Tíminn - 23.07.1949, Side 3
154. blað
TÍMINN, laugardaginn 23. júlí 1949
3
ÍÞRÓTTE
ttgmmmmmmtmiffi*
8
::
Kcppnisför K.R. I Noregi
Ein glæsilegasta utanför
íslenzkra íþróttamanna
SettBE 10 met í förinni
Frjálsíþróttamennirnir úr K. R., sem keppt íiafa í Noregi
að undanförnu eru nýkomnir heim. Er þetta ein glæsileg-
asta utanför, sem íslenzkir íþróttamenn hafa farið. Alls
voru sett 10 met í ferðinni. Gunnar Huseby bætti metið í
kúluvarpi 4 sinnum og varpaði lengst 16,41, sem er nýtt
Norðurlandamet. Einnig setti Gunnar met í kúluvarpi
beggja handa. Torfi Bryngeirsscn bætti stangarstökksmet-
ið tvisvar og boðhlaupssveit K. R. setti met í 4X400 m. —
Ingi Þorsteinsson bætti drengjametið í 400 m. grindahlaupi
tvisvar.
Brynjólfur Ingólfsson, far-
arstjóri K. R.-inganna skýrði
blaSamönnum nýlega frá
ferSinni. Einnig voru Erlend-
ur Ó. Pétursson og Gunnar
Huseby viðstaddir.
FerSin var undirbúin af
Frjálsíþróttasambandi Nor-
egs, eða nefnd innan þess,
sem sér um að glæða áhuga
almennings á frjálsum í-
þróttum.
Formaður nefndarinnar er
Christian Schau. Gunnar Ax
elsson var fulltrúi K.R. í Nor
egi og ferðaðist ni°ð flokkn-
um til 10. júní. Solheim,
ritari frj álsíþróttasambands-
ins norska,- ferðaðist einnig
með flokknum allan tímann,
sem þeir voru úti.
Fyrsta keppni K. R. var í
Hönefoss þann 3. júní. Næsta
mót og jafnframt stærsta
mótið; er þeir tóku þátt í var
á Bislet-leikvanginum í Osló
4.—5 júlí. Þar varpaði Gunn-
ar kúlunni 15.82 m. og Torfi
stökk 4.08 m. í stangarstökki.
Næsta hæð var 4.21 m. og
munaði litlu að Torfi kæm-
ist yfir hana.
K. R.-sveitin setti met í
4X400 boðhlaupi, hljóp á
4.26,4 mín. 9. júlí var keppt í
Skien. Þar bætti Gunnar met
ið og varpaði kúlunni 15.89
m. Þann 10. júlí var keppt í
Rauland og unnu K. R.-ing-
arnir allar greinar, sem þeir
kepptu í og Gunnar bætti
metið í kúluvarpi í þiúðja
sinn í ferðinni, varpaði 15.93
m.
í Odda var keppt 12. júlí
og þar unnu þeir einnig all-
ar greinar, sem þeir tóku þátt
í. 14.—15. kepptu þeir á stóru
móti í Stavanger. Torfi bætti
stangarstökksmetið aftur og
stökk nú 4.12 m. Atrennu-
brautin var mjög erfið og
bjóst enginn við meti.
Síðasta keppni K. R. og
jafnframt sú glæsilegasta
var í Haugasundi 18. júlí. Þar
setti Gunnar tvö ný Noröur-
landamet. Varpaði 16,41 m.
í kúluvarpi og í beggja handa
kúluvarpi 28.28 m. (varpaði
11.88 m. með vinstri hendi).
Ekki verður nánar skýrt
frá úrslitum í einstökum mót
um, enda hefir það áður birzt
í blaðinu.
Þess má þó geta, að hver
einasti keppandi K. R. bætti
árangur sinn í förinni, meira
að segja Magnús Jónsson, er
hljóp 800 m. 2:01^ mín., en
Magnús keppti aðeins tvisvar
í förinni vegna meiðsla. K.
Frægur dýravinur
Barátta Axel Munthe fyrír friðun farfugl-
anna á Capri
Norðurlandamethafinn í
kúluvarpi Gunnar Huseby
R.-ingarnir hlutu mikið af
verðlaunum í þessari ferð.
Ásmundur Bjarnason hlaut
12 fyrstu verðlaun, Gunnar
Huseby 11 og Torfi 8 og aðrir
færri. Einnig hlaut Gunnar
sérstakan bikar í Stavangri
fyrir mesta afrek mótsins.
Flokkurinn hlaut alls stað-
ar í Noregi hinar frábærustu
móttökur og blaðaummæli
voru mjög góð og marg-
ar myndir birtust af íslend-
ingunum í norskum blöðum.
Afmælismót
íþróttabandalags
Hafnarfjarðar
Frá íþróttabandalagi Hafn-
arfjarðar hefir blaöinu borizt
svohljóðandi frásögn:
Miðvikudaginn 20. júlí kl.
8.30 stundvíslega hófst af-
mælisíþróttamót á Hörðuvöll-
um, frjálsíþróttasvæðinu, til
minningar um knattspyrnufé-
lögin „Framsókn og 17. júní“,
er stofnúð voru í Hafnarfirði
1919. Félög þessi komu sér
upp knattspyrnuvelli af eigin
ramleik. Síðan hefir verið ó-
slitin íþróttastarfsemi í Hafn-
arfirði, enda þótt félög þessi
störfuðu ekki lengur en til
1926.
Afmælismót þetta var í til-
efni af því að 30 ár eru síöan
félögin hófu starfsemi sína.
Keppt var í fimm greinum
og urðu úrslit þessi:
80 metra hlaup:
1. Sævar Magnússon 9.3 sek.
Er það hafnfirzkt met. 2. Þór-
(Framhald á 6. síðuj.
Dýravinurinn mikli, dr. med.
Axel Munthe, lézt í vetur, 91
árs að aldri. Hann var sænsk-
ur að ætt og uppruna, en
lengst af ævinnar dvaldi hann
og starfaði í öðrum löndum,
og hvar sem hann var, stuðlaði
hann að bættri meðferð á dýr-
um bæði með ritum sínum og
lækniskunnáttu. En hann
var hvort tveggja, heimsfræg-
ur rithöfundur og mikilsvirt-
ur læknir. Þekktust er senni-
lega barátta hans fyrir
verndun farfuglanna á eynni
Capri við Ítalíu.
í bók sinni, Sögunni um San
Michele, hefir hann sagt frá
þessum þætti ævisögu sinnar.
Bókin er til á íslenzku, en
ekki sakar samt að rifja þenn-
an kafla lítið eitt upp.
Þegar dr. Munthe tók sér
hvíld frá læknisstörfum,
dvaldi hann jafnan í bústað,
sem hann átt-i á eynni Capri,
er hann nefndi San Michele.
Þar þótti honum gott að vera.
En þó amaði þar eitt að hon-
um, og það var hið miskunn-
arlausa fugladráp þarna á
eynni. Farfuglarnir komu
þangað þúsundum saman til
að leita sér hvíldar. Þeir komu
jafnan um sólarlagsbilið, en
fáeinum klukkustundum síðar
höfðu fuglamorðingjarnir
flækt þá unnvörpum í.snörur
sínar. Síðan voru þeir látnir
hundruðum saman, matar-
lausir og vatnslausir, í tré-
kassa og fluttir með gufuskipi
til Marseille og. étnir á við-
hafnar matsölustöðum París-
arborgar skömmu síðar.
Fuglaveiðin var því ábatasöm
atvinna.
Fuglarnir voru veiddir í
snörur. Undir snörunum voru
búr og í þeim voru tálfuglar,
er ætíð endurtóku sama kall-
ið, nætur og daga, meðan
þeim entist þrek til þess. En
hvernig var hægt að fá tál-
fuglinn til þess að kvaka
þannig án afláts? Dr. Munthe
svarar því á þessa leið: „Djöf-
ullinn hefir fyrir löngu opin-
berað lærlingi sínum —
manninum, þá svívirðilegu
aðferð að stinga augun úr
fuglunum með glóandi nálum.
Þá syngja þeir, unz þeir
deyja“.
Þetta er gömul aðferð, og
um 1930 var hún enn tíðkuð
við Miðjarðarhafið, til dæmis
bæði á Spáni og Grikklandi,
en á Ítalíu hafði hún þá ný-
lega verið bönnuö vegna ó-
sleitilegrar baráttu dýravina
þar í landi, bæöi dr. Munthe
og fleiri. Aðeins fáir fuglar
þola þessa meðferð.
Fugladrápið stóð yfir sex
vikna tíma bæði haust og vor.
Fjallið, þar sem bústaður dr.
Munthe stóð, Barbarossafjall-
ið, var þakið snörum. Það var
bezta veiðiland eyjarinnar.
Flesta dagana voru snaraðar
þúsundir fugla.
Eigandi fjallsins var upp-
gjafa slátrari og bjó á megin
landinu. Hann var sérfræð-
ingur í því að blinda fugla.
Siðan voru þeir seldir sem tál-
fuglar háu verði. Við þennan
mann átti dr. Munthe í sí-
felldu stríði, frá því að hann
kom fyrst til eyjarinnar og
þar til viðureign þeirra lauk
með því, að dr. Munthe bar
hærra hlut. Hann fór til allra
I hugsanlegra valdsmanna með
I kærur á hendur fuglamorð-
ingjanum, en alls staðar fékk
hann sama svarið, að ekkert
væri við þessu að gera. Mað-
urinn ætti fjallið, og hér væri
ekki um neitt lagabrot að
ræða. Þá tók dr. Munthe til
sinna ráða. Hann skóf ryðið
af fallbyssu einni, sem ein-
hvern tíma hafði orðið inn-
lyksa á San Michele, og skaut
úr henni á fimm mínútna
fresti frá miðnætti til sólar-
uppkomu í þeirri von að
hræða fuglana frá þessu ó-
lánsfjalli. En slátrarinn, eig-
andi þess, kærði dr. Munthe,
og var hann dæmdur til að
greiða sektir. Þá vandi hann
hunda sína á að gelta alla
nóttina, en fáum dögum
seinna dó einn bezti hundur-
inn hans snögglega. Honum
hafði verið gefið eitur. Dr.
Munthe rakst á illræðismann-
inn nóttina eftir í grennd við
bústað sinn, réðist á hann og
sló hann til jarðar, og aftur
varð dr. Munthe að greiða
sektir.
Hann fór til slátrarans og
falaði fjalliö af honum til
kaups. Slátrarinn gaf honum
kost á því, en setti upp marg-
falt hærra verð en sanngjarnt
var. Dr. Munthe seldi dýrmæt
listaverk, sem hann átti og
kom með féð til slátrarans, en
hann glotti illgirnislega og
hækkaði verðið um helming.
Nokkru síðar varð slátrar-
inn svo ve'ikur, að hann var á-
litinn dauðans matur. Þá lét
hann senda til dr. Munthe og
biðja hann ásjár. Dr. Munthe
lofaði að koma, ef slátrarinn
vildi vinna eið að því við
krossmark að stinga aldrei
framar augu úr fugli, og að
hann seldi dr. Munthe fjalliö
fyrir það verð, sem hann hafði
tiltekið í fyrstu. Ekki vildi
slátrarinn ganga að þessu. En
næstu nótt elnaði honum
sóttin, og morguninn eftir
sendi hann aftur til dr.
Munthe með þau skilaboð, að
kröfu hans skyldi verða full-
nægt. Stóð þá ekki á dr.
Munthe, og litlu síðar hafði
hann dælt hálfum lítra af
greftri frá vinstra lunga
sjúklingsins. Eftir það batnaði
honum svo, að hann komst
aftur til heilsu.
Og nú varð Barbarossafjall-
ið griðastaður fuglanna. Þús-
undir ferðlúinna farfugla
nutu þar nú hvíldar haust og
vor, án þess aö menn eða dýr
gerðu þeim mein.
Um veiðar segir dr. Munthe
meðal annars svo:
„Sá dagur mun koma, að
mennirnir verða að skilja það,
að dýrin eiga að njóta vernd-
ar okkar, en ekki vera ofur-
seld okkar lægstu hvötum.
Sömuleiðis það, að við ménn-
irnir höfum engan rétt til þess
að svifta þau lífi okkur til
gamans, heldur aðeins til að
fuílnægja nauðsynjum okkar.
Meðan mennirnir eru ekki
lausir við drápsfýsnina,. hafa
þeir engán rétt til að teljá- sig
dýrunum æðri að siðgæð_i“._..
Dr. Munthe arfleiddi Land-
samband sænskra dýravernd-
unarfélaga að 100.000 kr. og
mælti svo fyrir, að því fé
skyldi sérstaklega verja til að
fá afnumið með lögum að
hafa dýr til sýnis í fjölleika-
húsum og öðrum hliðstæðum
stofnunum og til verndar far-
fuglum í Svíþjóð.
S. H.
Kappreiðar í Skagafirði
Frá jréttaritara Tívians
á Sauðárkróki.
Hinar árlegu kappreiðar
Hestamannafélagsins Stíg-
anda í Skagafirði fóru fram á
Vallarbökkum sunnudaginn
17. þ. m. Veður var hið feg-
ursta. Mörg hundruö manns
sóttu samkomuna. Nítján
hestar voru reyndir, 16 stökk-
hestar og 3 skeiðhestar.
í dómnefnd voru séra Gunn-
ar Gíslason, Glaumbæ, Sveinn
Guðmundsson, Sauðárkróki
og Magnús Gíslason, Frosta-
stöðum.
í skeiðvallarnef nd voru:
Sigurður Óskarsson, Krossa-
nesi, Steingr. Óskarsson,
Torfastöðum, Jóhann Jó-
hannesson, Sólheimum, Sig-
urjón Jónasson, Skörðugili,
Björn Ólafsosn, Krithóli.
Vallarstjóri var Haraldur
Jónasson, Völlum og yfirtíma-
vörður Guðjón Ingimundar-
son, Sauðárkróki.
Ræsir var Halldór Bene-
diktsson, Fjalli.
Fyrstu verölaun í 350 metra
spretti hlaut Álfur (12 vetra)
Péturs Sigurðssonar Hjalta-
stöðum, á 27 sek. Önnur verð-
laun Húni (9 vetra) Þórðar
Þórarinssonar Ríp, á 27.1 sek.
Þriðju verðlaun Sörli (16 v.)
Jóns Gíslasonar Sauðárkróki,
á 27.2 sek.
í 300 m. spretti hlaut fyrstu
verðlaun Fengur (12 vetra)
Benedikts Péturssonar, Vatns
skarði, á 23.- sek. Önnur verð-
laun Húni Þórðar Þórarins-
sonar Ríp, á 23.2 sek. (í und-
anrás hljóp Húni á 22.9 sek.).
Þriðju verölaun Geisli (15 v.)
Valtýs Sigurðssonar Geir-
mundarstöðum, á 23.5 sek.
í folahlaupi, 250 m., hlaut
fyrstu verðlaun Blesi(6 vetra)
Árna Guðmundssonar, Sauð-
árkróki, á 19.5 sek. og er þaö
bezti tími, sem náðst hefir á
Vellinum á þessari vegalengd.
Önnur verðlaun hlaut Nói (6
vetra) Sigurbjörns Tryggva-
sonar Grófargili, á 20.9 sek.
Þriðju verðlaun Óðinn (6 v.)
Benedikts Péturssonar Vatns-
skarði, á 21.5 sek.
Tveir skeiðhestanna hlupu
upp en sá þriðji náði ekki
lágmarkshraða til verðlauna,
sem var 27 sek.
miðstoðuu
Lækjargötu 10B. Sími 6530.
Annast sölu fastelgna,
skipa, bifreiða o. fl. Enn-
fremur alls konar trygging-
ar. svo sem brunatryggingar,
innbús-, líftryggingar o. fl. i
umboði Jóns Flnnbogasonar
hjá Sjóvátryggingaríélagi ís-
lands h.f. Viðtalstími alla
virka daga kl. 10—5, aðra
tíma eftlr samkomulagi.