Tíminn - 19.11.1949, Side 6
6
TÍMINN, laugardaginn 19. nóvember 1949
256. blaS
TJARNARBÍD
Erfiðleikar
eig'inmannsins
(Her husbands affairs)
Sprenghlægileg, ný, amerisk |
Z
gamanmynd. Aðalhlutverk: |
Lucille Ball
Franchot Tone
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
Sfela hefst kl. 1 e. h. i dag, en
kl. 11 f. h. á sunnudag.
- *' v> r s i
N Y J A B I □
1 swlskini
Hrífandi fögur og skemmtileg,
J)ýzk söngvamynd frá Vínarborg.
Aðalhlutverkið leikur og syngur
hinn heimsfrægi pólski tenór-
söngvari í
JAN KIEPURA
ásamt Friedl Czepa og Luli v.
Hohenberg. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Skopmyndasyrpa
5 skopmyndir leiknar af fræg-
um amerískum grínleikurum.
Sýnd kl. 3.
Sala hefst kl. 11 f. h.
Hafnarfjarðarbíó
!
Sagan af Amber |
Stórmynd í eðlilegum litum eft- |
ir samnefndri metsölubók, sem |
komið hefir út I íslenzkri þýð- |
ingu.
Linda Darnell
Cornel Wilde o. fl.
Sýnd kl. 6.30 og 9. Sími 92449. j
Síðasta sinn.
Ævisaga Breið-
flrðings
(Framhald af 3. siOu).
heimkomunnar. Jón var hátt
aður ofan 1 rúm og var m]ög
daufur í dálkinn. Nú komst
það upp, að við hefðum ver-
ið að leika okkur í bátnum,
þótt við værum búnir að lofa
að láta bátana kyrra. Feng-
um við nú nægjanlega að
kynnast klóa, og sagði ég
organdi, að ég hefði ekki bú-
izt við hegningu fyrir að
bjarga mannslífi. En alltaf
vorum við samt breyskir gagn
vart bátunum“.
Það er kunnátta í setningu
eins og þessari: „Leit hún þá
til mín og'nefndi ég það ekki
frámar“- Hér er ekki verið
að hafa fleiri orðin en með
þarf og skilst þó allt. Og er
ekki þessi litli kafli býsna
mikil heimild um uppeldi og
mótun æskumanna við Breiða
fjörð fyrir síðustu aldamót?
H Kr.
. Yankee Doodle
Dandy
Bráðskemmtileg og fjörug, am-
erisk músikmynd, er fjallar um
ævi hins þekkta revýuhöfundar
og tónskálds, George M. Cohan.
Danskur texti.
Sýnd kl. 7 og 9.
Haraldur
handfasti
GEORGE FANT
Sýnd kl. 3 og 5.
Sala hefst kl. 11 f. h.
»
Dóttir
vitavarðarins
Mikilfengleg finnsk-sænsk stór-
mynd, sem segir frá örlögum
ungrar, saklausrar stúlku og
hættum stórborgarinnar. Mynd
sem hrífur alla
Bönnuð innan 16 ára.
Danskur texti. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Smámyndasafn
Sprenghlægilegar skopmyndir,
teiknimyndir o. fl. Sýnd kl. 3,
\ Brostnar bernsku-
vonir
(The Fallen Ldol)
S
| Spennandi og vel gerð mynd
| frá London Film Productions.
| Myndin hlaut í Svíþjóð fimm
| stjörnu verðlaun, sem úrvals-
| mynd og fyrstu alþjóða verð-
| laun í Feneyjum 1948.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
I
I
X
■lumaiiMiiiMiiiiniiiiimiiinniiuiimmfc'iiiiUtotiiinnu
Utan úr heimi
Sjómaður fluttur í
helikopterflugvél.
Bjarni Stange heitir Norðmað-
ur, sem varð fyrir því slysi á skútu
einni við Ameriku, að svifhjól vél-
arinnar braut fót hans á þrem-
ur stöðum. Skipstjórinn var líka
Norðmaður, Jón Melhus að nafni.
Hann hafði samband við hjálpar-
stöð á landi og bað um helikopt-
erflugvél til hjálpar. Flugvélin
kom og sleppti manni niður á skút
una og hann gaf sjúklingnum hress
andi sprautur. Bjarni náðist þó
ekki upp í flugvélina af skútunni
vegna þess, hvað sjógangur var
mikill. Hann var því látinn I
gúmmíbát, sem flugvélin dró upp
til sín. Síðan flaug hún til sjó-
mannaspitala þess, sem næstur var
og lenti þar á grasi grónum hlað-
varpanum. Vegna þess, hvað þessi
flutningur tókst fljótt og vel, gat
Bjarni haldið fæti sínum. 'Bjarni
þessi hefir verið fiskimaður við
Ameríkustrendur i 40 ár.
Heimstmeistari hinna
kviksettu.
Eitt af því, sem menn keppa
GAMLA BÍ□
Sjólfs síns böðull
(Mine Own Executioner)
Áhrifamikil og óvenju spenn-
andi ensk kvikmynd, gerð af
London film eftir skáldsögu
Niegel Balchins.
Aðalhlutverkin leika:
Dulcie Gray
Kieron Moore
Cristine Norden
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Syndandi Venus
með Esther Williams og
Lauritz Melchior. Sýnd kl. 3.
BÆJARBÍÚ
I HAFNARFIROI
|
Saratoga
Amersk stórmynd, gerð eftir
hinni þekktu skáldsögu eftir
Edne Ferber, sem komið hefir út
í íslenzkri þýðingu. Aðalhlutv.:
Ingrid Bergman
Cary Cooper
Sýnd kl. 6 og 9. — Sími 9184.
iiiiiiimnm
TRIPDLI-BÍD
Gættu konuiinar
(Pas paa din Kone)
Bráðskemmtileg, sænsk gaman-
mynd um hjónaband, sem fer
nokkuð mikið út i öfgar.
Sýnd kl. 9.
Fréttasnápar
(News Hounds)
Sprenghlægileg og bráðskemmti
leg, ný, amerísk gamanmynd.
Sýnd kl. 5 og 7.
Sala hefst kl. 11 f. h.
Sími 1182.
um heimsmeistaratitll í, er að láta
kviksetja sig og hafast svo við í
kistu sinni niðri i jörðinni. Sam-
kvæmt Reutersfrétt er nýlega stað
íest nýtt met i þessari grein í
Ohio og er 44 sólarhringar, 23 klst.
og 20 mínútur, og heitir sá Ray-
mond Emmert, sem það á..
Þetta er þó vitanlega engin
regluleg kviksetning, þvi að loft-
ípa er höfð upp úr gröfinni og
gegnum hana var Emmert þessí
mataðiu1 á algengum mat og rauð-
víni. En hann var líka við góða
heilsu, þegar hann reis upp úr
gröfinni eftir hálfan annan mán-
uð og gekk undir læknisskoðun.
Eldurinn
gerlr ekkl boS á undan «érl
Þelr, iim eru hyggnlr,
tryggja «traz hjá
Samvinnutryggingum
AuylijAil í TwaHuftt
58. dagut
Gunnar Widegren:
Greiöist viö mánaðamót
— Já, segir Stella, þegar hún hefir lesið frásögnina.
Þegar maður á kunningja, sem sloppið hafa heilir á
húfi frá svbna slysi, er maður auðvitað glaður. En þeim
mun fremur getur maður skilið, hvemig þeim er innan
brjósts, sem vita ástvini sína milli heims og helju. |
— Kunningja? segir Langa-Berta, þar sem hún sit-
ur við ritvél sína. Jæja — svo griffillinn sá er þá ekki
orðinn annað né meira en kunningi sumra....
— Segðú mér — hún tengdamóðir þín tilvonandi á
líklega ekki rafmagnstól í búðinni sinni? segir Ljúfa
við Murruna. Við hefðum eiginlega fulla þörf fyrir
þess háttar verkfæri hérna í stofnunni, virðist mér!
— Oft hefir verið þörf, en nú er nauðsyn. segir
/ •
Dúfa, þung á brún.
Stella þegir. Hugur hennar er víðast fjarri. Hún er
því harla fegin, að Herbert skyldi sleppa ómeiddur, 1
og hún er líka hreykin yfir því, að hann skyldi ganga
vasklega fram. Þannig vildi hún einmitt, að hann
væri. En hún getur ekki annað en hugsað til móður
Eiríks Hedmanns — mannsins, sem öll þjóðin hlaut
að tala um. Móðir hans getur verið hreykin. En lík-
lega er óttinn og kvíðinn yfirsterkari öllum slíkum
kenndum. Líf hans og framtíð getur verið í veði.
Stellu vöknar um augu — bæði af gleði yfir giftu !
Herberts og meðaumkun með móður Eiríks.
Á heimleiðrnni fer Stella inn í blómabúð. Hún xerð-
ur að gera það. Hún velur fáein falleg blóm, og á spjald
ið, sem fylgir þeim, skrifar hún:
Kveðja til móður Eiríks Hedmanns frá stúlkunni úr
sporvagninum. Verum vongóðar.
Sjálf veit hún ekki, hvers vegna hún skrifar þessi
síðustu orð. Þau drjúpa ósjálfrátt úr penna hennar,
og þarna verða þau að standa. Hana langaði líka til
þess að skrifa móður Herberts bréf, en hún þykist
vita, að hún muni telja það óþarfa afskiptasemi og
framhleypni. Og slíkan dóm kærir hún sig ekki um.
Hún verður að láta sér nægja að skrifa Herbert
sjálfum fáeinar línur og óska honum til hamingju,
bæði með það að hafa sloppið óskaddaður, og eins þau
fallegu orð, sem blöðin hafa látið falla um hann. Og
svo lofar hún honum lengra bréfi síðar, ásamt frétt-
um frá B. F., kær kveðja og svo framvegis.
Stella ákveður, að það bréf skul hún skrifa eitthvert
næstu kvölda.
ÁTJÁNDI KAFLI
Síminn hringir á þriðjudagsmorguninn, þegar
Stella er L baði. Það er málarinn — hress og spaug-
samur, eins og hans er vandi, um hvaða leyti sólar-
hringsins sem er.
— jSg á egg og smjör og reykt flesk og hænsnakjöt
og annað smávegis, sem ég ætla þér. Má ég koma í
bíl og skilja körfuna eftir hjá þér?
— Þakka þér fyrir. Ég á auðvitað ekki að fá þetta
ein, Kalli, segir Stella. Þú verður að skipta þessu á
milli okkar Bertu.
— En þettarrer nú frá systur minni — gömlu vin-
konu þinni —, og ég átti að skila kærri kveðju. Hún
hafði gaman að sögunni, skaltu vita....
— Kalli, seglr Stella i bænarrómi. Þú er alltaf svo
tilhliðrunarsamur og gerir allt, sem ég bið þig....
— En alltaf eru þó takmörkin einhvers staðar....
— Hlustaðu nú á mig og talaðu ekki svona mikið
sjálfur, því að tíminn er naumur, segir Stella. Og ég
var í baði og stend hér hríðskjálfandi. Nú verður þú
svo vænn að hringja til Bertu og segja henni, að þú
sért kominn til Stokkhólms. ... Jú — þú gerir það,
Kalli. Seinna skal ég segja þér, hvers vegna ég bið
þig um þetta. Ög segðu henni, hvað þú ert með, og
að við eigum. að skipta því á milli okkar, þegar við
hittumst. Þá,..gerir eíns og ég bið þig, og þú skalt
seinna komast--að raun um, að þú hefir ekki gort það
til einskis. LWáðu mér þessu. Og þakka þér svo fyrir
alla hugulséímÍFia.
Hún leggu'F’ffá sér símatólið, og flýtir sér í fötin,
því að hún er orðin sein fyrir. Hún sönglar glaðlega.
.‘i7 '
Það reið á,,áð. Juota endurkomu málarans til þess að