Tíminn - 08.09.1949, Side 5

Tíminn - 08.09.1949, Side 5
189. blað TÍMINN, fimmtudaginn 8. september 19949 5 Fimtntud. 8. sept. Réttindakröfur bænda Á hinum nýlokna funcli Stéttarsambanös bænda var i samþykkt krafa um, að bænd- ' ur fengju sjálfir að ákveða verðlag á vörum sínum. Jafn- i framt var lýst eðlilegri óá-! nægju yfir þeirri tilhögun, að , gerðardómur væri látinn i hafa æðsta vald í þessum | málum, enda fengin sú! reynzla, að hann hefði á-1 kveðið verðið lægra en bænd- I ur hefðu átt réttmætt tilkall til. í núgildandi lögum um verðlagsmál landbúnaðarins er gert ráð fyrir því sem aðal- reglu, að bændur ákveði verð - ið sjálfir, ef ekki næst sam- komulag í verðlagsnefndinni, sem skipuð er fulltrúum framleiðenda og neytenda'. Sú undantekning er þó í lögun- um, að meðan landbúnaðar- vörur séu greiddar niður úr ríkissjóði, skuli verðið ákveð- ið af gerðardómi, ef ekki næst samkomulag í verðlagsnefnd- inni. Framsóknarmenn voru andvígir þessari undantekn- ingu, en Alþýðuflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn gerðu hana að skilyrði fyrir stuðn- ingi sínum við lögin. Þess vegna hefir afuröaverðið verið ákveðið með þessum hætti undanfarin ár. Þótt þessi skipan sé hvorki sanngjörn eða eðþleg, er hún þó mikill ávinningur fyrir bændur, ef miðað er við þá tilhögun, er áður var. Bænd- ur geta gleggst séð það af til- lögum þeim, sem komu fram í verðlagsnefndinni, hvernig nú hefði farið, ef fyrv. stjórn hefði setið áfram og stjórn- skipuð nefnd ákveðið verðið. Þeir fulltrúar í verðlags- nefndinni, sem fylgt hefðu fyrv. stjórn að málum, tveir Alþýðuflokksmenn og einn Sjálfstæðismaður, lögðu nú til, að afurðaverðið yrði Iækk- aö um 10%, þrátt fyrir það, að launastéttirnar hafa fengið miklar hækkanir und- anfarið. Á þennan veg hefði líka fallið úrskurður stjórn- skipaðrar afurðaverðsnefnd- ar, sem þessir flokkar hefðu ráðið yfir. Það er því víst, að gildandi fyrirkomulag, þótt gallað sé, hefir tryggt bændum mikinn ávinning frá því, sem orðið hefði, ef stefnu fyrv. stjórnar hefði verið fylgt í þessum málum áfram. Hitt er svo annað mál, að bændur eiga ekki að sætta sig við þann ávinning, heldur að sækja rétt sinn og fá hann óskertan til jafns við aðrar stéttir. Þá kröfu gerði líka fundur Stéttarsambandsins og þeirri kröfu eiga bændur að fylgja á eftir. Þessum málum er hins veg- ar svo komið, að þau verða ekki sótt né þeim komið fram, nema á vettvangi stjórnmál- anna. Það verður að sækja þau í hendur ríkisstjórnar og Alþingis. Þeim verður aðeins komið fram með því móti, að bændur dreifi ekki liði sínu, heldur efli einhuga þann flokk, sem mun ótrauður og einbeittlega berjast fyrir rétti þeirra. Og vel má bændum ERLENT YFIRLIT: Konratí Adenauer Haun verður seunilega fyrsti forsætisráð> herra Vestur»l»ýzkalaiids og |»ar með valdamesti maður fsess Hið nýja ríkisþing Vestur- Þýzkalands kemur saman í Bonn í þessari viku. Eitt fyrsta verk þess verður að ganga frá stjórnarmyndun. Það hefir ver- ið ákveðið, að formaður kristi- lega demokrataflokksins, dr. Konrad Adenauer, verði kanzl- ari eða forsætisráöherra þess- arar fyrstu þýzku ríkisstjórnar, er verður mynduð eftir hrun nazismans. Stjórn hans verður studd af frjálslynda þingflokkn- um og þýzka miðflokknum, en samanlagt hafa þessir flokkar 208 þingmenn af 402 alls. Enn mun ekki fullráðið, hvort stjórn dr. Adenauers verður flokks- stjórn eða samsteypustjórn, en hann vill sjálfur miklu heldur hið fyrrnefnda. Hvort sem stjórn dr. Adenau- ers verður flokksstjórn eða sam- steypustjórn, verður hún að teljast miðflokkastjórn, sem er nokkuð lengra til hægri en miðflokkastjórnirnar á ítalíu og í Frakklandi, þar sem jafnaðar- menn taka ekki þátt í henni. Borgarstjóri í Köln. Dr. Adenauer er 73 ára gam- all og hefir langa stjórnmála- sögu að baki. Hann er Rínlend- ingur að ætt, fæddur í Köln, og er af efnuðu fólki kominn. Eftir að hann hafði lokið laganámi, hóf hann fljótlega afskipti af stjórnmálum. Hann var kosinn í borgarstjórn Kölnar og vann sér þar svo mikið álit, að hann var kjörinn . aðalborgarstjóri hennar, er hann var rúmlega fertugur að aldri. Þetta álit sitt styrkti hann þó stórum bæði meðal landa sinna og Banda- manna, er Köln var hernumin eftir fyrra stríðið. Þó dró það nokkuð úr pólitískum frama hans lím skeið, að hann hafði lýst sig fylgjandi því, að Rínar- héruðin yrðu skilin frá Þýzka- landi og gerð. sérstakt ríki í sambandi við Frakkland. Eink- um spilti þetta fyrir honum ut- an Rínarhéraðanna. Eigi að síð- ur vann hann sér stöðugt aukið álit á sviði landsmálanna og náði fljótlega kosningu til ríkis- þingsins í Berlín. Á þingi varð hann brátt einn af helztu leið- togum katólska miðflokksins. Álit hans á þessum árum má marka á þvi, að Hindenburg fól honum einu sinni að mynda stjórn, en honum mistókst það. Andstæðingur nazista. Dr. Adenauer var frá fyrstu tíð ákveðinn andstæðingur naz- ista. Eitt fyrsta verk þeirra eftir valdatökuna 1933 var að svipta hann borgarstjóraembættinu i Köln, en hann hafði þá gegnt því samfleytt í 16 ár. Tvívegis létu þeir fangelsa hann eða í sambandi við Röhm-uppþotið 1936 og morðtilraunina við Hitler 1944. í bæði skiptin höfðu þeir hann þó stutt í haldi. Fang- elsanir þessar hreinsuðu hann í stríðslokin af samneyti við nazista og gerðu honum það auðveldara en ella að gerast for- ingi hins nýja kristilega demo- krataflokks, sem var stofnaður strax, þegar stríðinu lauk, og teljast má arftaki katólska mið- flokksins, er nazistar höfðu bannað. Forustu dr. Adenau- ers er það ekki sízt þakkað, að kristilegi demokrataflokkurinn er nú stærsti flokkurinn í Vest- ur-Þýzkalandi. Árekstur við Breta. Það væri rangt að geta þess ekki, að þegar Bretar hertóku Köln eftir síðari styrjöldina, gerðu þeir dr. Adenauer strax að borgarstjóra þar. Hann héit hins vegar svo fast fram kröf- um Þjóðverja, að Bretar sviptu hann embættinu eftir skamma stund. Dr. Adenauer mun hins vegar ekki hafa grátið það, því að vinsældir hans eftir styrjöld- ina hafa ekki sízt byggzt á þess- um atburði. Það hefir alltaf ver- ið heldur kalt milli hans og Breta, en hins vegar hefir nú sem fyrr farið vel á með dr. Adenauer og Frökkum. Dr. A- denauer heldur því fram nú, eins og eftir fyrri styrjöldina, að framtíð Evrópu byggist fyrst og fremst á góðri sambúð Þjóð- verja og Frakka, en sú stefna á nú miklu fleiri og áhrifameiri talsmenn meðal Frakka en þá. Hæfileikar dr. Adenauers. Það verkefni, sem dr. Adenau- er hefir nú tekizt á hendur, er vissulega vandasamt. Það verð- ur engin leikur að stýra hinu nýja vestur-þýzka ríki gegn um brim og boða byrjunarörðug- leikanna. Það kemur dr. Aden- auer þá kannske að góðu haldi, að hann er bæði hygginn og kaldlyndur. Einn blaðamaður lýsti honum þannig nýlega, að hann kæmi fyrir eins og Prússi, en væri kænn eins og jesúíti, og því væri hann manna líklegast- ur til forustu í Þýzkalandi, eins og allt væri þar í pottinn búið. Kröfuharður fyrir Þjóðverja. Vafalaust mun dr. Adenauer halda fast fram ýmsum kröfum Þjóðverja og því telja brezk blöð, að betur hefði farið, að jafnað- armenn hefðu hlotið stjórnar- taumana. Vel má þó vera, að það reynist misskilningur og ó- lán Veimarlýðveldisins hafi einmitt byggzt á því, að það lenti á jafnaðarmönnum að taka á sig byrjunarerfiðleikana. Af þeim kröfum, sem dr. Aden- auer mun gera, er þegar vitað um þá, að hann krefst inngöngu Vestur-Þýzkalands í Atlants- hafsbandalagið og að varnarlína þess í Vestur-Evrópu verði ekki Kaldrananesmálið Mbl. gerir vesældarlega til- raun í gær til að verja þá framkomu Eggerts Kristjáns- sonar heildsala, að hann kom í veg fyrir það með yfirboði sínu, að Bjarnfirðingar eign- uðúst frystihúsið í Kald- rananesi aftur með sann- gjörnu verði. Mbl. reynir nú einkum að afsaka frumhlaup E. K. með því, að Bjarnfirðingar hafi ekki undir neinum kringum- stæðum viljað kaupa húsið. Eins og margsinins hefir ver- ið lýst, lá þetta aldrei fyrir. Athugun dr. Jakobs Sigurðs- sonar, sem hann gerði á veg- um stjórnar Fiskimálasjóðs, beindist fyrst og fremst að þvi, hvort heimamenn vildu kaupa húsið á verði, er tryggði lán Fiskimálasjóðs, en til þess þurfti húsið að seljast á 500—550 þús. kr. Á þessu verði treystust heima- menn ekki til að kaupa hús- ið, enda er þetta hærra verð en E. K. fékk það á. Hitt var aldrei rannsakað, hvort þeir vildu kaupa það á sama verði vio Rm, heldur Elbu. I ræðum t, ■ TJ- i . * , » . . ’ . , , . . i og E. K. fékk það a eða jafn sinum hefir hann lagt aherzlu „„„ á að minna sigurvegarana á það, að það hafi verið þýzki herinn, sem gafst upp, en ekki þýzka þjóðin. Þetta er öfugt víg- orð við það, sem Þjóðverjar sögðu eftir fyrri styrjöldina, en (Framhald á 6. síðu) vera ljóst, að þar er hvorki um Alþýðuflokkinn eða Sjálf- stæðisflokkinn að ræða, sem hafa staðið að því skipulagi, að stjórnskipuð nefnd réði ein öllu í þessum málum, en hafa síðar fengizt það lengst til samkomulags, að gerðardóm- ur fjallaði um þau. Loks má það vera bændum glögg vís- bending, að nú seinast lögðu fulltrúar hinna ráðandi afla í þessum flokkum það til í verðlagsnefndinni, að verð landbúnaðarvara yrði lækkað um 10% á sama tíma og nær allir aðrir hafa fengið meiri og rriinni hækkanir. Af þessum flokkum geta bændur því einskis góðs vænst. Reynsla fyrr og síðar sýnir, að þessu réttindamáli sínu, sem öðrum, geta bænd- ur því aðeins komið fram, að þeir efli Framsóknarflokk- inn og tryggi honum úrslita- valdið á Alþingi. Ef bændum er það alvara, að standa sam- an um hagsmunamál sín, verða þeir að gera sigur Framsóknarflokksins stærri í næstu kosningum en nokkuru sinni fyrr. Það er stærsta á- takið, sem bændur geta gert til að tryggja réttindakröfum sínum framgang og sigur. Raddir nábúanna Forustugrein Mbl. í gær nefnist: Nú er hún Grýla gamla dauð. Upphafið er á þessa leið: „Ár eftir ár hafa hinir svo- kölluðu vinstri flokkar streyzt við að telja íslenzku þjóðinni trú um, að Sjálfstæðisflokk- urinn væri eingöngu flokkur hinna ríku í þjóöfélaginu og að takmark hans væri það eitt að gera hina ríku ríkari, en hina fátæku fátækari. Við hverjar einustu kosn- ingar hefir þetta verið slag- orð kommúnista, krata og „millifIokksins“. Hvers vegna hafa þessir flokkar byggt baráttu sína á jafn haldlausum fullyrðing- um? Vegna þess, að þeir hafa á- litið að þeir gætu notað Grýlutrúna til þess að rugla dómgreind almennings.En nú er hun gamla Grýla dauð. Það er ekki lengur hægt að telja neinum einasta manni, með heilbrigða skynsemi, trú um það, að Sjálfstæðisflokk- urinn berjist fyrir því, að viðlialda fátækt og misrétti í þjóðfélaginu. Vegna hvers er það ekki hægt? Það er ekki hægt vegna þess að almenningur hefir séð með eigin augum, það sem hefir verið að gerast í land- inu undanfarna áratugi. Það er ekki hægt að villa honum sýn um það og segja það svart, sem er hvítt. Já, hafa menn kannske ekki séð það seinasta áratug- inn eða síðan áhrifa Sjálf- stæðisflokksins tók að gæta á stjórnarfarið, að mjög illa hefir verið búið að öllum gróðamönnum og að þeir hafa aldrei verið færri og máttar- minni en nú? Eða sýnist mönnum talsvert annað en Mbl. og Grýlan, sem það tal- ar um, sé enginn tilbúningur, heldur alvarlegri veruleiki nú en nokkuru sinni fyrr? vel á enn lægra verði, sem orðið hefði að selja húsið fyr- ir, ef tilboð E. K. hefði ekki komið fram. Á sama hátt var það ekkí rannsakað, hvort Kaupfélag Steingrímsfjarðar vildi ekki taka þátt í húskaupunum, ef húsið fengist á sanngjörnu verði. Mbl. byggir því vörn sína á algeru fleipri, er lika sést bezt, þegar lesin er grein Jó- hanns Kristmundssonar á öðrum stað hér í blaðinu. Grein Jóhanns Kristmunds- sonar sýnir, &ð áhugi var fyr- ir því meðal Bjarnfirðinga að eignast húsið aftur, ef þaö fengist á sanngjörnu verði. Grein Jóhanns sýnir enn- fremur, að forráðamenn Kaupfélags Steingrímsfjarð- ar höfðu fullan hug á að leggja fram hjálparhönd undir þeim kringumstæðum, þar sem bréf Jóhanns tíl stjórnar Fiskimálasjóðs var skrifað í samráði við for- stöðumann þess. Yfirboð Eggerts og skil- málar þeir, sem hann setti stjórn Fiskimálasjóðs og meirihluti hennar beygði sig fyrir, kom hins vegar í veg fyrir, að frekari athuganir væru gerðar á þesssum mögu- leikum, þar sem tekin var sú ákvörðun að tala alls ekki við Jóhann Kristmundsson. Því meira, sem þetta mál er rætt, liggur það því ljósara fyrir, að Bjarnfirðingar hefðu eignazt hús sitt aftur með vel viðráðanlegum hætti, ef yfir- boð E. K. hefði ekki komið fram. Það er staðreynd, sem ekki verður haggað. Mbl. sneiðir réttilega fram- hjá að ræða það, hvers vegna E. K. gerði þetta yfirboð og hvers vegna hann heimtaði svör fyrir fundinn, þar sem framboð hans var ákveðið. Það þorir eðlilega hvorki að halda því fram, að þetta hafi verið gert af velvilja í garð Bjarnfirðinga eða af löngun til að bjarga fjármunum rík- issjóðs og Fiskimálasjóðs. Þá raunverulegu ástæðu, að þetta hafi verið gert með til- liti til framboðsins, vill .það eðlilega ekki nefna. Þá ber Mbl. á móti því, að það hafi nokkuð veriö að telja Jóhann Kristmundsson ó- merking. Mbl. hefir þó hik- laust reynt að verja það, að (Framhald á 6. siðu)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.