Tíminn - 23.04.1949, Blaðsíða 4

Tíminn - 23.04.1949, Blaðsíða 4
4 TÍMINN, laugardaginn 23. april 1949. 80. blað’ Úrræöin í húsnæðismálunum Hinir öru fólksflutningar til bæjanna, einkum Reykja- vikur höfðu í för með sér ó- eðlilega eftirspurn eftir hús- næði. Hefðu löggjafarnir gert skyldu sína, þá bar þeim að reyna að hamla gegn því, að ófyrirleitnir fjársöfnunar- menn gætu notfært sér slíkt fyrirbrigði, til auðsöfnunar á kostnað þj óðarinnar. Um þetta hlutverk sitt hafa löggjafarnir svikizt , nema ef telja skal húsaleigulögin. Með opnum augum hafa alþing- ismenn okkar horft á það, að fasteignabraskarar hirtu I sölugróða 30—50% af and- virði hverrar íbúðar. Luxus- villur, stórhallir og sumarbú- staðir, sem kostuðu allt að y2 miljön hvor, hafa verið byggð ir af hinum nýríku mönnum, á sama tíma og enganveginn var hægt að fullnægja eftir- spurn á húsnæði fyrir al- menning. Með sama sljóa úr- ræðaleysinu, hafa alþingis- menn okkar látið það við- gangazt, að nær allt nýtt hús næði væri leigt með okurleigu. Leiga, sem var og er svo há, að þótt sá, er hús seldi, græddi á sölunni einni allt að 50% af kostnaðaverði húss- ins, þá gat sá, er keypti, haft a. m. k. 10—20% í ársleigu af fé sínu, ef hann leigði húsið út. Undir sömu okurleigunni komu svo íbúðir, er losnuðu úr leigu í gömlu húsunum. j Með sama aðgerðaleysinu,' horfa löggjafarnir á það, að mestur hluti þessa gróða fjár plógsmannanna sé svikinn undan skatti og útsvari. Hinn almenni borgari, má svo greiða skattana fyrir blóð sugurnar. Hið óeðlilega húsa- ' verð og okurleiga leiguhúsnæð is hefir lagzt sem mara á allt atvinnulíf í landinu, og stend ul' nú í vegi fyrir því, að hægt sé að koma framleiðslu þjóð- arinnar á réttan kjöl. Eftir síðustu stjórnarskipti var fyrst drepið fæti við því, að hægt væri að byggja algjörar luxusbyggingar, enda a/ar slíkt lítt framkvæm anlegt, þegar allur gjaldeyr- ir var uppétinn, og þjóðin gat ekki aflað á móti því, sem hún eyddi. Svo sjálfsögð rétt- arbót í þessum málum, eins og frumvarp Framsóknar- manna um stóríbúðaskatt, var dregið. Það mátti ekki knýja þá, sem mest höfðu sótt í vasa náunga síns og í stærstu höllunum bjuggu, til að gera annað af tvennu, að greiða skatt af óhófi sínu, eða láta af höndum rakna, fyrir ærið gjald, nokkurt húsnæði, og spara með því dýrmætan gjaldeyrir, ef allt húsnæði væri haganlega notað. Þjóðin horfist nú í augu við þær staðreyndir, að ómögu- legt er, að flytja inn og borga eins mikið byggingarefni og þarf til þess, að fram- boð og eftirspurn varð- andi húsnæði geti komizt í hæfilegan farveg. Á Alþingi og í bæjarstjórn Reykjavíkur má sjá úrræði flokkanna í húsnæðismálun- um. Sjálfstæðisflokkurinn vill afnema húsaleigulögin og ekkert gera arpiað, Má segja, að þeir komi í þetta sinn til dyranna eins og þeir eru klæddir. Sannir fulltrú- ar „spekulantanna.“ Alþýðu- flokkurinn virtist hafa of- Efíir Hanncs Pálsson, Umlirfelli reynt sig á húsaleigulögunum í stríðsbyrjun og sé síðan til einskis nýtur. Sósíalistafl. heimtar í þessum málum það eitt að byggja og byggja, þótt ekkert fé sé til, til þess að kaupa fyrir byggingarefni. Framsöknarfl. er eini f 1., sem einhverja viðleitni sýnir í þessum málum, en þær til- lögur, sem flokkurinn hefir enn lagt fram, geta þó ekki, talizt fullnægjandi. Einu úrræðin, sem að fullu gagni koma í húsnæðismál- um, eins og framboði og eftir spurn og fjárhagslegu á- standi þjóðarinnar er nú hátt að, eru eftirtaldar leiðir: í bæjum, sem hafa yfir á- kveðna íbúatölu t. d. 4000 manns, þarf að gera eftirfar- andi ráðstafanir: 1. í hverjum slíkum bæ þarf að vera þriggja manna húsaleigunefnd — t. d. þann- ig skipuð, að leigjendafélag tilefni 1 manninn, húseig- endur 1 og sá 3. sé skipaður af ríkisstjórninni. Þessi nefnd hefði með höndum leigu á öllu húsnæði, sem leigt væri út. Nefndin, eða menn sem starfa á hennar ábyrgð rneti í hvert sinn, hvað leigan skuli vera há. í lögum þeim, sem um þessi mál yrðu sett, þyrfti þó að ákveða hámarks húsaleigu, sem nefndin hefði aldrei heimild til að fara yf- ir. Mat húsaleigunefndar Reykjavíkur sannar það í seinni tíð, að jafnvel slíkar nefndir þurfa að hafa aðhald, ef húseigendur eiga ekki að geta leigt þær óhæfilega hátt. Húseigendur hefðu ekk- ert um það að segja hverjum leigt væri, en strangar reglur yrði að setja af ríkisvaldinu, um hegðun leigutaka og um- gengni alla. Brot á þeim regl- um varðaði brottrekstri úr leiguhúsnæði. 2. Hár stóríbúðarskattur sé lögleiddur, þar sem húseig- endur eða leigutakar húsnæð is greiði ákveðinn skatt eftir hvern fermetra íbúðar sinn- ar, sem er fram yfir ákveðið hámark á hvern fjölskyldu- meðlim. Skattur þessi þarf að vera svo hár að hann nemi hæstu leigu, sem greidd er. 3. Húsaleiga, sem skattþegn greiðir umfram ákveðið hámark.sé talin með frádrátt arbærum útgjöldum á skatt- skrá. Sanngjarnt væri á með- an persónufrádrag er eins lágt og það er nú, að öll húsa leiga væri frádráttarbær og engar tekjur reiknaðar í leigu af eigin íbúð. 4. Á þeim stöðum, sem slík- ar húsaleigunefndir væru starfandi, skyldu þær hafa með höndum alla sölu hús- eigna innan síns umdæmis. Sá, sem fasteignina ætti, mætti.ekkert hafa um það að segja, hverjum hún væri seld, ef hann aðeins fengi það verð, er hann samþykkti. Verðhækkunarskattur ætti aö fylgja. Án efa munu þessar tillög- ur mæta harðri andstöðu allra. þeirra húseigenda, er ekki taka tillit til neins nema síns eigins stundarhags. Áður en slíkar tillögur yrðu samþykktar myndu fasteigna braskararnir og húsaleiguokr ararnir berjast örvæntinga- | fullri baráttu, og ekki hlífast við að nota allríflegan hlúta af illa fengnu fé sínu í her- kostnað. Til liðs við sig múnu ^ þeir fá alla þá, sem selja sál sína og sannfæringu og nokk urn hluta af heiðvirðum og sanngjörnum húseigendum, ^ sem finnst í hreinleika hjarta | síns, að hinn helgi eignar- réttur sé skertur. Ég mun þá fara nokkrum orðum um hvern einstakan lið. Hér að framan hefi ég sýnt fram á þrennt: í fyrsta lagi, að af gjaldeyr isástæðum er ekki hægt að flytja inn byggingarvörur, svo að hægt sé að fullnægja eftirspurninni eftir húsnæði. í öðru lagi liggur núverandi húsaleiga eins og mara á öllu atvinnulífi landsmanna, þar sem stéttarfélögin knýja laun sín svo hátt, að leigutakar, sem hæstu húsaleiguna borga, geti þó dregið fram líf ið, og á meðan svo fer fram mun ekki reynast hægt að lækka framleiðslukostnað. í þriðja lagi hefir fram- ferði flestra húseiganda ver- ið þannig, að þeir hafa sið- ferðilega séð fyrirgert um- ráðarétti eigna sinna. Full- víst er af reynslu undanfar- andi ára, að á meðan eftir- spurn á húsnæði helzt eins og nú, þá er á engann hátt hægt að komast fram hjá því, að leigusalar taki hvern eyr- ir, sem unnt er að ná, með því að láta leigutaka greiða fyrirfram, svo og svo mikinn hluta húsaleigunnar, án þess að geta þess nokkurs staðar. Þess vegna hefir það ekkert gildi í hinu raunverulega lífi, þó hámarksleiga sé ákveðin í lögum, ef húseigendur sjálf- ir leigja. Kostir fyrstu tillögu minnar eru þeir, að það er ómögulegt að komast í kring um hámarksákvæðið, þar sem húseigandi hefir engin áhrif á það, hverjum leigt er. Annar kostur, og hann ekki lítill er sá, að leigusalar geta ekki svikið undan skatti húsa leigutekjur sínar, þar sem húsaleigunefnd hefir yfirlit yfir alla leigu. Það, sem menn helzt munu finna að tillögum þessum, er það, að þær raski um of um- ráðarétt manna yfir eignum sínum og séu jafnvel brot á stjórnarskránni. Ennfremur muni slíkar ráðstafanir stöðva með öllu byggingar. Þessu er til að svara, að slík ráðstöfun, sem ég hér hefi lýst, er í framkvæmd engu meiri takmörkun á eignarétt- inum, en húsaleigulög þau, er nú gilda. Munurinn er aðeins sá, að húseigandinn hefir ! einhvern tíma endur fyrir löngu sjálfur leigt húsnæðið, j en vitanlega hefir hann ekki i þá gert ráð fyrir að sitja með j leigutaka um aldur og ævi, en það hefir hann nú verið skikk aður til. Slík lög, sem þessi, eru mið- uð við neyðarástand og eng- an veginn ætlast til að þau gildi um aldur og ævi. En hve nær er neyðarástand, ef það vofir ekki yfir hinni íslenzku Iþjóð nú, eins og málum er komið, þar sem engan at- (Framhald á 7. slðuj. Bóndi úr Þingeyjarsýslu skrifar eftirfarandi bréf um blöðin nú á dögum og varðveizlu ríkishapp- drættisskuldabréfa. Bendingar hans eru mér kærkömnar og er ég þó ekki fær um að lofa því, að breyt- ing verði á útliti Tímans, en það hefir alltaf sín áhrif að mæla með eða móti. Hér kemur bréfið: „Eins og flest annað hefir blaða- útgáfa á landi hér tekið miklum stakkaskiftum, frá því sem hér var í uppvexti þeirra, sem nú eru komn ir á efri ár, eða t. d. frá því, sem var um og eftir aldamótin, svo ekki sé lengra farið. Er það ekki ein- göngu í því, að þau komi nú oftar út, eða jafnvel daglega, móts við viku eða hálfsmánaðarútgáfu áður. Mismunurinn er mestur í efnisskip- un þeirra, auglýsingakenndum fyrirsögnum, o. s. frv. Vafalaust er margt af þessu til bóta og fyrir- greiðslu lesendum um að finna þeirra sérstöku áhugaefna — eða að m. k. fyrirsagnir þeirra og upp- höf. En þetta gengur í öfgar, jafn- vel hættulegar öfgar, þegar sam- hengi næstum hverrar ritgerðar eða frásagnar er rofið með því að búta hana niður, og setja bútana jafn- vel niöur á þrem stööum i einu og sama blaöi. Þetta hæfir ef til vill þeirn blaðlesendum, sem ekki kæra sig um að lesa nema fyrirsögn og upphaf hvers umræðuefnis, en hin- um kemur það í illt skap að þurfa að leita að framhaldi, ýmist aftur eða fram í sundurlausum blöðum, sem eru 8—16 blaðsíður. Það bætir síst um, að engar prentvillur eru tíðari, en að skakkt sé vísað til um framhaldið — og víst er það ekki svo sérlega fágætt, að framhaldiö sé hvergi að finna! Það hefir sennilega einhverja kosti, gagnvart setningu blaða og efnisniðurröðun, að grípa til þess að skipta ritgerðum og frásögnum innan eins og sama tölublaðs. En að öllu má of mikiö gera, og þegar svo langt er gengiö í þessu, að úr verður tilgangslaus grautargerð, sem gerir athugulustu lesendum blaöanna gramt í geði, þá er mál til komið fyrir þá, sem að blaða- útgáfum standa, að taka í taum- ana. Ekki munu heldur þeir, sem senda blöðum eitt eða annað til birtingar, vera þeim þakklátir, ef niðurlagsorðunum, sem oft hafa að geyma ályktarorð eða áherzlu- atriði þess, sem um er rætt, er hol- að niður á einhverjum afviknum stað í blaðinu, þar sem þau ýmist eru torfundin eða fara algerlega framhjá öðrum en þeim, sem hafa alveg sérstakan áhuga fyrir því um ræðuefni. Hvorn lesendahópinn á að meta meira? Sennilega er engin tegund hand- hafabréfa útbreiddari hér á landi, eða í fleirri manna eigu, en skulda- bréfin í happdrættisláni rikissjóðs sem út voru gefin á síðastliðnu hausti og aftur í byrjun þessa árs. Trúlega eru þau í margra þeirra höndum, sem enga reynslu hafa af varðveizlu verðbréfa, né heldur vitneskju um, hversu titt það er, milli árs og dags, að verðbréf glat- ist eða eyðileggist af slysum, svo sem við eldsvoða o. fl. Eflaust er þó mörgum kunnugt um að ýms verð- bréf og innstæðuskírteini má fá ó- gilt með dómi, ef þau glatast, þann ig, að ný útgáfa af þeim hafi sama gildi og hin fyrri. Þetta nær þó ekki til nefndra bréfa í happdrættis láni ríkisjóðs. Er þvi hvert felikt bréf sem tapast eða eyðileggst, jafn glatað eigandanum og venjulegur peningaseðill væri. Þó fyrirvari um þetta sé að vísu prentaður á hvert skuldabréf, er þó ástæða til að minna menn á, hversu um þetta er háttað, og hvetja þá til að geyma bréfin þar sem þau eru vel tiltæk, ef slys ber að höndum, séu þau þá ekki geymd á eldtraustum stað.“ Þau tíðindi gcrðust á Alþingi síðustu daga vetrarins að á þriðju- daginn kom Ólafur Thors með skrifaða ræðu á þingfund en á miðvikudaginn séttist hann í sæti það, sem honum ber í fundarsal, en hvorugt þetta mun hafa komið fyr- ir áður síðan Ólafur lét af ráð- herradóm'i En ástæðan til þess, að Ólafur settist í stól sinn, var sú, að amerískir blaðamenn ætluðu aö taka mynd af þingfundinum. Þetta finnst mér rétt að geymist á prenti, þó að ekki verði fært í Alþingis- tíðindi. Kuldalega þykir mönnum sum- arið byrja, en enginn þarf að vera í vafa um það, að saman hafi fros- ið vetur og sumar að þessu sinnl, en það þótti löngum vera góðs viti og boða það, að gott yrði undir bú á komandi sumri, hvað sem nú er oröið. Starkaður gamli Þökkum innilega alla samúð okkur auðsýnda við útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa, Hafliða JSaldvinssoiiar. Sömuleiðis þökkum við hjartanlega prófessor, læknum og hjúkrunarltonum Landsspítalans fyrir sérstaklega góða hjúkrun og lipurð. Ég bið Guð að launa ykkur öllum. Jóna H. Friðsteinsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Alúðar þakkir fyrir auðsýnda hluttekningu við and- lát og jarðaför fósturmóður minnar, Sigríðar Magmisdóttur. Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda. Sigurður ísólfsson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.