Tíminn - 18.08.1949, Blaðsíða 8

Tíminn - 18.08.1949, Blaðsíða 8
„ERLENT YF1RJLIT“ t BAG: Herstyrteur Sovétrítejjanna 33. árg. Reykjavík „A FÖRMJM VEGI“ í DAG: 25 ára tgömul lyf 18. áffiist 1949 173. b?að. Kunnur Vestur-Is- lendingur látinu Eimi hinna kunnustu kaup sýslu- og athafnamanna í hópi Vestur-íslendinga, Sveinn Thorvaldsson, kaup- maður í Riverton við íslend- ingafljót, andaðist 14. júlí síðastliðinn, 77 ára að aldri. Sveinn var Skagfirðingur að uppruna, fæddur að Dúki í Sæmundarhlíð, en fluttist vestur um haf með foreldr- um sínum 1887, fimmtán ára að aldri. Hann gekk menntaveg vestra, varð fyrst kennari, en ^neri sér síðan að kaupsýslu. Stofnaði hann í Riverton verzlunarfélagið Sigurdson & Thorvaldson og færði fljót- lega út kvíarnar, svo að það varð eitt af stærstu og þekkt- ustu verzlunarfyrirtækjum í Manitóba, utan hinna stærri borga. Sveinn Thorvaldson tók mikinn þátt í þjóðræknis- starfi íslendinga, kirkjumál- um og stjórnmálum, og fylgdi jafnan íhaldsflokknum að málum. Sveinn var maður tvíkvænt ur og kynsæll mjög, og eru mörg barna hans í fremstu röð atkvæðamanna í Mani- tóba. Dr. Jörgensen flytur fyrirlestur um líkn- arstarf kirkjunnar Dr. Alfred Jörgensen frá Danmörku flutti fyrirlestur um líknarstarf kirkjunnar í dómkirkjunni á þriðjudags- kvöldið. Meðal annars sýndi hann fram á, 1 hverj u fólginn væri munur á framlögum rík- is og bæja og frjálsum fram- . lögum hins vegar. Gæti hvor- ug aðferðin komið að fullum notum einvörðungu, en bezt færi á því, að þær héldust í hendur. Sagði hann, að lútherska kirkjan væri á eftir öðrum kirkjudeildum, hvað líknar- starf snertir. Innan kaþólsku kirkjunnar eru menn betur vakandi í þessum efnum. Líknarstarf dönsku kirkjunar hefir þó á síðari árum tekið miklum framförum, og mun dr. Jörgensen sjálfur hafa átt sinn mikla þátt í því. Dr. Jörgensen kvað menn þurfa að vera vakandi gagn- vart því, að bezta boðun fagn- aðarerindisins væri miskunn- semi í verki. Er ástæða til þess að hvetja fólk til þess að sækja fyrir- lestur er dr. Jörgensen flytur í dómkirkjunni í kvöld. Að- staða er að mörgu leyti svip- uð hér í Reykjavik og í Kaup- mananhöfn, og dr. Jörgensen hefir miklum fróðleik að miðla í þessum efnum. Afmælisdagnr Reykjavíku rbæ jar í dag er afmælisdagur Reykjavíkurbæjar, og eru nú Í63 ár liðin síðan Reykjavík fékk kaupstaðarréttindi. Fegrunarfélag Reykjavík- ur hefir sent Tímanum greinargerð um starfsemi sína. Þar segir' Fyrir tilstilli Fegrunarfé- lagsins verður .„komið upp skrúðgarði við l^fekjargötu milli Bankastrætis og Amt- mannsstígs og verður þar Kinn 17. júlí s.l. lagði hópur 25 ítalskra skáta af stað í hjól- ! komið fyrir .„„trjágróðri, reiðarför yfir Evrópu 4 þús. km. leið og var förinni heitið blómabeðum, grásbölum og á alþjóðamót skáta í Osló. á síarfsemi Fegrunarféiags ir '■ :■] FjáröflHiiareSag'iEr pess í dag Churchill vill að Evrópuráðið verði vísir að alheims- samtökum Frá funcli ráðgjafarþlngsins í gær Ráðgjafaþing Evrópuráðsins hélt annan fund sinn í dag og var haldið áfram umræðum um einingu Evrópu. Win- ston ChurchiII, fyrrv. forsætisráðherra Breta, var meðal ræðumanna. Hann sagði m. a. að æskilegt væri, að Evrópu- ráðið yrði vísir að alheimssamtökum, þ. e. a. s- að stofnað yrði til hliðstæðra samtaka í heimsálfunum, er síðan sendu fulltrúa á alheimsþing. Kvað hann heimsfriðnum bezt borgið á þann hátt. Styrkur fyrir S. Þ. j á stjórnmálalega einingu Churchill sagði, að Evrópu Evrópu sem aðalmál, en láta ráðið væri ekki á neinn hátt önnur sitja á hakanum að „keppinavitur" S. Þ„ heldur Þessu sinn.i- McMilIan gerði myndi það miklu fremur að tillögu sinni, að þing styrkja og efla þau samtök. Evrópuráðsins yrði háð tvis- Hann kvað mannréttinda- málið, sem er næst á dag- skrá þingsins, annað mikils- verðasta málið, er þar yrði rætt. Mannréttindadómstóll. Hann lagði til, að komið yrði á fót dómstól fyrir Evrópu, er fjallaði um mann réttindabrot Evrópuþjóð- anna. Þá ræddi Churchill um „auðu sætin á þinginu“. Hann sagði, að 10 höfuðborg- ir Evröpu væru nú að baki járntjaldsins. Er viðkomandi lönd hefðu verið losuð und- an áþján nazismans, hefðu þau verið hneppt í fjötra kommúnismans. Hann kvaðst fylgjandi því, að fulltrúar þessara 10 þjóða fengju full- trúa á þinginu, er tímar liðu. Þýzkaland. Churchill sagði, að Þýzka- landsmálið væri mikilvægasta málið, er fyrir þinginu lægi. Hann sagði, að sameinuð Evrópa gæti aldrei orðið til, án öflugs Þýzkalands. Kvaðst hann fylgjandi því, að nefnd yrði skipuð til þess að athuga möguleikana á því, að lýð- ræðisöflin í Þýzkalandi gætu sent fulltrúa á þingið. Tillögur Morrison og McMilIan. Á undan Churchill höfðu þeir tekið til máls á þinginu Herbert Morrison og McMill- an. Morrison lagði áherzlu á það, að þinginu bæri að líta var á ári hverju. bekkjum. Bær og^ríki munu í sameiningu bera kostnað af þessu, en fela Fegrunarfélag- j inu framkvæmdirr>Þá verður | á svæðinu komið upp mynda- styttu, sem íélagið gefur. Fegrunarfélagið kom því einnig til leiðar; að ríkis- stjórnin lét mála hús sín, sem snúa að þessum fyrir- hugaða skrúðgarði. Fyrir frumkvæði félagsins og í samvinnu við Reykjavík- urbæ hefir undanfarnar vik- ur verið unnið að lagfæringu og tyrfingu á svæðinu á Skólavörðuholti, beggja meg- in Leifsstyttunnar. Ætlunin var að -koma upp trjáröð meðfram Bergþóru- götu á lóð Austurbæjarskól- ans og láta skólabörnin gróð- ursetja plönturnar. En getur ekki orðið fyrr enjpæsta ár. Fegrunarfélagið’hefir kom- ið því til leiðar, að' Alþingis- hússgarðurinn hefir í sumar verið opinn almenningi. til afnota og hafa margir haft yndi af að sitjá í honum, enda er þar einstaklega frið- samur staður í þjarta borg- arinnar. Garðurinn er opinn Alþjóðaþing um samræmingu umferöarreglna i Alþjóðaþing hefir ekki verið lialdió um mnferðamál síðan 11)15 j Á síðustu tfu árum er talið, að rúmlega 30ÖSþús. menn hafi farizt við bifreiðaárekstra í Bandaríkjuhum einum j saman. I öðrum löndum eru bifreiðaslys tæplega eins mörg hlutfallslega, en þó valda þau ískyggilega mörgum dauðs- föllum. Milljónir manna eru nú taldar óvinnufærar vegna meiðsla af völdum bifreiðaslysa. :.'V I lok þessa mánaðar munu umferðamálin verða rædd á alþjóðlegum vettvangi í fyrsta sinn síðan 1931. Það er S. Þ. sem boðar til þings þessa og er markmiðið að samræma umferðareglur í hinum ýmsu löndum heims. Umferðasérfræðingar frá 70 löndum og 17 stórum flutn ingafélögum munu koma sam an til fundar í Genf og semja tillögur að samræmingu um- ferðalaga og fyrirkomulagi umferðámerkja, kröfur þær, sem gera skal um búnað öku tækja og leikni ökumanna. Vegna vaxandi ferðalaga landa í milli er nauðsynlegt að umferðamerki og vegavís- ar séu með skiljanlegum á- letrunum fyrir sem flesta, og sé komið fýrir á svo augljós- an hátt, að bending þeirra þeirra skiljist án þess að ferðamaðurinn .'ýskilji mál þeirrar þj óðar, -5 sem hann dvelur með. Þá er einnig nauðsynlegt að setja ákveðn- ar reglur um þyrigd og breidd ökutækja. Þá mun þessi ráð- stefna einnig taka' til meðferð ar, hvernig tollskoðun og öðru eftirliti með ferðamönn um við landamærj. verða hag anlegast fyrir komið. Abdullah í london Abdullah, konungur Tran- sjórdaníu, kom í dag til Alex- andríu. Forsætisráðherra E- gyptalands tók á-móti honum. — Abdullah er ..yæntanlegur til London á .morgun, en þangað fer hann í opinbera heimsókn. alla daga frá kl. 12—7. Félagsstjórnin vill breyta tjörninni þannig, að almenn- ingur hafi meiri not og yndi af henni en verið hefir, og koma upp trjágróðri og gang- stígum á bökkum hennar. í því skyni hefir stjórnin ósk- að eftir því við bæjarráð, að það efni til hugmyndasam- keppni um skipulag á um- hverfi tjarnarinnar. Þá hefir félagið útvegað sex svani í Hljómskálagarðinn, og hafa bæjarbúar haft mikla ánægju af þeim í sumar. Loks er í prentun árbók fé- lagsins, sem send verður öll- um félagsmönnum nú á næst unni. Verða í henni ýmsar góðar greinar og bókin prýdd mörgum myndum og upp- dráttum. í dag, 18. ágúst, sem er af- mælisdagur Reykjavíkur- kaupstaðar, er fjáröflunar- dagur félagsins, og gengst fé- lagið í því skyni fyrir skemmt unum. Lúðrasveit Reykjavík- ur byrjar að leika á Austur- velli í kvöld kl. 8.30 og geng- ur síðan suður í Tívolí, en þar verða ýms skemmtiat- riði, eins og sjá má af aug- lýsingum. Ennfremur verður skemmtun í Sjálfstæðishús- inu og dans á eftir. Merki verða seld á götum bæjarins í dag. Mótmælabréf frá Beran erkibiskup Nú hefir verið birt mót- mælabréf frá Beran, hinum tékkneska erkibiskup, er ver- ið hefir fangi á heimili sínu síðan 19. júní s. 1. í bréfi þessu mótmælir Beran því, að honum skuli hafa verið haldið 1 fangelsi að ósekju allan þennan tíma. Hann segist hafa verið sviptur öllu per- sónulegu frelsi, engir hafi mátt heimsækja hann og hann hafi verið með öllu ó- fær um að gegna störfum sem erkibiskup. — Það voru kirkjuyfirvöldin í Tékkósló- vakíu, er komu bréfi þessu á framfæri, og er þetta í fyrsta sinn, sem heyrist frá erkibisk upnum, í tvo mánuði. Rússar trufla út- varpssendingar Það hefir nú verið tilkynnt, að er Kirk, hinn nýskipaði sendiherra Bandaríkjanna í Moskvu, ræddi við Stalin marskálk s. 1. mánudag, þá hafi hann farið þess á leit, að Rússar efndu þau loforð sín, að hætta truflunum á út- varpssendingum á rússnesku frá Bandaríkjunum. Stalin lofaði að fá málið í hendur utanríkisráðuneytinu. Sendiherrann lét svo um- mælt, að truflanir þessa^ væru einn liður í þeirri á- ætlun, að einangra rússnesku þjóðina frá umheiminum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.