Tíminn - 01.04.1949, Side 1
w,
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgejandi:
Framsóknarflokkurinn
S
í--
Skrifstofur i Edduhúsinu
Fréttasímar:
81302 og 81304
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda '
33. árg.
Reykjavík, föstudaginn 1. apríl 1949
70. blað
fivenju harður oggjafafrek-
ur vetur á Hólsfjöilum
Tveir strætlsvagiial®ílsíjói,,ar úr Reykja-
vík flaittu norSiir á ISólsf jöll í fyrra ©g liófu
jiar búskap
Baldur Öxdal bóndi á Sigtúnum í Öxnafirði er staddur
liér í bænum og spurði tíðindamaður Tímans liann frétta
að norðan. Veturinn hefir verið óvenjulega harður á Hóls- |
fjöllum og nær jarðlaust þar um langt skeið í vetur. Er |
þetta óvenjulegt, því að þar er oftast góð vetrarbeit og gjaf-
létt.
Gott að fá erlent fólk til
landbúnaðarstarfa.
—■ Er ekki mikil fólksfæð í
þinni sveit eins og víðast ann
ars staðar?
— Jú, hún er mikil og alvar
leg, svo að víða horfir til mik-
illa vandræða. Ég held þvi, að
það sé gott að fá hingað er-
lent fólk til landbúnaöar-
starfa, ef vel tekst um val á
því og aðra framkvæmd þess
máls.
Þurfa skógarplöntur sem
þoia særok.
— Er mikill áhugi um skóg
rækt hjá ykkur? -
— Það er búið að stofna
skógræktarfélög í nokkrum
hreppum Norður-Þingeyjar-
sýslu og ráðgert að stofna
þau í þeim öllum. í innsveit-
um sýslunnar hagar víða svo
til, ag skógur eða kjarr er á
i löndum jarðar. Ætlunin er
að koma upp bæjarskógum
sem víðast með svipuðu sniði
og hafizt hefir verið handa
um sums staðar annarsstað-
ar. En á þeim bæum, sem
standa við sjó, hagar víða svo
til, að sgerok gengur þar yfir,
og verða skógarplöntur þær,
sem þar yrðu gróðursettar, að
þola það, ef þær eiga að ná
þroska. Hefir skógrækt ríkis- 1
ins haft góð orð um að reyna 1
að útvega slíkar trjáplötnur.
Garnaveikin ekki vestan
Ilafralónsár.
— Breiðist garnaveikin vest
ur á bóginn til ykkar?
— Nei, hennar hefir ekki
oröið vart vestan Hafralónsár
en það er stærsta áin í Þistil
firði. í vor er ráðgert aö girða
meðfram neðsta hluta árinn-
ar til hindrunar því að veikin
komist vestur yfir hana. Ef
sauðfjárpestir ná tökum á
fjárst. á þessum slóðum
má segja, að allar bjargir séu
bannaðar, því að þessar sveit
ir hafa tæplega skilyrði til
annars atvinnuvegar að svo
komnu.
Vantar veg til Húsavíkur.
Eins og kunnugt er komst á
vegasamb.í sumar úr Mývatns
sveit austur á Fjöll um nýju
brúna á Jökulsá, og lögðust
þá Austurlandsferðir að
mestu leyti niður um Reykja
heiði. Skemmtifólk og einka-
bifreiðar fóru þó flestar hring
inn og um Reykjaheiði aðra
leiðina. Reykjaheiði er hins
vegar ófær vegna snjóþyngsla
mikinn hluta árs og þess
vegna er það áhugamál okk-
ar að fá sæmilegan veg kring
um Tjörnes til* Húsavíkur.
Sem stendur leggjum við
þó áherzlu á að fá veg frá
Jökulsárbrúnni nýju út i Öx-
arfjörð, því að þá leið — um
Mývatnssveit — verður fyrr
fært á vorin en um Reykja-
heiði. Á s. 1. sumri var hafizt
handa um þá vegagerð og
byrjað hjá Hólseli á Fjöllum.
Var lagður um fjögurra km.
vegarkafli um ógreiðfærasta
hlutann, en þar norðan við
eru sléttir sandar á kafla.
Liggur þessi vegur skammt
frá Dettifossi. Ætlað er að
halda þessari vegagerð áfram
í sumar.
Þistilf jarðarvegur.
Þá er fyrir höndum aö gera
veg úr Þistilfirði til Raufar-
hafnar og þaðan til Kópa-
skers. Er sá vegur nú kom-
inn aö Kollavík.
Harðindi á Hóls-
fjöllum.
Óvenjumikil harðindi hafa
verið á Hólsfjöllum í vetur.
Setti niður mikla snjóa fram
an af vetri og hleypti öllu í
gadd í blotum eftir hátíðarn
ar. Hefir verið innistaða þar
um langan tíma, en það er ó-
venjulegt, því að oftast er
gjaflétt á Hólsfjóllum. Má
búast við að heybirgðir
bænda gangi nú mjög til
þurrðar, þótt þeir hafi safnað
nokkrum fyrningum á þeim
góðu vetrum, sem næstliðnir
eru. Ef þeir fá svo annan harð
indavetur næst, er viðbúiö að
hart sverfi að þeim, þótt þeir
bjargist vonandi i vetur.
Tveir strætisvagnabíl-
stjórar úr Reykjavík
liefja búskap á Hóls-
fjöllum.
Annars þykir okkur það
töluverð tíðindi og góð, að
tveir strætisvagnabílst j órar
úr Reykjavík tóku sig upp i
fyrra, fluttu norður á Hóls-
fjöll og hófu þar búskap að
Grundarhóli. Vonum viö að
þeim farnist vel, og byrjunar
orðugleikarnir við aö hefja bú
skapinn verði þeim ekki of-
viða, svo aö þeir neyðist til
að hverfa aftur til strætis-
vagnanna. Þeir virðast lika
hafa fullan hug á að ílendast
þarna.
Mynd þessi er af aðaldyrum Alþingishússins. Var hún tekin, þegar
mestu ólætin voru um garð gengin í fyrradag og sjást brotnar rúður
og klessur úr moldarhnausumogeggjum í kring. Fyrir neðan á götunni
og á tröppunum er rusl, sem hrotið hefir niður með veggjum hússins,
þegar kastað var á það. (Ljósm. G. Þórðarson)
Uraræður á Alþingi
um rósturnar í
fyrradag
Miklar umræður urðu utan
dagskrár í sameinuðu þingi
í gær í tilefni af atburðunum
daginn áður.
Kommúnistar hófu umræð-
urnar og revndu að kenna
ríkisstjórninni og lögreglunni
um rósturnar en þessar ásak-
anir þeirra snerust fljótt í
vonlausa vörn.
^ Sérstaklega vir sýnt fram
á með glöggum dæmum,
hvernig kommúnistar hefðu
undirbúið árásina á þingið
með sífeldum hótunum i blaði
sínu og að seinustu með hin-
um ólöglega útifundi. Grjót-
hríðina á Alþingishúsið hefðu
þeir líká hafið löngu áður en
lögreglan lét nokkuð til sín
taka. *
Þá var einnig sýnt ljóslega
fram á, að hinir friðsömu
borgarar, sem höfðu safnazt
saman eftir áskorun for-
manna þingflokkanna, hefðu
stórlega ruglað allar hernað-
araðgerðir kommúnista og
þannig komið þvi til leiðar,
að rósturnar urðu minni en
þær hefðu að öllum líkindum
annars orðið.
■ 1111 ■ 11111 ■ i ■■ i ■ i ■ i ■ i ■ 11 ■ • 11111111111 • i > 1111 • 111 ■ 11 ■ 11111111111 ■ i • • <j1
| Framsóknarvistin |
) í kvöld I
| hefst kl. 8 e. h. í samkomu- 1
| sal mjólkurstöðvarinnar. \
| Hannes Pálsson frá Undir- |
í felli mun flytja stutta I
| ræðu á samkomunni. Áríð- I
1 andi er að samkomugestir \
| mæti stundvíslega, svo eng f
I inn tími fari til spillis. Þá |
| er þess óskað að Framsókn I
í armenn f jölmenni á þessa |
1 samkomu og panti miða f
i sem fyrst í síma 6066 eða ;
| 81300.
*tl■■lll■lll■llllll■■l■■lllil■•ill■l•>•■li•••lll•■■•>H■<>••"HIIIIIII
Karlakór Reykja-
víkur heldur sam-
söng á mánudag
Karlakór Reykjavíkur mun
halda samsöng í Gamlabíó á
mánudaginn kemur klukkan
19.15. Söngstjóri er Sigurður
Þórðarson en Fritz Weichapp
el verður við hljóðfærið. Á
söngskránni eru 11 lög eftir
innlend og erlend tónskáld.
Vöruþurrðin milcil en
minni en í fyrra.
Vöruþurrðin er mikil sem
fyrr, einkum mikill skortur á
vefnaðarvöru, en örlítið meira
mun hafa borizt af þeim vör-
um til okkar það, sem af er
þessu ári en á sama tima í
fyrra. — Á Kópaskeri er nú
nýlokið að byggja læknisbú-
stað.
Fimm menn voru
teknir fastir vegna
óeirðanna
Sakadómari ltefir nú
mál þeirra til raim-
sóknar
Blaðið átti í gær tal við lög
reglustjórann í Reykjavík og
spurði hann nánar um óspekt
irnar í fyrradag og fyrra-
kvöld. Mál þeirra manna, sem
teknir voru fastir þá vegna
óspekta, er nú komið í hend-
ur rannsóknarlögreglunnar.
í fyrrakvöld urðu nokkrar ó
spektir í bænum eins og sagt
var frá hér í blaðinu í gær.
Þá var meöal annars sprengd
dynamit-sprengja við Austur
völl, og heyrðist hvellurinn
víða um bæinn. Með þessa
sprengju var 15 ára gamall
piltur og tók lögreglan af hon
um aðra sprengj u ósprungna.
! Er hún mjög kraftmikil, og
hefði hæglega getað valdið
slysum.
Biaðið átti einnig tal við
sakadómara í gærkveldi.
Kvað hann rannsókn í mál-
um þeirra manna, sem teknir
voru fastir í fyrradag, hafa
hafizt þegar og væri enn
skammt á veg komið. Menn
þeir, sem teknir #oru fastir,
voru fimm og eru á aldrinum
um og innan við tvítugt.
Þá átti blaðið tal við lækni
á handlækningadeild Lands-
spítalans í gærkveldi og
spurði um líðan Ágústs Jóns-
Keflvíkingur búinn
að afla 1000
skippund
Fi-á fréttaritara Tímans
í Keflavík.
Keflvíkingur er nú aflahæst
ur af Keflavíkurbátum og í
gær hafði hann aflað 1000
skippund í þessari vertíð. Afli
hefir yfirleitt verið góður hjá
Keflavíkurbátum síðustu
róðra og ágætur síðustu 2—3
róðrana. Loðnu er beitt. Gæft
ir hafa og verið góðar síðan
um helgi.
Aftur á móti hefir afli ver-
ið tregur hjá netjabátum síð-
ustu dagang einnig hjá drag-
nótabátum.
Frlðarsamningar
liafnir í Peiping
Samninganefnd Nanking-
stjórnarinnar fór flugleiðis til
Peiping í gær til viðræðna við
stjórn kommúnista þar. Var
gert ráð fyrir, að umræður
um friðarsamningana hæfust
þegar í dag. Engar fregnir
hafa enn borizt um að Sun Fo
hafi reynt stjórnarmyndun í
Kanton.
sonar rannsóknarlögreglu-
þjóns, sem mest meiddist í
óeirðunum. Er hann mikið
veikur, en læknirinn kvað líð-
an hans eftir vonum góða, og
hann væri ekki talinn í beinni
lífshættu sem stæði.