Tíminn - 25.06.1949, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur i Edduhúsinu <
Fréttasimar:
81302 og 81303 !
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasimi 81300 <
Prentsmiðjan Edda
33. árg.
Reykjavík, laugardaginn 25. júní 1949.
133. blað
Sjötta uppeldismálaþing
S.Í.B. hófst í gær
Þin^ið er fjöfmeimt, og sækjja það auk
kcnnara margir prestar, sem koðnir voru
á það ásamt liaraaverndariiefiwliim.
Sjötta uppeldismálaþing Sambands ísl. barnakennara
var sett í kennaraskólanum kl. 10 í gærmorgun. Formaður
sambandsins, Ingimar Jóhannesson kennari setti þingið
með ræðu, en síðan flutti Bjarni Ásgeirsson ráðherra ávarp
til þingsins fyrir hönd menntamálaráðherra, sem var fjar-
staddur.
Fyrsti forseti þingsins var
kosinn Eiríkur Sigurðsson
kennari á Akureyri en aðrir
forsetar þess Sveinn Gunn-
laugsson skólastjóri á Flat-
eyri og Gunnar Guðmunds-
son yfirkennari í Reykjavik.
Ritarar þingsins voru kosnir
Sigfús Jóelsson námsstjóri,
Guðmundur Pálsson kennari
og Jónas Eysteinsson kenn-
ari.
Klukkan 11 í gær flutti dr.
Matthías Jónasson annað að-
alerindi þingsins og fjallaði
það um manngildi afbrota-
unglinga. Kl. 14 var flutt hitt
aöalerindið eftir Símon Jó-
hann Ágústsson, prófessor, og
flutti Sigurður Magnússon
kennari það í forföllum pró-
fessorsins. Fjallaði það um
starf og starfsskilyrði barna-
verndarnefnda. Að því loknu
svaraði Matthías Jónasson
spurningum varðandi erindi
sitt og stóðu umræður til kl.
18. Að því loknu skoðuðu þing-
gestir sýningu handíðaskólans
í Listamannaskálanum og
fylgdi Lúðvig Guðmundsson
skólastjóri gestum um sýning-
una en Kurt Zier flutti stutt
erindi um teikningu barna.
Þingið hefst kl. 10 f. h. í
dag og kl. 14 flytur frú Bodil
Begtrup, sendiherra Dana
hér á landi, erindi um barna-
vernd Sameinuðu þjóðanna,
en því máli er frúin vel kunn.
Á sunnudaginn munu þing-
gestir verða við guðsþjónustu í
Dómkirkjunni. Séra Jakob
Jónsson prédikar og er ræðu-
efnið útburður barna á vorri
öld.
Á mánudaginn munu þing-
gestir fara til Þingvalla og
sitja þar hádegisverðarboö
menntamálaráðherra og fara
þingslit þar fram.
Fundur fjármála-
ráðherra í París
Fjármálaráðherrar Breta,
Frakka og Benelux-landanna
munu koma saman til fundar
í París næsta miðvikudag.
Munu ráðherrarnir þá ræða
og útkljá mál, er ekki varð
lokið á fundinum í Brússel
um daginn varðandi efna-
hagslega samvinnu þessara
landa og fjármálalega afstöðu
til Þýzkalands í framtíðinni.
Að þessu þingi stendur
Barnaverndarráð íslands auk
S.Í.B. Einnig er prestum og
barnaverndarnefndarmönn-
um sérstaklega boðið á þingið.
Margir prestar eru staddir hér
í bænum um þessar mundir,
þar sem prestastefnunni var
að ljúka, og eru því margir
þeirra á þinginu. Þingið er
mjög fjölmennt og má vænta
hins mesta af störfum þess.
Aðalverkefni þingsins er að
ræða barnaverndarmál.
Biðja um samúð-
arverkf all
Járnbrautarstarfsmenn í
Berlín hafa sent starfsbræðr-
um sínum í Frankfurt tilmæli
þess efnis, að þeir geri eins-
konar samúðarverkfall þeim
til stuönings, þannig að þeir
afgreiði ekki járnbrautarlest-
ir sem fara eiga yfir á her-
námssvæði Rússa í Berlín eða
austan hennar.
Framkvæmdanefud
Stórstúkunnar
kosin
Á fundi Stórstúkuþingsins í
gær var kosin framkvæmda-
nefnd Stórstúkunnar fyrir
næsta ár og er hún þannig
skipuð:
Stórtemplai’, sf. Kristinn
Stefánsson. Stórkanzlari sr.
Björn Magnússon. Stórvara-
templar Sigþrúður Péturs-
dóttir. Stórritari Jóhann Ögm.
Oddsson. Stórgjaldkeri Bjarni
J. Pétursson. Stórgæzlumaður
unglingastarfs Þóra Jónsdótt-
ir. Stórgæzlumaður löggjaf-
arstarfs Haraldur Norðdahl.
Stórfræðslustjóri Indriði Ind-
riðason. Stórkapellán Sigfús
Sigurhjartarson. Stórfregn-
ritari Gísli Sigurbjörnsson.
Fyrrverandi stórtemplar Frið
rik Á. Brekkan. Umboðsmað-
ur hátemplars Jón Árnason.
í gærkvöldi snæddu full-
trúar á þinginu kvöldverð að
Jaðri í boði Þingstúku Reykja
víkur. Þinginu verður slitið í
dag.
Fyrir stuttu síðan var tekin í n >tkun endurbyggð brú yfir ána Mainz í Frankfurt. Brú þessi
var sprengd á stríðsárunum cn hefir nú verið endurbyggð. Þegar brúin var opnuð fóru fram
margs konar hátíðaliöld í þessu borgarhverfi. Meðal þeirra fyrstu, sem gengu yfir brúna, var
flokkur vinnukvcnna og þar á eftir sótarar. Vinnukonurnar báru spjöld fyrir sér og á þeim
stóð: Til hamingju.
Norsku skQgræktarmennírn-
ir telja mikla skógræktar-
moguleika hér á landi
Hafa unitið að gróðnrsctningu sunitan
lamls og norðan og fara heim til Korea>
nteð flugvél á morgun.
Norsku skógræktarmennirnir sem komu hingað í byrj"
un þessa mánaðar áttu að koma til Reykjavíkur í gær-
kvöldi norðan úr landi. Hafa þeir unnið að gróðursetninga!
trjáplantna víðs vegar um landið, skoðað sig um og kynnsí;
landi og þjóð. Fara þeir til Noregs á morgun en í dag erœ
íslenzku skógræktarmennirnir væntanlegir frá Noregi. Eiíi
þó að þessari för sé þar með lokið lifir minningin um har &
áfram í hjörtum þeirra sehi tóku þátt í henni og norsk ■
ar plöntur settar í íslenzka mold af norskum höndum rísa
sem minnisvarði um vináttu bræðraþjóðanna beggja meg-
| Sækið vormótið |
I í Reykholti |
1 á morgun j
i Vormót ungra Framsókn |
I armanna í Mýra- og Borg \
i arf jarðarsýslum er í Reyk |
1 holti á morgun. Hefst mót f
f ið með því að stofnað verð I
| ur félag ungra Framsókn- I
f armanna er nær yfir þess- f
| ar sýslur báðar. Á þeim |
f fundi mun Haukur Jör- i
| undsson kennari á Hvann- f
I eyri mæta. Hefst fundur- f
i inn kl. 2 e. h.
I Að loknum stofnfundin- f
f um hefst almenn skemmti f
f samkoma. Þar flytur Stein |
f grímur Þórisson ræðu. Önn i
f ur skemmtiatriði verða |
f þau, að Brynpólfur Jóhann f
f esson leikari les upp og Sig \
f urður Ólafsson syngur með f
| undirleik Árna Björnsson- 1
f ar píanóleikara. Að lokum I
1 veröur dansað.
Framsóknarmenn úr f
f Mýra- og Borgarf jarðar- f
f sýslum ættu að f jölmenna 1
f á vormótið og gera það sem f
f glæsílegast.
iiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimiiiiiiiiiiiiimitiiiimiiiiiHiiiiiiiHi
tíéraðsmót Skarp-
héðins að Þjórsár-
túni á morgun
Á morgun heldur Héraðs-
sambandið Skarphéðinn hér-
aðsmót sitt að Þjórsártúni. í-
þróttakeppendur á mótinu
verða með lengflesta móti að
þessu sinni eða um 70 frá 12
félögum.
Undanfarnar vikur hefir
Þórir Þorgeirsson íþrótta-
kennari starfað á vegum sam
bandsins og ferðast milli félag
anna og æft íþróttamennina
og búið þá undir mótið af
miklum dugnaði.
Á þessu móti verður í fyrsta
inn við Atlanzhafið.
Norsku skógræktarmennirn
ir komu hingað til lands með
sömu flugvélinni sem flutti ís
lendingana til Noregs. Dag-
inn eftir komu sína hingað
fóru þeir um Reykjavík og
nágrenni til að -skoða þar
markverðasta en 8. júní fóru
þeir austur í Haukadal til að
gróðursetja plöntur. 11. júní
var farið að Gullfossi og hann
skoðaður, en daginn eftir
skoðuðu Norðmennirnir Geysi.
Næsta dag var farið austur í
Fljótshlíð að Múlakoti, Bleiks
árglj úfri, Tumastöðum og
Sámstöðum, en síðan haldið
til Haukadals um kvöldið, 14.
júní var seinasti dagurinn
sinn keppt á nýjum íþróta-
velli, sem sambandiö hefir
verið að gera á undanförn-
um árum.
Fyrri hluti þessa móts —
sundmótið — fór fram á
Flúðum sunnudaginn 29. maí
s. 1. og voru sundkeppendur
nálega 50. Alls munu því um
120 keppendur frá sambands
félögum Skarphéðins keppa í
mótum þess þetta ár.
sem gróö'ursett var í Hauka-
dal en daginn eftir var halc,-
ið til Þingvalla og unnið ar
(Framhald á 2■ siöu)
Stefán íslandt
syngur á
þriðjudaginn
Okkar ágæti óperusöngvar.
Stefan Islandi er kominr
heim fyrir nokkru og hefir
dvalið í sumarleyfi sínu Norf
anlantís að undanförnu.
Hann efnir til söngskemmtur..
ar í Gamla Bió næstkomand:
þriðjudagskvöld og hefst húr>.
kl. 7,15. Syngur hann þar bæði
innlend og erlend lög.
T í MI N N
Af sérstökum ástæðum get
ur Tíminn ekki komið út á
rnorgun og kemur næsta blað
því ekki út fyrr en á þriðju-
daginn.