Tíminn - 23.03.1949, Blaðsíða 2
2
TÍMINN, miðvikudaginn 22. marz 1949
64. blað
Í'ZIXIIV.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR sýnir
VOLPONE
I |j í kvöld kl. 8. Miðasala í dag frá kl. 2. — Sími 3191.
Börn fá ekki aðgang.
í nótt:
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni í Austurbsejarskólanum, sími
-5030. Næturvörður er í Laugavegs
apóteki, sími 1616. Næturakstul'
annast Hreyfill, sími 6633.
Útvarpið
í kvöld:
Kl. 18.30 íslenzkukennsla. — 19.00
Þýzkukennsla. 19.25 Þingfréttir.
19.45 Auglýsingar. 20.00 Fréttir.
20.30 Kvöldvaka: a) Sigurður Magn
ússon löggæzlumaður flytur ferða-
þátt: Frá Landinu helga. b) Út-
várpskórinn syngur (Róbert Abra-
ham stjórnar): íslenzk alþýð'ulög
og tvisöngvar úr óperunum „Töfra-
ílautan" eftir Mozart og „Vald ör-
lagánna" eftir Verdi (ný söngskrá).
ci Æskuár sveitarhöfðingjans; úr
ævisögu Kolbeins í Unaðsdal (Helgi
Hjörvár flytur). d) Auðun Sveins-
son les úr kvæðum Sveins Hannes-
sonar frá Ellivogum. — Ennfremur
tónleikar af plötum. 22.00 Fréttir
og veðurfregnir. — 22.05 Passíu-
sálmar. 22.15 óskalög. 23.00 Dag-
skrárlok.
Hvar eru. skipin?
Ríkisskip.
Ésja er á Austfjörðum á suður-
ieið. Hekla fór frá Reykjavík um
hádegi í gær austur urn land í
hringferð. Herðubreið var á Breiða
firði í gærdag á vesturleið. Skjald- ,
öreið kom til Reykjavíkur í gær .
frá Breiðafirði og fer væntanlega j
annað kvöld til Húnaflóa, Skaga- |
íjarðar- og Eyjafjarðarhafna. Þyr- :
iil er í olíuflutningum í Faxaflóa. J
Súðin er væntanlega í Port Talbot 1
á leið til íslands frá ítaliu. Her- j
móður var á Patreksfirði í gær.
Laxfoss.
Til Akraness og Borgarness á
morgun kl. 11 f. h.
Sambandið.
Hvassafell kemur í kvöld til
Reykjavíkur (seinkaði vegna óveð-
urs). Vigör kernur til Hólmavíkúr
í kvcld.
Einarsson- & Zoega.
Foldin er á ísafirði. Spáarnes-
striom fermdi í Amsterdam í gær
í stað Lingestroom og i Antwerpen
i dag. Reykjanes fór frá Port Har-
bour 21. þ. m. áleiðis til íslands.
kl. 8.30 í V. R.-lieimilinu við Von-
arstræti.
Indriði Waage.
Vinsældir hins góðkunna leikara
Indiiða Waage komu glöggt fram
i Iðnó i fyrradag, þegar höfð var
hátíðasýning á „Meðan við bíðum“
i tilefni aí 25 ára leikafmæli Ind-
riða.
Var Indriða fagnað ákaft og
innilega. — Annað kvöld verður
Indriða haldið samsæti í Sjálf-
stæðishúsinu.
Frá Fáskrúðsfirði.
Höskuldur Stefánsson bóndi i
Dölum í Féskrúðsfirði, sem er
staddur í bænum leit inn, í skrif-
stofu Tímans í gær. Hvað hann
veturinn. hafa verið fremur göðan
þar cystra. Fé var ekki tekið í
hús fyrr en um nýár og alltaf
beitt síðan. Garnaveiki í sauðfé
væri slæmur vágestúr, en annars
væri afkoma manna mjög sæmileg.
Ræktun væri alltaf að aukast
kvað Höskuldur, en nokkuð hefði
verið erfitt að fá nýjár vélar. Búða-
kauptún hefði brotið lilikið land
til ræktunar innan við kauptúnið,
en eftir ao búið var að koma land-
inu í rækt og einstaklngar fengu
sitt afmarkaða stykki af ræktar-
landinu vildi brenna við að sumir
væru hættir við heyskapinn og
kúaeignina. Myndi þeim þykja þægi
legra að fá mjólkiha keypta beint
frá bændunum.
Þórshafnarbátur.
Togbátar, sem lagt hafa upp í
Vestmannaeyjum hafa aflað mjög
vel oft undanfarið. Einn af þeim
bátum, sem hafa aflað allra mest
og mun vera aflahæstur er And-
vari frá Þórshöfn. Er afli hans nú
orðinn yfir 250 smálestir á ver-
tíðinni. Síðastliðinn laugardag land
aði Andvari í Vestmannaeyjum 47
smálestum af þoVski og 5 smálest-
um af lifur eða 52 smál. saman-
lagt. En sjálfur er báturinh 52
smálestir að stærö. svo að það hefir
verið vel hlaðið í bátinn. Benóný
Friðrilcsson er skipst.jóri á And-
vara.
Afmælisgiafir og áheit
til S. í. B. S.
Frá íbúum Súöavíkur, safnað af
. Þorvaldi Hjaltasyni, kr. 2453.00,
Ingólfsprenti, Hverfisgötu 78, kr.
3000.00, Ólafi Jóhannessyni, Reykja
lindi, kr. 1000.00, Rangvellingum,
safniaö af R. Stolzenvyald kr. 400.00,
N. N„ kr. 100.00, N. N„ kr. 15.00,
Almenna byggingafélagið, kr.
3500.00, Vopnfirðingum, Vopnafirði,
kr. 205.00, Böðvari Böðvarssyni, kr.
10.00, safnað af fr. Guðríði Björns-
dóttur, kr.1010.00, safnað af fr.
Kristveigu ,Jónsdóttur, kr. 178.00
frá Sigríði Einarsdóttur Ásv.g., kr.
85.00, Koibeini Þorleifssyni, Ljós-
vallag. 16, kr. 50.00, Olgu Bernd-
sen, kr. 150.00, Ólöfu Árnadóttur
Hávallagötu 48, kr. 50.00, Carli
Berndsen, Höfðakaupstað, kr. 100.00
Fáskrúösfirðingum, Fáskrúðsfirði,
safnað af R. Sörensen, kr. 125.00,
starfsfólki ríkisféhirðis, kr. 65.00,
starfsfólki Sölustöðvarinnar hrað-
frystihúsann, kr. 420.00, starfsfóiki
Verzlunainnar Baldursbrá, kr.
100.00, starfsfólki Tóbaksverzl.
Laugaveg 12, kr. 350.00, starfsfólki
Björgvins Fredriksens, kr. 360.00.
Sýnishorn.
í einni aðalgrein stærsta og fjöl-
lesnasta bláðs landsins stóð þetta
m. a. í gær:
„Nokkru eftir áramótin birti Tím
inn — að því er virtist alveg upp
úr þurru — nokkurskonar siðferð-
isvottorð Mad. Framsóknar. Vott-
orðið var frá Borgfirðingi (Fúsa
veit). — — — Gildi þessa hrein-
leikavottorðs Mad. Framsóknar
verður maður að meta í ljósi þess
að það er útgefið af Fúsa undan
Brók, birt af „manninúm, sem lá
á glugganum" og stutt af póli-
tísku skírlífi Framsóknar undan-
farna tvo áratugi“.
Mjög er erfitt að skilja hvað hið
fjöllesna blað, Morgunblaðiö, á við
með þessu, en sumir gizka á að
það eigi að vera svar við ein-
hverri grein, sem hafi verið skrifuð
í Tímann af V. G.
GLATT A HJALLA
KVÖLDSÝNING
í Sjálfstæðishúsinu í kvöld kl. 8.30. — Aðgöngumiða
má panta í síma 2339 kl. 10—12. — Pantanir óskast
sóttir kl. 2—4. — Dansað til kl. 1.
llllllllllllltlllt
1111" IIIIIIIIIIIIII lllllllllllllll lllllll IIIIIII llllllll Mlllllllllllllll IIIII llllllllllliin iii | llllll)
Vélagæzlumaöur óskast
Velgæzlustarf við Gönguskarðsárvirkjunina, Sauðár- |
króki, er laust til umsóknar. Skriflegar umsóknir send- 1
ist fyrir 15 apríl til Rafmagnsveitna ríkisins, Lauga- |
vegi 118, Reykjavík. í umsóknunum skal tilgreina ald- |
ur, menntun og fyrri störf. 1
Rafmagnsveitur ríkisins
i..................
♦
!
11111111111111111111111111111111111
n iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimi ii iiiiii iii iii n n n 111111111111111111111»
Aisglýsing'asími
T1MA3VS
er 81300.
I
Flugferðir
Geysir fór í gænnorgun til Prest-
víkur og Kaupmannahafnar með
46 farþega og er væntanlegur aftur
i dag kl. 5—7 e. h. Hekla og Gull-
faxi eru í Reykjavík.
Flogið var í gær til Akureyrar
írá Flugfélagi íslands.
Úr ýmsLun áttum
Gestir í bænum.
Höskuldur Stefánsson bóndi Döl-
um í Fáskrúösfirði. Júlíus Bjarna-
son b.óndi Leirá. Biöru Lárusson
bóndi á Ósi. Einar Gestsson bóndi
Hæli'. Gunnar Jónsson Breiðabóls-
stað, Reykholtsdal. Aage Hansen
Hvítanesi. Guðmundur Óláfsson,
kennari, Laugarvatni.
Mikill afli.
Aflahæsti mótorbáturinn hér við
Faxaflóa á þessari vertíð mun
vera Keflvíkingur. Hefir hann nú
fiskað 850 skippund.
Skipstjóri á Keílvíking er Guð-
leifur ísleifsson. Allur aflinn er
fenginn á línu og hefir hann allur
farið í frystihús. Keflvíkingur er
70 smálestir að stærð og hefir
jafnan reynst happaskip.
Kvennaskólinn.
Nemendasamband Kvennaskól-
ans hefir aðalfund sinn í kvöld
ENN UM JEPPA
Eg fékk í gær svolátandi upp-
lýsingar um afstöðu valdamanna
og stjórnmálaflokka til innflutn-
ings á jeppum í þágu landbún-
aðarins:
Það er aikunna, að fjárhagsráð
og viðskiptanefnd ráða því til lylcta,
hvernig gjaldevri þjóðarinnar er
| varið og innflutningi hagað. Fram-
J sóknarmenn í fjárhagsráði börð-
| ust 'fyrir þv:, að gert yrði ráð íyrir
innflutningi 750 landbúnaðarjeppa
í innflutningsáætlun þessa árs.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
fjárhagsráði beittu sér eindregið
fegn því, þrátt fyrir þingsálykt-
, unartillögur, sem þingmenn úr
þeirn sama flokki hafa borið frarn,
svo að Framsóknarmenn voru born
j ir atkváeþum í fjárhagsráði. Ekki
i fékkst samþykkt að taka upp í
i f jái hagsáætlunina neiha rúmlega
, helming þeirrar jeppatölu, sem
I Framsóknarmenn kröfðust. Sama
máli gegndi um aðrar landbúnaðar
' vélar. Þar voru Framsóknarmenn
einnig bornir atkvæðum i fjár-
hagsráði, og gert ráð fyrir minni
innf lutninf i landbúnaðarvéla en
þéir töldu brýnustu nauðsyn bera til.
Fjárhagsráð er sá vettvangur.
þar sem gert er út um þessi mál,
en ekki alþingi. Meðan fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins þar, og þeir,
sem Ijá þeim lið, fella þannig
niður úr öllu valdi innflutning
þeirra vinnutækja og verkvéla, sem
bændum landsins er brýnust nauð-
syn að fá, verða það að dæmast,
sýndartillögur, þótt þingmenn úr
Sjálfstæðisflokknum beri eitthvað
fram i þihgsölunum, að .minnsta
kosti svo fremi sem þeir láta sér
lynda slíka afstöðu sinna eigin
fulltrúa, þár sem máiin eru raun-
veiulega útkljáð.
Allar vífilengjur og málaflækjur
eru því óþarfar. Þetta liggur ljóst
■ og skýrt fyrir. Á alþingi eru born-
ar fram tiliögur um, að bændur
fái jeppa. í fjárhagsráði, sem fer
1 með meginvaldið í innflutnings-
málunum, ganga fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins fram fyrir skjöldu
I og setja sig í kraftgír til þess að
koma í veg fyrir, að fullnægt sé
brýnustu þörfum bænda. hvað
jeppa* og fleiri landbúnaðartæki
snertir.
J. H.
B ifreLðaverkstæði
og verzlanir:
Getum afgreitt beint frá Englandi gegn innflutnings-
leyfum eftirtalda varahluti fyrir flestar tegundir af
bifreÍLum:
Ventla, ventiigorma og stýringar.
Stimpla, stimpilhringi og slífar
Bremsuborða
Háspennukefli
Platinur
Kveikjuhámra
Stiaumþéttá
Viðgerðaráhöld og lykla
Boita, skrúfui og rær
Leitið uppíýsinga strax. Öllum fyrirspurnum svar-
a£ um hæl.
X Garðar Gíslason h.f,
Sími 1500 — Reykjavik
G
G
G
G
1 (
(C
G
íslenzkt smjör
fyrirliggjandi.
::
H
H
::
§
Xx
♦♦
n
I FRYSTIHUSIÐ HERÐUBREIÐ 1
Sími 2G78.
I
1
*•
t*
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦^ ♦♦♦♦■♦•♦♦<♦»♦♦♦♦»♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦♦ •♦♦♦♦»♦♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦♦♦'♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦,
v /
AUGLÝSHVGAStma TÍMAMS ER 8130«
::
♦♦
«
* *
H