Tíminn - 10.09.1949, Blaðsíða 8

Tíminn - 10.09.1949, Blaðsíða 8
„ERIÆXT YFIRLIT 1 DAG: Hva«$ er hommúnismi? 33. árg. Reykjavík bæjarrústír grafnar upp í Þjórsárdal Bær þessi er iiinan við Stöng og riistirnar eldri. — Kristján Eldjárn, þjóðminiavörð- ur, og Sigurður Þórarinsson, jarðfræðing- ur Siai'a unnið að uppgreftrinum í sumar Síðustu dagana í ágúst unnu þeir Kristján Eldjárn, þjóð- minjavörður, og Sigurður Þórarinsson, jarðfræðingur, að því að grafa upp miklar bæjarrústir, sem eru um háifrar stundar gang innan við Stöng í Þjórsárdal. Eru rústir þess- ar hinar merkilegustu og af svipaðri gerð og Stangarrúst- irnar, en líklega lítið eitt eldri. Jafnframt er þarna merki- legt rannsóknarefni, þar sem vikurlögin eru. Rlaðið átti tal við Kristján Eldjárn, þjóðminjavörð í gærkveldi og spurði hann frétta af uppgreftinum. „A FÖRMJM VEGI“ í DAG: Hvað dvelur orminn lan«ia? 10. seþtember 1949 191 blað Mjög djúpt á rústunum. Bæjarrústir þessar hafa ekki verið rannsakaðar fyrr, sagði Kristján og lítið er vit- að um þær. Nafn bæjarins er ókunnugt. En rústir þessar eru af stórum bæ með mjög syipaðri húsaskipan og á Stöng. Hafa rústirnar geymzt vel undir þykku vikur- og foklagi. Er lagið um tveggja metra þykkt niður ,á gólf. — Veggir eru ekki eins stæði- legir og á Stöng, en sér þó glöggt fyrir þeim. Geysimikil vinna er hins vegar við upp- gröftinn, þar sem lagið er svo þykkt. Fór snemma i eyði. Augljóst er, að bær þessi hefir verið kominn í eyði fyr- ir nokkru, er hið mikla, hvíta vikurlag, sem alkunnugt er á þessum slóðum, hefir fallið, en vikurlag þetta telur Sig- urður Þórarinsson líklegt að hafi fallið í miklu Heklugosi 1104. Þegna þess að bærinn hefir verið búinn að standa í eyði áður en vikurlag þetta féll, finnst lítið sem ekkert af búsmunum í rústunum og gerir það allar tímaákvarð- anir og rannsóknir örðugri. tóikið er þó þarna af mýrar- rauða og gjalli, og er ljóst að þarna hefir verið mikil járn- gerð. Merkilegar rústir. Rústir þessar eru þó hinar merkilegustu og er þar að sjálfsögðu margt að finna, sem gefur fyllri upplýsingar um bæjargerð þessa tíma og hjálpar til að skýra þróunar- söguna í þessum efnum. Upp- grefti rústanna er að sjálf- sögðu ekki lokið enn og lýk- ur ekki í sumar. Minni bær og yngri. Þá unnum við einnig að uppgrefti annarra bæjar- rústa í Þjórsárdal í sumar. Nefnist sá bær Sandatunga (og er neðarlega í dalnum, skammt þar frá sem Fossá (fellur í Þjórsá. Eru þetta (miklu minni bæjarrústir og yngri. Fór bær þessi í eyði í Heklugosi 1693, en þá varð vikurfall mikið. Hér hefir allt verið smærra og lágreistara, en engu að síður er þarna að finna mikils verðar leiðbein- ingar um breytingarnar í þró un íslenzkrar bæjargerðar á liðnum öldum. Mikið verkefni óunnið. Annars eru mikil og marg- vísleg verkefni óunnin við þessa könnun Þj órsárdals sagði Kristján að lokum, en hún er í senn jarðfræðileg og fornfræðileg, og styður þar hvor greinin aðra um tíma- ákvarðanir og aðrar mikils- verðar ályktanir, enda verður helzt að vinna að þeim báð- um saman. Miklir götubardag- ar í Milanó Júgóslavar fá lán í Bandaríkjunum Júgóslavar hafa fengið 20 millj. dollara lán hjá banda- ríska útflutningsbankanum. Er lánið veitt til þriggja ára og er með 3y2% vöxtum. Tólf milljónir verða veittar þegar og fara til kaupa á ýmsum nauðsynlegum vélum, en 8 milljónir veittar síðar. Er þetta fyrsta lánið, sem Júgó- slavar fá í Bandaríkjunum eftir styrjöldina. Til mikilla átaka kom í Mílanó á mánudaginn. Róstur þessar áttu sér stað milli verkama'nna í vopnasmiðju og lögregluliðs, og notuðu báð ir aðilar vélbyssur. Tildrögin voru þau, að tvö hundruð verkamenn efndu um morguninn til fundar fyr ir framan Bred-verksmiðjurn ar, sem á stríðsárunum voru meðal stærstu vopnasmiðja í Norðurálfu- Voru þeir að mót mæla uppsögnum í smiðjun- um. Lögreglan kom á vettvang og tvístraði hópnum og lok- aði aðalstrætinu, er liggur í þetta hverfi. Verkamennirn- ir reyndu að rjúfa blökk lög- reglumanna, sem svöruðu með skothríð. Verkamennirn ir beittu þá einnig vélbyss- um.þeim, sem þeir höfðu með ferðis, og verkamenn í öðr- um smiðjum hófu skothríð á lögregluna út um glugga. Síð an voru virki hlaðin á götun um, og börðust um skeið fimm hundruð lögreglumenn og tvö þúsund verkamenn. Óeirð unum linnti ekki, fyrr en þingnefnd, sem kommúmst- ínn Mario Alberganti á sæti í, kom á vettvang og skoraði á verkamennina að þoka um Nýlega var haldið alþjóðlegt mót ferðafélaga í Vejle í Danmörku. Myndin er frá móti þessu. Verkaiýðssambönd Banda- ríkjanna hvetja til aukins stuðnings til Breta Cripps segir Breta algerlega sjálfbjarga, ef þeir fái markað fyrir vörur síuar á dollarasvseðinu. Á þríveldaráðstefnunni f Washington voru í gær lesin upp bréf frá tveim stærstu verkalýðssamtökum Bandaríkjanna, þar sem þau leggja eindregið til að Bandaríkin auki að mun stuðning sinn við Breta og geri þeim kleift að .yerða efna- hagslega sjálfstæðir. Eru og í bréfum þessum bornar fram tillögur í þessum efnum. í erindum þessum er lögð á Tékkneskir prestar mótmæla Þaþclskir prestar 1 Tékkó- slóvakíu hafa sent frá sér undirskriftaskjal, þar sem væntanlegri stjórn rikisins á málum kirkjunnar í landinu er harðlega mótmælt. Segir þar, að launabætur þær og aðrar hagsbætur, sem prest- ar eigi að fá samkvæmt hinni nýju skipan hljóti að verða á kostnað frjálshyggju og frelsi innan kirkjunnar. Ný hljómsveit leik- ur að Röðli í vetur I kvöld byrjar ný hljóm- sveit að leika að Röðli. Er það sex manna hljómsveit undir stjórn Kristjáns Krist- jánssonar og nefnist K. K.- sextettinn eða sama og hljóm sveitin er Kristján var með í samkomusal Mjólkurstöðv- arinnar fyrir tveimur árum. Meðlimir þessarar nýju hljómsveitar eru allir þekkt ir hljóðfæraleikarar, er hafa leikið í ýmsum hljómsveitum undanfarin ár. Hljóðfæraskipun er þann- ig: Kristján Kristjánsson stjórnandi og leikur á altó- saxafón. og klarinett. Vilhj. Guðjónsson, leikur á altó- saxafón og klarinett. Ólafur Pétursson leikur á tenórsaxa- fón og harmóniku. Jón Sig- urðsson leikur á trompet. Ein ar Jónsson leikur á trommur og Baldur Kristjánsson leikur á píanó. það megináherzla að Banda- ríkjunum beri skylda til að veita Bretum þann stuðning er dugi til þess að þeir geti staðið á eigin fótum efna- hagslega vegna þeirra fórna, sem þeir hafi orðið að leggja á sig umfram Bandaríkja- menn í styrjöldinni. Þar seg- ir og að það sé eindreginn vilji bandarísku þjóðarinnar allrar, sem hafi framleitt vör ur þær, sem Bretar þarfnist. Þá eru einnig bornar fram nokkrar tillögur um það, hvernig hægt sé að auka' þennan stuðning, og er m. a. j bent á það, að landvarnir j beggja landanna verði sam- : ræmd og gerðar sameiginleg- j ar að meira eða minna leyti og þar með létt af Bretum að einhverju leyti. Fréttamenn benda á það, að þetta sé í fyrsta sinn sem bandarisku verkalýðssam-, böndin taka svo skelegga af-, stöðu til utanríkismála, og er talið að erindi þessi kunni að hafa mikil áhrif á gang mála á ráðstefnunni. | Cripps fjármálaráðherra Breta ræddi við blaðamenn í gær, og benti meðal annars á það, að framleiðsla hefði aukizt svo í Bretlandi eftir styrjöldina, að Bretar gætu nú hæglega haldið 1 horfi um utanríkisverzlun sína, ef þeim gæfist færi á að selja vörur sínar á dollarasvæðinu meira en nú er. Heyfliitmngaband reynt hér á landi og gefst vel Eiuar Ilsallelorssoií, béndi á Setbergi hefir kossfiiö ~jþessM bandl npp hjá sér Fimmtudagimt 8. sept. 1949 athugaði Verkfæranefnd rík- isins flutningabáiid, er Einar Halldórsson, bóndi á Setbergi hefir komið upp Hjá sér til þess að flytja nýslegið gras upp í votheysturn. Flutningaband þetta er gert úr tveimur endalausum hleldíjakeðjum, þar sem hver hlekkur er 4% cm. á lengd. Keðiurnar eru tengdar saman með trélistum 4X5% cm. að gildleika með 50 cm. millibili. Upp úr hverjum lista er tveir tiirdar 10 cm. langir, gerðir úr 6 mm. járni. set til verkstöðva sinna. Voru þá þrír fallnir, en margir særðir. Flutningabandið liggur eft ir 20 m. löngum'tréstokk, sem er 52 cm. breiður og 21 cm. á dýpt. Liggur hann skáhalt frá jörðu upp í 12 gftv háan vot- heysturn. Halli hans er því 1:1%. Því er snúið af 4 hest- afla mótor með tvöfaldri kíl- reim, og er reimhjól þess 10 sinnum stærra eir reimhjól mótorsins. Hraði flutnings- bandsins er sení svarar 3130 m. á klst. Reynd var flútninga geta bandsins. Nýslegnu grasi var mokað í það af tveimur mönn um. Tók það 8 minútur að tæma vagninn, sém í var 1120 kg. af nýsleginni fremur blautri há (82,4% vatn). — Flutningageta Öandsins var þó ekki notuð tíl fulls, vegna þess að heyið var smágert og seinlegt að moka því. Þetta magn af nýsleginni há svar- ar til 232 kg. af þurru heyi. Flutningabandið er sænskt og kostar um kr. 6.000,00 fyr- ir utan mótor og undirstöður undir tréstokk. Einar Hall- dórsson hefir reynt það til flutnings á þurru heyi inn í hlöðu og telur það vel fallið til þess, en ef vindur er, vill heyið fjúka og mun þá þurfa að hafa hlífðarborð á tré- stokknum. Verkfæranefnd vill taka það fram, að flutningabönd- in eru all algeng við landbún aðarstörf erlendis. Eru þau oft á hjólum og hægt að hækka þau og lækka eftir vild. (Frá Verkfæranefnd ríkis- ins).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.