
nú gamalkunnur giímumaður,
Otto Marteinsson eftir,
margra ára hvíld. Undraði j
marga hve knár og lipur (
„gamli maðurinn“ er, en svo
nefndu áhorfendur Otto sín á
milli. Þetta er fagurt for-
dæmi fyrir hina mörgu og
góðu glímumenn, sem hafa
hætt of snemma. Máski til
þess að forðast ósigur.
Úrslit urðu þsesi:
1. Guðm. Guðmundsson 6
vinninga. 2. Gunnl. Ingason
4+1 vinning. 3. Rúnar Guð-
mundsson 4 vinninga. Steinn
Guðmundsson og Ármann
voru jafnir.
Uppreisnarmenn í
Burma komnir inn
í Rangoon
Uppreisnarmenn í Burma
eru nú sagðir komnir inn í
Rangoon, höfuðborgina og
, búast til að taka hana alla á
sitt vald. Var barizt um aðal-
járnbrautastöðina borgarinn-
jar í gær af mikill heift og
þykja líkur til, að þeir hafi
i náð henni á sitt vald.
Undirbúningsfundur
að félagsstofnun til
krabbameinsvarna
Mu maaina nefnd
imellrbýr stofiifimd
Eins og frá hefir verið
skýrt hér í blaðinu áður var
kosin nefnd lækna og leik-
manna til undirbúnings að
. stofnun félags er hafi varnir
gegn krabbameini að mark-
miði. í fyrrakvöld efndi nefnd
ih til fyrsta • undirbúnings-
fundar í Háskólanum fyrir
alla, er leggja vildu lið þessu
máli. Var fundurinn allfjöl-
sóttur og undirtektir manna
góðar. Fundarstjóri var Jón
Sigurðsson, skólastjóri, en
Niels Dungal prófessor flutti
framsöguerindi. Lýsti hann
þar útbreiðslu krabbameins
hér á landi og gaf ýmsar upp-
lýsingar um þessi mál. Um 180
menn látast nú á ári hverju
hér á landi úr krabbameini og
eru flestir þeirra á sextugs
aldri, en annars kemur veik-
in fyrir á öllum aldri. Hann
sagði, að þessi dánartala væri
óþarflega há og hefði farið
vaxandi síðustu árin. Ef þekk
ing almennings á sjúkdómn-
um og einkennum hans yxi,
mundi verða hægt að koma í
veg fyrir mörg dauðsföll af
völdum þessa sjúkdóms, ef
menn uppgötvuðu hann í
tíma, þar sem oftast væri auð
velt að ná fyrir upptök hans
með uppskurði. Þá sagði
hann, að félag sem þetta ætti
að beita sér fyrir því að að-
búð krabbameinssjúklinga
batnaði, því að henni væri nú
víða mjög ábótavant og erf-
itt um sjúkrahússpláss fyrir
þá.
| Félag þetta ætti ef til vill
einnig að vinna að því að
læknar sérmenntuðu sig er-
lendis í þessari grein og nú
væri til dæmis ástatt á landi,
að enginn læknir væri hér
sérfræðingur í því að skera
burt krabbamein úr lungum,
en þau krabbamein eru nú
orðin mjög tíð í öðrum lönd-
um og talin af mörgum stafa
'af sígarettureykingum. Þar
sem slíkar reykingar fara
mjög í vöxt hér, má búast við,
að þessi sjúkdómur verði al-
gengari. Annar er krabba-
mein í maga lang algengast
hér.
Þá ætti félag þetta að
styrkja krabbameinssjúkl-
inga til þess að leita sér lækn
inga erlendis, meðan ekki er
hægt að veita þeim viðeigandi
læknishjálp hér. Þá er einnig
nauðsynlegt að koma upp
skoðunarstöðvum, þar sem
íólk getur látið rannsaka,
hvort það gangi með krabba
mein á byrjunarstigi eða ekki.
Erlendis eru slíkar stöðvar
mjög að færast í vöxt og láta
margir, sem orðnir eru 40—
45 ára eða eldri rannsaka sig
árlega, hvort sem þeir kenna
sér nokkurs meins eða ekki,
Að lokum var kosin nefnd
lækna og leikmanna til þess
að annast stofnun félagsins
og nauðsynlegan undirbún-
ing.