Alþýðublaðið - 30.06.1927, Blaðsíða 3
ALfiÝÐUBLAÐIÐ
3
söngmentaviðskiftura Istendinga
við umheiminn, að kynna hér út-
lendan nútímasöng og bera ís-
tenzkan söng út um heiminn.
Höfum fyrirliggjandi:
Steinsykur,
rauðan og fallegan.
Kristjáns Albertssonar, „Hvetjær
—?“, sem varð titefni þessarar
greinar. Lesendurnir eru beðnir að
gefa glöggar gætur að muninum
á trú í einlægni og á „helgi-
stepju“. Pað fer varla hjá því,
að sá, sem les þessa slðustu pre-
dikun Kr. Alb., skilji um leið
merkingu orðsins helgislepja.
Kosningin
á Snæfellsnesi.
Snæfellingar eiga nú um þrjú
þingmannaefni að velja í orði
kveðnu, og þó varla nema tvö.
Þeir hafa nú um all-langt skeið
verið svo óheppnir að hafa íhalds-
mann og atkvæðalítinn í tuhboði
sínu á alþingi, Halldór Steins-
son lækni, sem þar hefir fátt ann-
að gert en að greiða atkvæði'
eins og hinir íhaldsmennirnir; og
til þess 'að hann ætti sem auð-
veldast með að vita jafnan, hvað
þeim þóknast, hafa þeir tylt hon-
(Umi upp í forsetasæti í efri deild,
svo að hann gæti alt af greitt síð-
astur atkvæði við nafnaköll, því
að ekki hefir það getað verið
af því, að hann sé skörulegur í
forsetastóli, enda myndi þeim
hafa þótt það stinga óþægilega í
stúf við flesta aðra flokksmenn
Ihaldsins þax í deildinni, ef for-
setinn hefði verið skörulegur. !
einu sýndi hann þó „skörungs-
skap" sinn á síðasta alþingi. Hann
notaði forsetavald sitt til þess að
neita að taka á dagskrá tillög-
tma um, að nefnd yrði sett til að
rannsafca hag bátaútvegsins og
flytja þinginu tillögur, sem gætu
órðið honum að gagni. Svona bar
hann hag bátasjómanna bæði á
Snæfellsnesi og annars staðar fyr-
ir brjóstinu. Hann mat meira að
koma í gegn um þingið frum-
varpinu um sölu Mosfellsmýr-
anna, framtíðar-grassvæðis, —
koma þeim úr eigu ríkisins.
Af hálfu Alþýðufiokksins er í
kjöri glöggskygn og gerhugull
Snæfellingur, Guðmundur Jónsson
frá Narfeyri. Mun þingmensfca
hans, ef hann nær kosningu, verða
alþýðumönnum, bæði verkafólki
og smábændum, bæði á Snæfells-
nesi og annars staðar, til hinn-
ar mestu btessunar. Hann er, eins
og kunnugt er á Snæfellsnesi og
viðpr, heiil og óskiftur málsvarj
alþýðunnar, og hefir bæði vit og
vilja til að efla hag hennar með
því að stuðla að gagnlegri og
heilladrjúgri lagasetningu, sem
verði henni lyftistöng í lífsbarátt-
unni. Allir Alþýðumenn á Snæ-
fellsnesi, sem skilja, hvað þeim
er sjálfum fyrir beztu, kjósa Guð-
mund frá Narfeyri, bændumir
líka. Þeim er ekki til neins að
eyða atkvæðum sínum á þriðja
manninn, þann, sem „Tíminn" hef-
ir sent á stað sem nokkurs kon-
ar „sprengilista“. Þeir geta eins
vel kastað atkvæðunum fram af
Búlandsböfða. „Tíma“-maðurinn
getur ekki náð kosningu hvort
heldur er, en hitt er um að gera
að fella ihaldsmanninn.
Erland símske jtl.
Khöfn, FB., 29. júní.
íhaldsmenn kúga ihaldsstjórn-
ina hrezku.
Frá Lundúnupt er símað: Stjóm-
in hefir frestað því áformi sínu
að bera fram frumvarp til laga
um breytingu á efri málstofunni
vegna mótspyrnu margra íhalds-
manna. Þykir ólíklegt, að stjóm-
in muni hreyfa frekar við málinu
fyrr en eftir kosningar.
V erzlunarráð stef na.
Frá Stokkhólmi er símað: Ráð-
stefna alþjóða-verzlunarstofnana
er haldin hér í borg þessa dag-
ana. Aðalhlutverk hennar er að
ræða um, hvað heppilegast sé að
gera til þess að koma því til
leiðar, að hindranir fyrir frjáis-
um viðskiftum milli rikja verði
takmarkaðar.
Dm dagiiui og vegira.
Nætnrlæknir
er í nótt Katrín Thoroddsen,
Vonarstræti 12, sími 1561 (í stað
Guðmundar Thoroddsens).
Eggert Stefánsson
söngvari er nýkominn norðan
af Akureyri teingað. Hér dvelst
hann að eins stutta stund og held-
ur að eins eina söngskemtun,
sem verður í næstu viku. Síðan
fer hann suður um land til Aust-
fjarða -og ætlar að gefa fólki kost
á að hlusta á söng sinn í þeirri
ferð. Er Eggert fullur áhuga á
„Iðunn*,
XI, 2, er nýkomin. Af efni henn-
ar má nefna: „ísland fullvalda
ríki“ eftir Sigurð Þórðarson fyrr
v. sýslumann, eins konar viðbót
og frekari greinargerð við fyrri
ritgerðir hans, „Nýja sá,ttmála“ og
„Eftirmála", djarflega og hispurs-
laust rituð eins og þær. „Hval-
veiðar í Suðurhöfum" eftir Magn-
ús Jónsson (með myndum),,, Þjóð-
málastefnur" eftir Jónas Þorbergs-
son, kvæði eftír Böðvar frá Hnífs-
dal og Jóhann Sveinsson, þýdd
saga og endurminning eftir Sig-
ríði Björnsdóttur.
Rauði kross íslands.
Stjórn hans hefir gefjð út
skýrslu sína til aðalfundar, og
sést af henni, að félagsskapurinn
gegnir áhugasamlega ætlunarverki
sínu og hefir þegar eflst allvel.
Félagatala var í árslok s .1. 1308.
Maðurinn,
sem drukknaði af vélarbátnum
„Isleifi" frá ísafirði, stýrimaður
bátsins, hét Hákon Guðmundsson
frá Garði (Meira-Garði) við Dýra-
fjörð norðanverðan, uppeldissonur
og bróðursonur bóndans þar.
Síldveiði nyðra.
FB.-skeyti frá Akureyri i gær:
Dágóð síldveiði í reknet síðustu
dagana. í dag kom skip inn á
Siglufjörð með 200 tn. Óvenjulega
mikill afli um þetta leyti sumars.
m fP WW PP W H ll’ii
Kjósendafundurinn.
Alþýðukjósendur ættu að fjöl-
menna í kvöld í Bamaskólagarð-
inn, þeir, sem það er unt. Vaxla
munu andstæðingamir láta á sér
standa á fundinn.
, ; I : ck' 1 ; !y
Knattspymukappleiknrinn
í gærkveldi fór þannig, að
„Valuí“ yann „Fram“ með 3
gegn 0. Þóttu keppendumir þó
leika mjög líkt.
Stúdentspröf.
Einn þeirra stúdentspröftaka við
Mentaskólann, sem veiktust, hefir
nú lokið því, og annar er langt
kominn með prófið, sá 51. í vor.
Veðrið.
Hiti 11—8 stig. Norðlæg átt,
nema á Austurlandi austlæg.
Hvergi hvast veður og víðast þurt.
Gmnn loftvægislægð yfir Suður-
landi, en hæð fyrir norðvestan
land. Útlit: Norðlæg átt, nema á
Austurlandi suðlæg. Víðast þurt
veður, nema skúrir í dag á Suð-
austurlandi.
Til sildveiða
fóru í nótt togaramir „Skalla-
grímur“ og „Snorri goði“. Munu
þeir leggja veiðina «pp á Heslseyri
i sumar.
Skipafréttir.
„Botnía“ fór utan í gærkveldi.
„Esja“ fer kl. 10 í fyrra málið
vestur og norður um land i hrang-
ferð og „Gullfoss" annað kvöld'
kl. 8 til útlanda. „Suðurland" fer
kl. 6 í fyrramálið í Borgamess-
för. Er ráðgert, að það það farf
aftur frá Borgarnesi kl. 4 og
komi hingað annað kvöld.
í Angmagsalik
á Grænlandi var 14 stiga hiti
kl. 11 í nótt og kyrt og þurt
veður.
Dóra Sigurðsson
söngkona, hélt söngkvöld í
Nýja Bíó í gær með aðstoð manns
síns, Haralds Sigurðssonar píanó-
jsnillings. Var kvöldið helgað
minningu Beethovens, og söng
hún eingöngu lög eftir hann og
Schubert af yfirlætislausri og fág-
aðri list. Fögnuðu áheyrendurt
sem raunar voru færri en ve.úl hefði;
verið, listamönnunum innilega ogi
þökkuðu hinn ágæta söng með
löfaklappi, svo að húsið dundí
við.
BSSSÍSi ÍHíSS 111
Fyrirspurnir.
Þegar Sigurbjörg ihaldskona
svarar fyrirspurn „forvitins kjós-
ánda“ í ALþýðublaðinu nýlega þá'
þætti mér mjög heppilegt, ef hún
treystist til að svara öðrum fyr-
irspurnum, sem mig langar að
leggja fyrir hana. Svo er mál með
vexti, að börn mín, sem ég hefi átt
i bamaskólanum undan fama vet-
ur, hafa oft á hverjum vetri beð-
ið mig um aura til að gefa í sam-
skot þau, sem Sigurbjörg hefir
staðið fyrir í barnaskólanum.
Vegna þess, að okkur, sem lif-
um af vinnu heimilisföðurins og
engu öðru, er sárt um aurana, þá
langar mig að spyrja Sigurbjörgu
eftir farandi spurninga:
1. Hafið þér enga tilfinningu af
því, þegar þér eruð að biðja fá-
tæk alþýðubörn um peninga tiL
Hvítabandsins, að það geti sært
tilfinningar þeirra að geta eigi
tekið þátt í samskotunum eins
og hin börnrn, sem eiga foreldra,
sem eru betur stæðir?
2. Finst yður, að þér eigið
skilda nokkra viðurkenningu verk-
lýðsfjölskyldna fyrir starf, sem er
framkvæmt með peningum, sem
þannig eru fengnir?
3. Hversu miklir eru þeir pen-
ingar, sem þér og aðrar „heldri“
konur úr sama hópi hafið getað
nurlað saman á þennan hátt und-
an farið?
4. Voru samskotapeningar fá-
tækra alþýði^arna í barnaskóla
Reykjevíkur meðal þeirra pen-
inga, er þér fenguð lánaða og
keyptuð húsið yðar fyrir?
Þér svarið auðvitað, ungfrú!
þó eð spumingin komi frá
fátcekri aiþýðukonu.