Tíminn - 22.06.1949, Side 3

Tíminn - 22.06.1949, Side 3
130. blað TÍMINN, miðvikudaginn 22. júní 1949. 3 íÞRÓTTIR ýj/ahcfjpictit: Fram—K.R. 2:2 Sjötti leikur fslandsmótsins fór fram á mánudagskvöld Fram og K.R. gerðu jafntefli 2:2 eftir mjög skemmtilegan og spennandi leik. Hraði og kraftur einkenndi bæði liðin, og voru háar langar spyrnur ráðandi, en lítið sást um stuttan samleik. Eftir þennan leik er enn meiri óvissa með úrslit' mótsins, því öll félögin hafa möguleika til að hljóta íslands- ; meistaratitilinn og hver leikur sem eftir er, er úrslitaleikur. faanaqrimd wi yrœnan kaíftu Þar sem lýðræðið grær Fyrri hálfleikur 0:0 K.R. mætti með sitt sterk- asta lið, en Fram vantaði Karl Guðmundsson og lék Guðmundur bróðir Karls í hans stað, einnig lék Her- rnann með og er þetta fyrsti leikur hans í meistarafl. í ár. Þessi hálfleikur var mest þóf á miðju vallarins og lítið sást af fallegri knattspyrnu. Fram liðið lék þó mun betur, en framlínan var ekki nógu sam virk og ákveðin í upphlaupun um. Aftur á móti var eins og leikmenn K.R. finndu aldrei hvern annan og var liðiö mj ög sundurlaust og óþekkjanlegt frá Víkingsleiknum. Eina hættulega upphlaupið í fyrri hálfleik var þegar Rikarð hafði tekist að brjótast gegn um K.R.-vörnina, en spyrnti framhjá markinu. Um miðj- an hálfleikinn varð Óskar Sigurbergsson, hægri útherji Fram, að yfirgefa völlinn og kom Guðm. Jónsson í hans stað. Seinni hálfleikur 2:2 Seinni hálfleikur var mjög skemmtilegur og var eins og leikmenn hefðu verið að spara sig, fyrr í leiknum, undir loka átökin. Framarar sóttu fast og á 12. mín. tókst Guðm. Jónss. að skora fyrir Fram, með glæsilegu skoti frá víta- teig. Mikil harka komst í leik inn við markið og á 25. mín. tekst Ól. Hannessyni að skora fyrir K.R. úr þvögu. Fram er þó alltaf meira í sókn, sérstak lega eru framverðirnir ásamt Ríkarði virkir. Á 30. mín. fær Fram horn á K.R.. Guðm. Jónsson spyrnir vel fyrir markið og Þórhallur skallar óverjandi í mark. Stuttu síð- ar kemst Þórhallur frír að K.R. markinu, en skaut í þverslána. Á 38. mín. dæmir annar línuvörðurinn auka- spyrnu (mjög vafasamt) á Fram, rétt fyrir utan vítateig. Ól. Hannesson spyrnir fyrir markið og eftir nokkrar stympingar liggur knöttur- inn í Frammarkinu, og mun Gunnar Guðmannsson hafa skorað. Það sem eftir var leiksins sótti Fram ákaft, en K.R. hugsaði aðeins um að halda jafnteflinu. Framliðið féil nokkuð vel saman. Fram- verðirnir Kristján og Sæ- mundur voru mjög duglegir þó uppbygging þeirra á leikn um væri ekki alltaf sem bezt. Ríkarð var bezti maður liðs- ins og notaði samherjana mun betur nú en í fyrri leikj- um. Guðm. Jónsson er mjög efnilegur leikmaður og Ósk- ar Sigurbergsson átti ágætan leik meðan hans naut við. K^R. liðið var mjög sundur- laust. Vörnin var betri helm- ingur liðsins og var Daníel mjög traustur. Óli B. var óvenjulega slappur og réð ekkert við Ríkarð. Framlínan náði aldrei góðum leik. Har- aldur Einarsson, var sá eini sem reyndi að sameina hana en án árangurs. Dómari var Hrólfur Benediktsson. H. S. Erlendar fréttir Við þorpið Hilleröd á Norð- ur-Sjálandi stendur höllin Friðriksborg. Hún er kennd við Friðrik konung II., sem fyrstur byggði hana en ann- ars hefir hún verið byggð upp aftur og aftur, því' að sumir vildu breyta einhverju og auk þess varð þar tjón af elds- voðum eins og víðar. Síðast brann höllin á dögum Frið- riks VII. litlu eftir að greif- inna Danner var þar gift honum til vinstri handar eins og það var kallað, þegar kon- ungar stofnuðu til hjúskap- ar við kvenmenn, sem stóðu of nærri borgaralegri alþýðu til að mega verða drottning- ar þeirra. rl' Höllin, sem gerð var að þjóðminjasafni. Það drógst nokkuð að höll- in yrði endurreist, og stöðv- aðist verkið vegna þess, að þurrð varð í fjárhirzlu ríkis- ins. Því var það, að eigandi Gamla Carlsbergs bauðst til að leggja fram stórfé til bygg ingarinnar, 200 þúsund krón- ur — gegn því að höllin yrði gerð að þjóðminjasafni. Því boði var tekið og nú er þarna merkilegt safn. Safnið í Friðriksborg er fyrst og fremst bundið við konungia Danmerkur. Þar eru myndir úr sögu þeirra og þar er mikið af konunglegum hús gögnum og skrautgripum. Hið raunverulega þjóðminja- safn Dana með minjum og myndum frá atvinnulífinu sjálfu, er annars staðar. Það er sjóminjasafnið í Krónborg, deild í National Museum í Kaupmannahöfn og Frilands- museet í Lyngby í Kaup- mannahöfn, þar sem sýnd eru alþýðleg íbúðarhús og áhöld fyrri alda. Þarna sjá menn þau tæki og vígi, sem báru uppi danska þjóðmenn- ingu og sögu frá kyni til kyns eins og hún mótaðist af starfi og trúmennsku alþýðunnar, Skúli Guðmundsson setur nýtt met. Skúli Guðmundsson setti s. 1. sunnudag nýtt íslenzkt met í hástökki, á móti í Kaup- mannahöfn, stökk hann 1.95 m og var það mesta afrek mótsins. Gamla metið, 1.94, átti Skúli, sett 1946. Næstu tveir menn í hástökkinu stukku 1.80 m. Aðrar greinar mótsins fóru þannig: 100 m: K. Schisby 10.9 og Sven Fallesen 11.0. Stangarstökk: R. Stjernild 3.90 m. Þrístökk: Preben Larsen 14.69 m. Spjót- kast: H. Helmersen 59.63 m. 1500 m hlaup: Poul Nielsen 3:57.6 mín. Langstökk: Preben Larsen 6.65 m. 5000 m hlaup: Aage Poulsen 14.45.6 m. — Sleggjukast: G. Christensen 51.81 m. Fjórir köstuðu yfir 50 m. 400 m hlaup: Frits Floor 50.4 sek. 110 m grindahlaup: Erik Nissen 15.3 sek. Alls hlupu sex menn innan við 16 sekundur. Kringlukast: J. M. Plum 44.54 m og Kúluvarp: Poul Larsen 13.55 m. 29. og 30. júní fer fram landskeppni í frjálsum iþrótt- um í Kaupmannahöfn milli Noregs og Danmerkur. Danmörk vann Pól- land 2:1 Danir unnu Pólverj a í lands- leik í knattspyrnu s. 1. sunnu- dag. Leikurinn var mjög harð- ur en ekki vel leikinn. Pól- verjar voru mikið betri í fyrri hálfleik, sem þeir unnu með 1:0. Aftur á móti náðu Danir sér á strik í seinni hálfleik og tókst að skora tvö mörk. Það fyrra skoraði Rechendorft, en hið síðara Lundberg. Danski markmaðurinn Egil Nielsen stóð sig mjög vel og sérstak- lega voru útspörk hans góð og skoraði Rechendorft, eftir eitt slíkt útspark, sem lenti inn í vítateig Pólverjanna. Júgóslafar unnu Norð- menn 3:1 í landsleik í knattspyrnu 1 Noregi. í liði Júgóslafa voru átta leikmenn, sem léku á Olympíuleikunum, en sem kunnugt er, urðu Júgóslafar nr. 2 á Olympíuleikunum. — í leiknum við Norðmenn voru Júgóslafar alls ráðandi á vell- inum, en markmaður Norð- manna, Torgeir Torgersen varði frábærlega vel. Svíþjóð : Ungverja- land 2:2 Svíar og Ungverjar léku landsleik i knattspyrnu í Stokkhólmi s. 1. sunnudag. Ungverjarnir léku mjög vel saman og flýtir þeira var mjög mikill. Þeir skoruðu bæði sín mörk á undan Svíum, en þeg- ar tók að líða á seinni hálf- leik voru Svíarnir úthalds- betri og tókst að jafna leikinn. Bezti liðsmaður Svíanna var Knut Nordahl (bróðir Gunn- ars og Bertils, en þeir keppa sem kunnugt er með ítalska knattspyrnuliðinu Milan). Milan vill losna við Albert. ítalska knattspyrnuliðið Milan, sem er á keppnisför um Norðurlönd, vann danskt úr- valslið í s. 1. viku með 6:2. í Milan léku tveir Danir, John Hansen og Carl Aage Hansen, einnig tveir Svíar, Bertil og Gunnar Nordahl. Albert Guð- mundsson hefir leikið meö Milan um skeið, en fór ekki í Norðurlandaförina. Nú vilja forráðamenn Milan losna við Albert og eins Bretann Sloan (lék áður með Arsenal) en i staöinn ætla þeir að ráða Svi- ann Gunnar Gren og Danann C. Aage Hansen. þar sem hún stundaði frið- samlega lífsbaráttu sína. Virðuleg grafmerki. En konungarnir hafa verið dönsku þjóðinni annað og meira en tildur og toppfígúr- ur. í dómkirkjunni í Hróars- keldu eru flestir konungarnir af Aldinborgarætt lagðir til hinnztu hvíldar. Ekki verður sagt, að það hafi alltaf ver- ið gert af látleysi gagnvart dauðanum. Á kistuloki kóng- anna sumra er líkan af þeim sjálfum í fullri stærð, eins og hann liggur á sóttarsseng- inni. En þakið yfir því minn- ismerki er borið uppi af fjór- um súlum og við hverja súlu er líkan af riddara með al- væpni. Og á efri hæðinni er líkneski konungs, þar sem hann krýpur á kné og gerir bæn sína frammi fyrir frels- ara sínum á krossinum. Til hliðar eru svo kvenlegar ver- ur sem tákna lönd konungs harmi þrungin eða einhverj- ar sérstakar dyggðir, sem bundnar eru sögu hans. Svo stórfengleg smíði hefir verið gerð, sem grafmerki sumra konunganna. Og þó aö oft væri gengið nærri alþýðu landsins við að byggja látn- um og lifandi konungum til lofs og dýrðar, er það þó stað reynd, að þjóðin öll hefur til- einkað sér þessi verk þannig, að þau eru þjóðarverðmæti. Og það er undarlegt að finna þessar gömlu erfðir í landi lýðræðissinna og þeirrar al- þýðu, sem er fyllilega með- vitandi um rétt sinn og þýð- ingu. Það sama fólk, sem læt- ur sér fátt finnast um veizlu- höld og viðhafnarlæti ein- kennisklæddra og -krossaðra tignarmanna er bundið sterk um tengslum við erfðir og minnismerki höfðingjavalds- ins á liðnum tímum þegar það var ög hét. Á kóngsins nýja torgi. Á kóngsins nýja torgi hefir hin fræga stytta Kristjáns konungs fimmta staðið í meira en 200 ár. Konungur- inn situr á hesti sínum en undir hestinum liggur sigr- aður maður, ráðþrota og bug- aður með kvalasvip á and- litinu meðan sigurvegarinn stefnir áfram. Þessi mynd er minnismerki um liðna tíð. Hún er mótuð af þeirri til- finningu, að leið sigurvegar- ans og valdsins þekki hvorki vægð né miskunn. Hefðin byggist á niðui'lægingu og þjáningu hinna máttarminni. Þannig var gert hátíðlegt minnismerki af þjóðhöfð- ingja Dana fyrir röskum 200 árum. Þannig átti þjóðin að sjá konungsvaldiö og læra að virða það og treysta því. Það er hægt að færa mörg rök að því, að ennþá sé mann eðlið eins og það var, og þessa gamla anda gæti enn með ýmsum hætti. Það hefir ekki orðið nein gjörbreyting á manneðlinu síðustu tvær aldirnar. En hugarfar og hjartalag fólksins hefir ver- ið ræktað á annan hátt. Og Kaupmannahöfn á ýms minn ismerki frá síðustu öldum, sum • konúngleg, — þar sém sýnd er sú starfsemi ýmis- konar, sem verndar hinn veik- ari gróður og hjálpar til eðli- legs þroska. Danmerkur saga hin nýja. Nathalia Zahle var dugleg og mikilhæf kona, sem helg- aði líf sitt því starfi að veita ungum stúlkum kost á mennt un og skólagöngu áður en skólaskylda komst á í Dan- mörku og konur nutu jafn- réttis við karlmenn. Nú er skóli hennar rekinn sem helg úr minjagripur þjóðarinnar og minnismerki hennar rís yf ir þaki hans, þar sem tilsögn og leiðbeining kennslúkön- unnar er sýnd hinni miklu konu til lofs. Á einu torgi borgarinnar eru minnismerki - um þann þjóðhöfðingja, sem gaf þjóðinni fræðslulög og skóla. Slík er þróunin' orðin. ^ Þetta er saga Danmerkur. Án allra byltinga og ofbeldis- fullra ógnaraðgerða hefir danska ríkið þróast frá minn ismerki Kristjáns V. á kóngs ins nýjá torgi áð minnisi'nerki Nathalíu Zahle. Það er leiðin frá hnefarétti og ofbeldi, sem byggir á kúgun og vægðar- lausri niðurlægingu, að því lýðræði, sem metur mest þau störfin, að hjálpa öllum til þroska. Þetta er meðal ann- ars saga lýðréttinda og þing- ræðis í Danmörku. Og þetta er saga hinnar frjálsu og al- þýðlegu menningar lýðræðis- J ins í öllum þeim löndum, sem ,hafa borið gæfu til að vera lýðræöislönd. Og það er þetta, sem er prófraun allra lýðræðissinná. Vilja þeir fara sigurveg Krist jáns V. yfir hinn fallna and- stæðing, eða óska þeir þess að geta orðið öðrum til hjálp- ar til að ná þeim þroska, sem þeim er eiginlegur? Saga dönsku þjóðarinnar sýnir blessun þess hugarfars, að vilja hjálpa í stað þess að troða undir. Það hugarfar ein kennir og ber uppi menningu Norðurlanda. H. Kr. Fasteignasölu- miðstöðin Lækjargötu \ 10B. Sími 6530. Annast sölu lastelgna, skipa, bifreiða o. fl. Enn- fremur alls konar trygging- ar, svo sem brunatryggingar, lnnbús-, llftrygglngar o. fl. I umboði Jóns Finnbogasonar hjá Sjóvátrygglngarfélagl ís- lands h.f. Vlðtalstlml alla virka daga kl. 10—5, aðra tima eftir samkomulagi. Ten.gill h.f. RafvélavLðgerbir Heiði v/ Kleppsveg Sími 80694. i SUMARFRllN eru að hefjast. Ómissandi ferða- félagi er ánægjuleg bók. Várla getur skemmtilegri sögubók en bók Sumarútgáfunnar „Á VALDI ÖRLAGANNA". Fæst hjá Eymundsen. v

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.