Tíminn - 16.10.1949, Síða 5
222 blaö
TÍMINN, sunnudaginn 16- október 1949
n
Sunnusl. 16. okt.
Flokkarnir, sem
allsstaðar eru að
tapa
Um fátt er nú meira rætt í
Mbl. en úrslit þingkosning-
anna í Noregi. Mbl. hvetur
kjósendur réttilega til þess að
reka fulltrúa rússnesku
einræðis- og landvinninga-
stefnunnar af höndum sér,
eins og Norðmenn hafa nú
svo rækilega gert.
Sannarlega væri það hollt
íslenzkum stjórnmálum, ef
íslendingar fylgdu í þessum
efnum fordæmi Norðmanna.
En jafnframt er það líka ann
að engu þýðingarminna, er
íslendingar geta af Norð-
mönnum lært.
íhaldsflokkurinn norski,
hægri flokkurinn, hafði búizt
við mikilli fylgisaukningu og
það þótti heldur líklegt, að
þær vonir myndu rætast, því
að flokknum tókst að gera
sig mjög áberandi í kosninga
baráttunni.
Úrslitin urðu hinsvegar á
annan veg. Eini flokkurinn,
annar en kommúnistaflokk-
urinn, sem tapaði þingsæt-
um, var hægri flokkurinn
norski. Hann missti 2—3
þingsæti til miðflokkanna, er
einnig unnu þingsæti af
kommúnistum, þótt fyrst og
fremst væri það verkamanna
flokkurinn, er hreppti fyrra
fylgi þeirra.
Miðað við það, sem und-
anfarið hefir gerzt í öðrum
lýðræðislöndum, kom þessi ó-
sigur hægra flokksins hins-
vegar ekki á óvart- í Dan-
mörku varð íhaldsflokkurinn
þar fyrir stórfelldu tapi í
kosningunum 1947 og í Sví-
þjóð beið íhaldsflokkurinn
þar enn meiri ósigur í kosn-
ingunum í fyrra. Eft'irminni-
legastur og stærstur varð þó
ósigur íhaldsflokksins í
Bandaríkjunum í fyrra. Því
hafði verið almennt spáð, að
hann myndi vinna forseta-
kosningarnar, en úrslitin
urðu á allt aðra leið.
Það hefir þannig einkennt
nær allar þingkosningar í
lýðfrjálsum löndum seinustu
árin, að kommúnistar og
ihaldsmenn hafa tapað, en
jafnaðarmenn og frjálslynd-
ir miðflokkar unnið mikið á.
Stjórnmálaþróunin í lýðræð-
islöndunum beinist þannig
jöfnum höndum gegn íhaldi
og kommúnisma, en miðar
að eflingu frjálslyndra um-
bótastefna.
Fyrir íslenzka kjósendur er
vissulega öll ástæða til að
gefa þessari þróun fullan
gaum áður en þeir ganga að
kjörborðinu. Að vísu eru að-
stæður í einstökum löndum
talsvert mismunandi og því
má ekki fara eftir því í
neinni blindni, er gerast
kann í öðrum löndum. Þess
ber t. d. vel að minnast, að
hér er ekki til neinn jafnað-
armannaflokkur, nema að
nafninu tll, miðað við það,
sem annarsstaðar er.. Alls-
staðar annarsstaðar eru jafn
aðarmannaflokkarnir í harðri
andstöðu við afturhaldið, en
hér hafa foringjar hans
Sannleikurinn um
stjórn Reykjavíkur
Skrifstofukostnaður babjarins hefur tólf-
faldazt og útsvörin þrettánfatdazt
siðan 1938
Hér í blaðinu var það rakið
fyrir nokkru, hvernig Sjálf-
stæðisflokkurinn hfeir stjórn
að fjármálum ríkisins sein-
ustu 10 árin. Niðurstaða
þeirra athugana var sú, að
rekstrarútgjöld ríkisins voru
fjórtánfalt meiri á seinasta
ári en 1938, tollar og skatt-
ar vorvi fjórtán sinnum hærri
og skuldir ríkisins höfðu
fjórfaldast á þessum tíma.
Mbl. hefir ekki getað hrund
ið þessum staðhæfingum, og
i því kosið að þegja við þeim.
í stað þess hamrar það á
j þVi, að fjármálastjórn Sjálf-
stæðisflokksins sé bezt að
marka á stjórn Reykjavíkur-
bæjar, því að þar hafi Sjálf-
stæðisflokkurinn farið einn
með völdin og hafi ekki þurft
neitt undir aðra að sækja.
í tilefni af þessu þykir rétt
I að rifja upp nokkrar stað-
reyndir, sem sýna það, hvort
! stjórn Reykjavíkurbæjar er
; Sjálfstæðisflokknum til slíks
sóma sem Mbl. vill vera láta.
Það má taka það sem dæmi
um stjórnarhæfileikana,
hvernig skrifstofuhaldi bæj-
arins hefir verið háttað. Það
dæmi lítur þannig út:
Árið 1938 var kostnaður-
inn við skrifstofu borgar-
stjóra og bæjarverkfræð-
ings (skrifstofur bæjar-
stofnana ekki meðtaldar)
kr. 366 þús. kr. í fjárhags-
áætlun þcssa árs er þessi
sami kostnaður áætlaður
4.350 þús. kr. Ilann hefir
hvorki meira né minna en
tólffaldast á þessum tíma.
Svipuð er niðurstáðan á
öðrum liðum rekstrarút-
gjaldanna.
Þegar þess er gætt, að rík-
isstarfsemin hefir þanist enn
meira út en bæjarstarfsemin
seinustu árin, lýsir það enn
meira óhófi og óstjórn hjá
Reykjavíkurbæ að hafa tólf-
faldað rekstrarútgjöldin en
hjá ríkinu að hafa fjórtán-
faldað sín útgjöld.
1 Sé litið á álögurnar, sem
Reykjavíkurbær leggur á
bæjarbúa, verður þessi sam-
1 anburður stjórnendum enn
1 siður í vil.
I
Árið 1938 nam niðurjöfn-
un útsvara í Reykjavík 4.2
millj. kr. í ár hefir niður-
jöfnun útsvara í Reykjavík
numið 527 millj. kr., sam-
kvæmt frásögn Mbl. í gær.
Útsvörin hafa m.ö.o. nær
þrettánfaldast á þessum
tíma.
Það sýnir bezt, hver ó-
stjórnin hefir verið og er í
þessum efnum, ef bornar eru
saman útsvarsgreiðslur hér
á Akureyri. Sá samanburður
lítur nú þannig út:
Á Akureyyri er jafnað nið
ur í ár um 5.5 millj. kr. í
Reykjavík eru nú átta sinn
um fleiri íbúar en á Akur-
eyri og ætti þá heildarupp-
hæð útsvaranna hér að
vera átta sinnum hærri en
þar, ef útsvarsbyrðarnar
væru sambærilegar, eða um
44 millj. í stað þess eru
útsvarsbyrðarnar hér 52.7
millj. kr. eða um 9 millj.
kr. hærri.
Þess ber ennfremur að
gæta, að rekstrarútgjöld Ak-
ureyrarbæjar ættu að vera
tiltölulega hærri en rekstrar-
útgjöld Reykjavikur, því að
rekstrarkostnaðurinn á að
réttu lagi að vera hlutfalls-
lega minni, því stærra sem
fyrirtækið er. Þetta gerir
samanburðinn enn óhagstæð
ari fyrir stjórnendur Reykja
víkur-
Þau dæmi, sem hér hafa
verið nefnd, sýna það og
sanna, að fjármálum Reykja
víkur hefir verið illa stjórn-
að og sízt betur en ríkisins-
Niðurstaðan er hin sama á
báðum stöðunum, að þótt
forsprakkar Sjálfstæðisflokks
ins séu duglegir að græða
(Framnald á 6. siSu)
gengið því á hönd. Þetta ber
t. d. vel að taka með í reikn-
inginn, en jafnframt ber að
gæta þess, að Framsóknar-
flokkurinn er að ýmsu leyti
meiri félagshyggjuflokkur en
miðflokkarnir annarsstaðar
vegna áhrifanna,er hann hef
ir orðið fyrir af samvinnu-
stefnunni. Þessvegna getur
hann að verulegu leyti fyllt
það rúm, sem jafnaðarmenn
og frjálslyndir gera annars-
staðar, eins og t. d. demó-
krataflokkurinn gerði undir
forustu Roosevelts-
Það er áreiðanlega ekki af
neinni tilviljun, að íhalds-
flokkarnir og kommúnistar
tapa fylgi í lýðræðislöndun-
um. Þar sem fólkið fær að
hugsa og ráða gerðum sínum,
getur það krufið þessar stefn
ur til mergjar. Slík athugun
frjálsra manna hlýtur eðii-
lega að leiða til þess, að menn
hafna jafn afdráttarlaust
sérréttindastefnu auðmann-
anna og kúgunarstefnu
kommúnista. íhald og komm
únismi geta ekki þrifist,
nema þar sem fólkið er ó-
frjálst, eins og á Spáni og í
Sovétríkjunum.
Bæði Sjálfstæðismenn og
kommúnistar gera sér nú
vonir um, að íslenzkir kjós-
endur muni sýna minni
stjórnmálaþroska en kjósend
ur annarra lýðfrjálsra þjóða.
Þeir gera sér nú miklar sig-
urvonir. En þær eiga eftir að
reynast jafnmikil vindbóla
og sigurvonir Dewey og Wall-
ace í fyrra. Úrslit kosning-
anna 23. október munu sýna
það sama og annarsstaðar,
að íslendingar hafna í vax-
andi mæli bæði íhaldi og
kommúnisma. Þeir munu
fylkja sér um merki umbóta-
stefnunnar og gera henni
mögulegt að skapa hér þjóð-
félag, þar sem verður minnk
andi jarðvegur fyrir aftur-
hald og kommúnista.
að viðhaída verziunar-
| einokun „miiijóneranna“?
i Ein þýðingarmesla spurniiigin, soin
kjúscndur ciga ao svara 23. oktúhor
Svafar Guðmundsson, bankastjóri á Akureyri hefir
| nýlega lýst því í ritlingi sem hann hefir gefið út, hvern-
I ig „milljónerarnir“ í Sjálfstæðisfiokknum komu tillög-
i um kauptúnafundarins fyrir kattarnef.
Tillögur þessar miðuðu að réttlátri dreifingu inn-
| flutningsins og hafði mcirihluti Alþingis lýst sig sam-
1 þykkan þeim. Þegar til framkvæmdanna komu, risu
| hinsvegar upp „milljónerarnir“ í Sjálfstæðisflokknum,
| — mennirnir, sem hafa grætt á okrinu og svarta mark-
1 aðnum. Vegna yfirráða þeirra í Sjálfstæðisflokknum og
| þjónslundar Alþýðuflokksforingjanna fengu þeir til-
| lögum þessum stungið undir stól. Verzlunaróstjórnin
i hélt því áfram með öllum sínum fylgifiskum — svört-
| um markaði, okri og vöruskorli.
í kosningum þeim, sem fara fram 23. okt., eiga kjós-
| endur að svara því, hvort þeir vilja láta verzlunar-
I einokun „milljóneranna“ halda áfram. Ef þeir vilja
1 það kjósa þeir annaðhvort Sjálfstæðisflokkinn eða Al-
| þýðuflokkinn, sem hafa skapað þessa einokun og við-
i haldið henni. Vilji þeir hinsvegar afnema verzlunar-
i einokun milljóneranna og spillinguna, ér fylgir henni,
= skipa þeir sér um Framsóknarflokkinn, sem barist
| hefir gegn henni og rauf stjórnarsamstarfið vegna þess,
i að hann fékk hana ekki afnumda.
Hverfu á að trúa?
Tveir kennarar við Háskól
ann vekja á sér eftirtekt í
þessum kosningum, þeir Ólaf
ur Björhsson og Gylfi Þ.
Gíslason. Þeir skrifa báðir
um nauðsyn aukins innflutn
ings á neyzluvörum og móti
mikilli fjárfestingu. Þetta
mun álitið vinsælt í kosning-
unum.
En jafnframt þessu hamast
blöð þeirra, Mbl. og Alþbl., að
hæla mikilli nýsköpun og
metast um, hvor flokkurinn
sé áhugasamari og öruggari
í baráttunni fyrir miklum
húsabyggingum í Reykjavík
og annarri fjárfestingu. Báð
ir hafa flokkar þeirra sam-
þykkt, að taka 30 til 40 millj.
króna erlent lán til að verja
í fjárfestingu (togarakaup-
in). Báðir standa þeir saman
í fjárhagsráðl og ríkisstjórn,
um að knýja fram leyfi til
mikilla nýrra framkvæmda.
Sumt af þeirri fjárfestingu
verður raunar ekkert annað
en leyfin fyrst um sinn, því
möguleikana vantar.
Báðir stóðu þessir flokkar
að byggingu toppstöðvarinn-
I ar við Elliðaár, sem kostað.
um 20 milljónir og hefir al
reyndum Sjálfstæðismönnun
verið kölluð toppvitleysa
Báðir stóðu þeir að blessuði
skipinu hans Jóhanns Haf-
steins, Hæringi gamla. Báðir
standa þeir að fjárfesting-
unni miklu í Örfirisey. Báðír
standa þeir að byggingu geys :
lega stórrar og dýrrar olíu
stöðvar inni í Laugarnesi.
En á meðan þessu fer
fram, skrifa háskólakennar-
arnir móti fjárfestingu og:
blöð flokkanna taka undir og
telja lesendum trú um, ac
þeirra flokkar hafi brenn-
andi áhuga fyrir gagngerðun.
breytingum.
Er kátbroslegt að sjá og
heyra þennan tvísöng og eri
itt að átta sig á, hverjun..
skuli trúa. Vilja þessir flokk-
ar halda áfram fjárfestingi
hér i Reykjavík í stórum stíi
svo sem skólahúsa-, sjúkra -
húsa- og íbúðarhúsabygg-
inga? Eða vilja þeir það ekki'.
Kjósendur eiga heimtingu
á að fá ákveðin og afdráttar-
laus svör um þetta fyrir kosr
ingarnar. B
KJÓSIÐ
B-LISTANN!
r.
8
utMMmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiitiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiuiiimuiiiiiiiKiiiiiitiiuj
Auglýsingasími Tímans 81300
iiiiiliiiiiiii.iiimiiiimiiiHiiMMiMMiHiMiiiiiiiiiimmiiiiimiMimiiiiiiiiiiimiiimimiiiiiMimimimimiiiMMiiiim:!