Tíminn - 24.02.1949, Blaðsíða 2
TÍMINN, fimmtudaginn 24. febrúar 1949
42. blað
serfW»æ^«s«»Wsw*eí^**
')i‘á kafi til ketöa
I dag
5. dagur í Góu. Sólaruppkoma kl.
7,55. Sólarlag kl. 17,28.
Öll jörð er þakin þykkri snjó-
breiðu.
í nótt.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni í Austurbæjarskólanum, sími
5030. Næturvörður er í Reykjavíkur
apóteki, :ijími 1760. Nætifrakstur
annast Hreyfill, sími 6633.
Útvarpib
í kvöld.
Kl. 18.30 Dönskukennsla. — 19.00
Enskukennsla. 19.25 Þingfréttir.
19.40 Lesin dagskrá næstu viku.
19.45 Auglýsingar. 20.00 Fréttir.
20.20 Útvarpshljómsveitin (Þórar-
inn Guðmundsson stjórnar). 20.45
Lestur fornrita: Úr Fornaldarsög-
um Norðurlandi (Andrés Björns-
son). 21.10 Tónleikar (plötur). 21.15
Dagskrá Kvenfélagasambands ís-
lands. — Erindi: Fjölskyldulíf og
lieimilisstörf (frú Soffía Ingvars-
dóttir). 21.40 Tónleikar (plötur).
21.45 Spurningar og svör um ís-
lenzkt mál (Bjarni Vilhjálmsson).
22.00 Fréttir og veðurfregnir. —
22.05 Passíusálmar. 22.15 Symfón-
ískir tónleikar (plötur). 23.15 Dag-
skrárlok.
H\nr eru skipin?
Eimskip.
Brúarfoss kom til Reykjavíkur
22. þ. m. frá Leith. Dettifoss kom
til Reykjavikur 17. þ. m. Fjallfoss,
fór frá Halifax 22. þ. m. til Reykja
vílfUr. Goðafoss fór frá Hull 21.
þ. m. til Eskifjarðar, Vestmanna-
eyja og Reykjavíkur. Lagarfoss fer
frá Reykjavík á morgun til Leith
óg Kaupmannahafnar. Reykjafoss
fór frá Hull 20. þ. m. til Reykja-
Víkur. Selfoss fór frá Húsavík 18.
þ. m. tíl Antwerpen. Tröllafoss fór
frá Reykjavík 16. þ. m. til Halifax.
Horsa fór frá Flateyri í gærkvöldi
til Húnaflóahafna. Vatnajökull er
á Reyðarfirði. Katla fór frá Reykja
vík 13. þ. m. til New York.
Einarsson & Zoega.
Foldin ‘er í Reykjavík. Linge-
stroom er á förum frá Hull til
Reykjavíkur. Reykjanes kom til
Grikklanls á þriðjudag.
Ríkisskip.
Esja fór frá Reykjavík kl. 22 í
gærkvöldi austur um land í hring-
ferð. Hekla er í Álaborg. Herðu-
breið er í Reykjavík. Skjaldbreið
fór frá Reykjavík til Vestmanna-
eyja kl. 22 í gærkvöldi. Súðin kom
til Genúa síðdegis í gær. Þ\| ill var
í Árósum í gær. Hermóður er í
Reykjavik.
Sambandið.
Hvassafell er væntanlegt n.k.
laugardagsmorgun til Eskifjarðar
frá Álaborg. Vigör er í Napoli. -
Öldungur.
í gær ieit inn í skrifstofu Tím-
ans Guðni Þórarinsson að Grettis-
götu 51 hér í bæ. Kom hann að
heilsa upp á Tímann á 79. afmælis-
degi sínum um leið og hann legði
á 80. aldursárið. Kvað hann sér
hafa alltaf verið sérstök ánægja
að því að kaupa og lesa Tímann
síðan hann kom fyrst út. Biskups-
tungnamaður, sem þekkir Guðna
vel segir að hann hafi áttfaldað
töðufenginn á túni sínu á Kjarans
stöðum. þar sem hann bjó í 43 ár.
Hafi Guðni jafnan veriö hinn á-
gætastí sveitungi. félagslyndur bók
hneigður framfaramaður, sem öll-
um hafi verið vel Við.
Guðni er ern ennþá eftir aldri
og fullur af áhugá um velferðarmál
þjóöarinnar.
Vestfirðingamót.
Hið áilega mót Vestfirðingafé-
lagsins var að Hótel Borg s.l.
laugardagskvöld. Mótið, sem var
fjölsótt, setti formaður félagsins,
Guðlaugur Rósinkraz, . með ræðu.
Gat hann þess m. a. í ræðu sinni,
að í næsta nóvember yrði Vest-
firðingafélagiö tíu ára. Verið væri
að gera kvikmynd af Vestfjörðum,
er vonir stæðu til að yrði fullbúin
á tíu ára afmælinu. Einnig gat
formaðurinn hess að félagið væri
að g.efa út 100 ára gamlar sóknar-
lýsingar Vestfjarða. sem Ólafur
Lárusson prófessor býr undir prent
un og ei von á að 1. bindiö verði
komið út á næsta hausti. Enn gat
Guðlaugur þess að óskað væri eftir
að estiiaiðaskáld sendu félaginu
ljóð og lög fyrir tiu ára afmælið.
Á mótinu mælti Sigurður Bjarna
son alþingismaður fyrir minni
Vestfjarða, Guðmunda Elíasdóttir
söng einsöng. Karl Guðmundsson
flutti skemmtiþátt og að lokum
var dans stiginn.___
'mmi
Frá Hnífsdal.
í bréfi frá Hnífsdal, dags. 16.
þ. m. sogir svo:
„Héðan er fátt eitt að frétta,
nema hvað hér hefir snjóað mikið
frá áramótum og gæftir þar af
leiðandi tregar, en sæmiiegt fiskirí,
þegar gefur á sjó.
Samkomubann hefir verið hér
siðan um áramót sökum mænu-
veikisfaraldurs á .ísafirði og lítur
út fyrir að svo verði, a. m. k. út
þennan rnánuð".
Aðalfundur.
Kristilegt félag Hallgrímssóknar
heldur aðalfund sinn í kvöld í Guð
spekifélagshúsinu við Ingólfsstræti
kl. 8,30 stunlvíslega.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa
verður ræða, upplestur, söngur og
kvikmyndin: Guð er kærleikur.
Ferr ^.garbörn á undanförnum
árum eru sérstaklega boðin á fund
inn.
Þakklæti.
Eftirfarandi hefir T.'minn verið
beðinn að birta:
Fjáröflunarnefnd Barnaspítala-
sjóðs Kvenfélagsins „Hringurinn"
þakkar hér með skemmtanir þær,
sem skólastjórar, kennarar og börn
úr barnaskólunum héldu til ágóða
fyrir barnaspítalasjóðinn. Ennfrem
ur þökkum við frú Rigmor Hanson
og nemendum hennar og öllum
öðrum, sem á einn eða annan hátt
aðstoðuðu við þessar barnaskemmt
anir.
Undirskriftir.
Úr bréfi af Norðurlandi.
] — — — „í fyrra sá ég mikil
skrif um hreyfingu í þá átt að
koma upp lýðveldisminnismerki. Og
i var eitt stærsta stjórnmálafélagið
íarið að hæla sér mjög af því að
vera upphafsaðili og brautryöjandi
málsins. Seinast sá ég ávarp í
blöðunum frá flestum helztu félög-
um og íélagasamböndum landsins
um að hrinda málinu í fram-
kvæmd. í Tímanum gerði syo V. G.
nokkrar ' athi>*-.semdir við málið,
sem ég var reyndar algerlega sam-
þykkur. En síðan hefir málið ekki
heyrst nefnt. Ég hefi ensa trú á
V. G. sem kraftaskáldi. En það
Jítur út eins og hann hafi kveðið
þessa hreyfingu algerlega niður!
En hvers vegna er fjöldi ágætra
félaga og félagasambanda að skrifa
undir áskoranir og ávörp til þjóð-
arinnar, ef þau meina ekkert með
þvi? Væri ekki eins gott að vera
sparsamari á slíkar undirskriftir?
Séu þau það ekki, ei£a þessi góðu
félög á hættu með undirskriftum
sínum, að dæmisagan endurtaki
sig um sma’ann, sem kallaði úlfur,
úlfur, þegar enginn úlfur -var, en
þegar úlfurinn kom í hjörð hans,
þá gegndi honum enginn“.
Jéfcicjáííf
Vegna afmælis
félagsins verður sk’ðaskálinn lok
aður fyrir almenning frá kl. 2 á
laugardag. Opið á sunnudag.
Skíðafélag Reykjavíkur
Skíðaferð
að Lækjarbotnum frá Austurvelli
og Litlu Bílastöðinni kl. 1.30.
Skíðafélag Reykjavíkur
’mjuimimimmimummmmmmmimmmmmimiiummmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmimiuhm*'>
S.G.T.Skemmtifélag Góðtemplara
Félagsvist og dans að Röðli í kvöld kl. 8V2 stundvís-
lega. Spilakeppni til kl. IOV2. Góð verðlaun. Dansað til
kl. 1. — Aðgöngum. frá kl. 8. Húsinu lokað kl. 11. —
Mætið stundvíslega.
Þar, sem S.G.T. er, þar er gott að skemmta sér.
50 % afsláttur!
í dag og næstu daga seljum við mikið
úrval af kventqskum með 50% afslætti {
Lítið í sýningarglugga okkar.
Komið meðan nógu er úr að velja!
LÁRUS G. LÚÐVÍGSSON
skóverzlun
M atreibslukennara
vantar við Húsmæðraskóla Reykjavíkur til þess að
kenna matreiðslu við kvöldnámskeið skólans fjögur
kvöld í viku. Umsóknir séu sendar skrifstofu skólans,
sem gefur allar nánari upplýsingar varðandi starfið.
Skrifstofan er opin alla virka daga nema laugardaga
frá kl. 1—2 sími 1578.
Hulda Á. Stefánsdóttir.
i.
ÁRSHÁTÍÐ
Yörubílstjórafélagsins Þróttar
verður haldin í Sj álfstæðishúsinu föstudaginn 25. þ.
m. og hefst kl. 8,30 e. h. stundvíslega.
Til skemmtunar verður:
Einsöngur, eftirhermur og danssýning.
Aðgöngumiðar eru seldir í húsi félagsins.
Skemmtinefndin
1878
Flugferðir
Loftleiðir.
Hekla kom í gærkvöldi frá Prest
vík og Kaupmannahöfn. Ákveðið
er að fljúga til New York næst-
komandi sunnudag kl. 8 árdegis.
Ekkert flogið innanlands, vegna
sífelldrar ótíðar.
Úr ýmsum áttum
Gestir í bænum.
Sr. Sigurður Norland Hindisvík,
Hjalti Guðmundsson bóndi, Vestur
kópshólum, Jóhannes Guðmunds-
son bóndi Illugastöðum, Sigurþór
Ólafsson bóndi, Kollabæ, Sigurður
Steinþórsson kaupfélagsstjóri Stykk
ishólmi, Kristján Jónsson frá
Gárðsstöðum, ísafirði.
Það er mörgum blöskrunarefni,
hversu mikið húsrúm ýmsar skrif-
stofur ríkisins og ríkisstofnana
leggja nú undir sig. í hinum nýrri
húsakynnum er varla sú skrifstofa,
sem ekki mundi hafa salur kallazt
fyrir fáum árum.
Það er auðvitað ánægjulegt að
koma í slíkar stofnanir og sjálf-
sagt hagfelld vinnuskilyrði að
mörgu leyti. En hús eru dýr um
þessar mundir og skortur á hús-
næði og byggingarefni í landiny
Og enn dregur þetta diJk á eftir
sér. Hinar víðáttumiklu skrifstofur
væru t>nlegar, ef þar væru ekki
húsgögn og skrifstofugögn, er sam-
svara stærð þeirra. Þessu fylgir
auðvitað gífurlegur kostnaður, svo
margar sem opinberar skrifstofur
eru orðnar. Sýnist þá nær að kaupa
vinnutæki, sem flýttu störfum.
Venjulegum skattþegni hlýtur að
fljúga í hug, hvort ekki væri hægt
að rækja störfin eins vel, þótt skrif-
stofurnar væru öllu minni og skrif
borðin ekki út af eins viðamikil
og umfagnsmikil.
En þótt gliesilegt sé fyrir skatt-
borgara að koma á kros6göngum
sínum inn í sumar af hinum nýju
skrifstofum, þar sem nefndir hafa
lagt undir sig heilar hæðir. er
ekki alls staðar sömu sögu að segja.
Mér dettur í hug saga, sem norðan
maður sagði mér. Eins og lög
gera ráð fyrir er símsastöð á Sauð-
árkróki. Við hana er biðstofa, sem
er öllu stærri en fangaklefi í göml-
um stíl, og setgagn eitt merkilegt
— kista með ártalinu 1878. \
Hvernig væri nú að símastöðin
á Sauðarkróki fengi einn eða fleiri
stóla eða jafnvel bekk, en í þess
stað reyndi einhver af ríkisstofn-
unum að festa stórkaupum á dýr-
ustu innréttingum og húsgögnum,
enda væri þó hjá henni á eitt-
hvað betra til sætis að vísa en
kistu frá 1878, þótt ég sé á hinh
bóginn alls ekki að litiJsvirða svo
aldurhnigna muni.
. J. H. .
aa iiiiiimn imi miiiiiiiiiiiiimiiZHZt tZZSH
Baðhandklæði 1
Útvegum leyfishöfum ódýr en vönduð
baðhandklæði og vasaklúta frá Hollandi.
Sýnishorn^f yriríiggj andi.
JOHANN KARLSSON & CO.
Þingholtsstræti 23.
Sími 1707.
íí51*í!.5*?íismíí5i>íííi5ííiílíiííiiííi.ilííl*iiííi***ílíííí»*íííiii:í.iií*i*lítm.í!l
Kaupi góðu verði
ERLENDAR BÆKUR UM ÍSLAND
Þeir, sem kynnu að eiga slíkar bækur, er þeir vildu
selja, sendi Tímanum tilboð, merkt J. H. — Tilgreind-
ur sé höfundur bókar, titill og útgáfustaður og ár.
Ennfremur ásigkomulag.