Tíminn - 18.02.1949, Side 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarjlolckurinn
Skrifstofur í Edduhúsinu
Ritstjórnarslmar:
4373 og 2353
Afgreiöslusími 2323.
Auglýsingasími 81300
Prentsmiöjan Edda
33. árg.
Reykjavík, föstudaginn 18. febrúar 1949
37. blaff
Dettifoss, nýja skip
Eimskipafélagsins,
kom til Reykjavík-
nr í gærkveldi
Sklpið kom ffyrt við
á DJúpavog'i, en
sigldi þaðan hing'að
Hið nýja skip Eimskipafé-
lagsins, Dettifoss. kom hing-
að til Reykjavíkur í fyrsta
sinn seint í gærkvöldi. Kom
skipið fyrst til Djúpavogs frá
Noregi, en hélt síðan til
Reykjavíkur.
Dettifoss er næstum því al-
veg eins skip og Goðafoss,
byggður í sömu skipasmíða-
stöð og jafn stór. Ýmsar smá
vægilegar breytingar hafa þó
verið gerðar á þessu skipi frá
því sem Goðafoss er.
44 gengu í F.U.F.
í Reykjavík í
fyrrakvöld
Pélag ungra Framsóknar-
manna í Reykjavík hélt fund
í Edduhúsinu í fyrrakvöld.
Var þar rætt um stjórnmála-
viðhorfið.
Eysteinn Jónsson mennta-
málaráðherra flutti framsögu
ræðuna. Af hálfu ungra Fram
sóknarmanna tóku til máls
Friðgeir Sveinsson, Stefán
Jónsson, Skúli Benediktsson,
Steingrimur Þórisson og Berg
ur Sigurbjörnsson. Auk þess
tók til máls Kristján Friðreks
son framkvæmdastjóri.
44 nýir meðlimir bættust í
félagið á þessum fundi.
Kaupir bærinn
Fiskiðjuverið?
Á bæjarstjórnarfundi í gær
upplýsti borgarstjóri, að bær-
inn hefði forkaupsrétt að
Fiskiðjuverinu, ef ríkið seldi
það.
Borgarstjóri greindi frá
þessu í tilefni af því, að Jó-
hann Jósefsson og Gísli Jóns-
son létu þau orð falla á þingi
í fyrradag, að vel væri athug-
andi að ríkið seldi eða leigði
Fiskiðjuverið.
Á sama þingfundi var upp-
lýst, að stofnskuldir Fiskiðju-
versins væru orðnar rúmar 8
miij. kr. og vantaði þó mikið
á, að það gæti enn talizt full-
gert. Talsverður halli hefir
verið á rekstri þess, enda hef-
ir það haft við ýmsa byrjunar
erfiðleika að striða.
Tírnina birti á miðvikutlaginn frásögn af lífinu í Klettafjöllunum,
þar sem verið hefir ákafiega mikió fannfergi í vetur. — Myntlin hér aS
ofan er frá Wyoming. Dráttarvélar eru notaðar til þess að ryðja fénu
braut.
Hvalvinnsia verður ekki leyfö
í örfirisey
ÁlykíKsi hæjarstjóniarfundar í gær
Á fundi bæjarstjórnar Reykjavíkur í gær var samþykkt
með samhljóða atkv. svohíjóðandi tállaga, sem flutt var af
borgarstjóra og fulltrúum allra flokkanna í bæjarstjórninni:
„Þegar bæjarstjórnin
stofnaði Sameiningarfélag
ið Faxa með hlutafél.
Kveldúlfi, til starfrækslu
síldarverksmiðju í Örfiris-
ey, þá var það gert í trausti
þess, að fullt öryggi væri
fyrir því, að samfara hinni
nýju vinnsluaðferð þeirrar
verksmiðju, væri hvorki
um að ræða óþrif í höfn-
inni eða á verksmiðjustaðn
um, né ódaun, er legði yf-
ir bæinn. Hefir verksmiðj-
an verið reist þannig, að
þessum meginskilyrðum
verði fullnægt.
Að gefnu tilefni lýsir
bæjarstjórnin því yfir, að
hún muni því aðeins leyfa
vinnslu úr öðrum hráefn-
um í verksmiðjunni, að
framangreindum skilyrð-
um sé fullnægt."
Enn góð veiði nyrðra
Akureyrarbátar fengu svip
aða veiði á Akureyrarpolli í
fyrradag og verið hefir. í
fyrrakvöld og gærmorgun
lögðu fáeinir bátar upp síld
hjá Krossanesverksmiðjunni
—Garðar 352 mál, Gylfi 530
mál og Narfi 550 mál.
Þessi síld er þó aðeins látin
til geymslu hjá verksmiðj-
unni, þar eð ekki hefir orðið
samkomulag um bræðsluverð
á henni.
Borgarstjóri upplýsti, að til
bæjarins hefði ekki komið
: nein beiðni um hvalvínnslu í
sambandi við Örfiriseyjarverk
! smiðjuna. Það þarf þó vist að
taka fram, að framangreind
ályktun er gerð vegna orð-
’ róms, sem gengið hefir um
í það, að stjórn Faxa hefði hug
; á að láta bræða hval í verk-
! smiðjunni og umsóknar, er
. hún hefir sent atvinnumála-
ráðuneytinu.
Lán úr raforkusjóði
tii mótorrafstöðva?
Búnaðarþing samþykkti i
gær að leggja til, að raforku-
lögunum verði breytt, þannig
að veitt verði lán úr raforku
sjóði til þeirra bænda, sem
koma sér upp mótorrafstöðv
um, enda séu bæir þeirra ekki
á beim svæðum, þar sem hér-
aðsrafveitur eru eða komast á
næstu árin.
Lán þessi vill Búnaðarþing,
að ve'rði með 2% vöxtum,
Merkjasöludagur
hjá kvecnadeild
Síysavarnafélagsirs
í Reykjavík
Kvennadeild Slysavarna-
,'élags íslands i Reykjavík hef
Ir í smíöum þrjú skipbrots-
nannaskýli á söndunum í
Skaptafellssýslu, eitt i Kefla-
vik, skammt frá Látrabjargi,
ig eitt ofan við Djúpalóns-
sand á Snæfellsnesi. Er fyrir-
’augað að ljúka smíði skýl-
inna á þessu ári. Vonir
standa einnig til, að hægt
verði að' stika sandana á Foss
fjcru og Skeiðarársandi.
En til þess þarf mikið fé.
Þess vegna hefir deildin^á-
kveðið aö selja merki á sunnu
daginn kemur, fyrsta góudag.
Minna má á, að deildin hef-
ir áður lagt nær 100 þúsund
krónur til Sæbjargar, byggt
skipbrotsmannaskýli á Með-
allandssandi, sem kostar rösk
lega 22 þúsund krónur, og bú-
ið það vistum. Var skýli þetta
afhent Slysavarnafélaginu í
árslok 1945. Þá var einnig stik
aður allur Meðallandssandur
frá skipbrotsmannaskýlinu
heim til bæja. Er fimmtiu
metra bil á milli stika. Ljósa-
tæki af fullkomnustu gerð
hafa verið sett í skýlin á
Breiðamerkursandi, Skeiðar-
ársandi og Fossfjöru.
Tilraunir með beií
nautgripa og sauð-
f jár á ræktað land
Búnaðarþingiö samþykkti f.
gær áskorun á tilraunaráð
landbúnaðarins í búfjárrækt
að láta gera á næsta sumri
vísindalega tilraun með beit
mjólkurkúa og sauðfjár á
ræktað land.
Það er reynsla erlendis, að
það borgi sig og meira en
það aö beita fénaði á ræktað
land. Að svipaöri niðurstöðu
hafa einstakir bændur hér á
landi komizt. Nú vill Búnað-
arþing fá úr þessu skoriö á
vísindalegan hátt.
veitt til tólf ára og nemi þrem
ur fjórðu hlutum af kostnað-
arverði og séu raílagnir þar
með taldar.
Búnaðarþing leggur mikla
áherzlu á, að þessi breyting
| á raforkulögunum nái fram
I að eanga í vetur.
Skopmyndasýcing
verður opnuð í dag
í dag hefst hér í bæ nýstár-
leg sýning í sýningarsal Ás-
mundar Guðmundssonar við
Freyjugötu 41. Er það sýning
skopmynda af ýmsum sam-
tíðarmönnum, sem þrír lista-
menn hafa gert. Eru það þeir
Halldór Pétursson, Jóhann
Bernharð og Sigurður Thor-
oddsen. Sú nýbreytni verður
tekin upp í sambandi við
þessa sýningu, að sýningar-
gestum verður gefinn kostur
á að láta draga upp af sér
skyndimynd. Ve'rða þær teikn
ingar milli kl. 8 og 10 á kvöld-
in.
Sýningin verður opin dag-
lega kl. 2—10 næstu 10 daga.
Eldur í togaranum
Verði
í fyrradag kom upp eldur í
hásetaklefa i togaranum
Verði frá Patreksfirði, er
hann var að veiöum út af
Jökli. Kviknaði í út frá ofni.
Fimm hásetar sváfu í klef-
anum og vaknaði einn þeirra
vlð reykjarsvælu. Hlupu þeir
félagar upp fáklæddir. Var
eldurinn óðara kæfður, og
varð af honum lítið tjón.
Samkoma Þjóðvarn
arfélagsins í Austur-
bæjarbíó á sunnud.
Þjóðvarnarfélagið efnir til
samkomu i Austurbæjarbíó á
sunnudaginn, og hefst húr,.
klukkan hálf-tvö.
Þar veröur fjölbreytt dag-
skrá — fluttar ræður, lesið
upp, einleikur á klarinett og
fleira.
Aðgöngumiðar fást hjá Lái
usi Blöndal og Sigfúsi Ey-
mundssyni.
Aðalfuridur Fram-
sóknarfélags Siglu-
fjarðar
Aðalfundur Framsóknar-
félags Siglufjarðar var ný-
lega haldinn. Á fundinurr.
gengu fimm menn i félagið.
í stjórn voru kosnir: Bjarni
Jóhannsson formaður, Hjört-
ur Hjartar ritari og Ragnar
Jóhannsson gjaldkeri.
Meðstjórnendur: Bjarni
Kjartansson og Jón Kjartans
son. í fulltrúaráð voru kjörn-
ir: Skapti Stefánsson, Jón
Kjartansson, Ragnar Jóhanns
son, Hjörleifur Magnússon,
Ingclfur Kristjánsson, Frið-
leifur Jóhannsson, Þorkell
Jónsson, Bjarni Kjartansson,
Bjarni Jóhannsson, Hjörtur
Hjartar, Guðmundur Jónsson
og Skúli Jónsson.
Að lokinni stjórnarkosn-
ingu voru umræður um bæjar
mál er stóöu til kl. 2 um nótt-
ina. Fundinn sóttu um 70
manns. Þá hélt félagið
skemmtifund s.l. laugardags-
kvöld. Spiluð var framsóknar-
vist, ræður fluttar og dansað
til kl. 2.
Skemmtunina sóttu um 90
manns.
Næsti fundur félagsins
verður 2. marz.