Tíminn - 05.02.1949, Blaðsíða 6
6
TÍMINN, laugardaginn 5. febrúar 1949
2G. blað
lilllilliilll
ítijja Síó ....
Ófullgcrða
hljómkviðan
1 Hin undrafagra og ógleyman- |
= lega þýzka músikmynd um ævi =
1 tónskáldsins Franz Schubert =
I gerð undir stjórn snillingsins 1
Wiliy Forst 1
Martha Eggert
Hans Jaray
Sýnd kl. 7 og 9
Afturgöngur.
| Ein af allra skemmtilegustu =
| myndum hinna vinsælu skop- |
I leikara
| Bud Abbott og 5
I Lou Costello |
Sýnd kl. 3 og 5 j
Sala hefst kl. 11 f. h. =
JllIIIIIIIIIIIIHIIIIIimHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIII*
I tirlög eyðimerkur- I
| innar 1
(L’ Homme du Niger) =
| Efnismikil og áhrifarík frönsk |
| kvikmynd er gerist í frönsku f
| Vestur-Afríku. f
Victor Trancen
Harry Bauer =
| Aukamynd ný fréttamynd =
| Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9 |
1 Sími 6444 f
I Sala hefst kl. 11 f. h. =
(tllllllllltllllllHIIIIIIIIIIIUIIIIIIIHIIiaillllltllUIIIIHHHHI
i Haýharfiarlarbíc {
| Skuggi
fortíðariimar
f Spennandi og áhrifamikil =
| amerísk Metro-Goldwyn-Mayer f
f kvikmynd. |
Aðalhlutverk: f
Robert Taylor \
Katharine Hepbrun
Robert Mitchum E
| Sýnd kl. 7 og 9 — Sími 9249 í
IHUIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIUIIIHIIIIinilllllÍlll
Erlent yfirlit
(Framhald af 5. síðu).
en flestum gildvaxnari. Andlitið er
stutt en breitt og augun sérlega
litil.
Rakosi víkur sjaldan af skrif-
stofu sinni, en þangað liggja nú
flestir þræðir, er á einn eða ann-
an hátt snerta stjórn Ungverja-
lands. Það símatólið, sem hann
notar einna oftast, stendur í beinu
sambandi við stjórnar skrifstof-
urnar í Moskvu.
Erfiðustu andstæðingar
Rakosi.
Takmark Rakosi er að gera Ung
verjaland að kommúnistísku ríki.
Þjóðnýtingu iðnaðarins er þegar
vel á veg komið. En það er ekki
nóg að koma á þjóðnýtingu í borg
unum segir Rakosi, ef kapítalism-
inn fær að þ.-ífast áfram í sveit-
unum. Það, sem hann telur nú
næsta áfangann í framsókn komm
únismans, er að koma á ríkisbú-
skap og samyrkjubúskap. Þetta
mætir harðri andstöðu ungverskra
bænda, sem eru einstaklingshyggju
menn. Einkum er andstaðan hörð
meðal smábænda, þar sem þeir
telja sig svikna í tryggðum. Eftir
stríðslokin var þeim heitið því, að
þejr skyldu fá hæfilegt jarðnæðí
f Aðeins fyrir þig |
(For Dig alene)
= Sýnd kl. 9 =
f Kraftar í köglum |
f Afar spennandi amerísk kú- f
f rekamynd með kúrekahetjunni. =
Buster Crabbe og grínleikar =
= anum Al. (Fussy) St John. f
f Sýnd kl. 3, 5 og 7 f
i Sala hefst kl. 11 f. h. =
....HIIIIIHH.HHIHIHHIIIIHHIIIHIIIIIII.IIIIIIIHI
7'jarwatkíó
Danny Boy
f Hrífandi ensk söngvamynd og f
| músikmynd. Myndin gerist á i
i stríðsárunum í London.
Aðalhlutver:
John Warwick
HHHHHIII
(jatnla Síó
iiiiiiiimi!
I „MIIXI FJAELS I
OG FJÖRIJ46.
i Sýnd kl. 9
E r-".... ..........
Dýraviuiirinn
= (My Brother taueso Harres)
f Skemmtileg amerísk mynd
litli strákurinn
Butck Jenkins
= Peter Loward
Charlie Ruggers
= Sýnd kl. 5 og 7
f Ann Todd |
f Wilfred Lowson
Grant Tylor
| Davild Tarrar
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9
lílllinilllllvllllHIIIHHHHIIIHHIHIimilHIIIHIIIIIIIIHIIIH
• IHHHIIIB
.... 7ripoli-bíó
AR. 217.
(Menneske Nr. 217)
i Stórfengleg og vel leikin rúss- f
i nesk verðlaunakvikmynd.
C. Kusmina
= A. Lisinskaja =
A. Latohinkov
| Sýnd kl. 9. |
1 Börínuð börnum innan 16 ára i
I BERNHARD NORDH: !
| í JÖTUNHEIMUM I
FJALLANNA
ij: 46. DAGUR |
Hans Pétursson áttaði sig aftur, þegar þeir héldu af stað.
Nú sá hann ekki lengúr Marzfjallið. Hann steig fast til
jaröar og spyrnti karlmannlega við fótum. Hugsanir hans
snerust nú um ferðina niður í Vilhjálmsstað. Greta var á
heimleið. Það átti ekki að kyrrsetja hana hér upp frá — ekki
grafa hana í Fattmómakk, þar sem úlfarnir sátu stundum
gólandi á leiðunum og skáldaðir birnir klóruðu sér við
kirkj uvegginn. Greta átti að hvíla á þeim stað, þar sem
kirkjuklukkunum var hringt á hverjum helgum degi.
Þeim sóttist seint ferðin yfir eystri vatnsbakkann. Eftir
fáeinar klukkustundir yrðu þeir þó komnir að Grjótsæ.
★
Fólkið á Grjótsæ sagði fátt, er þeir Hlíðarmenn komu með
sleða sinn. Kista....! Hvert skyldu þeir ætla með Jónas?
Það var siður að grafa þá, sem dóu, í Fattmómakk. Fólk varð
enn alvarlegra á svipinn, er það heyrði, hver í kistunni
var, og sumu af kvenfólkinu vöknaði um augu, er það fékk
loks að vita, hvernig dauða Gretu hafði borið að. Einni
fannst eins og hnífur hefði verið rekinn í brjóstið á henni.
Gat ekki fætt! Guð miskunni konunum, sem dæmdar voru
til þess að þjást fyrir afkvæmi sín!
Fólk reyndi að spyrja Hans um nánari atvik. En hann
ræskti sig og sagði, að Greta hefði ekki tíma til þess að bíða
lengi í Grjótsæ. Hann þreif dráttartaugina og streittist af
öllum kröftum, en kom sleðanum ekki af stað, því að nú
var hann einn fyrir honum. Lars stóð á tali við heima-
menn.
H afnarfirBt
Jutta frænka
= Afarspennandi mynd.
I Sýnd kl. 7 og 9
I Sími 9184
'IIIIIIIIHIIHIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIillllllllllHHIIIimiHHHHI
til eignar og afnota, og hafði þeim
loforðum verið fullnægt að veru-
legu leyti meðan smábændaflokk-
urinn hafði áhrif á stjórnina. Nú
er unnið að því að taka aftur af
bændunum jarðirnar, sem þeir
höfðu fengið fyrir 2—3 árum. Ráð-
stafanir þessar mæta mikilli mót-
spyrnu.
Næst bændastéttinni hefir kirkj
an verið erfiðasti andstæðingur
kommúnismans. Með málaferlun-
um gegn Mindszenty kardinála
mun Rakosi ætla sér að undiroka
kirkjuna ok koma henni í þjón-
ustu kommúnista, eins og nú á sér
I Braskararnir og I
bændurnir
Aðalhlutver: |
Rcl Cameron og
Tuzzy Knight
Sýnd kl. 5 og 7 |
= Bönnuð börnum yngri en 12 ára =
Sala hefst kl. 11 f. h.
1 Sími 1182 |
?IHHHHHIHHIHHIIIHIHIHIIUIIHHHIIIIIIIHHÍTnilHHHl7
þeirra, er halda þær sér eða
félögum til peningalegs ábata.
Hitt væri mannbragð, ef
þeim væri breytt í það form
að vera skemmtanir fólksins
í byggðarlaginu, í stað þess
að vera það, sem þær hafa
aðallega verið fram að þessu.
Og minnast mætti greinar-
höfundur þess, að ásakanir í
garð annarra, til dæmis bíl-
stjóra, þvo ekki neina bletti
af kvenfélaginu og ungmenna
félaginu í Ytri-Njarðvík.
J. H.
M j ólkurf 1 utningar n-
ir frá Borgarnesi til
R ey k j a ví kur
Einhver kallaði þá á hann. Hann hljóp strax til Hans, og
eftir langar fortölur tókst honum að sefa vesalings mann-
inn, sem farinn hafði verið að ímynda sér, að einhver ill
öfl héldu sleðanum föstum, af því að þau vildu koma í veg
fyrir, að lík;imi konu hans fengi að hvíla í vígri mold.
Maðurinn, sem Lars hafði beint máli sínu til, kom með
hest og spennti hann fyrir sleðann, og fimm mínútum síðar
voru Hans og hinn nýi förunautur hans lagöir af stað með
líkið í áttina austur að Þórsnesi.
Lars lagði af stað heimleiðis, þegar hann hafði tekið af
sér þrúgurnar og bundið á sig skíði, sem hann hafði haft
á sleðanum. Hann fór sér hægt í fyrstu og hugsaði margt.
Hægri höndin var einkennilega stirð — það var eins og
hann hefði tekið í höndina á dauðum manni, þegar hann
kvaddi Hans. Hann var samt ekki hræddur um, að hann
myndi gefast upp og verða úti í þessari ferð. Ólafur í Grjót-
sæ hafði lofað að fylgja honum til næstu byggðar, og þar
myndi annar leggja honum liðsinni. Þannig hafði verið
ráðgert, að Hans færi með líkið — frá einni nýbyggðinni
til annarrar. En ef það brygðist stæði hann uppi ráðalaus.
Lars bar sem sagt lítinn kvíðboga fyrir því, hvernig Hans
gengi ferðin niður í Vilhjálmsstað, en þeim mun meira
hugsaði hann um það, hvað við tæki, þegar Hans kæmi
aftur. Öll þau ár, sem þeir höfðu verið í sambýli í Marzhlíð,
hafði farið vel á með þeim, og þeir höfðu verið á einu máli
um það, að farsælast væri að koma jafnan friðsamlega
fram — illvirki hefðu aldrei neitt gott í för með sér. Nú
naut hann ekki lengur stuðnings hans. Kæmi hann aftur,
væri það ekki til þess að hugsa um búskap, heldur til þess
að koma fram hefndum. Og hann myndi ekki láta sér nægja
stað í Rússlandi. En áhrif kirkj-
unnar eru sterk í Ungverjalandi
og það mun því vart áhlaupaverk
að ganga á milli bols og höfuðs á
henni, þrátt fyrir „játningar"
Mindszenty kardinála.
„SkeiniMtanIr44
(Framhald at 3. slðu)
Að öðru leyti gerist ekki
þörf að fjölyrða um þetta að
sinni, því að almenningur hér
syðra hefir lengi vitað, hvaða
andrúmsloft ríkti á hinum
almennu skemmtunum, sem
auglýstar hafa verið í „Kross-
inum“, og þar stoða engar
undanfærslur eða afsakanir
(Framhald af 3. síðu)
Hvalfjörð, eru að öllu ó-
skemmdir ennþá.
Einnig má deila um, hvor
leiðin sjór eða land sé örugg-
ari til samgangna. En stað-
ieynd er það, að daginn, sem
bílar frá M. S. B. voru fastir
í snjó við Þyril, sneri Lax-
foss við á leið frá Reykjavík
til Akraness.
Það kemur líka greinilega
fram í starfsbókum M. S. B.,
að fleiri ferðir féllu niður til
mjólkursendinga til Reykja-
víkur, þá eingöngu var treyst
á sjóleiðina, en landleiðina.
Borgarfjörður er ekki að-
gengileg sjóleið í vondum
veðrum.
að leggja fáein hreindýr að velli. Hann heimtaði blóð-
hefnd! Og hver vissi, hvaða grimmdarráð sturlaður maöur
gat látið sér detta í hug, þegar hann þóttist þurfa að ná
hefndum fyrir ímyndaðar misgerðir?
Lars leit upp til fjallsins, og í fyrsta skipti kenndi hann
beygs af þessari auðn, sem umlukti býli hans. Fyrir fáum
dögum hafði sonur hans horfið, orðið úti einhvers staðar
inn á milli þessara tinda, og hvað myndi svo gerast, þegar
Lapparnir kæmu með konur sínar og börn? Það væri bezt
að flýja frá Marzhlíð, áður en þar gerðust blóðugir atburð-
ir — yfirgefa þennan stað, sem ógæfan hafði heimsótt svo
freklega.
Gamli frumbýlingurinn nam staðar og studdi sig fram á
skíðastafinn. Yfirgefa Marzhlíð? Gátu þau Birgitta yfir-
gefið Marzhlíð? Hann leit til himins, eins og hann vildi
biðja bláhvolfið um eitthvert goðsvar við þeirri spurn-
ingu.