Tíminn - 06.04.1949, Qupperneq 6
6
TÍMINN, miðvikudaginn 6. apríl 1949.
73. blað
tiiiiiiiuit
Tlijja Bíc
„Caniival“
i Costa Rica
| Sýnd kl. 9
Stjórnmála-
flækjur
§ Ný amerísk skemmtimynd.
Philip Terry E
Ann Sevag-e |
f A1JKA31YND: (eftir áskorun) |
stórmerk fræðimynd |
Sýnd kl. 5 og 7 |
bÍiiiiiiii ii ilii ii iii ii íiin ini ii n ii ii iii ii 1111111111111111111111*1
Á villigötum
(Dishonored Lady) E
É Áhrifamikil, spennandi og vel É
| leikin amerísk sakamálamynd. i
i Aðalhlutverk:
i 1-
1111111111111
Hedy Lamarr i
Dennis O’Keefe E
i John Loder E
William Lundigan |
i Bönnuð börnum innan 14 ára. E
i Sýnd kl. 5, 7 og 9
iiiiiDiik/i■ iiiiiihii■ iim mniimiiiimnm.iiiiiii
7japharttíc
SKÍMÚÖTjjÍ
1 Alcazar virkið I
(ALCASAR)
| Bönnu'ð börnum innan 16 ára. É
Sýnd kl. 5 og 9
| Carlsson getur alltl
| Sýnd kl. 3
Sala hefst kl. 1 e. h. E
| Sími 6444. |
ílliuillltlllllllllllllliuillillllllllllllllllllllllllllllllllllltjli
I Hatfharfáartarbíó \
Beztu ár
ævinnar
I Verðlaunakvikmyndin, sem hefir i
É farið sigurför um heiminn aö |
| undanförnu. |
Sýnd kl. 6 og 9 E
Sími 9249 i
íiii iiiiimiiiiiiin iii iii iiiiiii iii mtimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii m
Þorbjörg á
Bjarnastöðum.
(Framhaldjif 5. slSu),
verk til dáða og þar sem íbú-
arnir hafa vilja og þor að
standa við það, sem þeir telja
rétt, eins og Þorbjörg Páls-
dóttir hefir jafnan gert.
Annars er hætt við, að
„hrjósturbyggðin gráa“ teygi
árma sína helzt til langt inn
í héraðsbyggðina hagsælu
áður en varir.
Það er næstum eins dæmi,
að fólki takist að varðveita
svo lengi hreysti sína og
æskueldinn í sál sinni, eins
og 100 ára afmælisbarninu,
sem hér hefir lítilsháttar ver
ið minnzt.
Vegna þess hyllum við
Þorbjörgu Pálsdóttur með
ennþá meiri ánægju í dag og
óskum henni til hamingju,-
þegar hún nú leggur út á
aðra öldina. V. G.
'Utbteiíil TítttaHH
fluylijóií t Tmamtn
Frá Fitzherbert
= Söguleg brezk mynd úr lífi E
É brezku konungsættarinnar á 18. É
= öld. |
É Aðalhlutverk:
| Peter Graves, É
| Joyce Howard, f
Leslie Banks.
f Sýnd kl. 5, 7 og 9 f
. iimiimiiiiimiiiiiimiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimm
..... Sœjarbtc ■..........
f HAFNARFIRÐI I
IJnga ekkjan
f Áhrifamikil amerísk kvimynd. \
| Aaðlhlutver: É
Jane Russell
f Louis Iloward * |
f Sýnd kl. 9 i
f Síöasta sinn. =
liögregluformg-
inn Roy Rogers
« =
(Eyes of Texas) f
| Sýnd kl. 7 i
| Sími 9184 f
iimmiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiimimimiimmiiimiiiiiiiim
Kristján Davíðsson.
(Framhald af 3. síðu).
Davíðsson tekið afstöðu með
heilum hug þegar mannbóta-
hugsjónirnar hafa kallað.
Saga samvinnumálanna, bún
aðarframfara og bindindis-
semi í sveitum hans er þar til
vitnis. Það er saga um ungl-
inginn frá Álfadal, sem braut
pípuna skilyrðislaust þegar
hann skildi að hún var and-
stæð lífs>tefnu hans.
Kristján Davíðsson kvænt-
is 1929 Magdalenu Össurar-
dóttúr frá Kollsvík og eiga
þau fjögur börn.
H. Kr.
..... (janila &íó..........
Það skeði í f
Brooklyn
(It Happened in Brooklyn) =
I Skemmtileg ný amerísk söngva- f
og gamanmynd. \
Aðalhlutverkin leika f
söngvararnlr vinsælu f
Frank Sinatra \
Kathryn Grayson f
og skopleikarinn |
Jimmy Durante É
Sýnd kl. 5 og 9 f
immmmimimmmmmmmmmmmimmmmmm
Tripdi-bíc
iiiiiiiinii
Kaupum
tuskur
Baldursgötu 30.
Sími 2292.
Gissur Gullrass
É (Bringing up fatlier) =
I Bráðskemmtileg amerísk gam- f
f anmynd, gerð eftir hinum heims 1
É frægu teikningum af Gissur og E
\ Rasmínu, sem allir kannast við f
É úr „Vikunni." •
= Aðalhlutverk:
| Joe Yule
i Renie Riano
f George McManus
É Sýnd kl. 5, 7 og 9 f
| Sími 1182. f
.............
100 ára í dag'.
(Framhald af 3. siðu).
horn af rithönd hennar á
einu af síðustu bréfunum —
rituðu í ársbyrjun 1947, á 99.
aldursárinu.
Um áhuga hennar á opin-
berum málum er það til
marks að jafnan hefir hún
sótt kjörfund, og greiðir þar
atkvæði að eigin ákvörðun
og á eigin spýtur, og það sein-
ast 1946 þá fullra 97 ára.
Blaða og útvarps hefir hún
notið til þessa, en nú er heyrn
og sjón tekin að bregðast
henni svo þess eftirlætis get-
ur hún minna notið nú orðið
Þorbj örg Pálsdótti r getur
með sanni sagt ekki síður en
Örn Arnarson, að það er „gam
an að hafa lifað svo langan
dag“. — Langan dag og við-
burðarikan í þjóðlifinu. Það
hefir verið dagur skins og
skúra, athafna og uppskeru.
Hún hefir séð kynslóðir fara
og kynslóðir koma. Hún hefir
séð gamla tímann með fátækt
sinni, einfaldleika og styrk-
leika hverfa í aldanna skaut,
og nýja tímann hasla sér völl.
fjölskrúðugan og glæsilegan í
allri sinni sundurgerð.
En líf hennar hefir verið
heilsteypt og sjálfu sér sam-
kvæmt. í trú á Guð sinn, og
með trúmennsku við hann,
við sjálfa sig og samfélag sitt
hefir hún unríið „meðan dag-
ur er“ eins og kraftarnir
leyfðu og með kærleikann til
náungans að leiðarljósi. Þess
vegna er æfi hennar ekki að-
eins löng, heldur að sama
skapi innihaldsrík. Og nú
biðja allir vinir hennar og vel
unnar. Guð að blessa þess-
ari fágætu konu þetta fágæta
afmæli.
Bjarni Ásgeirsson
Hver fylglst með
Tímaiium ef ekkl
LOFTUR?
Köld horíí og
heitnr veizlumatur
sendur út um allan b».
SILD & FISKUH n
BERNHARD NORDH:
í JÖTUNHEIMUM
FJALLANNA
93. DAÖUR
Í5555555555555555 «5555555555555555454
mundi una sér betur hér?
— Ef þú hefðir dvalið hér heima síðastliðinn vetur, mund-
ir þú ekki hafa yfirgefið Lappana, sagði hann þungbúinn-
Nýbýli gefur ekkert annað en sult og seyru. Ég verð hug-
sjúkur þegar ég hugsa til þess að til eru staðir þar sem
frost þekkist ekki.
— Hyar er það?
— í Ameríku. Emma og nokkrir aðrir héldu áleiðis til
Ameríku í vikunni sem leið.
Jónas rétti úr sér.
— Er Emma farin til Ameríku? sagði hann og stóð á önd-
inni.
Aron horfði á bróður sinn og deplaði augunum. ■ Hann
hafði séð þeim Emmu og Jónasi bregða fyrir í Fatmómakk,
er þau leiddust saman út í kjarrskóginn.
— Já, ef þér hefir komið til hugar að fá hana til að flytia
hingað upp eftir til þín, muntu verða fyrir vonbrigðum,
sagði hann og hló.
Jónas hafði nú aftur náð fullkomnu valdi yfir tilfinning-
um sínum. Hann kvaðist ekki hafa slíkt í huga, en gat
þess hins vegar ekki, að þau tvö skipti sem hann hefði hitt
stúlkuna frá Saxanesi hefðu haft mikil áhrif á líf hans
þetta siðasta ár.
— Hvar fékk hún farareyri?
— Faðir hennar seldi tvær kýr, og það sem á vantaði fékk
hún að láni hjá ættingja sínum í Saxanesi. Og þeir pen-
ingar munu áreiðanlega verða greiddir með skilum aftur.
í Ameríku er nóg af þeirri vöru, og stúlka eins og Emma
verður áreiðanlega ekki lengi að koma ár sinni fyrir borð.
Við Britta bríótum heilann um það sýknt og heilagt, hvern-
ig við eigum að afla okkur farareyris. Kæmist ég aðeins til
Ameríku skyldi ekki langur tími líða, unz hún gæti komið
á eftir.
— Ef maður hefði tvö hundruð ríkisdali, mundi maður
bjargast, en til þess að afla þeirra peninga þarf minnst
þúsund rjúpur eða fimmtíu refaskinn, og eins og veiðin
hefir nú verið í vetur, þá... .
Aron lauk ekki við setninguna og Jónas leit seinlega á
Lappatjaldið sitt. Þar inni átti hann næga peninga fyrir
tveim farmiðum til Ameríku. Ameríku? Jæja, það var auð-
vitað ágætt land, úr þvi frost þekktust ekki þar. Aron trufl-
aði hugsanir hans með spurningu um það, hvort hann hefði
komið að Grjótsæ nýlega og heilsað upp á Eiríku og Pella.
— Nei, ég hefi ekki haft tíma til þess. Hvernig líður þeim?
— Illa, auðvitað. Þau búa í sama kofa og skepnurnar, og
það lítur ekki út fyrir, að úr rakni fyrir þeim í bráð. Pelli
hugsaði líka mikið um Ameríkuför, en það er allt annað en
auðvelt fyrir hann að afla sér faxareyris.
Störfin léku ekki eins í hendi Jónasar þegar Aron var
farinn,. Heimsókn hans hafði orðið þvi valdandi, að Jónas
fór að líta í ki'ingum sig, og alls staðar blasti við fátækt og
eymd, sem hrópaði aðvarandi á hann. Nýbýli hans hafði
verið svipt þeim ævintýralj pma, sem það sveipaðist áður,
og hann sá það fyrir sér í fátækt og auðnuleysi. Það var að-
eins óhrjálegt Lappatjald í ofurlitlu rjóðri í auðninni — ann
að var það i raun og veru ekki.
Jónas lá lengi kyrr og þungt hugsandi, áður en hann
sofnaði um kvöldið. Liðnir sultavetur liðu hönum fyrir sjón
ir einn af öðrum og neyddu hann til þess að grenslast um
það, hvort peningar hans væru ekki öruggir á sínum stað.
Samræmdist það nokkurri skynsemi að halda áfram þessu
landbroti? Hann gæti hæglega komizt til Améríku fyrir
þessa tvö hundruð rikisdali.
En morguninn eftif leit Jónas aftur bjartari augum á
lífið og stritaði nú af tvöföldum áhuga. Fátækt? Hver vissi
svo sem um það, hvort nokkuð betra væri að lifa í Ameriku?
Eiríka og Pelli bjuggu undir sama þaki og húsdýrin, en það
gæti rætzt úr fyrir þeim. Foreldrar hans höfðu líka búið
undir limi grenitrés heilt sumar með sex barna hóp. Áður
en dagur var liðinn að kvöldi, var hugsunin um Ameríku
þurrkuð út úr huga Jónasar. Hann haföi blandað þessa mold
of mörgum svitadropum til þess að geta skilizt við hana.
Meðan Jónas stritaði í sveita síns andlitis á nýbýli sínu,
nálgaðist §á tími, er síðsumarshátíðin skyldi haldin í
Fattmómakk. Lars spurði Jónas, hvort hann ætlaði að -verða
samferða þangað, en hann svaraði því til, áð hann hefði