Tíminn - 03.11.1949, Page 4

Tíminn - 03.11.1949, Page 4
4 TÍMINN, fimmtudaginn 3. nóvember 1949 236 blað Hugleiðingar Vestur-lslendings á Keflavíkurflugvellinum Niðurlag Það mætti sjálfsagt skrifa margt og mikið um Keflavík- urflugvöllinn því hann er hið mesta mannvirki og afar stór enda er hann mikið notaður. Um 250 flugvélar lenda þar mánaðarlega. Koma þær vél- ar frá ýmsum löndum: Banda ríkjunum, Englandi, Frakk- landi og Skandinavísku lönd- unum. íslendingar nota hins- vegar Reykjavíkurflugvöllinn jafnvel fyrir sínar stærstu vél ar, sem eru engu minni en, þau bandarísku loftför sem fljúga frá New York um ís- land til Kaupmannahafnar og Svíþjóðar. Annars vil ég ekki hætta mér út á það hála svell, að tala um flugvöllinn því ég ber lítið skynbragð á slíka hluti. ★ Hugurinn dvelur fremur við horfnar myndir úr aldagömlu þjóðlífi ættbálks míns, eins og þær blasa við hugarsjón minni frá þessari strönd. Ég sé hina gömlu og góðu sjó- sóknara í anda, alskeggaða, sterklega, harðlega að ytri sýn, en þelgóða og trausta hið innra eins og þeir beri svipmót sinna óðala, hina brimbörðu útnesjamenn. Ég sé báti beitt úr vör yfir rjúk- andi unnir í ofviðri köldu. Öt- ulir ræðarar leggjast fast á árar því langt er sótt til fjar- lægra miða. Sumir róa kon- ungsskipum. Bessastaðavaldið hefir þröngvað þeim þar á skip. Suðurnesjungar bjuggu allra íslendinga næst höfuð- bóli hins danska einræðis- valds og höfðu mest af því að segja Suðurnesjakjálkinn hefir jafnan verið ágangs- reitur fyrir útlent vald; við rekjum nöfnin og um okkur fer hrollur: Kópavogur, Bessa staðir og Reykjavík — danskra selstöðukaupmanna. — Þarna fóru Englendingar með ránskap og þarna stigu „Tyrkir“ á land. Þarna hefir íslenzkur háskríll tíðum gengið á máli hjá erlendri ásælni, þjóðinni til ófarsæld- ar. En þessir menn, sem beittu í kaldann voru sannir íslend- ingar, óbrotnir en traustir al- þýðumenn. Þeir virtust kannske nokkuð hrjúfir að ytri sýn en skrápurinn skýldi vörmu hjarta, sem elskaði djúpt og innilega konu og krakka, átthaga og ættar- land. Þeir þurftu á þykkri yfir húð að halda þar sem þeir dorguðu á miðunum, þar sem brimsalt sjávardrifið rauk um þá, ísvindar frá Grænlands- gnúpum léku um þá, þar sem allir vindar Atlantsála ógn- uðu þeim. í æðum þeirra og innræti geymdist það „víta- min“ sem viðhélt þjóðlífinu gegnum allt böl og hörmung- ar ótal alda og frækorn þeirr- ar menningar sem ennþá átti eftir að dafna í endurreisin landsins á vorri tið. Þetta voru hinir sönnu aðalsmenn íslands og laukar vors ætt- ernis. Lengi var á miðunum setið — helzt til lengi, stund- um — fiskarnir voru fáir sem eftir urðu til hlutar eftir að kóngurinn hafði haft sitt. Veiðarfærin voru ófullkomin, bátarnir opnir og smáir. Á tvær hættur varð að tefla svo börnin héldu ekki fyrir foreldrunum vöku, kveinandi um brauð. Þetta var menn- ing aldarfarsins sem lifir að nokkru leyti enn, að sumum bæri forréttindi til að éta, öðrum skyldan til að vinna. Það var réttur konungsins að sitja veizlur í Kaupmanna- höfn á kostnað íslenzkrar al- þýðu, einkum á kostnað sjó- manna. Þá bjuggu íslending- ar undir þrefaldri ánauð: þeirri ánauð sem konungsvald ið skóp þeim; þeirri ánauð sem einokunarvald kaup- mannanna lagði þeim á herð ar; þeirri ánauð og kúgun sem þeirra beturmegandi grannar beittu þá eina.tt, í skjóli þeirra laga er voru oft- ast til þess gerð að lögfesta ranglætið fremur en grund- valla réttlætið. ★ Sem sagt: Þarna voru hraust ir karlar að dorgi fyrir kóng- inn út í Kaupmannahöín og sjálfa sig. Þetta voru beztu sjómenn íslands og djörfustu sjósóknarar sannkallaðar hetjur hafsins. — Hvergi á landinu barst þvílík björg á land sem á Suðurnesjum. Fiskimennirnir við Faxaflóa þóttu mestu og djörfustu sigl ingamenn íslands um langt skeið. Fiskiför þeirra báru líka af öðrum bátum, Engeyj- arbátarnir. Þegar aðrir börðu sjóinn móti stormi og brimi slöguðu þeir sig til lands. Þarna í Faxabugtinni hafði drottinn frá öndverðu stofnað forðabúr er síðar varð auð- kista landverja. Þarna voru mörg hundruð Halldórar Bessasynir og þúsundir Jónar Hreggviðssynir er bognuðu en brotnuðu aldrei. Þeir drógu björg í bú hálfrar þjóðarinn- ar eða vel það. Þeir sóttu fjör efnið í djúpin meðan þess var mest þörfin, um hina dimmu skammdegis mánuði. ★ Minningar fortíðar sækja að okkar sálar sjónum. Mað- ur sér bát bruna að vör yfir úfnar öldur. Kvöldskuggarn- ir hafa lagst á láð og lög. Illa sér til feigðarboðanna fyrir vitalausum ströndum en kænlega er stýrt fram hjá flestum voða. Samt verður ekki æfinlega framhjá þeim öllum komist og margur var sá kappinn er hlæjandi kysti ástmey sína í húmi nætur en berst nú sem lík að lándi með an bátur á hvolfi veltist í brimröstinni. Sumum er kannske bjargað. Þeim er hjúkrað sem bezt má verða og háttaðir ofan í hjónarúm- ið, í litlu lágreistu kotunum. Konur og börn hafa horft á slysið, en engin æðrast um of. Mæður og synir gera heit strengingu. Mæðurnar að eyða öllum kröftum í þarfir föðurleysingjanna, synirnar að sækja sjóinn með engu minni áhuga og dugnaði en hann pabbi gerði. Þannig heldur lífið og starfið áfram frá kyni til kyns um blóðug- ar og tárvotar ættarslóðir. Margur reynist drengur í þrautum og margt er það barn ið, sem tekið er til fósturs bæði af fátækum og ríkum. Alþýðan verður að þrengj a sér saman til samábyrgðar. Þannig hafa kynslóðir strítt og stritað, bariz og beðið bæði sigur og ósigur — ef til vill, ætti betur við að segja sigrað sjálfan dauðann fyrir manndóm sinn og mann- gæsku. j Suðurnesin voru óskalönd og draumheimur drengjanna í dölum Norðanlands. Hnokk- ana dreymdi um þann dag, þegar þeir gætu farið með feðrum sínum suður til róðra. Þeir höfðu heyrt fólk tala með aðdáun, á löngum kvöld vökum um hina miklu for- menn og aflasælu suður í Vogum, Grindavík og Höfn- um. Þar voru nöfnin á hvers manns vörum: Guðmundur á Auðnum, Ketill í Kotvogi, Guðmundur á Vatnsleysu; Einar í Garðshúsum. Þeir höfðu heyrt menn tala um sunnlenzkar verstöðvar sem fjarlæga æfintýra veröld. Smalinn bíður þess með ó- þreyju, að hann megi yfir- gefa rollurnar til að róa frá einhverri verstöð á Suður- nesjum. ★ Þokunni tekur að lyfta og nú bregður fyrir sýnum. Ég jsé mann á ferð um lágheiðar jog fjallaskörð, það eru norð- lenskir vermenn á heimleið. Þeir þaufást þar með pjönk- ur sínar og fáeina klyfja- hesta. Löng og seinsótt er leiðin. Bak við fjöllin bíður bjargþrota fólk í norðlenzk- um dölum og á útströndum við fiskilausa firði. Sárfættir og langlúnir síga þeir áfram — hugurinn dregur þá hálfa leið. Þeirra bíða langþreyðir vinafundir og ef til vill ævin- týri. Það má kannske finna léreftspjötlu í malpokunum handa eiginkonu, ungri j heimasætu, unnustu, móður eða systur. Hugsunin um feg- ins fundi vakti í vonarglöö- ! um draumi og myndir blika í | geðheimi þessara göngu- manna. Innan stundar myndu þeir hvíla í ástfúsum faðmi. Þarna dvaldi draumlynd mær feimin við sínar ungmeyjar hugsanir, í sakleysi æskunn- ar. Nokkrir eiga sér hvorki eiginkonur eða unnustur en þarna fara rómantiskir Skag firðingar og riddaralegir Hún vetningar. Alla dreymdi þá um einhverja daladís: vinnu- konu eða heimasætu. Þeir rifjuðu upp fyrir sér fátæk- legar endurminningar um lít ið bros og hlýtt handtak. Nú var hann næstum sigldur, ný kominn af Suðurlandi, reif- jaður ævintýraljóma fjar- ! rænna staða og hann slagaði hátt upp í framandi riddara ^ sem lofaður er í sögum og jljóði. Nú kunni hann frá 'ýmsu að segja. Á skáldadís- jina var nú heitið að gefa lit j í frásögnina eða þá helzt að stuðla hana léttu ljóði. jÁ Holtavörðuheiði og í Kal- j mannstungu var bisað við j bragargerð. Dæmin voru svo sem til þess að skáldskapur launaðist með gegnum lýs- andi geisla frá glampandi auga og mælskubrosi. Já, — guð minn góður ef hann yrði (Framhald á 7. siðu.) í norskum blöðum finn ég þær fréttir, að nafngreind kona uppi í Guðbrandsda'l, 87 ára gömul, hafi farið gangandi á kjörstað um daginn og heim aftur, þó að það væri 5 km. gangur báðar leiðir. Þar er líka sagt frá einum karl- manni hundrað ára gömlum, sem fór á kjörstað og kaus. Og frú María Padderud, sem er 102 ára og þremur mánuðum betur fór í bíl með múrara einum og greiddi atkvæði. Nú vil ég biðja lesendur mína að gera mér þann greiða að láta mig frétta um elztu kjósendur, sem þeir viti tii að hafi tekið þátt i lcosningunum hérna. Við skulum bera okkur saman um það í bað- stofunni hverja við vitum um elzta, sem þátt hafi tekið í þeiri at- höfn. Mig langar til að minnast á bók, sem liggur á borðinu fyrir fram- an mig. Það er sænsk bók um kristinn dóm. Það einkennilega við þessa bók er það, að hún er barátturit og deilurit frá báðum hliðum, með og móti Kristindóm- inum. Þessi bók er þannig samin, að hver höfundur skrifar sinn kafla. Sá, sem skrifar á móti kristinni trú byrjar, og svo tekur talsmaður trúarinnar við. Hér er ekki tóm til að segja frá þessum umræð- um til gagns, en ég held að þær geti verið okkur til fyrirmyndar. Svona ættum við að geta rætt umfangsmestu mál rólega og rök- fast og leitað að niðurstöðu mál- anna í félagi. Þannig gætum við hjálpað hver öðrum til þess að komast að einhverri niðurstöðu og skapa okkur skoðun, einungis með því að rökræða málin hysr-frá sínu sjónarmiði. Það kom út í fyrra lítið kver sem heitir Játningar. Þar gerðu 13 menn grein fyrir lífsskoðun sinni. Þetta var mismunandi vel gert. Sumir voru hálf feimnir að sjá og létu lítið uppi persónu- lega og á þeim var minna að græða. En aðrir skrifuðu af ein- lægni og hreinskilni, svo að það er sérstaklega lofsvert. Og þessi bók er ein þeirra, sem sérstök ástæða er til að benda þeim á að lesa, sem vilja skapa sér ör- ugga líísskoðun. Ekki af því, að menn öðlist þar neina handfestu, sem hver og einn geti reitt sig á. Menn eignast ekki lífsskoðun nema i samræmi við persónulega reynslu. En þarna eru túlkaðar meira og minna flestar höfuðstefnur and- legra mála, þær sem nú eru uppi á íslandi. Og þeirri túlkun er gott að kynnast. Játningar er ekki barátturit og þar fara ekki fram beinar kapp- ræður. Höfundarnir koma einn af öðrum og gera grein fyrir því, sem þeim liggur einkum á hjarta. Og þó verða þetta að vissu leiti óbeinar kappræður, því að hver leggur áherzlu á sína lífsskoðun. Og þrátt fyrir alla menntun þess- ara tíma er mér ekki grunlaust um að víða mætti vera dálitið meiri festa í lífsskoðun fólksins. Ætli það sé ekki hægt að finna talsverðan hóp af gáfuðu fólki, sem llpfir ; jfirlitsþokkingu á býsna mörgu, en ef að er gáð raunverulega harla litla skoðun á lífinu. Þetta fólk hefir einhvem- veginn gengið fram hjá því, sem verður þó að teljast með hinu þýðingarmeira.. Ef mannlífið sjálft er ekki þess virði að skapa sér neina skoðun um það, — hvað er þá nokkurs virði hér í heimi? Starkaður gamli. „HEKLA“ Ef yður langar til að skrifast á við jafnaldra yðar ein- hversstaðar á íslandi eða erlendis, þá er bezt fyrir yður að ganga í Bréfaklúbbinn HEKLU. Meðlimir eru um 1000 í um það bil 40 löndum. Árgjald fyrir árið 1950 er kr. 15.00. Þér fáið tímarit klúbbsins frítt, og nafn yðar og heimilisfang og áhugamál, verður prentað í fyrsta heftinu, sem kemur út eftir að þér hafið gerzt félagi. — Eignizt vini innan lands og utan, með hjálp Bréfaklúbbsins Hekla. Skrifið eftir nánari upplýsingum. Bréfaklúbburinn Hekla, P. O. Box 356, Reykjavík. TILKYNNING Viðskiptanefnd hefir ákveðið nýtt hámarksverð á smjörlíki. og verður framvegis að frádreginni niður- greiðslu ríkissjóðs sem hér segir: í heildsölu ............ kr. 3.36 í smásölu .............. kr. 3.90 Hámarksverð á óniðurgreiddu smjörlíki er kr. 2,20 hærra pr. kg.. Verzlunum er óheimilt að hækka verð á birgðum. Söluskattur er innifalinn í verðinu. Reykjavík, 1. nóv. 1949. Verðlagsstjórinn

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.