Tíminn - 22.06.1949, Side 8
33. árg.
Reykjavík
22. júní 1946
130. blað
Stúdentarnir heim-
sóttu Hafnarfjörð
og Bessastaði í gær
Á sunundaginn var fóru
þáUtakendur norræna stúd-
entamótsins austur að Gull-
fossi og Geysi. Var beðið eftir
gosi við Geysi og dvalið við
ýmsar skemmtanir, og að íök-
um heiðraði Geysir gestina
með forkunnar fögru gosi, sem
vakti mikla aðdáun erlendu
stúdentanna. Síðan var haidið
að Laugarv3,tni og snætt þar
og staðurinn skoðaður. Var
för þessi öll hin ánægjuleg-
asia.
í fyrradag skoðuðu stúdent-
arnir Háskólann og um
kvöldið efndu deildir Háskól-
ans til fagnaðar fyrir erlendu
gestina hver í sínu lagi.
í gær fóru stúdentarnir til
Hafnarfjarðar og sátu þar boð
bæjarstjórnarjnnar og skoð-
uðu sig um í bænum að því
búnu. Kl. 3 var komið til
Reykjavíkur og flutti dr.
Steingrímur J. Þorsteinsson
þá erindi á mótinu. Klukkan
4.30 heimsóttu stúdentarnir
Bessastaði og í gærkvöldi voru
þeir við sýningu á Gullna-
hliðinu.
Erlendu stúdentarnir eru
hinir ánægðustu með þetta
mót, enda hefir það farið á-
gætlega fram til þessa. Þátt-
t'aka íslenzkra stúdenta í
mótinu varð að lokum góð, en
framan af báru menn nokk-
urn ugg í brjósti um það, að
svo mundi ekki verða.
Fénaðarhöld í með-
allagi í Dýrafirði
í fréttabréfi úr Dýrafirði
sem skrifaö er um miðjan
þennan mánuð segir á þessa
leið um tíðarfar, skepnuhöld
o. fl.
Ærfénaði var sleppt hér í far
dögum eða um hvítasunnuna.
Lambahöld eru í meðallagi
og lambadauði ekki mikill þeg
ar tekið er tillit til veðurfars-
ins og að flestar ærnar báru
inni. Víða er mikið tvílembt,
eða um helmingur ánna og
meira sums staðar. Tún eru
nú fyrst búin að fá grænan lit
en úthagi sýnist hvítur enn.
Er þó kominn nokkur gróður
innan um sinuna og fé borg-
ið. Byrjað er að láta út kýr
og flestir eiga hey enn þá til
að gefa þeim með. Hafa þær
ekki gelzt síðan farið var að
láta þær út.
Flestir bændur á þessum
slóðum gátu af sjálfsdáðum
géfið öllu fé hey fram í far-
daga með talsverðri matar-
gjöf. Má því segja, að hér hafi
ekki sorfið verulega að, þrátt
fyrir eindæma kulda.
Þessa dagana er verið að
setja niður í garða og eru þeir
klakalausir. Jarðabótavinna
er byrjuð fyrir nokkru og
klaki í jörð ekki orðinn til
trafala. Tún virðast algerlega
ókalin og komi nú dögg og
hlýja munu þau geta sprott-
ið sæmilega.
Gemlufallsheiði var rudd
um siðustu helgi en er þó enn
ófær bifreiðum. Á Breiðadals-
heiði er enn mikill snjór.
Hcstum þykir gott að láta kióra sér um vangann, og það cr líka
eins og þeir haldi oft, að grasið utan við girðinguna sé betra en þaö
sem nni í henni vex. Þessir dönsku hcstar eru að teygja sig cftir
grastoppi út fyrir girðinguna og fá um leið ofurlitlar gælur
hjá vegfarendum.
„Líkast kraftaverki, hve
landið grær vel og fljótt
úr öskunni”
Rætt viSV€í0)ii,
dal, iiiHí'ta Dauniin í Fljjótslalítg
Sigfússon, bónda í Fljjóts-
, Isar scm
vikifi'faÍISð frá ffeklug'osfnu vnrð
einua mest.
þótt hin eiíístæðu vorðharðindi hafi haldið mestum
hluta landsins í.heljargreipum þar til fyrir skömmu munu
til sveitir, þar gem vorið hefir verið allt að því í meðal-
iagi hvað snerí^r skepnuhöld, veðráttu og gróðurfar. Svo
mun það að mijfinsta kosti vera í innhluta Fljótshlíðarinn-
ar. Tíðindamaðiir blaðsins átti í fyrradag tal við Guðmund
Si^'ússon bónda ’í Fljótsdal, innsta bænum í Fljótshlíð, en
þar var vikurfállið frá Heklugosinu einna mest og allar
líkur virtust íi^feipdauðn þar eftir gosið. Nú hefir úr þessu
Árangur fjórveldafundarins
lítill en samkomulags-
leiðir opnar
Ráðherrarnlr g'áfu stjórimm síiium
skýrslu um störf fundarins I gær.
Blöð um allan heim ræddu í gær fund utanríkisráð-
herra fjórveldanna sem nú er lokið. Yfirleitt telja menn að
með fundinum hafi náðst nokkur árangur en þó ekki eins
mikill og margir gerðu sér vonir um áður en fundurinn
hófst.
rætzt svo að
grasvöxtur
Fé er einni
sumri, en ,þj
landsins.
iaverki gengur næst, sagði Guðmundur, og
er nú orðinn þar svo að nálgast meðalár.
lega fram gengið og var sleppt viku af
fannkyni og stórhríðar um rnikinn hluta
Á fundi sem utanríkisráð-
herrarnir héldu, áður en þeir
skyldu gerðu þeir með sér
samkomulag í öllum aðalatrið
■ um varðandi friðarsamning-
ana við Austurríki. Hefir mik
ið verið um það deilt hvort
; Rússum ætti að leyfast að
flytja úr landi hagnað af fyr
irtækjum sem þeir koma á fót
í landinu. Varð að samkomu-
lagi að sendiherrar viðkom-
andi ríkja sem ganga eiga frá
friðarsmningum við Austur-
ríki komi sér saman um á-
greining þennan.
Annars eiga fulltrúar utan
ríkisráðherranna sem eiga að
koma saman á fund siðast i
júlí-að gera uppkast að frið-
arsamningunum og hafa lok-
ið því fyrir byrjun september
mánaðar.
Bevin utanríkisráðherra
Breta er kominn til London.
í gær gaf hann Attlee for-
sætisráðherra skýrslu um
ráðherra fundinn. Telur hann
að all mikil árangur hafi
náðst og dyr séu nú opnar til
samkomulags um aðaldeilu-
málin.
Heimsblöðin ræddu annars
mikið niðurstöður ráðherra-
fundarins og voru ummæli
þeirra all misjöfn. Yfirleitt
gætir ekki mikillar bjartsýni.
Rússneska blaðið Pravda
telur að miöað hafi í sam-
komulagsátt, en New York
Times leggur áherzlu á að
enn hafi ekki náðst samkomu
lag um þýðingarmestu deilu-
atriðin.
Samvmnuhefti um
Samvinnuskólann
Tímaritið Samvinnan apríl
og maí heftið er komið út í
einu lagi. Er ritið vandað að
öllum frágangi eins og að
vanda, enda má fyllyrða að
Samvinnan sé skemmtileg-
asta og vandaðasta tímarit
sem gefið er út hér á landi.
Er ritið í höndum Hauks
Snorrasonar ritstjóra þannig
úr garði gert að það stenzt
fyllilega samanburð við beztu
erlendu tímarit, bæði að efni
og frágangi.
Þetta nýja hefti er með
nokkru öðru sniði en Sam-
vinnan venjulega. Er það ein
göngu helgað Samvinnuskól-
anum á þrjátiu ára afmæli
hans. Eru í ritinu orðsending
ar frá miklum fjölda gamalla
nemenda, skýrsla um afmælis
hátíð skólans í Reykjavík síð
astliðinn vetur og loks aðal
ræðurnar sem þar voru flutt-
ar. Þeir Leifur Haraldsson og
Baldvin Þ. Kristjánsson erind
reki Sís hafa safnað efni til
ritsins.
Eftir Heklugosið lá vikurinn
í hrönnum og breiðum yfir
öllu landi á þessum slóðum og
var varla annað sýnilegt en
auðn mundi verða þar næstu
árin.og bændur verða að flýtja
burt af jörðuni sínum. Mun-
aði og minnstu að svo yrði.
Fimm mánuðum áður en
Heklugosið hófst, hafði ungur
bóndi, Guðmundur Sigfússon,
keypt Fljótsdal, innstu jörð-
ina í Fljótshlið.ífyrir 45 þús.
krónur. Var útlitið því ekki
glæsilegt fyrirllionum eftir
Heklugosið, er svo virtist sem
hann yrði að Hv’gi'fa frá jörð-
! inni eyddri. Nú hefir úr þessu
I rætzt og allt fárJð betur en á-
I horfðist.
Mikill snjór í vetur.
— Var ekki jpikill snjór í
Fljótshlíð í vetu|?
— Jú, hann var mjög mikill
en annars má segja að vorað
hafi sæmilega hjá okkur. Það
hefir rignt meira hjá okkur í
innri hluta hlíþarinnar en
annars staðar. Viku af sumri
var byrjað aö gróa og var fé
sleppt inn á fjal^yiku af sumri
og hefir það gengið vel fram.
Margt ánna var-tvílembt og
lömbin hafa dafnað vel.
Góður grasstofn,
Grasstofn á túnum og út-
högum er nú orðinn góður að
kalla og líður va,rla mjög langt
þangað til hæ§t verður að
fara að slá ef verður góð
næstu vikur. |örðin virðist
gróa undarlegá vel undan
vikrinum, og hefðu fáir trúað
því, að hún mundi ná sér svo
fljótt eftir þá auðn, sem við
blasti eftir gosið-
Vikurinn ágætt bygg-
ingarefni.
— Hefir þú ekki reynt að
nota vikurinn í byggingar?
— Jú, ég hefi steypt all-
mikið af einangrunarplötum
úr honum og reynist hann af-
burða vel í þær; Eru þær bæði
sterkar og góðör einangrari.
Auk þess hefir Yerið reynt að
nota vikurinn lausan sem tróð
milli þilja í timburveggjum
húsa, aðeins 'hieð því að
þjappa honum saman og hefir
það reynzt ótrúlega vel. Ég
hefi einnig notað hann sem
venjulegt steypuefni í veggi og
virðist hann ágætur til þess.
Það er ánægjulegt til þess
að vita, hve vel hefir rætzt úr
fyrir Guðmundi í Fljótsdal —
og vonandi flestum öðrum
bændum á þessum slóðum —
og hefðu fáir trúað því fyrir
tveim árum. í Fljótsdal eru
nú í vor um 130 lembdar ær,
og þaðan var hægt að láta um
tvær smálestir af heyi í vor
til að bæta úr þörf í öðrum
landsfjórðungum. Það er gott
til þess að vita, að bændur á
þessum slóðum skuli nú upp-
skera góð laun fyrir þá þraut-
seigju og hugrekki að gefast
ekki upp, þegar auðnin ein
virtist blasa við.
Kínverskar stjórn-
arflugvélar ráðast
á brezk skip
Brezka stjórnin hefir lagt
fram harðorð mótmæli við
Koumintangstjórnina í Kína
vegna þess atburðar að her-
flugvélar frá stjórninni réð-
ust á brezkt skip sem var í
friðsamlegum erindagerðum.
Réðust fjórar orrustuflugvél-
ar á skipið fyrirvaralaust.
Sauðurinn gekk af
Fyrir rúmlega hálfum mán-
uði fundu Fljótshlíðingar
fjögurra vetra gamlan sauð,
sem gengið hafði af í vetur.
Ekki er vitað, hvar sauöurinn
muni hafa haldið sig í vetur,
því að hann sást ekki fyrr en
hann var kominn saman við
heimafé. Sauður þessi var
heima í fyrravetur, Það mun
að líkindum eklci hafa verið
víða, sem fé hefir gengið af í
vetur, þótt slíkt komi fyrir
flesta sæmilega vetur.