Tíminn - 05.11.1949, Síða 4

Tíminn - 05.11.1949, Síða 4
4 TÍMINN, laugardaginn 5. nóvember 1949 238. blað Eftir kosningarnar A kjördaginn fer hið svo- kallaða lýðræði að njóta sín. Á kjördaginn er hinn fátæki og tíki nokkurnveginn jafn rétthár. Á kjördaginn fellur dómur þjóðarinnar yfir mönn um, málefnum og flokkum. Hitt er annað mál, að und irbúningurinn undir þennan mikilsverða dóm þjóðarinn- ar ét misjafn. Og það er hann sem gerir oft gæfu- muninn. t ,1 if- •» Framsóknarmenn Á árinu 1942 sameinuðust allir þrír andstöðuflokkar Framsóknarmanna um að hafa tvennan kosningar til þess að breyta kosningalög- unum fyrst og frefnst með þeim tilgangi að draga úr áhrifamætti sveitanna og aðalmálsvara þeirra, Fram- sóknarflokknum. Kosningalögin, sem þessir þrí eínuðu bjuggu þá til nokkr- um árum áður og farið hefir verið eftir síðan eru það en- demis hrákasmíði. að jafn- vei höfundar þeirra æðrast nú sjálfir yfir sínum eigin af- kvæmum, þegar þeir sjá m. a- að eftir þessum lögum eru tveþ- menn kosnir á Alþing hvað eftir annað í alminnstu kjördæmum landsins, svo sem í Austur-Skaftafells- sýslu og Seyðisfirði. En Framsóknarflokkurinn, sem þeir þríeinuðu ætluðu að vinna allt það tjón, er þeir máttu, vex — hann vex þrátt fyrir allar bölbænir þrenn- ingarinnar, sem búin er að snúa hinu mesta góðæri í hálfgert hallæri. Við þessar kosningar hefir Framsóknarflokkurinn bætt við sig fimm þingsætum frá síðustu reglulegum kosning- um, 1946. Hann hefir unnið sætin frá öllum hinum þrí- einuðu. Orsakir — afleiðing ------ — Þó að talið sé, að fullt lýð- ræði ríki á kosningadaginn, þá er þó margt í kosninga- undirbúningnum, sem blekk- ir saklausa kjósendur og hef- ir áhrif á úrslitin. í kosninga undirbúningi eins flokksins sérstaklega má segja, að rang hverfa og ofvöxtur einkaauðs ins yrði mjög áberandi. Birt- ist þetta í áberandi mestum blaðakosti, fjölmennum flokksskrifstofum, íburða- miklum „hátíða“ — og veizlu höldum, trúðleika'rasamkom um o. fl. o. fl. — þótt ekki sé nefnd vefnaðarvara, bygg ingarefni, lúðusendingar, kex kassar o. fl- þ. h., sem ósjálf- stæðum kjósendum kemur vel að fá frá þessum dæma- laust vinsælu, hjálpsömu og elskulegu kaupsýslumönnum sem láta svo lítið að birtast kannske sjálfir í kotum smæl ingjanna með bros á vör, svona rétt um kosningarnar. Foringjar tveggja hinna flokkanna úr þeim þríein- uðu, er hafa aðalfylgi sitt meðal launafólksins, sýna aft ur á móti „dyggð“ sína og dugnað í því að fjölga stöð- ugt krónum launafólksins á kostnað verðgildis þeirra. Og hrópa svo „kjarabætur", „kjarabætur"! Hinu leyna þeir eins og þeir geta fyrir fátæku launafólki, að því fleiri sem nýjar og smáar krónur velta, því hægara eiga stóreignamennirnir með að ná undir sig þeim eignum Eftir Viiífús GufimiindNNOii. sem aðal veðmætið hafa- — Svona hefir svikamyllan malað niður velferð almenn- ings til beggja hliða við j Framsóknarflokkinn. En und anfarið hafa augu fleiri og j fleiri kjósenda verið að opn- j ost fyrir hinu sanna og raun' verulega. Og það er aðal- orsök kosningasigurs Fram- sóknarmanna. Traðkað á einstaklings- framtakinu Ekki er svo að skilja, að við Framsóknarmenn séum algóðir, þótt við höfum hundr að sinnum varað þjóðina við að stýra ekki út í það forað, sem hún er nú komin í. En fólkinu er óðum að finnast. fleiru og fleiru, að við höfum sagt því mest af sannleika og okkar ráð hafi verið bezt þótt þau hafi verið virt að vettugi af þeim þ ríeinuðu sem kallað hafa sig „ný- skapara“. Þegar sá, er þessar línur skrifar, vann nokkra daga í skrifstofu Framsóknarflokks- ins fyrir kosningarnar, komu fjöldi manns þar inn, Sem áð ur höfðu kosið með hinum flokkunum. Einn af þeim var roskinn myndarlegur sjó maður. Hann var frá ísa- fjarðardjúpi og hafði róið þar í ýmsum verstöðvum fjölda ára, en átti nú heima í Reykja vík. Hið veðurbarna andlit hans og silfurhvít hárin í vöngunum gáfu orðum hans vissa áherzlu og þunga, en þau voru á þessa leið: „Eg hefi kosið með jhalds- flokknum og áframhaldi hans, Sjálfstæðisflokknum, frá fyrstu tíð. þar til nú að ég get það ekki lengur. í þeim flokki hefir alltaf verið talað mikið um einstaklings- frelsi og einstaklingsframtak. En mér finnst þessi gamli flokkur minn vera búinn að svíkja þetta tal sitt allt eins rækilega og verða má. Eg hefi aldrei Iátið tóbak né áfengi í vit mín og eg hefi sparað saman í sparisjóðs- bók eins og ég hefi getað af kaupi mínu nú í yfir 30 ár og ætlað að tryggja með því afkomu mína og minna á efri árum. Eg á nú þrefalt fleiri krónur í bönkum ríkis- ins heldur en fyrir 10 árum síðan, en er þó í raun og veru miklu fátækari. Ríkisvaldið. undir fjármálastjórn og aðal áhrifum minna flokksmanna hefir rænt eða stolið öllu því, sem ég hefi sparað saman undanfarin tíu ár og tals- vert meiru. Þessi flokkur minn hefir alltaf verið að svíkja mig og táldraga. Frelsi mitt og einkaframtak er nú helzt að mega horfa í rústir vona minna og hins barna- lega trausts, sem ég setti á þennan flokk, sem ég sé að afæturnar í landinu ráða og hafa orðið stórauðugar af að braska með spariskildingana mína og annarra stéttar- bræðra minna, sem höfum verið að hætta lífi okkar til að reyna að draga saman aura okkur til öryggis og framdráttar. Þó að ég hafi oft heyrt iíla talað um ykkur Fram- sóknarmenn og þið séuð eng ir englar, þá finnst mér þó nú orðið að þið hafið sagt okkur daglaunamönnunum mest af sannleika og þvi ætla ég að kjósa B-listann í þetta sinn“. Á svipaða leið og þessum aldraða sjómanni fórust mörg um alþýðumanninum orð fyr ir þessar kosningar. Þeir fundu sig blekkta og svikna af sínum eigin gamla flokki- Þeir stungu því við fæti. Og þeir sennilega gera það mjög margir fleiri í næstu kosning um. y Samvinnufélögin. Einhver víðtækustu og á- hrifamestu samtök almenn- ings eru samvinnufélögin. Þau hafa fært fjölda mörg- um einstaklingum og heilum héruðum margsk^nar rétt- indi og umbætur. Þau hafa víða verið sverð og skjöldur fátækrar alþýðu og aukið stórlega menningu hennar, félagsþroska og framkvæmd- ir. Framsóknarflokkurinn og samvinnufélögin hafa starfað undanfarna áratugi hlið við hlið, sem vinstri hendi og hægri hendi á sama líkama. Framsóknarflokkurinn var stofnaður af niðjum fyrstu samvinnumannanna, er mynd uðu fyrstu samvinnufélögin sem varnarvirki á móti á- sælni fégráðugra fjárplógs- manna. Flokkurinn hefir jafnan verið á verði — einkum á löggjafarsviðinu — að bægja frá hættunni og fyrir að efla vöxt samvinnufélag- anna. Það er því næsta óeðli- legt, að samvinnumenn eða þeir, sem starfa fyrir sam- vinnufélögin, ljái lið sitt til þess að efla yfirgang annarra þjóðfélagsstefna eins og t. d. marxisma og stór-einkakapi- talisma. Þeir eru með því vilj- andi eða óviljandi að svíkja samvinnufélags hugsjónina. — Eins hljóta samvinnufélög in að gera þá kröfu til starfs- manna sinna, að þeir deili svipuðum kjörum og félags- mennirnir, sem aðallega bera uppi félögin. Samvinnufélög- in, eru auðvitað jafngóð I eðli sínu fyrir það þótt á stöku stað séu mistök í þeim, sem þarf að laga. Þetta rifjast nú upp við kosningarnar, þar sem sam- vinnumennirnir eru aðal- kjarni Framsóknarflokksins. Flokkurinn er líka oft nefnd- ur flokkur samvinnumanna eða bænda. Það voru líka eink um bændur, sem fyrstir brutu okurfjötra kaupmannanna með samtökum og samhjálp sín á milli. Það voru líka aðal lega bændur og bændavinir, sem stofnuðu Framsóknar- flokkinn. En nú fjölgar þeim óðum við sjávarsíðuna, sem aðhyllast úrræði samvinnu- félagsskaparins og Framsókn arflokksins —- auk þess sem fjöldi frjálslyndra manna þar ann bændunum alls velfarn- aðar — bændunum, sem eru að rækta og byggja upp land- ið og framleiða hollar neyzlu vörur fyrir alla þjóðina. Það j er gagnkvæmur hagur fyrir ( þá, sem búa í sveitinni og kaupstöðunum að báðum ‘ vegni vel og kritúr þar á milli sprettur af heimsku eða þröngsýni. Þeir, sem berjast fyrir um bótahugsjónum, verða styrk- (Framhald á 6. síSu) í Svíþjóð er nú rekinn mikill áróður fyrir almennum sparnaði. Hér á landi hefir verið talað um skyldusparnað, en það hefir vit- anlega ekki orðið annað en umtal- ið. Svíar hafa ekki komið á skyldu sparnaði, en þeir reyna að ná sama árangri með frjálsu móti með því að hvetja menn til að spara af frjálsum vilja. Aðallefftt eru þessi mál tekin þannig, að í verksmiðjum og á vinnustöðvum er reynt að fá ung- linga til að leggja fyrir nokkurn hluta af launum sínum. Það er fólk á aldrinum 15 til 25 eða 30 ára, sem einkum er reynt að hafa áhrif á. Því er treyst, af ef ung- lingarnir venjist á sparnað, muni þeir ekki þurfa eftirlit eða áróður til þess að fara vel með fé fram- vegis á efri árum. Og venjulega er miðað við það, að unglingarnir ieggi fyrir tiunda hluta launa sinna. En þó er vitanlega stund- um haft lægra hlutfall ef t. d. er um iðnnema að ræða. I . Þessi svarnaðarhreyfing er sem | sagt frjáls samtök. Það eru ýms- ar stofnanir, þar sem allir ung- lingarnir hafa tekið þátt í þess- um samtökum. Og ýmsir af hag- j fræðingum Svía vænta sér mikils af þessari viðleitni. Því segi ég frá þessu hér, að ég veit ekki nema við mættum hugsa og tala heldur meira um sparnað. Sparnaður er ekki sér- lega oft nefndur hér í blöðum okk ar og þjóðin heldur ekki veru- lega sparneytin. Við kunnum yfir- leitt betur að afla fjár en gæta þess. Víða er illa farið með hluti og verðmæti látin grotna niður af gáleysi og vanhirðu. Og það liggur við að þetta virðist stafa af inngrónu kæruleysi á sumum svið um. Það væri vandalaust að benda á andlegt samband milli drykkju- skapar og annarrar vanhirðu verðmætanna, því að áfengis- nautn er meðal annars heimsku- leg vegna þess, hvað slæm með- ferð hún er á mannlegum líkama og mannsandanum. Að því leyti á hún skylt við vanhirðu á vélum og verkfærum og aðra slika óhag- sýni og vangæzlu. Það er ósköp hœtt við þvi, að fyrirhyggjuleysi og ábyrgðarleysi í fjármálum sé eitt af því, sem við verðum að beita okkur alvarlega gegn. Blöðin okkar freistast til þess að tala öllu meira um það, að menn fái ekki nóg og eigi að vera á verði gegn þeim, sem það sé að kehna. Þetta er gott að vissu marki. Víst eigum við að verja rétt okkar og reisa sníkju- stéttunum rammar skorður. En farsælast er það, að læra jafn- framt að liía með hagsýni og fara sparlega með. Það er ekki neitt óhollara og þvi minna sem við þurfum til daglegrar framfærslu, þvf meir höfum við aflögu til nýtilegra framkvæmda. Og gam- an er nú að safna orku sinni þannig saman í eitt, að við getum einhverntíma gert eitthvað, sem munur er að. Starkaður gamli. ASKORUN Hér meö er skorað á þá, er kröfur eiga á Byggingar- samvinnufélag bankamanna -Búnaðarbankadeild), a'ð lýsa þeim fyrir hr. Garðari Þórhallssyni. Búnaðar- bankanum, innan 10 daga frá deginum í dag að telja. Reykjavík, 5. nóv. 1949 Stjórn Byggingarsamvinnufélags bankamanna Húseigendur Höfum fyrirliggjandi olíugeyma af ýmsum stærðum. — Sjáum um uppsetningu geymanna, og veitum enn- fremur allar faglegar upplýsingar viðvíkjandi kynd- ingartækjum og öðru þar að lútandi. H.F. SHELL Á ÍSLANDI Sími 1420. nn::m8mmm»m::::m:m:::m:::m::m:i:mmmm::miimmmn Allt til að auka ánægjuna Stofuskápar — rúmfastakassar 3 gerðir. Borð marg- ar tegundir, kommóður (ekki úr pappa). Eldhússtæði og sérlega góðir eldhúskollar ný komnir. Borðstofu- stólar væntanlegir í byrjun nóvember. Dívanar vmsar stærðir og rúmstæði. Verzl. Sími 27 — Selfossi

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.